Þjóðviljinn - 09.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.03.1977, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN Miðvikudagur 9. mars 1977 —42. árg. —56. tbl. Fyrsti samningafundur ASÍ og vinnuveitenda í gœr: Þetta verður 99 Járnblendi- verksmiðjan Vefst fyrir ráðherra að veita starfs- leyfi Samkvæmt samningi Járn- blendifélagsins viö Elkem um byggingu járnblendiverksmiðju á Grundartanga sem undirritaöur var 8. desember átti aö taka á- kvöröun um starfsleyfi verk- smiöjunnar i gær, 8. mars. Heil- brigöisráöherra tekur endanlega ákvöröun um starfsleyfi til verk- smiöjunnar, en i viötali viö Þjóö- viljann i gær sagöi hann aö leyfiö heföi ekki enn veriö veitt, og þaö myndi dragast eitthvaö aö svo yröi gert. Um ástæöurnar til dráttarins sagöi ráöherra þetta: „Þaö er mikiö verk aö fara i gegnum gögn i þessu máli. Ráöu- neytisstjóri, landlæknir og fleiri hafa aö undanförnu unniö aö þvi aö bera saman reglugeröir ým- issa landa til þess aö fá nothæfa viömiöun. Þaö haföi heilbrigöis- eftirlit rikisins aö visu gert ýtar- lega I sinni umsögn, en margt þarf nánari skoöunar viö. Ég get engu um þaö svaraö nú, hvenær ákvöröun veröur tekin um starfs- leyfiö. Heilbrigöiseftirlitiö skilaöi um- sögn sinni varöandi starfsleyfi 10. janúar. Þaö'kom fram á alþingi i gær aö heilbrigöiseftirlitiö hefur neitaö aö veita starfsleyfi handa Grundartangaverksmiöjunni á þeim forsendum sem forráöa- menn Elkem vilja styöjast viö um mengunarvarnir. —ekh. Sjá 10. og 11. síöu hvorki létt né þægilegt 99 Á fyrsta fundinum Björn Jónsson, forseti ASl og Jón H. Bergs formaöur Vinnuveitenda- sambands tslands. Benedikt Daviðsson, formaöur Sambands byggingarmanna, Guömundur J. Guömundsson, formaöur Verkamannasambands ts- lands og Halldór Björnsson, ritari Dagsbrúnar. sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamanna- sambands íslands i gær kl. 15.00 hófst í fundarsal Vinnuveitenda- sambandsins fyrsti samn- ingafundur ASI og at- vinnurekenda. Greinilegt er að menn eru ekkert allt- of bjartsýnir á að saman gangi fljótlega. „Þetta veröur hvorki létt né þægilegt, frekar en oftast áöur,” sagöi Guömundur J. Guömunds- son formaöur Verkamannasam- bands tslands er viö ræddum stuttlega viö hann áöur en fund- urinn hófst. í sama streng tók Snorri Jónsson varaforseti ASI. Snorri sagöi aö verkalýöshreyf- ingin heföi þegar sett fram sínar kröfur. „Þannig aö viö erum til- búnir til samninga”, sagöi hann. Þeir Guömundur og Snorri bentu á, aö kröfugerö verkalýöshreyf- ingarinnar heföi haft langan aö- dragar.da og veriö mótuö I höfuö- dráttum á þingi Alþýöusambands lslands sl. haust. Björn Jónsson forseti ASÍ sagði aö erfitt væri aö spá nokkru um samninga á þessu stigi málsins. „Reynslan veröur aö skera úr um Framhald á 14. siöu Stjórnarþmgmenn um Hrauneyja- fossvirkjun: Aldrei rædd Halldór Asgrimsson, þing- maöur Framsóknar- flokksins, upplýsti á alþingi i gær aö ákvöröun rikis- stjórnarinnar um fram- kvæmdir viö Hrauneyjafoss- virkjum þegar á þessu ári, heföi aldrei veriö rædd i þingflokki framsóknar. Einn þingmanna ihaldsins upplýsti meö frammlkalli aö slikt heföi heldur ekki verið gert I Sjálfstæöisflokknum. Kvaðst Halldór As- grimsson telja sig