Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. febrúar 1979 >JÖÐVILJINN — SIÐA 11 íþróttir (2 iþróttír \7>\ iþrottir ■ Umsjón: Ingólfur Hannesson v J ■ SMOCK ER LÖGLEGUR segir stjórn KKÍ Blaðinu barst i gærdag yfirlýs- ing frá stjórn Körfuknattleiks- sambands íslands vegna deilna um það hvort nýr leikmaður Trent Smock, i liði stúdenta,væri löglegur eöa ekki. Bréfiö er svohljoðandi: „Bréffrá t.S. dagsett31. janúar 1979, um umsókn fyrir erlenda leikmanninn Trent R. Smock var tekið fyrir á stjórnarfundi i dag. Stjórn KKt litur svo á að keppnisleyfi sem veitt var fyrir erlendum leikmanni t.S. fyrir 15. október 1978, gildi áfram út keppnistfmabilið, fyrir Trent R. Smock, fæddan 28.8 1 954, enda sendi t.S. læknisvottorð fyrir 7. febrúar 1979, um að Dirk Dunbar sé ófær um að leika körfuknatt- Ieik áfram.” ÞessiyfirlýsingfráKKÍ mun að öllum likindum verða stefnu- markandi komi upp svipuð staöa á næstu árum. Samkvæmt þessu virðast keppnisleyfi erlendra leikmanna ekki vera gefin út á ákveðið nafn og þvi I neyöartil- fellum hægt að yfirfæra leyfið á annan leikmann. Undirrituðum finnst sambað hinri nýi leikmaður eigi að hafa dvalist i landinu i ákveðinn tima t.d. lmán.áður en hann fær keppnisleyfi. Þessi regla gildir venjulega um félags- skipti islenskra leikmanna. IngH. Maraþon- handbolti Nokkrir friskir strákar í 3. flokki i H.K. hyggjast keppa i maraþonhandknattleik og hefja leikinn kl. 7 i kvöld i Kársnesskól- anum. Þeir hafa boðið Kópavogsbúum áheitamiða til sölu og er það 100 kr. fyrir hver ja klukkustund sem leikin er. Þegar hafa 600 af 700 útgefnum miðum selst, svo það fara að veröa siðustu forvöð að tryggja sér slikt áheitakort. Vilja fá Bogdan sem knattspyrnuþjálfara Knattspyrnudeild Armanns hefursettsig isamband við hand- boltamenn Vikings með þaö i huga að næsta sumar muni hinn pólski handknattleiksþjálfari Vikinga, Bogdan Kowalsky, taka að sér þjálfun meistaraflokks Armanns i knattspyrnu, en þeir ieika I 3. deild. Iþróttasiðan hafði samband við Rósmund Jónsson, stjórnarmann i handknattleiksdeild Vikings og innti hann frétta af þessu máli. Rósmundur sagði það rétt vera, að Armenningarnir hefðu spurst fyrir um þetta og þá væntanlega vegna þess aö þeir Vikingarnir hefðu mikinnáhuga á þvi að gera tveggja ára samning viö Bogdan. Færi svo, þyrfti að útvega honum vinnu I sumar ogþ.a.l. hefði þessi möguleiki komið upp. Einnig hefði knattspyrnudeild Vikings verið boöiö að nota starfskrafta Pólverjans, en ekkert varð úr þvi máli. Rósmundur sagði aö lokum að þetta mál myndi væntanlega skýrast á næstunni. Þá hafði Þjv. samband við Þór Ragnarsson, fyrrverandi formann knattspyrnudeildar Vikings, og spurði hann um þetta mál. Þór sagði: „Það var nú reyndar minnst mjög lauslega á þetta viö okkur og þá einkum i sambandi við meistaraflokkinn. Þaö kom einnig til tals að Bogdan tæki að sér þrekþjálfun strákanna, enYoutrii.kemur mjög fljótlega og tekur það að sér. Siðan lognaöist þetta mál útaf og hefur ekkertverið meira um það rætt.” Þessmá geta f lokin að Bogdan er mjög vel menntaöur fþrótta- kennari eins og reyndar alhr þeir þjálfarar sem frá Austur-Evrópu koma. Það yrði vissulega feitur biti fyrir þá Armenninga aö fá slikan mann til starfa. UMFN á toppinn eftir sigur gegn Í.S. 101:87 „Það var stórkostlega gaman að spila sinn fyrsta leik á tslandi, en munurinn I lokin var of mikill. Liöið hans Ted er mjög gott og ekki auðvelt að eiga við þá. Ég lofá ykkur að þetta verði betra hjá okkur,” sagöi nýi leikmaöur stúdenta, Trent Smock, eftir leik- inn gegn Njarðvik i gærkvöldi. Leikurinn var mjög jafn f upp- hafi og voru stúdentarnir alltaf heldur á undan, 8—4, 12—8, og 25—22. UMFN fór þá að siga á, þeirnáðuað