Þjóðviljinn - 12.11.1974, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 12. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
ÞINGAÐ UM INNIHALD MATVÆLA
Ekkert eftirlit með fisk-
meti á innanlandsmarkaði
Nú stendur yfir ráð-
stefna um matvælaeftir-
lit á fslandi. Ráðstefnan
hófst í gærmorgun og
henni lýkur síðdegis í
dag.
Fjöldi manna heldur
erindi á ráðstefnunni, og
ráðstefnugestir eru lík-
lega hátt í 100 talsins.
Fyrirlestrar fjalla m.a. um
fræöslu á sviði matvæla- og
næringarfræði i islenskum skól-
um, matvælarannsóknir sem
efnafræðistofa Raunvisinda-
stofnunar stendur fyrir, og fjall-
aði Jón Ottar Ragnarsson,
lektor um það efni i gær.
t erindi Jóns Ottars kom m.a.
fram, að enginn framleiðandi
kjötiðnaöarvara á tslandi,
nema SIS, gefur upplýsingar
um innihald kjötvara frá sér.
Dr. Björn Dagbjartsson, for-
stjóri Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins hélt i gær erindi
um efnarannsóknir á fiski og
fiskafurðum, og kom fram hjá
honum, að ekkert gæðaeftirlit
fer fram á þeim fiski sem seldur
er til neyslu innanlands. Fiskur
sem seldur er úr landi er undir
eftirliti, enda er þess krafist af
þeim erlendu aðilum sem kaupa
hér fisk og fiskafurðir. Hinsveg-
ar er ekki fylgst með þvi hvern-
ig sá fiskur er, sem innanlands
er seldur. „Það hefur ekki þótt
ástæða til aö rannsaka soðning-
una.” sagði Björn Dagbjarts-
son, en hann benti jafnframt á,
að saltfiskur og freðfiskur, sem
seldur er á innlendum markaði,
er tekinn af þvi magni, sem
skoðað er með ti^liti til útflutn-
ings.
Eftirlit með
niðursuðuvörum
1 dag eru á dagskrá ráðstefn-
unnar m.a. erindi Olav Chr.
Sundsvold frá Stavanger, og
ræðir hann um rannsóknir og
eftirlit með niðursuðuvörum.
Pétur Sigurjónsson, forstjóri
Rannsóknarstofnunar iðnaðar-
ins fjallar um efnarannsóknir á
matvælum, Almar Grimsson
um lyfjaeftirlit hér á landi, Þór-
hallur Halldórsson um eftirlit
með matvælum og hreinlæti i
matvælaverksmiðjum i Reykja-
vik og Baldur Johnsen, for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits
rikisins ræðir um skipulagningu
matvælaeftirlits á Islandi.
—GG
Annir hjá Landhelgisgœslunni
Nokkur umsvif voru við land-
heigisgæslu við ströndina nú um
helgina. Var einn Islenskur fiski-
bátur tekinn að ólöglegum veið-
um innan landhelginnar: klippt
aftan úr einum v-þýskum land-
helgisbrjót og nokkrir reknir út
fyrir 50 milnamörkin.
Klukkan 12:30 á laugardaginn
stóð flugvél landhelgisgæslunnar
togbátinn Blátind SK-88 að ólög-
Banaslys á
Reykjanes-
braut
Um ellefuleytið á laugar-
dagskvöldið varð banaslys á
Reykjanesbraut rétt við af-
leggjarann til Innri-Njarövík-
ur. Lét þar lifið Haraldur Sæ-
mundsson, 45 ára að aldri, frá
Kletti, Gufudalssveit i Barða-
strandasýslu.
Slysið varð með þeim hætti
að Haraldur ók bil sinum suð-
ur Reykjanesbrautina. Mikil
hálka var á veginum og er
hann mætti jeppabifreiö skipti
engum togum að bilarnir rák-
ust saman. Bill Haralds hent-
ist út af veginum þar sem
kviknaði ihonum. Hurð bilsins
festist og komst hann þvi ekki
út.
Farþegi i jeppabifreiðinni
skarst nokkuð i andliti og
ökumaður hennar brenndist
litillega er hann reyndi að
bjarga Haraldi út úr bilnum.
Bilarnir eru báðir taldir gjör-
ónýtir.
Að sögn Keflavikurlögregl-
unnar var mikil hálka á
Reykjanesbrautinni á laugar-
dag og fram á sunnudag en
hana hafði tekið upp að mestu
Igær. —Þi:
legum dragnótarveiðum suöur af
Drangey, um tvær sjómilur innan
leyfilegra marka. Málið var strax
tekið fyrir á Sauðárkróki, og ját-
aði skipstjórinn brot sitt.
Á laugardaginn kvartaði mb.
Pétur Jónsson KO-50 undan þvi að
þýski togarinn BX-737, Mellum,
hefði togað yfir og skemmt fyrir
sér netatrossur skammt frá Eld-
eyjarboða. Veiöarfæri bátsins
voru ekki merkt meö ljósum.
Aðrir v-þýskir togarar voru einn-
ig i grennd við Pétur Jónsson.
