Þjóðviljinn - 11.08.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Blaðsíða 16
DIOÐVIUINN Miðvikudagur IX. ágúst 1976 Helgi Ólafsson, skákmaður: Hefur náð helmingi alþjóða- titils Gœti náð þvi sem á vantar til að verða alþjóðlegur meistari á Reykjavikurskák mótinu. Helgi ólafsson, skákmaður og skákskrifari Þjóöviljans, náði fyrri helmingi alþjóOatitils á skákmóti, sem hann tók þátt I á dögunum i vestur i New York. Mót þetta var haldiO á vegum hins þekkta Manhattan-skák- klúbbs og aO sögn Helga var þaO af styrkleikagráöunni 8 eöa 9. Helgi hlaut 9 vinninga af 15 mögulegumoghafnaöi I 5.-7. sæti. Tvivegis þarf aö ná ákveönum lágmarksárangri á skákmótum, sem eru aö styrkleika yfir ákveönu marki, og hefur Helgi möguleika á aö ná slöari áfang- anum á Reykjavikurmótinu, sem haldiö veröur hér I þessum mánuöi. -dþ Laimamunur hefur ekki breyst síð- ustu 10 árin Milli iðnaðarmanna, verkamanna og verkakvenna Linuritiö sýnir aö launamunur iðnaöarmanna, verkamanna og verkakvenna hefur lltiö sem ekkert breyst undanfarin ár. 1 þessu yfirliti er miöaö viö „greitt tlmakaup I dagvinnu” þ.e.as. aö meötöidum svonefndum yfir- borgunum. Engin leið að spá um gos segir Páll Einarsson jarðfrœðingur — Þaö hefur ekkert þaö gerst viö Kröflu síöustu daga sem bendir til þess aö miklir at- buröir séu I þann veginn aö hefjast, sagöi Páll Einarsson jaröeöiisfræöingur er blaöið náöi tal af honum i Reynihliö i Mývatnssveit i gær. Páll er nd fyrir noröan aö kanna allar aöstæöur þar. Eins og kunnugt er af fréttum hefur land veriö aö risa i nágrenni Kröfluvirkjunar alveg siöan I mars og nemur hækk- unin þar sem hún er mest um 80 sentimetrum. — Þaö er ekkert hægt aö segja um hvort gos er i vændum. Þaö er jú ákveöin þróun I gangi sem gæti bent til þess aö svo væri en hún getur breyst. Landiö gæti hætt aö risa og jafnvel fariö aö siga aftur. Um þetta er engin leiö aö spá. — Hefur ekki veriö mikiö um jaröskjálfta fynr noröan upp á siökastiö? — JU, skjálftavirknin hefur veriö aö aukast jafnt og þétt siöan i maí og nú mælast um þaö bil 50 skjálftar á dag. En þeir eru allir litlir. — Er almannavernd ekki tekin til starfa viö Kröflu? — Jú, menn frá almanna- verndarnefnd sveitarinnar hafa veriö aö yfirfara öryggisbúnaö og einhverju stendur til ab bæta viö. 1 kvöld stendur til aö halda fræöslufund fyrir starfsmenn viö Kröflu þar sem gera á grein fyrir þvi sem er vitaö og þvl sem ekki er vitaö um horf- urnar. Einnig veröur tækifæriö notaö til aö rifja upp varuöar- reglurnar. Slikt er aldrei ofgert, ekki sist vegna þess aö hér verba tiö mannaskipti, sagöi Páll. NU munu vera um 220 manns viö vinnu I Kröfhi og er I bigerö aö reisa vamarvegg umhverfis vistarverur þeirra til varnar ef til goss kæmi. Vinna viö virkjunarframkvæmdir heldur áfram eins og ekkert hafi i skorist þótt landiö sé á hreyf- ingu undan fótum manna. —ÞH Heimsfræg grafík Aö Kjarvalsstööum hefur nú veriö opnuö sýning á grafik- myndum eftir 29 listamenn, alls 57 myndum. Sýningin er haldin á vegum félagsins Myndkynning sem hefur þann tilgang aö kynna Islenskri þjóö erlenda graflk og gerahenni kleift aö eignast graf- ikverk heimsþekktra listamanna á viöráöanlegu veröi. A sýningunni eru verk eftir ýmsa þekkta menn, innlenda og útlenda Best þekkta innlenda nafniö mun vera Guömundur Guö- mundsson, ööru nafniErró. Hann á langstærsta hlutinn I sýningunni eöa 23 mýndir. Myndin hér aö ofan er úr myndaröö eftir Erró sem hann nefnir Made in Japan. Eins og sjá má er hún skeytt saman úr hinni sérstæöu erótisku hefö japana, sem þarlend hjón nota gjarnan til aö glæöa ástarlifiö ferskari litum, og hinni vesturheimsku hasar- blaöahefö sem blómstrar utan viö þrjúbióin á höfuöborgarsvæöinu um helgar. Einnig