Þjóðviljinn - 23.06.1976, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN
Miðvikudagur 23. júni 1976. — 41. árg. —134. tbl.
Sumarferð Alþýðu-
bandalagsins 27.júní
Hákon Guðmundsson formaður
Landverndar verður aðalræðu-
maður i Sumarferð Alþýðubanda-
lagsins á sunnudaginn kemur.
Flytur hann ræðu sína á fögrum
stað á Selhöfða i Skriðufellsskógi
i Þjórsárdal.en þar verður áð.
Nú er orðið brýnt að fólk láti
skrá sig i ferðina, en dragi það
ekki fram á seinasta dag. Yrði
það mjög til aö auðvelda allan
undirbúning.
Hákon Guðmundsson formaður
Landverndar verður ræðumaður
sumarferða Alþýðubandalagsins
á sunnudag.
Enginn meiddist
Spá Þjóðhagsstofnunar:
ALLT AÐ 320 ÞÚSUND
TONN AF ÞORSKI í ÁR
Verkfrœðingar
Reykjavikurborgar
boða:
Verk-
fall á
morgun
Verkfræðingar hjá
Reykjavikurborg hafa átt i kjara-
deilu við borgina siðan 1. janúar
sl. og hafa þegar fariö i tvö stutt
timasett verkföll, en á morgun
fimmtudag,hafa þeir boðað verk-
fall, sem er ótimasett. Og ekki
nóg með það-, að sögn þeirra sem
að byggingariðnaöinum vinna,
hafa verkfræðingar borgarinnar
farið sér afar hægt i vor og aðeins
sett út eitt hús á dag I stað 6 húsa
þegar venjuiegur vinnuhraði er á
þeim, að sögn tæknifræöings, sem
mikið þarf til þeirra að sækja.
Þessi tæknifræöingur bætti við að
útlit væri fyrir að byggingar-
iðnaðurinn i borginni stöðvaðist
siöla sumars, bara vegna „farðu
þér hægt"-vinnubragðanna, þótt
ekki kæmi til vcrkfalls.
Að sögn yfirverkfræðings
mælingadeildar borgarinnar er
það misjafnt hve mörg hús eru
Framhald á bls. 14.
Engin meiðsli urðu á mannfólki þegar þessi kranabifreið stór-
skemmdi eitt af Viölagasjóöshúsunum i Kópavogi i gær. Eins og sjá má
eru svalirnar grátt leiknar og húsfreyja þakkaði slnum sæla fyrir
rigninguna I gær, þvi annars heföi hún veriö úti á svölum i sóibaði, eftir
þvi sem hún sjálf segir. Sjá nánar á baksiðu.
Mynd-.eik.
Þjóðhagsstofnunin spáir þvi að
þorskafiinn á tslandsmiðum I ár
verði alls 290-320 þúsund tonn eða
langt umfram það sem fiskifræð-
ingar höfðu talið hæfilegt að veiða
miðaö við ástand fiskistofnanna.
1 spá sinni byggir stofnunin á
fiskveiðisamningum þeim sem
geröir hafa verið við erlend riki,
veiðum islendinga sjálfra á fyrri
hluta ársins og svo loks spá sem
miðast við að gerðar verði auknar
friðunarráðatafanir, — lægri
talan — eða aö þær verði
óbreyttar frá þvi sem nú er —
hærri talan.
