Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 15. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍPA 13 ■> \?\ Vilhjálmur Bergsson sýnir á Kjarvalsstödum í dag kl. 2 opnar Vilhjálmur Bergsson listmálari sina fimmtándu einkasýningu að Kjarvalsstöðum og sýnir þar 75 nýleg málverk. Vilhjálmur hefur áður sýnt 8 smnum i Reykja vik en 6 sinnum i Kaupmannahöfn. Siðasta einkasýning Vilhjálms var i fyrra i Galleri Per Sten i Kaupmannahöfn. I sýningarskrá með þeirri sýningu sagði ha'nn m.a. um sjálfan sig: „Fyrir rUmum áratug lenti ég i þeirri úlfakreppu að listastefnur nútimans sem ég hafði áður að- hyllst voru orðnar gjörsamlega þýðingarlausar fyrir mig. Mér fannst engu við að bæta á ein- stökumbásumþeirra. Súreahsmi og abstraktlist voru i fóstum far- vegi meö sinum eigin spilareglum sem ég hafði enga löngun til að fylgja áfram þvi að það gat ekki leitt til annars en stöðnunar. Einmitt þá fór nýda-da-isminn, hin svokallaða popplist, eins og eldur i sinu um heiminn. Þegar mér varð það ljóst, að fljótlega yrði hún jafn útjöskuð eins og allt hitt, gat hún ekki hjálpað mér i erfiðleikum mínum. Þær myndir sem ég málaði þá voru i raun og veru ekki annað en dimm eyði- mörk þar sem ýmis konar - óákveðnir hlutir reyndu að þrengja sér inn i ljósið. Smá saman tóku þeir fastari mynd og hinir dökku og ljósu fletir myndarinnar runnu samanog að- greindust. Það var upphafið að þvi samspili lits og forms sem ég héf siðan aðhyllst”. —GFR Vilhjálmur Bergsson viA dýrustu myndina á sýningunni. Hán heitlr Þrenna og kostar 830 þúsund.l henni má sjá að ný beinlínuform eru farin að sjást hjá Vilhjálmi (Ljósm.:eik). Þjóðgarðar, fólkvang ar og friðlýst svæði Efni bókar i tilefni af 50 ára afmæli Menningarsjóös og Menntamálaráðs Menntamálaráð og Menningar- þessar mundir. 1 tilefni af afmæl- sjóður er hálfraraklar gamall um inu var samþykkt á 1087. fundi Menntamálaráð sem setið hefur undanfarin 4 ár. F.v. Hróifur Halldórsson forstöðumaður Menningarsjóðs og bókaútgáfunnar en hann gegnir nú þvi starfi I forföllum Gils Guðmundssonar, Matthfas Johannesen, Baidvin Tryggvason, Kristján Benediktsson form., Björn Th. Björnsson og Jón Sigurösson. ráðsins hinn 4. april s .1. að efna til útgáfu bókar um þjóðgarða Islands, fólkvanga og friðlýst svæði. Ritstjóri bókarinnar verð- ur Gisli Jónsson menntaskóla- kennari á Akureyri, en útgáfu- nefnd hennar skipa Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Björn Th. Björnsson listfræðing- ur, Jónas Jónsson formaður Skógr æktarfélag Islands og Sigurður Þórarinsson jarðfræð- ingur. Bókin verði eins konar hring- ferill um landið ogeinstakir menn fengnir úl að rita um ákveðinn stað eða staði, en sérstakur rit- stjóri verði ráðinn og velji hann höfunda i samráði við útgefanda, sjái um samræmingu og full- vinnslu til útgáfu. Ritstjóra til ráðuneytis verði útgáfunefnd er Menntamálaráð velur. Skulu þessir aðilar i sameiningu gera sem nákvæmasta áætlun um verkið og leggja þá áætlun fyrir Menntamálaráð til samþykktar ásamt með grófri kostnaðaráætl- un og timasetningu um útkomu. Cr Herbergi 213 i Keflavfk: Frá v. Rósamunda, Hjördis, Steinar og Jenný . Herbergi Keflavík Sex leikrit sett á svid i vetur hjá fjórum leikfélögum Leikfélag Keflavikur hefur sýnt Herbergi 213 eftir Jökul Jakobs- son tvisvar sinnum við mjög góð- ar undirtektir. Leikstjóri er Þór- unn Sigurðardóttir. A frumsýn- inguvarfullthúsoghöfundur við- staddur. Leikendur eru Ingibjörg Hafliðadóttir, Jenný Lárusdóttir, Hjördis Arnadóttir, Rósamunda Rúnarsdóttir, Marta Haralds- dóttir og Steinar Geirdal. Næsta sýning á leikritinu er á mánudagskvöld i Stapa. 