Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 16
mOVIUINNl Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðs- Verslið í sérverslun með litasjónvörp Föstudagur 6. október 1978 ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. \ bÚÐIN simi 29800, (5 linurr— og hljómtæki Jónas Arnason um fullyröingar utanríkisráðherra varðandi friðlýsingu N-A tlantshafsins Afstaða Benedikts ræðst af NATO-klafanum í Timanum i gær var haft eftir Benedikt Gröndal utanrikisráðherra, að friðlýsing N-Atlantshafsins væri óraunhæf. Þjóðviljinn spurði Jónas Árnason alþingismann, sem mjög hefur barist fyrir slikri friðlýsingu, hvað hann vildi segja um þessa full- yrðingu ráðherrans. — Hún er I hæsta máta vlta- verö, sagöi Jónas. í samkomulagi stjórnarflokkanna er ákvæöi um utanrikismálanefnd, sem á aö kanna nýjar leiöir i svokölluöum öryggismálum og m.a. athuga hugmyndir um friölýsingu hafsins. Svo leyfir utanrikisráö- herra sér á mjög óviöurkvæmi- legan hátt að torvelda starf nefndarinnar aö þessu leyti meö þessari fullyröingu. Og þótt nefndin eigi aö starfa á -vegum forsætisráöherra en ekki után- rikisráöherra,liggur þaö I augum uppi, aö hún á miklu óhægara um vik meö aö vinna aö framgangi þessa máls eftir aö utanrikis- ráöherra hefur sagt þetta. Afstaöa Benedikts Gröndals ræðst af þeim klafa, sem hann,og flokkur hans,er bundinn á hjá NATÖ og herstööinni. Annaöhvort veit hann eða telur sig vita, aö friölýsing á þessum slóöum yröi ekki vel séö hjá risa- veldinu i vestri. Risaveldiö I austri mundi lika eflaust mót- mæla þeirri skeröingu á athafna- frelsi þessara stórvelda til hernaöarbrölts. En stórveldin hafa nú fyrr mótmælt, þegar viö Islendingar höfum stigiö skref I hafréttarmálum, sbr. viöbrögö þeirra viö landhelgisútfærslu okkar. Þaö er rétt, sem Þórarinn Þórarinsson hefur margitrekaö i Timanum, aö kominn er timi til aö viö tslendingar tökum frum- kvæöi i á'tt til þess aö draga úr hernaöarumsvifum hér á norður- slóöum, á sama hátt og viö áttum Bókakaup undir póli- tíska stjórn? A borgarstjórnarfundi I gær- kvöldi lögöu Sjálfstæðismenn fram tillögu um að öll bókakaup Borgarbókasafnsins yrðu lögð fyrir stjórn safnsins en hingað til hefur borgarbókavörður ásamt svokallaðri bóka valsnefnd ákveð- ið þessi bókakaup. Adda Bára Sigfúsdóttir sagöi við umræður um þessa tillögu aö sér fyndist i hæsta máta óeðlilegt að pólitisk nefnd færi aö skipta sér aö bókakaupunum en Ragnar Júliusson, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, sagöi aö starfsmenn safnsins væru pólitiskir. Tillagan var felld. AI/GFr Ekki er ástæöa til aö gera mikl- ar athugasemdir við þaö sem ein- stakir þingmenn Alþýöuflokksins eru si og æ uppi meö til aö spilla fyrir þessu stjórnarsamstarfi, en þaö gegnir ööru máli þegar sjálf- ur formaöur flokksins, sem jafn- framter utanrikisráðherra, leyfir sér slikt. Benedikt gerir litiö úr starfi nefndar á vegum Sameinuöu þjóöanna um friðlýsingu Indlandshafs. Ég kannaði þetta mál og samkvæmt þeim upplýsingum^em ég fékk á skrif- stofu þessarar nefndar, veröur haldin ráöstefna um máliö I april eöa mai næsta vor. Þeir sem ég ræddi viö hjá nefndinni og einnig fulltrúar I sendinefnd Sri Lanka, en formaður nefndarinnar er úr þeirra