algerlega óbundinn af afstööu rikis- stjórnarinnar i þessum efnum. Kjaradeilunni var vísað strax til sáttasemjara Allir 37 á fundi ríkisstjórnarinnar Samningamenn verkalýösfé- laganna og samtaka atvinnurek- enda uröu sammála um þaö I gær á sinum fyrsta samningafundi aö vlsa kjaradeilunni strax til sátta- semjara. Þjóöviljinn náöi tali af Snorra Jónssyni, varaforseta Alþýöu- sambandsins aö samningafundin- um ioknum. Snorri sagöi, aö báöir aöilar hafi veriö sammála um aö visa deilunni strax til sáttasemjara, þar sem tilgangslaust hafi veriö taliö aö ræöast viö milliliðalaust. Engin boö komu fram á samn- ingafundinum af hálfu atvinnu- rekenda. Snorri Jónsson taldi liklegt aö mjög fjótlega yröi óskaö eftir skipun sáttanefndar til aö starfa meö sáttasemjara viö samnings- gerö. Þá skýröi Snorri frá þvi, aö af hálfu samninganefndar Alþýöu- sambandins hafi verið ákveöiö aö ganga á fund rikisstjórnarinnar væntanlega i dag eöa á morgun, til aö knýja á varöandi þær kröf- ur, sem snúa beint aö rikisvald- inu. Ætlun er aö samninganefnd- armenn fari allir á fund rikis- stjórnarinnar.en þeir eru 37. Snorri sagði, aö mikið ylti nú á undirtektum rikisstjórnarinnar rndir þær kröfur, sem verkalýös- hreyfingin hefur beint til hennar og þá ekki sist varöandi hliöar- ráöstafanir til aö tryggja áfram þann kaupmátt sem um veröur samiö. Loðnuaflinn 440 þús. lestir t gær, slödegis, höföu 22 skip til- kynnt loönunefnd um afla, sam- tals 5080 lestir og þar meö fór heildaraflinn á vertiöinni rétt yfir 440 þúsund lestir. Annars var bræla á miöunum i gær, en aðal veiöisvæöiö var útaf Reykjanesi. Daginn áöur var svæöiö útaf Grindavlk og fylgdist fólk úr landi með veiöiskap loönuskipanna. En loönan er á hraöri leiö vestur meö landi og veröur sjálfsagt komin inni Faxaflóa i dag eöa á morgun. Ekkert hefur enn frést af loönu- göngu vestanaö og ekki höfðu starfsmenn loönunefndar frétt af nýrri loönugöngu fyrir austan landiö. Undanfarin ár hefur loönuver tiöin staöið fram I marslok, stundum fram i byrjun april, þannig aö þaö viröist vera fariö aö styttast i þessari loönuvertfö, ef ekki kemur ný ganga. —S.dór KRAFLAs Norðurendi stöðvarhússins hefur risið hærra en i janúar 123skjálftar síðasta sólarhringinn Enn er allt á suöupunkti á Kröflusvæöinu. i gær þegar les- iö var af skjálftamælunum kl. 15.00 höföu mælst 123 kippir þann sólarhringinn, sem er þaö mesta sem mælst hefur i þessari hrinu. Sólarhringinn á undan mældust þeir 118, en höföu verið þar á undan 110. Þá er landrisiö oröiö meira en þaö var i janúar sl. og hefur noröurendi stöövarhússins risiö 1 millimetra hærra nú , en hann reis hæst I janúar sl., en þá var landrisiö meira en þaö var hæst i september og október sl. aö sögn Rögnu Karlsdóttur jaröfræöings hjá Orkustofnun. Halina Guömundsson, jarö- eölisfræðingur, sem var á sjálftavaktinni I Reynihllö i gær, sagöi aö menn væru ekki vissir um aö landrisiö og skjálftarnir væru komnir I há- mark, um þaö væri ekki hægt aö segja meö neinni vissu, þótt lik- ur bentu til aö þess væri ekki langt aö biöa aö eitthvaö geröist. Nú eru fjölmargir jaröfræö- ingar staddir á Kröflusvæöinu og fylgjast meö framvindu mála. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.