munu vera á sýningunni eitthvaö af þeim frægu páfamyndum sem Vati- kaniö bannfæröi fyrir nokkrum árum. Sýningin veröur opin fram til 16. ágúst kl. 16-22 daglega. —ÞH Hægt að fá spærlings- troll eins og hver yill Nokkur barlómur hefur veriö i útgeröaraöilum vegna þess, aö ekki fást spærlingstroll hérlendis. Hiö rétta er hins vegar, aö Neta- geröin Ingólfur f Vestmanna- eyjum mun geta afgreitt slik troll I meösvosem lOdaga fyrirvara og kosta þau 8-900 þúsund krónur. Nokkrum aöilum, sem Uaöiö haföi samband viö i gær, þótti Framhald á 14. slöu. 56437 með miljónina Þriöjudaginn 10. ágúst var dregiö 1 8. flokki Happdrættis Háskóla Islands. Dregnir voru 9.900 vinn- ingar aö fjárhæö kr. 131.310.000-. Hæsti vinningurinn kr. ein milljón kom á nr. 56437. Allir miöarnir voru seldir I AÐALUM- BOÐINU, Tjarnargötu 4. Fimm hundruö þúsund króna vinningur kom á nr. 58234. Miöarnir voru seldir i versl. Nes- kjör, Ægissiöu 123, á Suöureyri og I Stykkishólmi. Tvö hundruö þúsund króna vinningur kom á nr. 33521. Trompmiöinn og þrlr aörir voru seldir i AÐALUMBOÐINU, Tjarnargötu 4, en einn var sddur I umboöinu á Hofsósi. 50.000 kr. 294 1094 1305 1872 1914 2423 4169 7047 8960 9028 10894 12642 13984 16996 18048 20955 21307 26536 27664 33075 33764 34074 34865 36208 39943 41958 42572 43144 43625 43848 47106 48630 48687 49905 50436 51480 53792 54719 54934 54974 55190 55796 56096 56436 56438 56473 57566 59405. (Birtánábyrgöar) AB í Kópavogi: Nokkur sæti laus! örfá sæti eru laus I sumar- ferö Alþýðubandalagsins I Kópavogi austur aö Laka- glgum. Uppiýsingar eru veitt- ar I sima 41279 eöa 40471. Lmurit 3.1 Greitt tímakaup í dagvinr.u. 1000 900 800 700 600 500 200 150 100 90 80 70 60 50 40 30 Skýrsla um viðrœðurnar í Brussel lögð fram í gœr Engar kröfur frá EBE Framkvœmdastjórin fœr samningaumboð í lok sept, I lok síðasta mánaðar fóru fram að ósk fram- kvæmdanef ndar Efna- hagsbandalagsins viðræð- ur i Brussel milli fulltrúa EBE og ísiands. Tómas Tómasson sendiherra is- lands í Brussel/ hefur skil- að skýrslu um viðræðurnar og var hún lesin upp á fundi utanríkismálanefnd- ar Alþingis í gær. Einar Ágústsson, utanrikisráö- herra, lagöi áherslu á þaö I gær, er blaöiö ræddi við hann, aö þetta heföu einungis verið könnunar- viöræöur. Engar kröfur heföu komið frá framkvæmdastjórn Efnahagsbandalagsins, enda haföi hún ekki umboð frá ráö- herranefndinni til samningaum- leitana. Fram kom að slikt umboð myndi liggja fyrir siöari hluta september og þá yröi óskaö eftir viöræöum á ný. Að sögn ráöherra var ekkert gefiö út á þaö hvort rikisstjórn Islands yröi til viö- ræöna þá. lslensku fulltrúarnir geröu full- trúum framkvæmdastjórnar EBE grein fyrir ástandi fiski- stofna hér viö land og undir- strikuðu aö eins og nú væri ástatt gætum við auðveldlega veitt allt þaö sem óhætt væri aö veiöa. Þá tóku þeir fram aö ef einhverntlma kæmi til þess aö islendingar heföu um umframafla aö semja, myndi rætt um þaö á grundvelli 21. greinar samræmda textans á Hafréttarráðstefnu Sameinuöu þjóöanna. Efnislega er hann á þá leið aö strandríkið ákveöi sjálft hvaö teljast umframaflamögu- leikar og við hverja semja skuli um þá sagöi Einar Agústsson. DIODVHIINN BIO FYRIR BLAÐBERA Framvegis mun hver blaðberi Þjóðviljans fá afhentan aðgöngumiða fyrir tvo að kvik- myndasýningum í Haf narbíói. Sýningar verða kl. 1 eftir hádegi annan laugardag í hverjum mánuði, nema sú fyrsta, sem verður 21. ágúst næstkomandi. Vitja má miða á fyrstu sýning- una til afgreiðslunnar frá og með næsta mánudegi, 16. ágúst. öllum blaðberum Þjóðviljans gefst kostur á þessum sýningum, einnig þeim sem búa utan Reykjavíkur. AFGREIÐSLA ÞJÖÐVILJANS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.