Þjóðviljinn - 10.09.1975, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.09.1975, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 10. september 1975. De Valera heldur ræöu I Dublin 1925. De Valera á siöari árum. „Ef mig langar til að vita hvað irar vilja, þá lit ég inn i mitt eigið hjarta”. Þetta mun vera einn þekktasti orðskviður Eamons de Valera, hins aldna irska stjórnmála- manns, sem andaðist i Dublin fyrir skömmu, 92 ára gamall, eft- ir að hafa verið forseti landsins i fjórtán ár, og voru það orð að sönnu, þvi sjaldgæft er að nokkur leiðtogi hafi borið á herðum sér i jafnrikum mæli sjálfstæðishug- sjón þjóðar sinnar. Að þessu leyti mætti likja honum við ýmsa leið- toga þriðja heimsins, og sú sam- liking er reyndar ekki fjarri lagi, þvi að vissulega var Irland „van- þróuð” nýlenda i byrjun þessarar aldar. Stundum er sagt að irska þjóðin hafi verið fyrsta þjóðin sem sleit sig lausa úr heimsveldi á 20. öld og markað þá leið sem aðrir fylgdu siðar. En uppreisn ira hefur þó sina sérstöðu i sög- unni, og ferill De Valera er gott dæmi um allar þær mótsagnir og erfiðleika sem irar hafa átt við að striða og örlög irsku þjóðarinnar á siðustu öld og þessari. Upphaflega var þessi mikli leiðtogi ira bandariskur ríkis- borgari: hann fæddist i New York 12. október 1882 og var þá skíröur Edward, en rómanskt ættarnafn sitt fékk hann frá föður sfnum, sem var spánskur listamaður. Catherine Coll, móðir hans, var hins vegar irsk. Hún var i hópi þeirra miljón ira, sem flosnuðu upp á áratugunum eftir hungurs- neyðina miklu 1840 og urðu að leita sér hælis i Bandarikjunum. Vist er að þessi hungursneyð, sem er eitt versta áfall sem Irland hefur nokkurn tima orðið fyrir (um 250 000 manns dóu og heilar sveitir fóru i auön), var afleiðing Eamon de Valera af efnahagsstefnu englendinga i málum Irlands, og gerðu eng- lendingar litið til að milda afleið- ingar hennar. Jafnvel er sagt að þeir hafi hindrað aðflutning mat- væla og enskt blað skrifaði: „Bráöum verða ekki fleiri irar eftir á bökkum Shannon en indiánar á bökkum Potomac”. Andúð gegn englendingum var einkum sterk meðal ira sem urðu að flytja til Ameriku og stóðu þeir að baki ýmsum andófshreyfing- um. En það varð þó ekki hlutskipti De Valera að verða bandarfskur iri og mótast af hugsunarhætti þeirra, þótt uppruni hans ætti sið- ar eftir að hafa óvænt áhrif á feril hans. Þegar hann var tveggja ára, dó faðir hans og þá sendi móðir hans hann til fjölskyldu sinnar.en það voru fátækir bænd- ur skammt frá Limerick. Edward de Valera, sem fijót- lega var kallaður Eamon upp á gelisku, ólst nú upp i irsku um- hverfi, og strangri kaþólskri trú. Hann sýndi mikla námshæfileika, einkum á sviði stærðfræði, og komst i skóla sem kaþólska kirkj- anrak, fyrst i Cork, siðar i Black- rock I úthverf i Dublin og loks i há- skóla írlands. Eftir það var hann stærðfræði- Hermenn úr IRA ganga fyrir Eamon de Valera (yst tll vinstri á pallinum) um 1921. höfundur Irlands nútímans kennari um stund, en hann fór að hafa mikinn áhuga á endurvakn- ingu geliskrar tungu. Arið 1910 kvæntist hann stúlku sem var nemandi i gelfsku og fór þá að læra málið á kerfisbundinn hátt uns þaö var orðið honum jafn tamt og móðurmálið. Um leið fór hann aö taka þátt I frelsisbaráttu ira og árið 1913 gekk hann i flokk- inn „The Irish Volunteers”. Fá- um árum siðar, 1916, stóð flokk- urinn aö hinni svonefndu „páska- uppreisn” gegn englendingum. De Valera var mjög framarlega i flókkiog meðal þeirra sem siðast gáfust upp. Eins og allir for- sprakkar uppreisnarinnar var hann dæmdur til dauöa. Fljótlega eftir uppreisnina skutu englendingar sextán irska