Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Žjóšviljinn

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Žjóšviljinn

						Föstudagur 5. ágúst 1977 >JÖÐVILJINN — SÍÐA 3

Skýrsla um sprengjur

NEW YORK 3/8 Reuter — Skýrsla, sem gerö hefur verið á vegum

Sameinuðu þjóðanna og birt var i dag, mælir meö þvi að þannig

verði gengið frá tundurduflum, jarðsprengjum og öðrum sprengj-

um að þær verði óvirkar og hættulausar eftir ákveðinn tima.

I þessari skýrslu kom fram að enn yrðu banaslys vegna alls kyns

sprengna sem skildar hefðu verið eftir eða „týnst" i seinni heim-

styrjöldinni. Það var Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem fór

fram á það að þessi skýrsla yrði gerð, og áttu libfumenn frumkvæö-

ið en miklir bardagar voru háðir i Libiu á timum heimsstyrjaldar-

innar og eru þar sifellt aö finnast ósprungnar sprengjur frá þeim

timum, þótt meira en þrjátiu ár séu liðin síðan bardögum lauk.

Mostafa Tolba, framkvæmdastjóri áætlunar S.Þ. um umhverfis-

vernd stjórnaði þessari skýrslugerð. í skýrslunni var stungið upp á

þvi að skipst yrði á upplýsingum um ýmis tæknileg efni og staðsetn-

ingu sprengna, svo að auðveldara yrði að finna þær og gera þær

óvirkar. Einnig var stungiö upp á þvi að gerður yrði alþjóðasamn-

ingur um að I hverri sprengju yrði útbúnaður sem gerðú hana

óvirka og skaðlausa eftir ákveðinn tlma.

Mikið tjón vegnaflóða

NÝJU DELHI3/8 Reuter — Aö minnsta kosti þrjátiu menn hafa lát-

ið lifið af völdum tnonsún-rigninga I Norður-Indlandi undanfarna

daga, að þvi er opinberar skýrslur herma.

Tiu menn fórust I Rajasthan þegar vatnsflaumur skolaöi burtu

húsi, og tveir aðrir týndust I flaumnum.

Meira en fjórar miljónir manna hafa orðið fyrir tjóni vegna

flóðanna I Vestur-Bengal, og tólf menn hafa þar beðið bana. Skýrt

hefur verið frá þvi opinberlega að tjón á uppskeru vegna flóðanna

nemi um 600 miljónum króna.

Flóðin hafa þakið risastór svæði og einangrað hundruð þorpa.

Indira Gandhi fyrrverandi forsætisráðherra heimsótti nýlega hverfi

i Nýju Delhi sem orðið hafði fyrir flóðum. Þar munu sex menn hafa

látið llfið þegar hús þeirra hrundi.

Hótelrekstur neðansjávar

PARÍS 3/8 Reuter — Franskir viðskiptajöfrar tilkynntu i dag að

þeir hefðu I hyggju að byggja neðansjávarhótel I Rauða hafinu og

gæti það tekið til starfa 1980.

Höfundur þessarar áætlunar, André Gass, sagði að þetta yrði

fyrsta neðansjávarhótelið i heiminum. I því ættu að vera 120 lúxus-

herbergi, leikvellir fyrir ofan yfirborð sjávar og 48 „svitur" neðan-

sjávar. Hótelið ætti að standa við Hurghada i Egyptalandi um 450

km fyrir sunnan Kairó, og hefði sá staður orðið fyrir valinu vegna

þess aö Rauða hafið er eitt lygnasta haf I veröldinni, og auk þess

sérstaklega tært.

André Gass sagði að neðansjávarbyggingin yrði eins og sivaln-

ingurllaginumeðsexhólfum á, ogyrðihægtað lyfta honum upþur

sjónum til viðgerðar, t.d. til að gera við gluggarúöurnar, sem eiga

að vera fimm sm þykkar. Hótelið verður venjulega á tiu m. dýpi.

Gass skýrði einnig frá þvl að nú stæðu yfir umræður um aðra slíka

byggingu neðansjávar, og ætti hún að verða i Oman við Persaflóa.

