Þjóðviljinn - 03.01.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.01.1978, Blaðsíða 1
Þriðiudagur 3. ianúar 1978 — 43. árg. — 1. tbl. Landsbankahneykslið og Sjálfstæðisflokkurinn Vinnur Spasskí? 1 gær tcfldu þeir Spasski og hafa unnið tafl. Fari svo sem á Kortsnoj 14.skákina i einviginu horfir yrði þetta fjórði sigur sem nú stendur yfir i Belgrad. Spasskis i röð i einviginu. Stað- Eins og kunnugt er fær sigur- an er sú aö Kortsnoj hefur hlotið vegarinn i þessu einvigi réttinn 7.5 v. en Spasski 5,5 v. Skákin til að skora á heimsmeistarann verður tefld áfram í dag og mun Anatoly Karpov. Skákin i gær hún birtast i heild sinni hér I fór i bið að loknum u.þ.b. 40 blaðinu á morgun. leikjum og er Spasski talinn FORMAÐUR VARÐAR TENGIST MÁLINU Viðurkennir að hafa notið sér- stakrar „persónulegrar lánafyrir- greiðslu” hjá deildarstjóranum9 sem situr í gœsluvarðhaldi //Þaö hvarf laði aldrei að mér/ að persónuleg lána- fyrirgreiðsla forstöðu- manns ábyrgðardeildar- innar, þegar um hana var að ræða/ væri á nokkurn hátt tengd fjármunum bankans eða viðskipta- fyrirtækja hans." Þannig kemst Björgólf- ur Guömundsson, áður for- stjóri Dósagerðarinnar en nú forstjóri Hafskip h.f. að orði á forsiðu Vísis í gær. Björgólfur Guðmunds- son er formaður Varðar- félagsins/ stærsta stjórn- málafélags Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík/ og hann er einnig formaður þeirrar kjörnefndar Sjálf- stæðisflokksins, sem nú t góðara vina hópi. Formaöur Varðarfélagsins lengst til vinstri á myndinni. Formaður Sjáifstæðis- flokksins og forsætisráðherra landsins fyrir miðju. Myndin var tekin fyrir hálfu ári og birtist i Morgun- blaðinu. Segir hann af sér störfum sem formaður Varðar og formaður kjörnefndar Sjálfstæöisflokksins? NÓTIN UM BORÐ Vetrarloðnuvertiðin er hafin. t gær héldu mörg stærri skipanna á miöin og önnur fara idag og næstu daga. Myndin hér að ofan var tekin niöur á Grandagarði i gær, þegar skipverjar á Svani RE voru aö taka nótina útúr Netagerð Guðmundar á Grandagaröi. en beint fyrir framan lá Svanur RE bundinn og nótin fór beint um borö og skipið hélt á veiðar. A blaðsiðu 16 er viðtal við nokkra sjómenn, sem héldu til loðnuveiöa i gær. (Ljósm. S.dór) glímir við að setja saman framboðslista Sjálfstæðis- flokksins i næstu alþingis- kosningum. Formaður Varðarfélagsins segist hafa notið sérstakrar „persónulegrar lánafyrir- greiðslu” hjá Hauki Heiðari, fyrrverandi deildarstjóra ábyrgðardeildar Landsbankans, sem nú situr i gæsluvarðhaldi fyrir meint stórkostleg fjársvik. En formaður Varðarfélagsins segir, aö hann hafi álitið þessa , .persónulegu lánafyrirgreiðslu” deildarstjórans alveg óviðkomandi Landsbankanum!! „Hverju barni hlýtur að vera Ijóst” Við leituðum álits Helga Bergs, bankastjóra Landsbankans, á þvi, hvort það gæti talist eðlilegt að deildarstjóri ábyrgðardeildar Landsbankans ræki jafnframt sérstaka „persónulega lánastarf- semi”. Helgi kvaðst ekki vilja ræða einstök atriði i blaða- fregnum, en taldi, að það segði sig þó sjálft, að alveg væri útilok- að, að starfsmaður bankans hafi heimild til að stunda sérstaka persónulega útlánastarfsemi i samkeppni við bankann. — „Hverju barni hlýtur að vera ljóst að það fær ekki staðist”, sagði Helgi Bergs, bankastjóri. — Þetta virðist formanni Varðarfélagsins hins vegar ekki hafa verið ljóst. Haukur Heiðar fyrrum deildar- stjóri ábyrgðardeildar Lands- bankans er grunaður um að hafa svikið a.m.k. marga tugi miljóna króna útúr bankanum og viö- skiptafyrirtækjum hans, og að hafa notað þessa fjármuni til sér- stakrar „persónulegrar lána- fyrirgreiðslu” til aðila, sem hann hafði velþóknun á. Formaður Varðarfélagsins lýsir þvi yfir i blöðum, að hann hafi veriö i þeim hópi. Hver er skýringin á þessum tengslum? Hér verður aö krefjast fullgildrar skýringar. Hver voru hin fjármálalegu tengsl deildar- stjórans I bankanum og formanns Varðarfélagsins? Og hver er skýringin á þeim sérstöku tengslum? Hér er um stórpólitiskt hneyksli að ræöa, sem ekki aðeins varöar stjórn- málastarfsemina i landinu, heldur verður að vænta þess að dómsmálakerfið geri allt sem i þessi valdi stendur til að leiða hiö sanna i ljós. Hvað gerir Sjálf- stæðisflokkurinn? Og hvað gerir Sjálfstæðisflokk- urinn? Ætlar hann að krefjast þess aö Björgúlfur Guðmundsson láti af tignarstöðum innan flokks- ins, þegar viðurkenning liggur fyrir um þessi sérkennilegu fjár- málatengsl hans við hinn hand- tekna deildarstjóra Landsbank- ans? Eða ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að láta manninn halda áfram að dunda við að raða þeim Albert, Gunnari, Geir og fylgdarliði upp á framboöslista flokksins i komandi alþingiskosningum? Þykir mönnum það máske sigurstranglegt? ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I i ■ I i ■ Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram, þótt. . .” „Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram, þótt ég lendi i persónu- legum erfiðieikum”, sagði Björgúifur Guömundsson, for- stjóri i viðtali við Þjóðviljann i gær. „Ég er að vinna i þessu, og þarf að gera margt á stuttum tima. Er að taka við nýju fyrir- tæki og hef verið i ferðalög- um”... „Ég er að vinna i þessu”, sagði Björgúlfur þegar við spuröum hann að þvi hvort hann mundi segja af sér for- mennsku i kjörnefnd, sem vinn- ur að röðun manna á lista Sjálf- stæðisflokksins i komandi al- þingiskosningum. Þjóðviljinn spurði Björgúlf, hvort honum hafi ekki verið ljóst, að það væri skrýtinn við- skiptamáti, ef ekki hreinlega ólöglegur, að fá lán hjá eins konar „banka i bankanum”, svo HiRiiHnHiBaHn sem flokka verður þá „persónu- legu lánafyrirgreiðslu” sem Björgúlfur segist hafa notið hjá Hauki Heiðari. „Það er oft hægt að vera vitur eftir á”, sagði Björgúlfur, en kvaðst annars ekki hafa meir um málið að segja en þaö sem fram kemur i siðdegisblöðunum i gter, — en meginefni þess er rakið hér annars staðar á sið- unni. — ekh. I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.