Þjóðviljinn - 23.07.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 23.07.1976, Blaðsíða 16
Rangfærslur borgarstjóra bornar til baka Þjóðvttjmn skuldar ekki ga tnage rða rgj a Id t gær skeiðar borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir tsleifur Gunnarsson, i ljósmál á siðum Dagblaðsins, og lætur þar hafa eftir sér lygi eina gegn betri vit- und sinni. Tilefni þess, að borgar- stjórinn kemur i ljósmál er það, að hann var að afsaka óreiðu- skuld sjálfstæöismanna við borgarsjóð fyrir gatnagerðar- gjöld af sjálfstæðishúsinu, sem um siðustu áramót nam 2.9 miljónum krónaogvar til ódag- settur vixill fyrir upphæðinni, hún löngu gjaldfallinn en vbc- illinn ekki settur i innheimtu, sem gert er við vixla heiðarlegs fólks, heldur geymdur ofan i skúffum hjá borgarstjóra i Austurstræti. Þegar Þorbjörn Broddason borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins, skýrði frá þessu á siðasta borgarstjórnarfundi, stóð borgarstjóri á fætur, glotti kalt og sagði eitthvað á þá leið að ekki færist Þorbirni að tala um að Sjálfstæðisflokkurinn ætti vanskilavixil, þvi Þjóð- viljinn væri lika I vanskilum við borgina. Og þá átti allt að vera i lagi og allir að þegja þvi sam- sektin var augljós! Þorbjörn svaraði borgar- stjóra þvi, að i fyrsta lagi hefði skuld Þjóðviljans á gatna- gerðargjöldum ekki verið gjald- fallin um áramót og þvi væri ekki um óreiöuskuld að ræða. I öðru lagi hefði Þjóðviljinn sam- þykkt víxil fyrir þessum gjöldum þegar þau féllu i gjald- daga, og nú væri þessi vixill greiddur. Borgarstjórinn vissi þvi vel að þvi að hann fór með lygi ein- tóma þegar hann ræddi við blaðamann Dagblaðsins og sagði frá skuld Þjóðviljans. Að sögn ólafs Jónssonar, for- manns útgáfufélags Þjóð- viljans, var á vordögum sam- þykkur vixill til 14 daga fyrir seinni hluta gatnageröargjalda og var vixillinn að upphæð 1,4 miljónir króna. Var þetta gert i ™ Birgir tsl. Gunnarsson. meðan verið var að ganga frá lóðarsamningum fyrir húsið. Vixill þessi var svo greiddur á réttum gjalddaga, 14 dögum eftir að hann hafði verið sam- þykktur, og þvi er Þjóðviljinn skuldlaus við borgina i þessu til- liti. Sjálfsagt mun endurprentun á lygi borgarstjórans birtast i Morgunblaðinu i dag, og er þvi heimilt að nota ofanskráða frá- sögn sem leiðréttingu á laugar- dagsblaðinu. —úþ. Óskar Gislason við myndir sem hann tók af Skólavörðuholti, þær efri eru teknar árið 1915, þegar Óskar var 14 ára, og þær neðri 60 árum síðar. Megum búast við vöruverðshækkun MOÐVIUINN Föstudagur 23. júli 1976. Millisvæðamótið Smysloff i efsta sæti Úrslit i 8. umferð millisvæða- mótsins i skák sem haldið er i Sviss urðu þessi: Smysioff vann Castro, Petrosjan vann Sosonko, Tal vann HUbner og jafntefli var hjá Matanovic og Lombardy, en aðrar skákir fóru i bið. 19 umferðir verða i mótinu og nú er staða efstu manna þannig eftir 8 umferðir: Smysloff 6 v., Larsen 5 1/2 og ein biðskák, Petrosjan 5 1/2, Byrne 5 og jnn- biðskák, Hubner 4 1/2 og ein bið- skák, Matanovic 4ogein biðskák. „Reykjavik liðinna daga” á Kjarvals- stöðum Óskar Gislason sýnir Ijósmyndir frá þvi fyrir aldamót Óskar Gislason opnar ljós- myndasýningu að Kjarvals- stöðum n.k. laugardag og er sýn- ingin haldin i tilefni af 50 ára af- mæli Ljósmyndarafélags Islands. Nefnist sýningin „Reykjavik lið- inna daga”, en elsta myndin á henni er frá þvi fyrir aldamót. Óskar sagði, að allar mynd- irnar væru til sölu, en flestar hafa þær ekki'sést fyrr opinberlega. Kostar hver mynd 10 þúsund krónur, en þær eru allstórar. Þana má sjá myndir af bæjar- lifinu i Reykjavik frá aldamótum, myndir úr gömlum leiksýningum, úr atvinnulifinu, af ýmsum við- buröum, þekktu fólki og fleira. Auk Óskars hafa þeir Magnús Ólafsson, Sigfús Eymundsson, Pétur Brynjólfsson, Ólafur Magnússon og fleiri tekið mynd- irnar. Elstu myndir Óskars eru frá 1915, en ári siðar hóf hann nám i ljósmyndun. Allmargar mynd- anna eru unnar eftir ljósmyndum i eigu Þjóðminjasafnsins. Þór Magnússon, þjóðminja- vörður, aðstoðaði Óskar við val flestallra ljósmyndanna, en Björn Björnsson leikmyndateiknari að stoðaöi við uppsetningu sýning- arinnar. 