hópi, sögöu,aö það heföi mikla þýöingu aö sem flestar þjóöir styddu starf nefndarinnar og væntu þeir þess aö Islendingar geröu þaö meö formlegum hætti. Og ég trúi ekki ööru en rikis- stjórnin geri þaö, þrátt fyrir af- stööu utanrikisráöherrans. Jónas Arnason: Ummæli utan- rikisráöherra torvelda starf þeirrar utanrikismálanefndar sem leita á nýrra leiða i öryggis- málum. Tími til að íslendingar eigi frum- kvaeöi að þvi að draga úr hernaðarum- svifum á norðurslóðum frumkvæöiö I aö stööva tor- tímingaraðgeröir útlendinga á fiskstofnum. —eös Þessir bjálkar hrundu i fyrradag ofan af kvist- inum og hefðu getaö valdiö stórslysi. Siödegis i gær hafði ekkert verið hreyft við þeim. Birgir Svan, sem sésteinnig á myndinni, býr i húsinu við hliðina og hefur útsýn yfir brunarústirnar úr gluggum sinum. (Ljósm.: eik) 1 staö gangstéttar er gryfja svo aö vegfarendur veröa aö ganga út á götuna til aö komast leiöar sinnar. Svona hefur þetta verið i allt sumar. Timburhúsið sem flutt var að Þingholtsstrœti 28: Liggur nú undir skenundum Byggingarmeistari sá sem fékk dýrmæta byggingarlóö viö Þingholtsstræti 27 meö þeim skilmálum að hann flytti norska timburhúsið sem þar stóö yfir götuna og endurreisti þaö I sinni upprunalegu mynd, en þaö haföi brunnið að hluta, hefur ekkert hirt um að gera það fokhelt I sumar svo að nú liggur það undir skemmdum I vetur. 1 fyrradag hrundu stórir bjálkar af kvistinum ofan á gangstéttina og hefði getað orðið fólki þar aö fjörtjóni. Siödegis i gær höfðu þeir ekki verið fjarlægðir. I staö gang- stéttar fyrir framan húsið er gryfja og veröa vegfarendur að fara út á götuna til að komast leiðar sinnar en umferö er þarna mikil og gatan þröng. Þá er garöurinn allur vanhirtur og er hann og brunarústirnar ekki til fegurðarauka nágrönnum og öörum sem eiga leiö um Þing- holtsstrætið. Gera verður þá kröfu að húsinu verði a.m.k. lokaö fyrir veturinn og gengiö frá gangstéttinni. —GFr AI.MANNAVARNIR: Biðja um 1,9 milj. kr. í skjálftavakt Almannavarnir hafa fariö þess á leit, aö rlkiö greiöi kostnaö vegna vaktmanns á skjálftavakt á Kröflusvæöinuásamtdvalar- og ferðakostnaöi sérfræðings á veg- um visindastofnana, sem y.rði þar einnig aöstaðaldri. Er þá gert ráð fyrir tveim jaröfræöingum til skiptis á vakt, til ráögjafar. Kostnaöurinn er áætlaöur tæp 1.9 miljón kr., miöaö viö vaktmann I 4 vikur og visindamann í 6 vikur. . Olafur Walter Stefánsson skrif- stofustjóri i' Dómsmálaráðuneyt- inu sagöi í viötali viö Þjóöviljann I gær, aö Almannavarnir rikisins heföu sent þetta til ráðuneytisins sem beiðni um viöbótarfjárveit- ingu. Ekki hefur veriö tekin ákvöröun i málinu, en þar kemur einnig til kasta Fjármálaráðu- neytisins. Mývetningar óskuöu eftir þvi aörikiötæki þennan kostnaöá sig og telur hreppurinn sig ekki hafa bolmagn til aö standa undir kostnaöi viö skjálftavaktina. Orkustofnun stóö fyrir skjálfta- vaktinni á sinum tima, en hætti þvium siöustu áramót. Þá stóðu heimamenn vakt, sem greidd var aö hálfu eftir reglum um starf- semi aimannavarnanefnda. , ,Það veröur tekin ákvörðun um þetta á næstu dögum,” sagði Ólafur Walter. „Almannavarnir telja slika vakt nauösynlega og útfrá þvi er unnið.” —eös

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.