Þjóðviljinn - 23.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.03.1977, Blaðsíða 1
UOWIUINN Miðvikudagur 23. mars 1977 — 42. árg. 68. tbl. Trygve Bratteli. DAGUR NORÐ- URLANDA SJÁ 8 OG 9 I dag er Dagur Noröurlanda og á þessu ári er Noröurlandaráö 25 ára. Af þvi tilefni birtir Þjóövilj- inn i dag viötal viö Hjálmar Ólafsson, formann Norræna fé- lagsins, og Tage Erlander, fyrr- um forsætisráöherra Sviþjóöar. Þá ritar Siguröur A. Magnósson, form. Rithöfundasam bandsins, grein i blaöiö um norræn menn- ingarsamskipti. 1 kvöld efna Norræna félagiö og islandsdeild Noröurlandaráös til hátföarsamkomu i Norræna hús- inu þar sem Trygve Bratteli, fyrrum forsætisráöherra Noregs, er aöalræöumaöur. Þar veröur einnig flutt sónata eftir Grieg og frumflutt tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson viö ljóö eftir Ólaf Jóhann Sigurösson, en þeir voru verölaunahafar Noröur- landaráös ’76. I anddyri Norræna hússins er sýningin „Kvinnan i Norden”, sem gerö var á vegum Noröurlandaráös, bókasýning og sýningarspjöld um ísland og Noröurlandaráö. Ljósmyndari Þjóðviljans — eik — tók þessa mynd um borð i Árna Sigurði AK 370 þegar hann var að fá fullfermi af loðnu út af Hraunum á Bugtinni á mánudag. Báturinn er orðinn svo sig- inn að s jór er tekinn að flæða inn á þilfarið. Geir Guölaugur Jón Jón Gunnarsson Þorvaidsson Þorsteinsson. Skaftason SÁTTANEFND SKIPUÐ Rikisstjórnin skipaöi i gær sáttanefnd til þess aö vinna meö Torfa Hjartarsyni, rikissátta- semjara aö lausn kjaradeilu fé- laga Alþýöusambands tslands og vinnuveitenda. 1 nefndinni eru þessir menn: Geir Gunnarsson, alþingismaöur, Guölaugur Þorvaldsson, háskóla- rektor, Jón Þorsteinsson, lög- fræöingur, Jón Skaftason, al- þingismaöur. Jafnframt hefur rikisstjómin faliö Jóni Sigurössyni, hagrann- sóknastjóra, aö starfa meö samn- ingaaöilum, sáttasemjara og sátttanefndinni i máli þessu. Slakað á ör- yggiseftirliti á Kröflusvæði Þegar hættuástandið var talið i hámarki á Kröflusvæöinu á dög- unum, og starfsmenn viö Kröflu- virkjun voru látnir hætta vinnu f nokkra daga, var þaö talin for- senda þess aö þeir hæfu vinnu á svæöinu aftur, meöan þetta hættuástand sem nú er, varir, aö vöröur væri alla daga uppi hli'ö- inni og aö sérstakur maöur væri viö hliöiö inná svæöiö, sem skráöi alla inn og útaf svæðinu. En svo geröist þaö nú i vikunni ósk kom frá Kröflunefnd um aö almanna- varnir endurskoöuöu þessa á- kvöröun og var þvi borið viö aö þaö kostaði mikla peninga aö hafa þennan vaktmann og skrán- ingarvörö, vegna þess aö föst störf þeirra viö virkjunarfram- kvæmdirnar lægju niöri á meöan. „Við leituðum álits Eysteins Tryggvasonar jarðfræðings á þessu máli og hann taldi að ár- vekni varðmannsins hefði dofnað, þar sem hann hefði staðið á vakt dögum saman án þess að nokkuð gerðist og lagðist Eysteinn ekki gegn þvi að þetta starf yrði lagt niður. Varbandi skráninguna, þá var hún lögö niður á þeim for- sendumaötil eru skráningarlistar um alla sem vinna á