Þjóðviljinn - 02.06.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.06.1976, Blaðsíða 1
ÞEIR SÖMDU VIÐ BRETA • 24 togarar verða dag hvern að veiðum í 6 mánuði — Um 70.000 tonn á ársgrundvelli • Svo er greinilega reiknað með framlengingu Eftir hádegið I gær skiptust utanrikisráðherrar islands og Bretlands á orðsendingum úti i Osló. Þar með hefur verið samið við breta og þeim veittur réttur til að stunda veiðar i islenskri fiskveiðilandhelgi án truflana frá islenskum varðskipum. Þessi samningur, sem ráðherr- arnir Einar Agústsson og Matt- hias Bjarnason gerðu, hefur þó samkvæmt stjómarskrá íslands ekkert gildi fyrr en Alþingi islendinga hefur samþykkt hann. Þaðerkrafa Alþýðubandaiagsins og annarra stjórnarandstöðu- flokka, að Alþingi verði kallað saman þegar til að fjalla um málið. 1 þeim samningi, sem gerður var I Osló, eru ákvæði yfirleitt með sama hætti og áður hefur verið greint frá. Gert er ráð fyrir að 24 togarar verði hér að daglegum veiðum, en alls' eru það 93 skip, sem hér fá rétt til að stunda veiðar. Heimilt veröur að veiða upp að 20 milum frá ströndinni, en á nokkrum stöðum þó aðeins upp að 30 milum. Bretar skuldbinda sig til að virða þau friðunarsvæði, sem Islendingum er ætlað að virða. Samið er til sex mánaða, þ.e. til 1. des. n.k., en um hvað þá taki við er flest óljóst. Um þetta segir svo i aðalsamningnum: „Eftir að samningurinn fellur úr gildi munu bresk skip aðeins stunda veiðar á þvi svæöi, sem greint er I hinni fclensku reglugerð frá 15. júll 1975 I samræmi við það sem samþykkt kann að verða af Is- lands hálfu.” Hér er greinilega ráð fyrir þvi gert, að bretum verði áfram veittar heimildir til veiða hér við land að 6 mánuðum liðnum. Trú- legt er að bretar telji sig nú þegar hafa tryggingar fyrir þessu, enda þótt það komi ekki fram í opinberum gögnum. Athyglisverter I þessu sambandi, að í viðtali við Einar Agústsson, utanrikisráöherra, sem flutt var i fréttatima útvarpsins I gærkvöld kom fram, að ráðherrann virtist gera ráð fyrir áframhaldandi veiðum breta hér eftir 1. des. en hann komst svo að orði: „Það sem við kann að taka eru þá gagnkvæmar fiskveiðar þeirra hjá okkur og okkar hjá þeim.” Bókun Croslands 1 fréttum ntb fréttastofunnar kemur einnig fram að I viðauka við samninginn hefur breski utanrikisráðherrann látið bóka, „að telji bretar ekki liggja fyrir viðunandi samkomulag milli rikj- anna þann 1. des. um áfram- haldandi veiöar breta eftir þann tima, þá muni breska rikisstjórn- in krefjast þess hjá Efnahags- bandalaginu að tollaþvinganir þess gagnvart islendingum verði teknar upp á ný.”Sem sagt hótun um Damoklesarsverð. 1 þessari frétt ntb. er einnig haft eftir breskum talsmönnum, að bretar muni nú þegar leggja kapp á, að Efnahagsbandalagið taki strax upp viöræður við ís- lendinga um veiöiréttindi breta og fleiri þjóða hér eftir 1. des. Þá segir einnig sama frétta- stofa, að á utanrlkisráðherra- fundi Efnahagsbandalagsins, sem haldinn var i Brussel I gær hafi aðstoðarutanrikisráðherra Vestur-Þýskalands hvatt ein- dregið til þess, að Efnahags- bandalagið hefji strax viðræður við islendinga um veiðar hér inn- an 200 milna eftir 1. des. Alþingi komi saman 1 útvarpsviðtali við Geir Hall- grimsson, forsætisráðherra i gærkvöld staðfesti hann, að skiln- ingur bresku og islensku rikis- Framhald á bls. 14. Mótmælum uppgjöf í unnu stríöi — fjölmennum á fundinn ÚTIFUNDUR Á LÆKJARTORGI KL.6 jr I DAG Guðmundur J. Guðmundsson Ingólfur Ingóifsson Alþýðusamband Islands Sjómannasamband Islands Verkamannasamband íslands Farmanna- og Fiskimannasamband Islands 1 dag klukkan 6 efnir Samstarfsnefndin til verndar íand- helginni til útifundar á Lækjartorgi um landhelgismálið i þvi skyni að mótmæla þeim samningum, sem nú hafa verið gerð- ir við breta, en Alþingi islendinga hefur þó enn ekki staðfest. Þeir aðilar, sem að samstarfsnefndinni standa og til fundarins boða eru: Alþýðusamband íslands, Sjómanna- samband íslands, Verkamannasamband Islands, Far- manna- og Fiskimannasamband Islands, Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál, Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn og Samtök frjálslyndra. Ræðumenn á fundinum verða: Guðmundur J. Guðmunds- Sigurður Guðjónsson Bjöcn Jónsson Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál A Iþýðu bandalagið Alþýðuflokkurinn Samtök frjálslyndra son, formaður Verkamannasambands Islands, Ingólfur Ingólfsson, formaður Vélstjórafélags íslands og Sigurður Guðjónsson, skipstjóri. Fundarstjóri verður Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Islands. 0 Mótmælum uppgjöf i unnu striði! • Gegn óhæfusamningum! • Fyrir islenskum sigri! • Fjölmennum á útifundinn klukkan 6 i dag!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.