Þjóðviljinn - 26.02.1977, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 26.02.1977, Blaðsíða 7
Laugardagur 26. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA — 7 Annars er þaö kannski lýsandi dæmi um riku þjóðirnar i heiminum, aö þær munu nú leggja um 0,15%-0,20% af því, sem þær hafa til ráðstöfunar, til aöstoöar viö hinn hungraða heim. Enn um íslendinga og þróunarlöndin Þaö var um þaö leyti er fjár- lagafrumvarpiö var til umræöu á Alþingi I desembermánuöi s.l. aö ég kvartaöi siöast yfir vilja- leysi og tómlæti Alþingis og stjórnvalda vegna Aöstoöar Is- lands viö þróunarlöndin, svo og um áhugaleysi manna yfirleitt um allt er varöaöi þróunarlönd- in og þróunaraöstoö. Aö visu höföu nokkrar um- ræöur veriö um þróunarlöndin i fjölmiölum siöustu mánuöina á undan og margir mætir menn lagt þar orö I belg, bæöi stjórn- málamenn, embættismenn og aörir sem látiö hafa sig málefni þróunarlandanna einhverju skipta. Þrátt fyrir þaö vænti ég ekki mikilla breytinga á fjár- veitingum hins opinbera til þró- unaraöstoöar. Ariö 1976 haföi aöstoö Islands viö þróunarlöndin fengiö 12.5 milj. króna til aö sinna skuld- bindingum sinum. 1 frumvarp- inu fyrir áriö 1977 var gert ráö fyrir aö stofnunin fengi 13 milj. króna. En viti menn, þá geröist undriö; þegar frumvarpiö kom til annarrar umræöu kom I ljós, aö fjárveitinganefnd Alþingis haföi hækkaö framlagiö til Aö- stoöarinnar hvorki meira né minna en upp i 25 miljónir króna. Mér varö þaö á aö hugsa, aö senniiega væru dagar krafta- verkanna ekki Iiönir þrátt fyrir allt. Eitthvaö likt þessu held ég aö aörir hafi hugsaö, sem fylgst hafa meö þessum málum. Þeim sem ekkert þekkja til málsins þykir eflaust einum of sterkt til oröa tekiö, aö tala um undur og kraftaverk. Til glöggv- unar er ekki úr vegi aö skjóta inn smávegis um þrautagöngu Aöstoöar tslands viö þróunar- löndin frá þvi aö lögin um hana voru samþykkt á Alþingi voriö 1971. Allan þann tima hefur stofn- unin veriö meira og minna óstarfhæf vegna fjárskorts. Alþingi hefur einfaldlega ekki fariðeftir eöa tekiö mark á fjár- beiönum hennar. Og eftir ab is- lendingar gerðust aöilar aö samnorrænu samvinnuverkefn- unum i Kenya og Tanzaniu áriö 1973, svo og norræna landbún- aðarverkefninu I Mbeya i Tanz- aniu, hefur verið hægt meö naumindum aö kria út fjármagn til aö standa viö skuldbindingar þar. Meira aö segja hefur komiö fyrir, að fá varö aukafjárveit- ingu eitt árið vegna þess aö Alþingi sinnti ekki fjárbeiöni svo aö hægt væri aö standa við geröa samninga. t þessu tilfelli er þvi ekkert mikið aö taka sér i munn orð eins og undur og kraftaverk. En þaö geröist ýmislegt fleira þennan umrædda desember- mánuö. Islendingar afþökkuöu 1 milj. dollara fjárstyrk frá þró- unarsjóöi S.Þ., en þessi styrkur átti aö fara til rannsókna hér á landi. tslendingar höföu áöur fengiö frá þessari sömu stofnun_um 1 milj. dollara á árunum 1971-’76 og var þetta þvi i annað sinn sem tsland átti aö fá sömu upp- hæð I næstu fimm ár. Þaö er þvi ekkert skritið þótt menn veröi undrandi þegar fyrst er hækkaö framlag Að- stoðarinnar um helming og siö- an afþakkaður 1 milj. dollara styrkur. En það hefur nefnilega viðgengist sú forsmán um langt árabil, aö viö höfum þegiö álit- legar fjárfúlgur úr ýmsum al- þjóölegum þróunarsjóöum á sama tima, og litiö sem ekkert hefur verið lagt á móti af okkar hálfu til hinna snauðu þjóöa heimsins. Þaö er þvl full ástæða til þess aö lýsa yfir ánægju sinni meö þaö aö stjórnvöld og Alþingi skuli nú snúa viö blaö- inu. Sennilega mun þaö fyrst vera núna á þessu ári sem is- lendingar eru ekki i minus hvaö varöar þróunaraöstoö. Þaö er aö visu spor i þá átt að islend- ingum takist einhverntima I framtiðinni að framkvæma i raun margitrekaöar samþykkt- irS.