jafna og komast yfir, 35—35, 44—43 og þeir höföu for- ystu i hálfleik 46—43. Seinni hálfleikurinn var ekki siður jafn en hinn fyrri, einkum framan af. Um miðbik hálfleiks- ins voru Í.S. menn allt i einu komnir yfir 66—65, en sfðan hljóp allt i baklás hjá þeim og sunnan- menn tóku völdin I sinar hendur. Munurinn smá-jókst, 80—74, 95—82 og lokastaöan varð 101—87 sigur UMFN. Stúdentarnir komu á óvart i þessum leik; þeir börðust eins og ljón allan tímann, en léku samt af skynsemi. Sóknarloturnar voru langar og alltaf reynt aö stilla upp áður en skotið var. Gisli Gislason var „primus motor” í öllu spili sem fyrr og ekki gott að segja hvernig farið hefði ef hann hefði ekki þurft að yfirgefa völlinn með 5 villur i upphafi seinni hálfleiks. Jón Héðins og Bjarni Gunnar áttu báöir mjög góðan leik, einkum sá siðarnefndi, sem á hvern stórleik- inn á fætur öðrum. Bandarikja- maðurinn, Smock er greinilega frábær leikmaöur, en er i fremur lélegri æfingu. Um Njarðvikinga þarf ekki aö hafa mörgorð, þeir eru með lang- besta liðið i úrvalsdeildinni núna að mati undirritaös, hvergi veik- an hlekk að f inna. A mánudaginn kemur iljóshvortþessifullyrðing hefur við rök að styðjast, en þá leikur UMFN gegn K.R. Stigin fyrir I.S. skoruðu: Smock 29, Bjarni Gunnar 22, Jón H. 16, Gisli 14, Ingi 4 og Jón O. 2. Fyrir UMFN skoruðu: Bee 30, Gunnar 14, Geir 14, Arni 13, Guð- steinn 10, Guöjón 9, Július 2 og Jónas 1. IngH Hinn stæðilegiTrent Smock er hér i baráttu við Geir Þorsteinsson Njarðviking, skæðasta varnarleikmann UMFN. íslenska landsliðið aftarlega á merinni í athugun nokkurra íþróttablaða á styrkleika knattspyrnulandsliða Evrópsk íþróttablöð gera sér það oft til dundurs að búa til lista hvar knatt- spyrnuliðum Evrópu er raðað niður eftir frammi- stöðu á liðnu keppnistíma- bili. I nýjasta hefti Deutsche Sportecho eru birtir nokkrir slíkir listar, og er athyglisvert að skoða hvar fsland lendir. Hjá pólsku blaði, Przeglad Sportowy, erum við i 29. sæti, að- eins Luxemburg er neðar. 1 France Football er ísland I 29. sæti og þar er Luxemburg og Kýpur fyrir neöan okkur. Þeir hjá Sport Ztlrich hafa öll landsliö heimsins á sinum lista og þar er- um við I neðsta sæti. Þarna vekur þaö eflaust athygli hve ofarlega Túnis er, i 14. sæti og hafa skotiö mörgum gamalgrónum knatt- spyrnuþjóöum aftur fyrir sig t.a.m. Júgóslaviu, Irlandi, Sovét- rikjunum og Sviþjóö. Loks taka þeir sig til hjá Deutsche Sportecho og raða lönd- unum niður i styrkleikahópa. Þar erum við að sjálfsögöu I neðsta hópnum ásamt Luxemburg, Möltu og Kýpur. A árinu 1978 lék tsland 6 lands- leiki, fjögur töp og tvö jafntefli. Markatalan er okkur mjög óhag- stæð. Eitt skoraö mark, en feng- um á okkur 11. Heima lékum viö gegn Pólverjum (0:2), Dönum (0:0) og USA (0:0). Ctileikirnir voru gegn Hollendingum (0:3), Austur-Þýskalandi (1:3) og Pólverjum (0:3). Þaö er e.t.v. eölilegt að við skulum tapa fyrir þessum knatt- spyrnustórveldum með 2-3 marka mun, en hitt hlýtur aö vera áhyggjuefni hve illa markaskor- un gengur. Vonandi stendur þetta til bóta þegar okkar efnilegustu framlinumenn, Pétur Pétursson og Arnór Guöjónssen hafa skólast I atvinnumennskunni. IngH Rangllsten anderer zum Vergleleh _Prz«gled Sportowy”, Wertduu .France Footbell”, Parla .Sport“ Bcl^rad (ElnteUung nach Leistungsgruppen) 1. Nlederlande 2. ItaUen 3. England 4. Frankrelch 5. BRD 6. Polen 7. österrelch 8. Spanlen 9. Portugal 10. Schottland 11. CSSR L2. Schweden 13. DDR 14. Wales 15. Ungarn 16. UdSSR 17. RumMnien 18. Beltfien 19. Jugoalawlen 20. Nordirland- 21. Irland 22. Grlechenland 23. Schwedz 24. Bulgarlen 25. Dttnemark 26. Finnland 27. Norwegen 28. TUrkel M. I.iland_ 30. Luxemburg 1. Nlederlande 1. Niederlande