Hins vegar kæmi ekki til mála aö byggja slik hótel I Miðjarðarhaf-

inu; það væri allt of mengað.

Slökkviliðsmenn sendir

með fallhlífum

MOSKVU 4/8 Reuter — Sovéska blaðið Isvestía skýrði frá þvi I dag

að slökkviliðsmenn hefðu stokkiö niöur I fallhllfum til að berjast við

mjög viötæka skógarelda I Oralfjöllum og vesturhluta Siberiu. Að

sögn blaðsins hafa miklir þurrkar verið á þessum slóöum að undan-

förnu.

i Skógareldar í Kaliforníu

SACRAMENTO, Kalivornlu, 3/8 Reuer — Hundruð slökkviliðs-

manna börðust I dag við mikla skógarelda I Kalifornlu. Þar hafa

verið óvenjumiklir þurrkar undanfarin tvö ár og hefur oft kviknað I

trjám og runnum siðustu vikur. í gærkvöldi skall svo á þrumuveöur

og er talið að eldingarnar hafi kveikt I gróöri á einum fimm hundruð

stöðum. Versti bruninn var á Diablo-fjalli i grennd við Oakland, og

náði hann til 1840 hektara svæðis. Tilkynntu yfirvöld I Kaliforniu að

þau hefðu beðið um aðstoð frá öðrum fylkjum.

Bardagar milli víetnama

og kambodíumanna?

PARIS 4/8 — Reuter — Franska dagblaðið „Le Monde" skýrði frá

þvi I dag að til bardaga hefði komið öðru hverju undanfarna mánuði

á landamærum Vietnams og Kambodiu og hefðu vietnamar notað

orrustuflugvélar og stórkostalið.

Blaðið gaf ekki upp neinar heimildir, og sagði það að bardagarnir

hefðu orðið I grennd við vietnömsku borgina Ha-tien og á öðrum

svæðum fyrir vestan Ho-Chi-Minh borg (sem áður hét Saigon).

„Le Monde" gaf i skyn aö það myndu vera kambodiumenn, sem

átt hefðu upptökin, og skýrði blaðiö frá þvi að samskipti vietnama

og kambodiumanna hefðu farið mjög versnandi eftir að núverandi

stjórnir tóku þar við völdum 1975. Hvorki stjórn Vietnams né

Kambodlu hefur skýrt opinberlega frá þessum bardögum.

Vletnamar hafa náin tengsl við Sovétrikin, en kambodlumenn hafa

hins vegar meiri tengsl við Kina.

Cyrus Vance ræðir

við Sýrlendinga

— vill efna til utanríkis-

ráðherrafundar ísraela og araba

DAMASKUS 4/8 Reuter — Cyrus

Vance, utanrikisráðherra Banda-

rikjanna, sem nú er á ferðalagi

um Austurlönd nær, ætti i dag

viðræður við sýrlenska leiðtoga i

Damaskus, og sögðust þeir állta

að framkoma israelsmanna að

undanförnu benti ekki tii þess að

þeir vildu frið og gerði það ólik-

legt að nokkur árangur næðist af

friðarumleitunum.

Cyrus Vance átti tal bæði við

Hafez Al-Assad forseta og Abdel-

Halin Khaddam utanrikisráð-

herra, og sagði hann að viðræð-

urnar hefðu farið fram með

vinsemd og verið gagnlegar. Þó

væri nokkur munur á viðhorfum

sýrlendinga og bandarikja-

manna, en hann lét þess ekki get-

iö hvað bæri á milli.

Sýrlenska stjórnin gaf út yfir-

lýsingu um viðræðurnar og

endurtók hún þar þá skoðun sina

að nauðsynlegt væri að israels-

menn létu af hendi öll hernumdu

svæðin og tryggðu réttindi

palestinuaraba. Sýrlendingar

lögðu einnig áherslu á að viðræð-

urnar viðCyrusVancehefðu farið

fram með vinsemd, og hefðu báð-

iraðilar samþykktaðhaldá þeim

áf ram.