I greinargerð Þjóðhags-
stofnunar segir orörétt á þessa
leiö:
,,Að undanförnu hafa orðið
míklar umræður um afleiðingar
eða um 40 þúsund tonnum umfram það
sem fiskifrœðingar töldu hámark og 90
þúsund tonnum fram yfir það sem þeir
töldu að ráðlegt vœri að veiða hér
ofveiði islenskra fiskstofna, og er
þorskstofninn einkum talinn
hætt kominn. Hafa nú þegar veriö
gerðar ýmsar friðunarráð-
stafanir, og er útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar vitaskuld þeirra
mikilvægust. Þá hafa ákvæði um
gerð og magn veiðarfæra veriö
hert, friðunarsvæðum fjölgað og
þau stækkuö. Ahrif þessara
aðgerða á árinu 1976 eru um
margt óviss, þar sem ekki hefur
verið ákveðið að draga úr þorsk
veiðum meðákvæðum um
hámarksafla eða stöðvun veiöa á
vissum timabilum. Miöað við
þorskafla islendinga á tlmabilinu
Frh. á bls. 3
ÓLAFUR JÓHANNESSON
KOMINN í BETLARAHOPINN
Fjórir ráðherrar tilbúnir að senda
„bœnaskjal” til hersins — tveir
hafa lýst sig andviga og tveir hafa
ekkert sagt ennþá
t „Dagblaðinu” I gær er það
haft eftir ólafi Jóhannessyni,
dómsmálaráðherra og for-
manni Framsóknarflokksins að
hann sjái ekkert athugavert viö
það að bandarikjamenn iáti fé
af hendi rakna til gerðar vega
og flugvalla, en sem kunnugt er
berst Gunnar Thoroddsen
með oddi og egg fyrir þvl að
rikisstjórnin sendi „bænaskjal”
til bandarikjamanna þessu við-
vlkjandi.
Þarmeðhafa fjórirráðherrar
tjáð sig samþykka þvi að betla
af hernum, tveir hafa lýst sig
andviga þvi og tveir hafa ekki
tjáð sig opinberlega um málið
cnn. Þeir sem eru samþykkir
betlinueru Ólafur .1 óhanncsson,
Halldór E. Sigurðsson, Gunnar
Thoroddsen og Matthias
Bjarnason. Þeir Geir Hall-
grimsson og Einar Agústsson
hafa lýst sig andviga betlinu, en
Matthias A. Mathiesen og Vil-
hjálmur Hjálmarsson hafa ekki
tjáð sig opinberlega ennþá. En
alla vega er Ijóst að alvarlegur
ágreiningur er kominn upp inn-
an rikisstjórnarinnar um málið.
Sa gt er að stysta bil sem til er
sé á milii ástar og haturs. Þegar
sá stóri hluti almennings, sem
skrifaði undir óskir um ævar-
andi hersetu á isiandi hjá VL
fyrir tveimur árum, var leiddur
i ailan sannleikann um tilgangs-
leysi hersins hér á landi, hvað
vörnum islands og islenskra
hagsmuna viðkemur, f þorska-
striðinu við breta á liðnum
mánuðum, snerist fyrrverandi
ást á hernum uppi hatur, sem
braust út meö þeim hætti að
hugsunin „látum helvitin borga
fyrir að fá að vera hér” varð
alls ráðandi hjá stórum hópi
fyrrverandi hernámssinna.
Gunnar Thoroddsen varð
fyrstur ráðherra til að meðtaka
þetta álit manna og bera það á
borð fyrir rikisstjórnina og þar
bersthann fyrir þessari hugsjón
sinni af oddi og egg. Það er i
sjálfu sér ekkert nýtt að þeir
sem telja sig standa tæpt i Sjálf-
stæðisflokknum taki að dansa
cftir einhverri linu, sem þeir
telja vera almenningsálit. Hitt
er athyglisverðara að innan
Framsóknarf lokksins virðist
vera komin upp harðvitug
deiia um málið. Þeir Einar
Agústsson og Þórarinn Þórar-
insson, formaður þingflokks
framsóknarmanna.hafa lýst sig
algerlega andviga betlinu og er
þetta einkar athyglisvert með
Þórarin, sem vanalega tekur
ekki afstööu fyrr en flokkslinan
liggur fyrir og dansar pent og
örugglega eftir henni. Nú hefur
Ólafur formaður hinsvegar sagt
já, eftir að Þórarinn var búinn
aö segja nei.og þá liöur Þórarni
sjálfsagt afar illa.
Þetta niðurlægingarmál allt á
sjálfsagt eftir að verða ofarlega
á baugi næstu vikur og verður
fróðlegt að sjá hvernig rlkis-
stjórnin leysir þær deilur sem
upp eru komnar innan hennar,
en það verður eflaust gert með
„fullum sigri” eins og vanalega.
—S.dór