Þ. þess efnis, að aðildarrlk- in láti 1% þjóðartekna sinna renna til aöstoöar við þróunar- löndin (þaö mark hefur nú reyndar veriö fært niður I 0,7%). Rétt er aö minna á, að Alþingi hefur lýst yfir vilja sinum til þess aö ná 1% markinu, þvi aö i lögunum um Aöstoö Islands við þróunarlöndin er gert ráð fyrir þvi, aö þessu marki veröi náö sem allra fyrst. Sem stendur mun aðstoö okk- ar viö þróunarlöndin vera um 0.05% af þjóðartekjum okkar, en þetta fjármagn sem viö lát- um af hendi er mestmegnis skylduframlög til ýmissa þeirra stofnana Sameinuðu þjóöanna, sem sinna þróunaraöstoö. Það væri ekki úr vegi aö benda á þaö til samanburöar, aö frændur okkar á Norðurlöndum hafa gert mikið átak til aö ná þessu marki,t.d. munu sviar nú þegar hafa náð 1% markinu og danir og norðmenn viö það aö ná þvi. Annars er þaö kannski lýsandi dæmi um riku þjóðirnar I heim- inum, aö þær munu nú leggja um 0.15-0.20% af þvi sem þær hafa til ráöstöfunar til aöstoöar viö hinn hungraða heim. Og ef marka má orö McNamara bankastjóra Alþjóöabankans þá munu riku þjóðirnar i heim- inum fjarlægjast fremur en nálgast markmið Sameinuðu þjóðanna að iönrikin leggi 0,7% þjóðartekna sinna I opinbera þróunaraöstoð. Allt ber aö sama brunni; þrátt fyrir itrekaöar viljayfirlýsingar, ótal skýrslur og ræður, þá viröist bilið milli rikra þjóöa og snauöra alltaf aukast. Um 700 miljónir manna i heiminum búa viö fátækt og hungur og 500 miljónir til viö- bótar lifðu við hungur áður en til efnahagskreppu kom fyrir nokkrum árum. ólæsum hefur fjölgaö frá 1960 um 60-70 miljón- ir, atvinnuleysi i þróunarlönd- unum eykst. Fyrir tveimur ár- um náöi tala atvinnulausra 300 miljónum. Til viðbótar þessu er óskaplegur barnadauði, heil- brigðisþjónusta vægast ömur- leg, farsóttir fara eins og logi yfir akur, enda nóg um fórnar- dýrin þar, sem eymdin er mest. Annars eru tölur tilgangslaus- ar, þvi að þær virðast ekki vekja marga til umhugsunar um þaö ástand, sem rikir i heiminum i dag. Þvert á móti virðast vera hér menn, sem telja það heimsku aö afþakka peninga úr sjóðum fátæka fólksins i heim- inum, loksins þegar stjórnvöld sýndu þá reisn aö láta veröa af þvi. Að lokum langar mig ab vitna hér i orö Jóns Sigurðssonar for- stjóra þjóðhagsstofnunar i er- indi sem hann flutti á fundi i Rotaryklúbbi Reykjavikur 24. nóv. s.l., en þar taldi hann að Is- lendingar ættu aö stefna mark- visst að þvi á næstu 7 árum að láta 0,7% þjóöartekna renna til þróunaraðstoðar. Jón sagði orð- rétt: „I fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1977 má telja bein framlög til þróunaraöstoðar tæplega 190 miljónir krdna. Mér þykir þetta helst til stuttur fyrsti áfangi, en gæti þó gengið, ef ákveöið væri aö auka framlög til verðugra verkefna af þessu tagi um 300 milj. króna (á verölagi fjárlagafrumvarps 1977) áriö 1978 og síöan um 300 milj. króna á ári næstu fimm ár- in. Með þessum hætti kæmumst við