Cyrus Vance sagði að hann

hefði borið undir sýrlenska ráða-

menn áætlun, sem hann hefði

samið fyrr I þessari vikuisam-

ráði við Anwar Sadat, forseta

Egyptalands. Samkvæmt henni

í.ttu utanrikisráðherrar Israels

og arabarikjanna að ræðást við i

næsta mánuði. Vance sagði ekki

hvernig sýrlendingar hefðu tekið

þessari tillögu.

Israelar biðu spenntir i dag eft-

ir   viðbrögðum    sýrlendinga.    I

gærkvöldisagði Menahem Begin:

„I næsta mánuði mun utanrikis-

ráðherra tsraels eiga viðræður

við þrjá eða fjóra utanrikisráð-

herra nágrannarikjanna, og

munu þessar viðræður verða

skref I átt til friðar". Það hefur

lengi verið takmark israela að

eiga beinarviðræðurviðaraba án

nokkurrar milligöngu, en blöð i

Israel eru þó alls ekki eins

bjartsýn og Begin forsætisráð-

herra.

Óvissa á Kýpur

NIKÓSIU 4/8 Reuter — Sagt var I

Nikosiu, höfuðborg Kýpur, i dag

að leiðtogum Kýpur-grikkja hefði

ekki tekist að koma sér saman

um það hver ætti að verða eftir-

maður Makariosar erkibiskups,

sem lést i fyrri nótt. Meðan þeir

þinguðu um málið, sagði leiðtogi

Kýpur-tyrkja, Rauf Denktash, að

dauði erkibiskupsins gæti gefið

mönnum nýtt tækifæri til að briia

bilið milli þjóðarbrotanna á

eynni.

Stungið hefur veriö upp á þrem-

ur mönnum til forsetaembættis-

ins, Glafkos Klerides, Sypros

Kyprianou          og          Tassos

Papadopoulos. Kyprianou, sem

nú gegnir forsetastörfum, sagði

að stundið hefði verið upp á þvi að

nefna nú eftirmann Makariosar

til bráðabirgða, en halda siðan

forsetakosningar næsta febriiar,

þegar kjörtimabilinu ætti að

ljuka. Areiðanlegir heimildar-

menn sögðu að Klerides væri

þessu andvígur og vildi að þegar

færu fram kosningar þar sem

kosið yrði milli margra

frambjóðenda.

Helsta vandamál Kýpur nii er

skipting eyjarinnar og herseta

tyrkja á norðurhlutanum. Þvi

hefur einnig verið stungið upp á

Papadopoulos sem hefur verið

samningamaður Kýpur-grijkja I

viðræðum við Kýpur-tyrki. Tyrk-

ir hafa þegar lýst þvi yfir aö þeir

muni ekki viðurkenna eftirmann

Makariosar sem forseta allrar

eyjarinnar, einungis sem forseta

griska hlutans.

t   yí



Endurnýiö

fyrir sumarfrí

zi

Missið ekki af góðum vinningi

fyrir það eitt, að þið voruð

fjarverandi þegar endurnýjun fór

fram.

Nú er endurnýjun fyrir 8. flokk í

fullum gangi hjá

umboðsmönnum okkar. En

umboðsmennirnir taka einnig við

endurnýjunum einn, tvo, eða

þrjá mánuði fram í tímann til

þess að tryggja ykkur möguleika

á vinningi á meðan þið eruð í

sumarleyfi.

Endurnýjið fyrir sumarfrí,

endurnýjið fram í tímann!

DREGIÐ lO.ágÚSt

8 flokkur		

9 á	1.000.000.—	9.000.000.—

9 -	500.000 —	4.500.000.—

9 -	200.000 —	1.800.000.—

207 -	100.000 —	20.700.000 —

675 -	50.000.—	33.750.000.—

8.973 -	10.000,—	89.730.000.—

9.882		159.480.000.—

18 -	50.000 —	900.000 —

9.900		160.380.000 —

HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS

iTvö Þúsund milljónir í boði

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
8-9
8-9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16