l. Argentinlen 2. ILallen 2. Itallen 2. Braslllen 3. L'ngland 3. Niederlande Polen 4. ItaUen 5. Spanlen 5. Polcn Frankrelch 6. England , 6. österretch 7. BRD 8. österrelch 8. England 8. Frankrelch 10. Spanlen 12. Schottland ll. Ungam 11. Portugal Schweden Nordirland 14. Tuneaien 15. UdSSR Belglen 17. DDR 18. Irland 19. Rumttnlen 20. Grlechenland Jugoslawlen 22. Dfinemark 23. Ungarn 23. Grlechenland 24. Schwelz 25. Bulgarten 26. Flnnland 27. Norwegen —a. ialAnd 2&. Jugslawien 30. Zypern Luxemburg 31. Bulgarlen 32. Schwelz 33. Norwegen 34. TUrkei 35. Island • In der WM-Finalrunda dabeú — ln der EM mlt gutan Anaxlchten: • Aufachwung tn den EM-Gruppenaplelen hler — Abfall nach der WM dort: • In der EM swar nlcht auaalchtsloa, doch waltar zu unbaatttndlg: Nlederlande BRD österreich Italien PoVen Portugal Spanlen CSSR Nordlrland Schottland Schweden England UdSSR Rumttnien Wajes DDR Frankreich • AnachluB nach oben vorerat verloren — ateta su Uberraachungen f&hlg: • Im Fahratuhl nach oben und nach unten: • An Boden verloren — hin und wledar mlt Oberraschenden Reauttaten: Ungam Schwdx Belclen FJnnland Grlechenland JugoAlawlen Ddnemark Irland Norwegen irier am Ende dar Bangliata: Luxemburg Malut Zypem Eitt og annað Firmakeppni i hand- bolta Handknattleiksdeild KR gengst fyrir firmakeppni i handknattleik, sem hefst föstud. 16. feb. 1979. Þátt- tökutilky nningar ásamt þátttökugjaldi kr. 20.000 og nafni forsvarsmanns firma- liðs ásamt simanúmeri send- ist til: Stefáns G. Stefánssonar, Box 379 fyrir föstudaginn 9. feb. Nánari upplýsingar veitir Páll Asmundsson i sima 10121 eftir kl. 19.00 TBR-fréttir Okkur hérna á Þjóöviljan- um barst hressilegt blað fyrir skömmu og nefnist það TBR-fréttir. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Sigfús Ægir Arnason. Þettablaðer i „Herópsbroti” eins og segir á einum stað og einkum helgað siðasta aðalfundi TBR. Þessi útgáfustarfsemi er til fyrirmyndar og mættu önnur félög margt af þeim badminntonmönnum læra. tþróttasiðan ætlar að taka sér bessaleyfi og birta nokkrar örstuttar tilvitnanir i blaðið: Um þing ISI og IBR: Þessar samkundur eru lang- dregin, þunglamalegoghálf- stirnuö fyrirbæri, sem fátt merkilegt leiða af sér. Næstu verkefni við TBR húsið: Klára að klæða iþróttasalinn að innan og setja úpp loftræstikerfi. Láta teikna félagsheimili og skrif- stofuherbergi, sem koma ofan á baðkjarna. Otiþarf að girða og laga lóðina ásamt þvi að gera varanleg bila- stæði Um enska gesti á Tropi- cana-mótinu: Þeir Wallwork og Bridge dvöldust á Islandi fram á miðvikudags- morgun og sýndu þeir TBR-ingum listir sinar bæði á mánudag og þriðjudag. Þeir fengu aftur á móti að sjá bestu hliöar þjóöarinnar — fagrar konur á Sögu og i Óðali — ásamt óspilltri náttúrufegurð landsins. Reykjavikurmót i borðtennis A sunnudaginn 4. febrúar n.k verður haldiö Reykja- vikurmeistaramót i borö- tennis i Laugardalshöllinni. Mótið hefst kl. 13 með keppni i einliöaleik unglinga Einliðaleikur oki boys hefst kl. 14 Tvenndarleikur hefst kl. 15 Allir tviliöaleikir hefjast kl. 16 Einliðaleikur karla og kvenna hefst kl. 18 Reykjavikurmótsnefhd. Enn við sama heygarðshornið QPR - leikmaðurinn Stan Bowles var þckktur vand- ræðagemsi hér áður fyrr, en hefur haft heldur hægara um sig hin seinni ár. Þó komst kappinn ( fréttirnar fyrir skömmu þegar hann gaf út þá yfirlýsingu I ensku blaði, aö hann væri vanur að taka inn örvandi lyf fyrir leiki. Stuttu seinna komst það upp að blaðið hafði greitt Bowles 1000 pund fyrir aö gefa út þessa „yfirlýsingu”. Þá dró hann i land og sagöist ekkerthafa vitað hvað hann skrifaði undir. Já, gullkálf- urinn kemur viða við.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.