langleiðina að 0,7% markinu á næstu 7 árum; til þess aö ná þvi þarf fyrst og fremst stjórn- málaiegan viljastyrk”. Undir þessi orö Jóns vil ég taka heils hugar og geri ráö fyrir að margir aðrir séu sama sinnis. Þaö væri vissulega ánægjulegt ef stjórnvöld sýndu slika reisn og myndarskap, en er ekki til of mikils mælst? Það er aldrei aö vita, þvi dagar kraftaverkanna virðast ekki vera liönir ennþá. Björn Þorsteinsson, menntaskólakennari. Ahugamenn um bifreiðaíþróttir ísaksturskeppni bifreiðaiþróttaklúbbs FÍB verður haldin á Leirtjörn við tJlfars- fell sunnudaginn 27. febr. nk. klukkan 15:00. Keppendur mæti með bifreiðar sinar kl. 14.00 Stjórnin. Blikkiðjan Garöahreppi önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmfði. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468 Gólfteppahreinsunin Hjailabrekku 2 Tek í hreinsun og þurrkun allskonar teppi og mottur. Fer í heimahús ef óskað er. Sfmar 41432 og 31044. Hefst stórútflutningur á hrauni úr nágrenni Hafnarfjaröar? Verður Hafnarfjarð- arhraun selt úr landi? Vegna nútímabyggingatækni er vaxandi áhugi um allan heim á fyliiefnum i steypu, bæöi léttum og þungum. 1 sumum löndum eru menn farnir aö veröa uggandi um aö þessi efni gangi hreinlega til þurröar, og þá þarf aö leita eftir þeim til annarra landa, þar sem. af meiru er að taka. Sem dæmi .1 hina gifurlegu eyöslu á fyll- ingarefnum má nefna aö þjóöverjar nota árlega milli 5 og lOmiljónir kúbikmetra af þessum efnum. Svo aö menn áltisigá þessum tölum er vert aö geta þess, aö allur vikurinn viö Búrfell frá Skjólkviagosinu 1970 er um 50 milj. kúbikm., þannig aö þjóö- verjar gætu eytt honum öllum a einum 10 árum. Eftir Vestmannaeyjagosiö 1973 kom til tals útflutningur þaöan á vikri, en máliö mun aldrei hafa komist af umræöustigi. Nú hefur Þjóðviljinn hins vegar haft spurn- ir af þvi, aö verið sé aö undirbúa sölu á miklu magni af einhvers konar fyllingarefnum eöa hrauni, sem tekiö veröi I nágrenni Hafn- arfjarðar, til Bandarikjanna. Þjóöviljinn sneri sér til for- svarsmanna B.M. Vallá til aö grennslast fyrir um sannleiks- gildi þessarar fréttar. Ekki var þvi neitaö aö einhverjar viöræður viö erlenda aöila væru i gangúen framkvæmdastjórinn vildiekkert um málið segja ,,aö svo stöddu". Hins vegar mættum viö tala viö þá eftir mánuö; þá yröu málin ljósari. Nú þarf I sjálfu sér ekkert aö vera athugavert viö þaö að selja vikur úr landi, en ekki er vafi á aö Islendingum erhollast aö vera vel á verðií þessum efnum, þóaönóg sýnist vera hér af grjótinu. Sam- kvæmt lögum um náttúruvernd er hverjum og einum jaröeiganda heimilt malar-, grjót-, sand- og gjallnám I landi sinu, ef þaö skemmir ekki friölýstar náttúru- myndir. Hins vegar geta sveitar- stjórnir bannað slikt jarörask aö fenginniumsögn náttúruverndar- nefndar viökomandi sveitarfé- lags, ef hætta er talin á aö meö þvi veröi sérkennilegu landslagi eða merkum náttúruminjum raskað. Skjóta má ákvöröun sveitarstjórnar til menntamála- ráöuneytisins, ef ágreiningur veröur og úrskuröar þaö end- anlega i málinu. Þetta ákvæöi I lögunum er eins og sjá má ákaflega teygjanlegt,og sennilega eru lögin of rúm þannig aö ekki væri hægt aö koma I veg fyrir aö landeigandi gæti selt úr landi allt aö þvi heilu fjöllin, ef honum byöi svo viö aö horfa. —hs.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.