1 tengslum við sýn- Framhald á 14. siðu. Ljóst er, að al- menningur má búast við nokkurri og þá al- mennri vöruverðs- hækkun á næstu dögum. Ástæðan er hækkun uppskipunar- gjalda og pakkhúsleigu við höfnina. Að sögn Valtýs Hákonar- sonar, skrifstofustjóra Eim- skipafélags Islands, hækkaði uppskipunargjald um 30% og pakkhúsleiga um 20% þann 7. júli slðast liðinn. Sagði Valtýr mest af þessari hækkun stafa vegna hækkunar vinnulauna svo og vegna hækk- unar á viðlegugjöldum i höfn- inni. Si'öasta hækkun af þessu tagi var gerð fyrir rúmu ári siðan, eða 27. júni 1975, og eins og alþjóö veit hefur frá þeim tima orðið nokkur kauphækkun I krónum talin. Valtýr vissi ekki hvort vöru- gjald, sem skipafélögin inn- heimta fyrir höfnina, hefði hækkað að þessu sinni, en hafnargjöldin sagði hann að hefðu verið að hækka smátt og smátt, og fyrir dyrum mun standa að hækka leigugjald á vöruskemmum. Póstmenn mótmæla Á fundi hjá stjórn og samninga- nefnd Póstmannafélags islands (P.F. !.), sem haldinn i fyrradag var gerð eftirfarandi samþykkt: Stjórn og samninganeínd Póst- mannafélags islands mótmæla harðlega úrskurði kjaranefndar um sérsamning fjármálaráð- herra og P.F.l. Póstmenn telja aö enn hafi dregið i sundur með þeim og öðrum félögum innan B.SR.B., sem þeir áður voru i samfloti með og munu þeir ekki una þessum úr- skurði og hljóta að gripa til rót- tækra aðgeröa, ef ekki úr rætist. llækkanir á öllum þessum gjöldum eru háðar verðl. eftirl. Vegna þessara hækkana má þvi búast við almennri vöruverðs- hækkun, þvi ef að vanda lætur þurfa kaupmenn aö fá bætta fyrrgreindahækkun, en það eru þeir, sem þurfa að greiða hækkunina til skipafélaganna og allir vita hver siðan tekur á sig „auknar byrðir” kaup- mannastéttarinnar. úþ. Urskurður kjaranefndar Lögreglu- menn telja sig lilun nfania Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar Landsam- bands lögreglumanna lýsir undrun sinni og mikilli óánægju með úrskurð kjaranefndar, sem er slikur, að tæplega hefði orðið lögreglumönnum óhagstæðara að selja samninganefnd rikisins sjálfdæmi i málinu. Fyrir kjaranefnd lá rökstudd krafa um leiðréttingu á kaup- skerðingu á siðasta samnings- timabili, sem nema mun 8-10% miðað við aðra rikisstarfsmenn. Fulltrúi fjármálaráðuneytisins. hafði ekki mótmælt þessari kröfu fyrirkjaranefnd, og raunar höfðu fulltrúar rikisins viðurkennt kröf- una i samningaviðræðum.en látið að þvi liggja, að æskilegra væri að þessi leiðrétting kæmi með úr- skurði kjaranefndar. Það verður þvi ekki skiliö, hvernig dómur Framhald á bls. 14. KÆRU- FRESTUR Kærufrestur vegna álagðra gjalda er til 5. ágúst. SIS greiðir 136 miljónir Samband islenskra sam- vinnufélaga er hæsti skattgreið- andi félaga í borginni að þessu sinni og greiðir 136.760.780.00 krónur i skatta. Flugleiðir greiða 76.3 miljónir króna i skatta i ár og Eimskipa- félagið 63.1 miljón króna. 23 félög og fyrirtæki greiða meir en 15 miljónir króna i skatta. En þótt gjöld SIS séu svo áberandi hæst lendir það i 12. sæti hvað tekjuskattsgreiðslur áhrærir með 9,6 miljónir. Mestan tekjuskatt greiðir Oliufélagið (ESSÓ), 47,4 miij- ónir, en samtals greiða 44 fyrir- tæki og félög tekjuskatt yfir 4,5 miljónum króna. SIS greiðir hæst aðstöðugjald i borginni eða 71,3 milj. króna, Eimskip 37,9 miljónir og Flug- leiðir 32,8 miljónir króna, en 27 fyrirtæki greiða 5 miljónir eða þar yfir i aðstööugjald. SIS greiöir 12 miljónir I eignaskatt en aöeins 24 fyrirtæki og félög greiða meir en 1,5 miljónir I eignaskatt. -úþ. BARUM BREGST EKKI ■ Vörubíla I I hjólbaritar I IKynnið ykkur hin hagstæðu verð. ■ TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐ/Ð ■ Á /SLAND/ H/F AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.