Þjóðviljinn - 18.03.1975, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 18.03.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. marz 1975. 1. deild í körfuknattleik: ÍR íslandsmeistari sigraöi KR 91:80 og vinnur kærumálið gegn Ármanni og þar með er titillinn í höfn Það verður ÍR sem hreppir íslands- meistaratitilinn i körfu- knattleik i ár. Á sunnu- daginn sigraði ÍR KR 91:80 og um svipað leyti barst til landsins úr- skurður Alþjóðakörfu- knattleikssambandsins, þar sem segir að sé skýrsla undirrituð af dómurum gildi leikurinn þótt villa i skýrslunni komi i ljós eftir á, en einmitt það kom fyrir i leik ÍR og Ármanns á dögunum og Ármann kærði leikinn. Þar með hefur ÍR unnið kæru- málið og um leið er titill- inn þess. Aðeins er eftir að fella úrskurð i kæru- málinu um að ÍR hafi unnið það. Leikur 1R og KR var allan timann ójafn. Ir-liðið hafði yfir- burði allan timann. Það komst i 18:4 i byrjun og það var meiri munur en KR-ingarnir gátu nokkru sinni unnið upp enda lék KR-liðið langt undir getu. 1 leik- hléi hafði 1R yfir 47:28 eða 19 stig, sem er mjög mikill munur hjá jafn sterkum liðum og þarna átt- ust við. Það var þvi aðeins spurning um hve stór sigur IR yrði en ekki hvort liðið myndi sigra. Lokatöl- urnar urðu svo 91:80 sigur IR. Þá benda allar lfkur til þess að HSK falli niður i 2. deild þar sem Snæfell sigraði HSK 52:49 og liðin eiga aðeins einn leik eftir hvort. HSK á eftir að leika gegn Ár- manni og verður að vinna þann leik og Snæfell að tapa fyrir IS, þá yrði aukaleikur milli liðanna Snæfell lék einnig við UMFN um helgina og sigruðu njarðvik- ingarnir 70:62. Markalaust jafntefli í fyrsta leik Litlubikarkeppninnar milli Breiöabliks Fyrsti leikur Litlu bikarkeppn- innar fór fram á laugardaginn þegar Breiðablik og IBK opnuðu keppnina. Eins og við var að bú- ast, miðað við aðstæður, var þarna um heldur tilþrifalitinn leik að ræða. Honum lauk með jafn- tefli án þess að mark væri skorað. Fyrsti leikur Litlu bikarkeppn- innar fór fram á laugardaginn þegar Breiðablik og ÍBK opnuðu keppnina. Eins og við var að bú- ast, miðað við aðstæður, var Og IBK þarna um hcldur tilþrifalftinn leik að ræða. Honum lauk með jafn- tefli án þess að mark væri skorað. Allar aðstæður voru hinar verstu. Rok og rigning og völlur- inn eitt forarsvað. Við slíkar að- stæður leikur enginn knattspyrnu svo mynd verði á. Og um styrk- leika liðanna verður ekkert sagt eftir þennan leik. Keppnin heldur áfram um næstu helgi, þá leika Blikarnir á Akranesi en Keflvikingar fá IBH til sin I heimsókn. Úr leik 1R og KR á sunnudaginn. (Ljósm. Einar) Haukarnir áfram í bikarnum Haukarnir tryggðu sér sæti i undanúrslitum bikarkeppni HSt um siðustu helgi er þeir sigruðu KA frá Akureyri 23:16. Þar með eru það Haukar, Leiknir og Fram sem hafa tryggt sér sæti I undan- úrslitum en FH og Valur eiga eftir að útkljá það hvort þeirra tekur þátt I undanúrslitunum. Leikur FH og Vals fer fram I Laugardalshöllinni I næstu viku, sennilega á mánu- daginn. Ekki er enn búið að raða undanúrslitaleikjunum niður, þannig að sennilega verður bikarkeppninni ekki lokið fyrr en undir miöjan april. Um pákana verður tæp- lega leikið I bikarnum, þar sem þá veröa hér erlend lið i heimsókn. Stefání landsliðshópinn Birgir Björnsson landsliðs- einvaldur og þjálfari hefur orðið að láta undan þrýstingi fjölmiðla og almennings og hefur nú valið Stefán Gunnarsson úr Val I landsliös- hópinn sem landsliðið gegn dönum um næstu helgi verður valið úr. Hvort Stefán verður svo i liðinu er önnur saga. Þá hefur Viggó Sigurðsson einnig verið valinn i hópinn og að vonum, þar sem hann hefur staðið sig frábærilega vel I síð- ustu leikjum sinum með Vik- ingi. Þeir fóru báðir með landsliöinu til Akureyrar um siðustu helgi, en þar iék lands- liðiö æfingaleiki við KA og Þór og vann báða leikina. Það er sem sagt um næstu helgi sem islendingar og danir leika hér á landi tvo landsleiki I handknattleik. Danir sigruðu islendinga sem kunnugt er ineð 2ja marka mun á NM á dögunum og var það mál manna sem sáu leikinn að sjaldan hefði jafn slakt danskt lið sigrað okkar menn og það sem þá sigraði okkur. Nú er sem sagt möguleiki á að hefna ófaranna og það tvisvar frek- ar en einu sinni. Laugavatnsliöin töpuðu bæði í blakmótinu Tveir leikir fóru fram I lokakcppni mcistaramótsins i blaki um helgina. Bæði Laugavatnsliðin UMFB og UMFL töpuðu sinum leikjum. UMFB tapaði fyrir Vikingi 0:3 en UMFL tapaöi fyrir Þrótti 1:3. Það er þvl allt útlit fyrir það að Reykjavlkurliðin 1S, Víkingur og Þróttur berjist til úrslita.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.