svæöinu og viö höfum tvisvar framkvæmt könnun á þvi hve langan tima tek- ur að ná öllum útaf svæðinu og það tók 20 min. i bæði skiptin. Það var þvi samdóma álit almanna- varnarnefndar Mývatnssveitar og almannavarnarráðs rikisins, að taka tillit til þessara óska Kröflunefndar”, sagði Guðjón Petersen fulltrúi hjá almanna- varnarráði rikisins er við spurð- um hann um þetta mál i gær. Guðjón sagöi að allir jarðfræö- ingarnir væru ekki hrifnir af þessari ákvörðun, m.a. annars er Axel Björnsson henni mótfallinn, enda varla nema von, þar sem hann telur að hættuástandið hafi kannski aldrei verið meira en ein- mitt nú á Kröflusvæðinu siðan gaus i Leirhnjúk. —S.dór. Dómarar hins nýja Hæstaréttar og ritari réttarins Björn Helgason.sem uppi stendur og les kæru VL-inganna, þá Jón Finnsson hri, Þor- steinn Thorarinsen, borgarfógeti, Halldór Þorbjörnsson, yfirsakadómari, dómsforseti, þá Unnsteinn Beck, borgarfóteti og loks Guömundur Ingvi Sigurösson hrl. (Ljósm. —gel.) Ingi R. Helgason hrl., verjandi Þjóöviljamanna i VL-réttar- höldunum. (Ljósm. — gel.) Fyrsta VL-málið í Hæstarétti Hiö fyrsta af hinum fjöl- mörgu meiöyröamálum, sem hinir endemisfrægu VL-ingar höföuöu gegn blaöamönnum Þjóöviljans og ýmsum fleiri herstöövaandstæðingum, var tekiö fyrir i nýskipuöum Hæsta- rétti i gær. Var þaö máliö VL- ingar gegn Úlfari Þormóössyni, blaöamanni. Eins og menn rekur minni til var dómurinn ruddur þar sem þar sátu samdómendur eins VL- ingsins, Þórs Heimis Vilhjálmssonar, hæstaréttar- dómara. Dómsforseti i hinum nýja Hæstarétti er Halldór Þor- björnsson, yfirsakadómari, en með honum i dóminum sitja þeir borgarfógetarnir Þorsteinn Thorarensen og Unnsteinn Beck og hæstaréttarlögmennirnir Guömundur Ingvi Sigurössonog Jón Finnsson. Kröfur VL-inga Með áfrýjun á dómi Borgar- dóms Rvikur frá i fyrrasumar hyggjast VL-ingarnir endur- vekja kröfur sinar frá mála- rekstrinum þar, en þær eru i þessu tilviki að Úlfari verði gert að greiða hverjum hinna 12 VL- inga 100 þúsund krónur i æru- bætur, samtals 1,2 milj. króna, öll ummæli veröi dæmd ómerk; Úlfar greiöi fyrir birtingu dóms I dagblööum, greiöi lögmanni VL-inganna, málssóknarlaun og veröi siöan stungiö I tukthús. Aðeins hafa VL-ingar þó slakað á tugthúskröfu sinni þar sem fyrir Borgardómi var rætt um þyngstu refsingu, en nú er rætt um „hæfilcga refsingu” sam- kvæmt þeim greinum laganna, sem heimila tugthúsvist fyrir raunveruleg meiðyrði. Orðfæri við sókn í meiðyrðamáli Heldur mega heita skondin ummæli lögmanns VL-inganna við upphaf málarekstursins fyr- ir Hæstarétti i gær, þegar haft er i huga að lögmaðurinn er aö beiðast refsingar öörum til handa fyrir það sem hann nefnir ófagurt orðbragð. Sýnishorn: „Þau svæsnustu og svakaleg- ustu ummæli sem viöhöfö hafa veriö frá upphafi lslandsbyggö- ar”. „ósannindi og hrakyröi”. „Fádæma rógsiöja, sem á sér enga hliöstæöu i islenskri blaöa- sögu.” Er þetta þó aðeins litið brot.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.