Þjóðviljinn - 19.01.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.01.1979, Blaðsíða 1
ÞJÚÐVIUINN Föstudagur 19. janúar 1979 — 15. tbl. —4£. árg. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ VILL SNÚA BLAÐINU VIÐ I EFNAHAG SMÁLUM: Ólafur Ragnar Grlmsson og Ragnar Arnalds meO efnahagstillögur AlþýOubandalagsins. NÝ ATVINNUSTEFNA — SAMRÆMD HAGSTJÓRN Verkföllin um helgina: Ekkert flogið innan- lands á sunnu- daginn Flugsamgöngur munu væntanlega truflast allmikiö um og eftir helgina vegna boOaOra verkfallsaögeröa flugmanna. AO sögn Sveins Sæmunds- sonar blaöafltr. Flugleiöa fellur á sunnudaginn niöur allt innanlandsflug og sömu- leiöis vöruflutningaflug til Kaupmannahafnar og Lon- don. Þá fellur einnig niöur Færeyjaflug, en flogiö verö- ur til Kaupmannahafnar og Osló meö farþega sam- kvæmt áætlun. A mánudag veröur flogiö á öllum leiöum eftir áætlun, en á þriöjudag fellur niöur flug til Vestfjaröa. A miövikudag fellur flug niöur til Glasgow og Kaupmannahafnar og innanlands til Hornafjaröar og Vestmannaeyja. Leysist deilan ekki má búast viö frekari verkfallsaögeröum á fimmtudag og áfram. —vh Meginefni ýtarlegra tillagna sem lagðar verða fram í ráðherranefndinni í dag [ dag verða tillögur í efnahagsmálum frá Alþýðubanda- lagi lagðar fram í ráðherranefndinni sem síðustu vikur hefur fjallað um þau mál. Að meginefni f jalla þær um nýja atvinnustefnu og samræmda hagstjórn. I þessari tillögugerð er fyrst og f remst um að ræða ný efnisatriði og tillögur um önnur sem enn hafa lítt eða ekki verið rædd í ráðherranefndinni. Nokkrar vinnunefndir hafa aö undanförnu starfaö innan Alþýöu- bandalagsins og fjallaö um ýmis atriöi varöandi stefnumótun I efna- hagsmálum. Sérstök samræmingarnefnd skipuö ráöherrum flokksins og þremur forystumönnum hans hefur slöan tekiö saman þau atriöi sem Alþýöubandalagiö setur fram I ráöherranefndinni i dag. Meginatriðin I markmiöskafla tillögugeröarinnar segir aö þegar rlkisstjórnin setji sér heildarstefnu I efnahagsmálum meö lagasetningu og sérstakri stefnuyfirlýsingu skuli sú stefnumótun hafa sem meginmarkmiö: • Að tryggja fulla atvinnu. A Að vernda þann kaupmátt launa sem samið var um i hinum almennu kjarasamningum árið 1977 og að bæta kjör launafólks eftir því sem efnahagsaðstæð- ur frekast leyfa. • Að endurskipuleggja atvinnuvegi iandsmanna með markvissri fjárfestingarstjórn og áætlanagerð og draga úr hverskyns sóun í yfirbyggingu þjóðfélags- ins svo að umtalsvert svigrúm skapist fyrir bætt lifskjör og víðtækar félagslegar framfarir. ^ Að efla forræði fólksins yfir framleiðslutækjunum og treysta efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. 70 til 80 stefnuatriði I tillögunum felast milli 70 og 80 stefnuatriöi og eru þær I ellefu köfl- um aö viöbættri greinargerö. Fjallaö er I sérstökum köflum um fjár- festingarstjórn, hagræöingu i atvinnurekstri og endurskipulagningu atvinnuveganna, sparnað í hagkerfinu, milliliöastarfsem; innflutnings- verslun, verðlagseftirlit, stjórn peningamála og bankakerfi, eigna- könnun, orkusparnaö, skattamál, húsnæöismál, kjaramál og samráö viö samtök launafólks. Tillögur þessar sem aö sjálfsögöu er ekkert endanlegt plagg frá Al- þýöubandalaginu veröa rækilega kynntar i Þjóðviljanum á næstu dög- um. — ekh Laumufarþegi á 1_ F1 ^ ® horö ob fundust bá tveir ] Hvalvikinm Fannst í vélarrúmi sólarhring eftir ad skipið fór frá Nígeríu Þegar Hvalvík lét úr höfn I Port Harcourt I Nlgeriu kl. 10 sl. sunnudagsmorgun var einn ó- boöinn farþegi innanborös. NI- geriumaöur haföi faliö sig uppi I rjáfri I vélarrúmi skipsins og komst ekki upp um hann fyrr en súlarhring siöar. Skipiö er nú á leiö til Spánar og þar veröur laumufarþeginn settur á land. Aöur en skipiö lét úr höfn I Port Harcourt var leitaö rækilega um V iðskiptaráðherra fer tU Portúgals Sjá bis. 2. borö og fundust þá tveir Nigeriu- menn I felum, sem þegar voru fluttir I land. Finnbogi Kjeld, forstj. skipafél. Vikur hf., sem gerir Hvalvik út, sagði i samtali viö Þjóðviljann, að þriöji laumu- farþeginn hafi falið sig á mjög ó- liklegum staö i vélarrúminu og þvi ekki komiö i ljós fyrr en aö sólarhringur var liöinn frá þvi aö skipið fór frá Nigeriu. „Mér skilst aö hann sé kunnug- ur hér á landi,” sagöi Finnbogi. „Hann segist hafa veriö skipverji á islenska skipinu Sögu.” Laumu- farþeginn er sjómaöur, en at- vinnulaus, og mun þvi hafa gripiö til þessa örþrifaráös til aö komast úr landi og leita sér aö vinnu. Maöurinn er meö alla pappira i lagi og hefur m.a.s. bólu- setningarvottorð. Hann veröur framhald á bls. 14 Snjúþungum mörsugi lauk meö blíðu og I dag byrjar þorri (Ljúsm.: Leifur) Sjálfstœðismenn í borgarstjórn: Tefja kosninguna í atvinnumálanefnd Borgarstjúrn Reykjavlkur samþykkti á fundi sinum I gær aö stofna nýja atvinnumálanefnd, skipaöa fimm mönnum. Einnig gerir samþykktin ráö fyrir aö stofnuö veröi sérstök atvinnu- máladeiid viö embætti borgar- hagfræöins og er þaö nú fyrst sem tilteknum aöila innan borgarkerf- isins er faliö aö sinna þessum mikilvæga málaflokki. Atvinnumálanefndinni er ætlað aö sjá um framkvæmd verkefna sem borgin beitir sér fyrir I at- vinnumálum og ekki falla undir aörar nefndir. Þá er nefndinni ætlað aö vinna aö eflingu atvinnu- lífs i borginni. Það vakti athygli aö þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi klifaö á þessum málaflokki undanfariö og Morgunblaðiö flytji næstum daglega fréttir af at- vinnuleysi þá voru borgarfulltrú- ar hans ekki tilbúnir meö fulltrúa sina i þessa nýju nefnd og var kosningu þeirra frestaö um hálf- an mánuö.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.