Rétt eftir miönætti laugardags-
ins kom varðskipið að togaranum
BX-680, Dusseldorf um 20 sjómil-
ur fyrir innan fiskveiðimörkin hjá
Eldeyjarboða og skar vörpuna
aftan úr honum, og rak annan v-
þýskan landhelgisbrjót, sem þar
var að veiðum skammt frá, út
fyrir mörkin.
A mánudagsmorguninn rak
varöskip fjóra v-þýska veiðiþjófa
út fyrir 50 mllurnar, og tvo að-
faranótt mánudagsins. Þessi skip
voru á Eldeyjarsvæðinu og út af
Selvognum. Um miðjan dag I gær
var einn togari fyrir innan mörk-
in á þessu svæöi, og hélt varðskip
i átt til hans. 9-10 togarar voru þá
að veiðum utan markanna á þess-
um sömu slóðum. —úþ
Ungir Breiðhyltingar tefla skák i nýju félagsmiðstöð sinni — Fellahelli.
FELLAHELLIR
Félagsmiðstöð formlega opnuð í Breiðholti III
A laugardaginn var Fellahellir,
félagsmiðstöð i kjallara Fella-
skóla i Breiðholti III, opnaður
formlega af borgarstjóra aö við-
stöddum allmörgum gestum.
Fellahellir hefur þó verið i notkun
að hluta til um nokkurt skeið.
Fellahellir er 1060fermetrar að
gólfflatarmáli. Hellirinn er hann-
aður af Arkitektastofunni sf.
Vegna gluggaleysis, sem er al-
gjört I hellinum, er mikil áhersla
lögð á loftræstikerfi hans.
Fellahellir skiptist i þrjár ein-
ingar, og skiptast þær I starfs-
svæði. Þar skal nefna leikjasal,
sem ætlaður er til Iþrótta og
leikja ýmis konar. Samkomurými
er miðsvæðis i hellinum, svo og
kaffiteria. I samkomusalnum
verður aðstaða til skemmtana-
halds, fundahalda og til kvik-
myndasýninga. t þriðju einingu
hellisins er gert ráð fyrir föndur-
rými og aðstöðu til handiöa. Þar
verður einnig aðstaða fyrir
fundahöld smáhópa, svo sem
stjórna félaga.
Salir Fellahellis eru skreyttir,
og sáu unglingar i hverfinu um
skreytinguna undir leiðsögn Ingi-
bergs Magnússonar.
Þegar ákveðið var nafn á fé-
lagsmiðstöö þessa, var farin sú
leið að efna til samkeppni um
nafnið með nemendum Fella-
skóla. Flestar uppástungur komu
um Fellahelli, og varð það fyrir
valinu. Til þess að finna vinnings-
hafa aö nafngiftinni var dregið úr
þeim uppástungum ,sem bárust
um nafnið, og fékk viðurkenningu
þar fyrir einn nemandi Fella-
skóla. Finnur Kristjánsson. Var
honum afhent viðurkenningin á
laugardag, bókargjöf.
Forstöðumaður Fellahellis er
ValurSteinar Þórarinsson. Fella-
hellir verður opinn virka daga frá
klukkan 13:30 til kl. 23:00, laugar-
daga frá klukkan 13:00—19:00.
Við opnunina töluðu, auk
borgarstjóra, Davið Oddsson,
borgarfulltrúi, Hinrik Bjarnason,
framkvæmdastjóri og Bergþóra
Sæmundsdóttir, formaöur Fram-
farafélags Breiðholts III. —úþ
Fannst látinn
eftir ryskingar
Tvitugur piltur, Benedikt Jóns-
son frá Stóru-Avik I Árneshreppi
á Ströndum, lést aðfaranótt föstu-
dagsins eftir átök sem urðu utan
viö skemmtistaðinn Þórskaffi hér
i borg. Ekki er vitað hvað olli
dauða hans en litlir sem engir á-
verkar fundust á likinu.
Benedikt hafði verið að
skemmta sér á Röðli sem er á
næstu götu og eftir aö balli lauk
þar gekk hann ásamt félaga sin-
um niður aö Þórskaffi. Þar lentu
þeir i slagsmálum en litið er vitað
um tildrög og gang þeirra. Þegar
ryskingunum lauk fannst
Benedikt meðvitundarlaus vestan
við tröppur hússins. Var strax
Benedikt Jónsson.
náð i sjúkrabil en pilturinn var
látinn er á slysavarðstofuna var
komið.
Lögreglan handtók þrjá pilta
sem þátt höföu tekiö i slagsmál-
unum. Tveimur þeirra var sleppt
strax á laugardagsmorguninn en
sá þriðji var úrskuröaöur I 20
daga gæsluvarðhald. Mun hann
hafa játað að hafa slegist við
Benedikt. Lögreglan hefur yfir-
heyrt fjölda manns vegna þessa
máls en linur höfðu ekki skýrst
neitt að ráði er við ræddum við
Eggert Bjarnason lögreglumann i
gær en hann hefur rannsókn
málsins meö höndum. Þá var
hann aö hefja yfirheyrslur yfir
kunningja Benedikts, þeim sem
var i för með honum.
Réttarkrufning hefur enn ekki
farið fram og er þvi ekki vitað
hver dánarorsökin var. —ÞH
Togbátur
tekinn og
skorið
aftanúr