þjóðernissinna fyrir þátttöku i henni. Svo vildi þó til að De Val- era slapp, og mun það einkupi hafa verið bandariskum uppruna sinum að þakka. Dómi hans var þá breytt i ævilangt fangelsi, og þannig var einnig farið með aðra uppreisnarmenn sem ekki höfðu verið teknir af lifi strax i upphafi. Ari siðar fengu uppreisnarmenn siðan sakaruppgjöf, og var De Valera þá látinn laus. Þessi sakaruppgjöf stafaði þó ekki af þvi að englendingar hefðu raunverulega breytt um stefnu i málum Irlands. Það litur nefni- lega út fyrir að englendingar hafi veriö staðráðnir i að halda Irlandi og beita til þess öllum hugsanleg- um ráðum. En það vildi svo til að framferði þeirra i páskaupp- reisninni og aftökurnar skömmu siðar mæltust ákaflega illa fyrir meðal ira i Bandarikjunum og reyndar fleiri bandari'kjamanna. Nú þurftu englendingar á stuðn- ingi bandarikjamanna að halda i styrjöldinni við þjóðverja, og þvi neyddust þeir beinlinis til þess að draga úr hörkunni i Irlandi til að eiga ekki á hættu að missa stuðn- ing þeirra. Enginn veit hvað gerst hefði við aðrar kringumstæður og er eins liklegt að til heiftarlegrar styrjaldar hefði komið. De Valera var nú þjóðhetja og helsti forystumaður irska þjóð- ernissinnaflokksins Sinn Fein. Hann var kosinn á þing, en eins og aðrir þingmenn flokksins neitaði hann að taka sæti á breska þing- inu. Strax árið 1918 var hann hand- tekinn á nýjan leik og var honum þá gefið að sök „samsæri; þágu Þýskalands”, en eftir skamma fangelsisvist tókst honum aö flýja úr fangelsi á ævintýralegan hátt. Félagar hans útnefndu hann þá „forseta irska lýðveldisins” sem enn var ekki til: Hann tók þá þann kostinn aö fara til Bandarikjanna og reka þar áróður fyrir málstað Ira, þvi að hann vissi að það var sterkasta vopniö gegn bresku stjórninni. Á jóladag 1920 sneri hann aftur heim til trlands, og höfðu dagblöð, sem fylgdu mál- stað englendinga, þau orð um hann, að hann væri „svikari og morðingi”. Nú hófst mikill skæruhernaður gegn englendingum á Irlandi og áttust þar viö hin illræmda enska lögregla „Black and Tan” og neð- anjarðarhreyfingin IRA, sem var undirstjórn Sinn Fein. Framferði englendinga vakti mikla reiði i Evrópu og Bandarikjunum, ekki sistvegna þess að Versalafundur- inn var þá nýbúinn að staðfesta regluna um sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Þann 11. júli 1921 bauð Lloyd George, sem þá var forsætisráð- herra Englands, De Valera til viðræðna. Kom hann fram meö á- ætlun um skiptingu trlands i tvo hluta, kaþólskt riki sem yrði sjálfstætt, og riki mótmælenda á Norður-trlandi. En þegar De Val- era frétti hvað til stóð, neitaði hann að taka þátt i umræðunum, þvi að hann vildi ekki ræða skipt- ingu trlands. Skæruhernaðurinn hélt áfram, en 10. október þetta sama ár féllust ýmsir af forystu- mönnum ira á þessa tillögu. Þetta leiddi siðan til þess að Ir- landi var skipt I tvennt, i irskt lýðveldi og hiö svokailaða Norð- ur-Irland eða Ulster (sem þó er rangnefni,þvi að mótmælendarik- ið nær ekki til alls hins forna „Ulaðstirs”). Hin fáránlegu landamæri Norður-trlands sem klippa írska lýöveldið svo til i tvennt á einum stað, svo að ekki er nema örmjór gangur milli Donegals og annarra héraða lýð- veldisins, stafa af þvi aö það voru mótmælendur á Norður-lrlandi, sem réðu þeim, og stefndu þeir aö þvi að fá sem stærst land en þó þannig að þeir yrðu sjálfir i tryggum meirihluta. Þetta var erfitt, þvi að byggð mótmælenda er hvergi samfelld nema um- hverfis Belfast. De Valera vildi alls ekki una þessari skipun mála, og hófst nú einhver ömurlegasti kafli sögu ír- lands á siðustu timum: borgara- styrjöldin milli fylgismanna og