1 leikskrá er fjallað um grósk- una i leiklistarmálum á Suður- nesjum og segir þar m.a. „Mikil gróska hefur verið i leik- listarlifi á Suðurnesjum i vetur. Alls hafa verið sett á svið sex verkefni hjá fjórum leikfélögum. Það er gleðilegt timanna tákn að fjögur þeirra eru eftir islenska höfunda og þau hafa öðrum frem- 2131 ur fundið náð fyrir augum áhorf- enda, en hin erlendu verk. Eitt nýtt leikfélag bættist i hópinn fyrir skömmu, Leikfélag Sand- gerðis, sem sýnir um þessar mundir sitt fyrsta verk, „Skim” eftir Guðmund Steinsson, viö mjög góöar undirtektir, enda mjög vel heppnuö sýning að dóm- bærra mati. Sandgerðingar fara þvi engu siður vel af staö, heldur en nágrannar þeirra i Garðinum i fyrra, Litla leikfélagið, meö Koppalogn Jónasar Árnasonar. Leikfélögin á Suðurnesjum eru núalls orðin fjögur. Hópurinn er þvi orðinn ærið stór, sem leggur það á sig að lifga svolitið upp á til- veruna i héraðinu, —■ endur- gjaldslaust. Aðeins sá sem reyn- ir, getur áttað sig á þeim tima og þeirri fyrirhöfn, sem fylgir hverri uppfærslu, en leikendur og annað starfsfólk er ekki að telja það eft- irsér, en stundum finnst þeim að leiklistinni sé litill gaumur gefinn þegar ráðist er' i byggingar eða endurbætur samkomuhúsanna á Suðurnesjum. Og vist er um það að eigi leiklist að dafna i hérað- inu, þá verður að taka húsnæðis- málin fastari tökum.” Rádstefna um verkmenntunarmál Leikári lýkur I Leikbrúðulandi Allra sídasta sýning Samband iðnskóla á íslandi gengst fyrir ráðstefnu um mál- efni verkmenntunar föstudaginn 21. april n.k. i Iðnskólanum I Reykjavik. Ráðstefnu þessari er ætlað að vekja almenna athygli á stöðu verkmenntunar I Islenska menntakerfinu og finna ráð til aö auka hana og bæta, þannig að hún veki meiri áhuga hjá ungmenn- um, þegar þau ®elja sér fram- tiðarstarf. 160% verd- bólga 13/4 — Verðbólgan i Argen- tinu fyrsta fjórðung þessa árs var rúmlega 29%, og framfærslukostnaður hækk- aði um 9,5% i lahdinu I sið- astliðnum mánuði. Siðastlið- ið ár var verðbólgan i Argen- tinu 160%. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 með setningu Þórs Sandholt skólastj. form. S.I.I. og ávarpi mennta- málaráðherra Vilhjálms Hjálm- ‘ arssonar. Ráðstefnan verður með þvi sniði að hverju einstöku málefni sem tekið er fyrir mun fylgt úr hlaði með örstuttum framsögu- erindum, og verða frummæl- endur þessir: Jón- Sætran kennari, öskar Guðmundsson framkv.stjóri Iðn- fræðsluráös, Stefán Ólafur Jóns- son deildarstjóri i menntamála- ráðuneytinu, Sveinn Sigurðsson aöst. skólastjóri, Karl Stefánsson, kennari, Guðmundur Sveinsson skólameistari, Siguröur Krist- insson form. landssambands iðnaöarm. Jónas Sigurðsson frá Iðnnemasambandi íslands fulltrúar nemenda einstakra skóla, Jóhann S. Hannesson kennari, Ólafur Proppé kennari, Jón Böðvarsson skólameistari, ölver Karlsson bóndi, Kristinn V. Jóhannsson skólastjóri og ólafur Asgeirsson skólameistari. Til ráðstefnu þessarar er boðið öllum þeim sem áhuga hafa eða hagsmuna hafa að gæta, og er væntanlegum þátttakendum bent á að tilkynna þátttöku sina i sima Sambands iðnskóla á Islandi ’ 1 26 70. Bókin veröi hugsuð sem stofn, er siðar megi endurskoða og bæta við eftir þvi sem aðstæður breyt- astogfriðlýstumsvæðum fjölgar. Umbroti bókarinnar verði hag- að með tilliti til þess, að unnt sé að gefa hana út með tvenns konar umbúnaði, sem leiðarbók og einnig i vandaðri myndskreyttri útgáfu. Á sunnudaginn kemur verður allra sfðasta sýning I Leikbrúðu- landi á þessu leikári. Sýningin verður kl. 3, á Frikirkjuvegi 11. Seinna i sumar veröur haldið út á land og einnig hefur verið ákveðið, að Leikbrúöuland taki þátt i hátiöahöldunum i Vest- mannaeyjum, sem kennd hafa verið við „manninn og hafið”. —GFr Ár túnshöfðasamtökin Aöalfundur verður haldinn þriðjudaginn 18. april 1978, kl. 16, i matstofu Miðfells h/f. að Funhöfða 7 1. Borgarstjóri heimsækir fundinn og skýrir stöðu borgarinnar og þær framkvæmdir sem gerðar verða á Ártúnshöfða svæðinu af borgarinn- ar hálfu á árinu 1978. 2. Aðalfundarstörf 3. Fegrun og snyrting umhverfisins 4. Næturvarsla 5. önnur mál Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.