Þjóðviljinn - 30.06.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.06.1976, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 30. júní 1976 — 41. árg. —140. tbl. Hjá klerkum og kommúnistum — Arni Bergmann skrifar um Italiuferð sina — Sjá opnu FÆIŒYINGAR FÆRA ÚT1 200MILUR %Fœrt verður út í síðasta lagi 1. janúar 1977 tÖllum samningum við erlendar þjóðir sagt upp %Fœreyskir hagsmunir einir látnir ráða en ekki settir í bland við dani eða EBE Erlendur Patursson í Færeyjum hringdi til Þjóð- viljans í gær og hafði eftir- farandi fréttir að segja: Færeyska landstjórnin ákvaö í dag að fiskveiði lögsaga Færeyja skuli færð út í 200 mílur eigi síðar en 1. janúar 1977. Einnig ákvað hún að öllum samningum við breta, v- þjóðverja, norðmenn, belga og frakka um fisk- veiðiheimildir þessum þjóðum til handa skuli sagt upp þannig að þeir verði fallnir úr gildi í síðasta lagi 1. febrúar 1977. Þessi ákvörðun land- stjórnarinnar verður lögð fyrir lögþingið í Færeyjum til umræðu er það kemur saman 29. júlí n.k. Verður þar ákveðin nánari dag- setning útfærslunnar. Það er danska stjórnin sem mun segja samning- unum við útlendingana upp en í þeim er ákvæði um sex mánaða uppsagnarfrest. Landstjórnin lagði áherslu á að í þessu máli verði gengið út frá færeyskum hagsmunum einum en þeir ekki settir í bland við hagsmuni dana og EBE. Handahóf ræður fjármögnun RARIK segir Jakob Björnsson orkumálastjóri A aðalfundi Sambands is- lenskra rafveitna (SÍR) f gær ræddi Glúmur Björnsson skrif- stofustjóri Orkustofnunar um fjármál raforkuiðnaðarins en undanfarið hefur starfað vinnu- hópur sem hefur gert athuganir á stöðu allra raforkufyrirtækja I landinu. Glúmur gerði sérstak- lega að umtaisefni hina miklu skuldabyrði raforkuiðnaðarins en mikiil hluti iána eru ýmist erlend eða vísitölubundin. Jakob Björns- son orkumálastjóri sagði að lok- inniræðu Glúms að handahóf réði Framhald á bls. 14. Stórvirk hjálpartæki eins og þetta hafa verið tekin úr notkun I Alverinu og óbreyttum fjölda starfs- manna er ætlað að taka við hlutverkum þeirra. Mynd: — gsp „Skeiðklukkumœlingar” gerðar á afkastagetu verkamanna í Alverinu! sem margoft hafa beðið um fjölgun starfsliðsins vegna gífurlegs vinnuólags og ómældrar slysahættu t skrifum Þjv. undanfarið um slysahættuna og hin tiðu vinnu- slys i kerskálum Alversins hef- ur einn þáttur orðið útundan og erhann þó síst minnstur. Vinnu- álagið á þá rúmlega 100 menn sem samtals vinna i kerskálun- um er geysilegt og þó einkum I skála númer tvö, þvi þar hafa stórvirkar hjálparvélar verið teknar úr notkun án þess að bætt hafi verið við einum einasta manni. Þessar upplýsingar fengust er gengið var með Sigurði T. Sig- urðssyni trúnaðarmanni um kerskálana I siðustu viku. Hann sagði að viðræður stæðu yfir við forráðamenn Alversins um fjölgun starfsfólks þar sem vinnuálag á hvern mann væri langt umfram það sem hægt væri að bjóða nokkrum manni. — Þeir eru svo harðir á að gjörnýta mannskapinn sem er fyrir hendi, sagði Sigurður, — að einn yfirmanna hefur upp á eigin spýtur og eigin ábyrgð gert „Skeiðklukkumælingar” á afkastagetu starfsmanna með óendanleg verkefni. Þessar mælingar hafa verið notaðar til grundvallar á viðræðufundun- um undanfarið og það verður svo sannarlega ekki sagt að þar sé um heilbrigðan mælikvarða að ræða. Það er ekki gert ráö fyrir einni einustu minútu af- lögu þrátt fyrir þá erfiðu vinnu sem þarna er unnin og við sjá- um ekki einu sinni möguleika á þvi að komast á salerni þótt brýn nauðsyn væri, ef unnið væri eftir þessum klukkumæl- ingum. Til dæmis um skyndilega aukningu vinnuálagsins nefndi Sigurður að i kerskálunum báð- um hefðu til skamms tima verið svokallaðar „kerfreyjur”, sem eru stórvirk tæki og sjá af al- gjörri sjálvirkni um súráls gjöf i kerin. 1 skála númer eitt eru Framhald á bls. 14 Islenskiun þingmömnun neitað um landvist í Bandaríkjunum Kyrrsettir í heilan sólarhring í Kanada Svava Jakobsdóttir „Það sem er stóra málið i þessu er að bandarfkjamenn geta komið hingað hver sem er án þess að fá vegabréfsáritun og valsað hér um allt án þess að við höfum nokkrar upplýs. um en opinber islensk sendi- nefnd i boði Kanadaþings fær ekki einu sinni að skipta um flugvél og fara I transit á Kennedýflugvelli án þess að setja allt I háa loft og heimtað sé af henni áritun og henni komið i alls konar vandræði. Þetta er enn eitt dæmið um það hva ð Is- lensk stjórnvöld hafa alltaf verið höll undir bandarlkin. Við látum troða á okkur en okkar réttindi á mótieru engin.” Þetta mælti Svava Jakobsdóttir alþm. þegar Þjóðviljinn hafði sam- band viðhana i gær en hún var i 5 manna sendinefnd frá Alþingi I boði Kanadaþings sem var kyrrsett i heilan sólarhring og móðguð af bandariskum emb- ættismönnum. Forsaga málsins er sú að þingmennirnir Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Ingi Tryggvason, Svava Jakobs- dóttir, Jón Armann Héðinsson og Magnús Torfi Ólafsson fóru I opinbera heimsókn til Kanada eins og áður sagði. — Við þurft- um aö gista um nótt i New York á leiöinni vestur, sagði Svava, en á heimleið aö hafa nokkra klukkutima dvöl þar bara til að skipta um flugvél. Viö fórum héðan skv. bestu manna ráðlegg ingum án vegabréfsárituna:. A Kennedyflugvelli var hins vegar farið fram á að við hypjuðum okkur hiö snar- asta til Kanada, en 'hefð- um enga viðdvöl i Banda- rikjunum af þvi að viö hefðum ekki vegabréfsáritun. Fyrir Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.