Þjóðviljinn - 03.04.1973, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.04.1973, Blaðsíða 11
Þriftjudagur 3. april 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Ólafur Friöriksson skorar fyrra mark UBK. Ingi Þ. Yngvason. „Þetta kom mér þægilega á óvart” sagði Ingi Þ. Yngvarson er sigraði óvænt i 1. þyngdarflokki í landsflokkaglimunni — Jú, þetta kom mér þægi- lega á óvart, sagöi Þingey- ingurinn ungi Ingi Þ. Yngva- son, er viö hittum hann aö máli eftir aö iandsflokkaglim- unni lauká sunnudagskvöldiö. — Ég hef aö visu æft mig nokkuð vel fyrir þessa keppni. Ég hef tvivegis dvaliö i Reykjavík i vetur viö æfingar hjá Vikverja og svo kom Sigurður Jónsson noröur til okkar og þjálfaöi okkur um tima, en sigurinn kom mér eigi aö siður á óvart. — Æfiö þiö vei fyrr noröan? — Þaö hefur alltaf veriö mikill áhugi á glimu I Þing- eyjarsýslunni, en það sem hefur háö okkur í vetur er hve fáir hafa stundaö æfingar, færri en oftast áöur. Annars er áhuginn þaö mikill aö glima er kennd i barnaskólanum i Mývatnssveit og þar fékk maður áhugann. — Hefuröu i hyggju aö koma til Reykjavlkur tii aö geta stundaö betur æfingar? — Nei, ekki I bráö aö minnsta kosti, ég veit ekki hvað verður siöar. — Nú er tslandsgliman eftir, stefnir þú aö sigri þar lika? — Auövitaö stefnir maður alitaf að sigri, en ég lofa engu i þvi efni. Maður gerir alltaf sitt bezta og þaö veröur bara aö ráöast hver árangurinn verö- ur. Alla vega ætla ég aö æfa vel fram aö tslandsglimunni, sagöi þessi tvitugi sterki glimumaöur. Tvítugur Þingeyingur kom sá og sigraði landsflokkaglímunni Um þaö munu ailir vera sam- mála aö þaö skemmtilegasta á iþróttamótum sé þegar ungt fólk, iitteöa óþekkt, kemur allt i einu fram i dagsljósiö og sigrar öllum á óvart. Einmitt þetta gerðist i landsflokkaglimunni á sunnudagskvöldiö. Ungur Þing- eyingur Ingi Þ. Ingvason sigraöi i 1. þyngdarflokki, hlaut 2 1/2 vinning og voru þó ekki minni glimumenn meöal keppenda en þeir Siguröur Jónsson og Jón Unndórsson. Ingi er aö visu ekki alveg óþekktur sem glimumaöur en hann hefur ekki náö toppnum fyrr en nú. Ingi sigraði þá báöa Jón og Sigurö en gerði jafntefli viö tviburabróöur sinn og tvífara Pétur Yngvason, sem hefur vakiö á sér verö- veröskuidaöa ath. I vetur. Pétur keppir fyrir Vikverja en Ingi dvelur heima á Skútustööum í Mývatnssveit. I 2. sæti varö Jón Unndórsson meö 1 1/2 vinning en Sigurður 3. með 1 plús 1 vinn- ing og Pétur fjóröi meö 1 plús 0 vinning. Fleiri kepptu ekki i 1. þyngdarflokki. t 2. þyngdarflokki sigraði Gunnar Ingvarsson, hlaut 3 1/2 vinning, annar varö Ómar Ulfarsson KR með 3 vinninga og þriöji varö Hjáimur Sigurösson, hiaut 2 1/2 vinning. t 3. þyngdarflokki sigraði Guðmundur F. Halldórsson Armanni, hlaut 3 vinninga, annar varö Rögnvaldur Ólafsson, hlaut 2 vinninga, og þriöji Þorvaidur Aöalsteinsson UtA meö 1 vinning. t unglingaflokki sigraöi Guö- mundur Einarsson Vikverja, hlaut 2 1/2 vinning, 2. varð Hall- dór Kornráösson Vikverja, hlaut 2 vinninga, og þriöji varö Óskar Valdimarsson Víkverja, hlaut 1 vinning. Haukur Valtýsson HSÞ sigr- aöi i drengjaflokki 16 til 17 ára, fékk 10 1/2 + 1 vinning, annar varö Þóroddur Helgason CtA meö 10 1/2 plús 0 vinning og 3ji varð Eyþór Pétursson HSÞ hlaut 10 vinninga. Mainó M. Marinósson UtA sigraöi i sveinaflokki, hlaut 1 vinning, en AuÖunn Gunnarsson hlaut engan vinning enda kepptu þeir aöeins 2 i þessum flokki. Skagamenn á skotskónum Sigruðu Breiðablik 3:2 í sæmilegum leik Svo virðist sem lið Akurnesinga sé sem óðast að komast í æfingu ef marka má af leik liðsins í Kópavogi á laugardaginn þar sem það sigraði Breiðablik 3:2 í Litlu bikarkeppninni. Leikur- inn var all-vel leikinn þrátt fyrir afar slæmar aðstæður, þungan og ósléttan völl, eins og allir malarvellirnir eru á þess- um tima. Þrátt fyrir mik- Framhald á bls. 15. Létt hiá ÍBK Hiö geysisterka liö tBK átti ekki í neinum erfiðieikum með tBH (Hauka)á laugardaginn er liöin mættust I Litlu bikar- keppninni I Keflavik. tBK sigr- aöi 4:0, en mörkin skoruöu Steinar 2, Grétar og Karl Her- mannsson sitt markiö hvor. t leikhléi var staöan 1:0. Eftir tækifærum aö dæma hefði IBK getað unnið mun stærra, með tveggja stafa tölu sögðu sumir, en þeir vildu kalla leikinn „leik hinna glötuðu marktækifæra ” . Eigi að sfður börðust Hauk- arnir vel og gáfust aldrei upp þrátt fyrir ofurefiiö og búast menn við ntiklu af liðinu i 2. deild i sumar. Gunnar Ingvarsson sigurvegari i 2. þyngdarflokki. Þór vinnur enn Akurey rarliðin bór og KA léku 2,- deildarkeppninni á sunnu- daginn og svo fóru leikar að Þór sigraði 20:17 en marg- ir höfðu búizt við að KA myndi taka stig af Þór i þessum leik. Þar með er Þór aðeins feti frá 1. deild, fyrst allra liða utan Stór-Reykjavíkursvæðisins. Aðeins sigur yfir Gróttu á heimavelli og Þór er uppi i 1. deild. Or þvi fæst skorið á laugar- daginn kemur, hvort Þór eða Grótta fer upp eða hvort auka- leik þarf um 1,- deildarsætið, en til að fá úr þvi skorið þarf að biða til sunnudags, þegar Grótta og KA leika á Akureyri. Grótta sigraði Grótta og Þróttur léku i 2.- dcildarkeppninni i handknatt- leik um helgina og sigraöi Grótta 18:15 og stefnir þvi - ákveðiö aö sigri I 2. deild. Grótta hefur aðeins tapaö einum leik i mótinu og það hefur Þór frá Akureyri cinnig gert, þannig aö leikur þessara liða um næstu helgi á Akureyri veröur hreinn úrslitaieikur 12. deild. Vinni Þór er liöiö komiö I 1. dcild, en vinni Grótta þarf hún einnig að vinna KA daginn eftir, cn tapi Grótta fyrir KA en vinni Þór þurfa Grótta og Þór aö leika sér- stakan aukaleik um hvort liöið færist upp i 1. deild. 6 Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.