andstæðinga skiptingarinnar. De Valera var forsprakki þeirra sem börðust gegn skiptingunni, og sat hann um stund i fangelsi. En árið 1923 urðu þáttaskil i baráttu hans: hann sá að frekari blóðsút- hellingar stoðuðu ekki, og hann fyrirskipaði þeim IRA-sveitum, sem voru undir hans stjórn að leggja niður vopn. Arið 1928 stofn- aði hann svo nýjan stjórnmála- flokk, „Fianna Fail” eða „her- sveit örlaganna”, sem átti að berjast fyrir sömu markmiðum og IRA en á lýðræðislegan hátt. Fáum árum siðar, árið 1932, fékk þessi flokkur meirihluta á irska þinginu, og De Valera varð forsætisráðherra. Eftir það for- dæmdi hann jafnan „hryðju- verkastarfsemi” þeirra sem vildu sameina trland með vopna- valdi — þótt hann væri sjálfur gamall „hryðjuverkamaður” — og beitti neðanjarðarhreyfinguna IRA hörðu. Astæðan fyrir þessari stefnubreytingu mun vera sú, aö De Valera sá þegar hér var komið sögu, að englendingar, sem höfðu neyðst til að sleppa meginhluta trlands vegna sérstakra sögu- legra aðstæðna, voru staðráðnir i að láta ekki frekar undan og halda þvi sem eftir væri af „eyj- unni grænu”. Nú er erfitt að verj- ast þeirri hugsun, að það hefði sparað miklar hörmungar ef tr- land hefði fengið sjálfstæði i heild á þessum tima. De Valera og fylgismenn hans sáu jafnan til þess að mótmælendur nytu fyllstu jafnréttinda í irska lýðveldinu, og gengust fyrir þvi að mótmælandi var kosinn forseti árið 1938, en kaþólskir menn hafa jafnan verið réttindalitlir og grátt leiknir á Noröur-lrlandi. Eftir að De Valera var orðinn forsætisráðherra stefndi hann að þvi að afmá öll merki um yfirráö englendinga f írlandi, þótt landið væri i orði kveðnu hluti breska samveldisins. Arið 1937 gekkst hann fyrir samningu nýrrar stjórnarskrár, þar sem gert var tilkall til yfirráða yfir öllu tr- landi. Englendingar svöruöu þessum aðgerðum með viðskipta- striði, og svaraði De Valera þvi með þvl að reyna að efla irskan landbúnað. Þótt hann væri sjálfur bindindismaður gekk hann svo langt að hvetja ira til að drekka hefðbundna irska drykki, og ekki sist bjór, fremur en bannsett te- ið... En smám saman lagaöist sambúð ira og englendinga. Þegar seinni heimsstyrjöldin skall á, beitti De Valera mestu hörku til að halda trlandi alger- lega utan styrjaldarinnar, því að hann vissi að minnstu mistök á þessu sviði gætu kostað ira ný- fengið sjálfstæði. Hann barði nið- ur þá menn sem vildu að irar gengu I lið með þjóðverjum af hatri við englendinga, og hann. skeytti þvi engu þótt hann væri sakaður um nasisma af þvi að hann vildi ekki ganga i iið meö englendingum. De Valera var forsætisráðherra lengst af frá 1932 til 1959, að und- anskildum tveim kjörtimabilum. Þannig vildi svo til að hann var i stjómarandstöðu 1949, þegar sið- ustu tengslin við breska samveld- ið voru rofin. Siðasta kosninga- sigurinn vann hann 1957, þá 75 ára gamall. Tveimur árum siðar var hann kosinn forseti landsins, og þvi embætti gegndi hann til ni- ræðisaldurs. Hann lét af embætti 1973, og var þá orðinn blindur fyr- ir löngu en heilsugóður að öðru leyti. Margir munu sjálfsagt halda þvi fram að meginstyrkur De Valera hafi verið járnvilji og stefnufesta. Sjálfur var hann strangkaþólskur og lifði fábrotnu lífi. Hann var fremur langoröur og þvi ekki snjall ræðumaöur, en samt sýndi hann mikla lipurð i venjulegri stjórnmálabaráttu. Um það verður ekki efast að hann hefur lagt allra manna mest af mörkum tilað skapa sjálfstætt tr- land nútimans, en það er þó ekki nein ástæöa til að undrast yfir þvi þótt ekki hafi enn verið leyst öll vandamál sem aldaiöng nýlendu- áþján hefur skapað. e.m.j.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.