Sunnudagur 1. apríl 1979 ÞJ6ÐVILJINN SÍÐA 5 Ríkarður Pálsson skrifar um tóniist Manuela Wiesler Tónteikar hófust með verki fyrir hljómsveit, sem Messiaen samdi á fyrstu árum eftir striö. Verkið er //mystískt" og hljómfagurt og var besta einingin úr hinni frönsku þrenningu/ sem boðið var upp á. Það virt- ist einnig vera það sem best var leikið af sin- fóniuhljómsveitinni. Frekar var þéttskipað í Háskólabíói þrátt fyrir efnisskrána og verður sennilega að skrifast á einleikarann. Það vill kvisast út/ ef menn eru góðir. Manuela Wiesler er einleikari af Heilagrar Sesselju náð. Þó að hún sé þegar á heimsmæli- kvarða, verður maður samt var við mikla framför. Að visu er ekki mikið hugar- angur i flautukonsert Fran^aix. Hann er ekki saminn af djtipri þörf, eins og þar stendur. En hann er léttur, skemmtilegur og hroðalegur fingurbrjótur i flutn- ingi. Annars er Jean Franqaix afkastamikill höfundur og þekktur m.a. fyrir sæg af ballettum og léttum tækifæris- verkum. Þar á meðal er Óður nokkur til matargerðarlistar. Hve franskt! . Að geta lagt á minnið allar nótur flautukonsertsins er eitt sér afrek, enda er hann að sögn sjaldan leikinn blaðlaust eins og nú. Manúela gerði meira, hún lék þetta erfiða nútimaverk (frumflutt 1968 af Jean-Pierre Rampal flautusnillingi) svo að maður tók ekki eftir hinu erfiða, en það er hin sanna list", eins og Mozart orðaði það. Það hlýtur aðeins að vera spursmál um tima, áður en við missum þennar frábæra listamann úr landinu. Undir venjulegum kringum- stæðum væri framlag hljóm- sveitarinnar i svona konsert sennilega talinn allþokkalegur. Hér hreif einleikarinn fólkið með sér og fékk flesta til að leika eins þeir gátu ( einnig styrkleikalega séð, Jacquillat hefði betur mátt þagga niður i hljómsveitinni á köflum). Með tilliti til, að stjórnandinn er staddur á landinu a.m.k. hálfum mánuði fyrir þessa tónleika, er samt spurning hvort ekki hefði verið viðeigandi að verja fleiri æfingum en fjórum i Francais og þannig ná einhverju sam- ræmi i hljómsveitinni við frá- bæran brilljans einleikarans. En á sama tima skilst mér að sinfóniuhljómsveitin hafi verið upptekin við skólatónleika úti um hvippinn og hvappinn. Eftir þennan myndarlega sigur lék Manúela aukalag, eftir sama höfund að mér heyrðist, Allemande fyrir einleiksflautu, sem var hin fullkomna and- stæða við konsertinn. Það var sterkur leikur, sniðugur list- "rænn kontrapunktur, að viðhafa hæga fallega og þjóðlaga- kennda smásmið til að sýna angurværa hlið flautunnar eftir flaumósa hindrunarhlaupið. Um Roussel er litið annað að segja en að meira andris (anti- klímax) við flautukonsertinn fyndist varla. Þessir minni spá- menn ættu að umgangast al- vöruna með varúð, þeim fer miklu betur að slá á létta strengi eh að beygja skafl. Það er ábyggilega leitun á lang- dregnari og leiðinlegri lokaþætti i 20. aldar sinfóniu en Trés lent Modérément animé" eftir Albert Roussel. Rttl Felagsmálastofnun Reykjavikurborgar Vonarstræti 4 sími 25500 \V auglýsir eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: l.Stöðu deildarsálfræðings við fjölskyldu- deild stofnunarinnar, a.m.k. 3ja ára starfsreynsla, skilyrði. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirmaður fjölskyldudeildar. 2.70% staða ritara sem staðsettur verður i útibúi stofnunarinnar i Asparfelli 12. 3.50% staða skrifstofumanns hjá Heimilis- hjálp og þjónustu, Tjarnargötu 11. Upplýsingar um tvær siðastnefndu stöð- urnar veitir skrifstofustjóri. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skrifstofustjóra fyrir 22. april n.k. dagkl.2 5 Spilaó um fjölmarga glæsilega feróavinninga. Utan- landsferóir í hverri umferó og feróaverólaun í alla aukavinninga. Irska þjóðlaga- hljómsveitin De Danann med sína sérstædu og frábæru tónlist Verslunarskóla- kórinn syngur undir stjórn Jóns Cortes Diskótekið opið á nedri hædinni fyrir unglingana wm Aógangur ókeypis Kaff i og kökur kr 1.500 Kók og Prins pólo - 500 Nýi feróabæklingurinn liggur frammi Samvinnuferóir-Landsýn Austurstræti 12 - sími 27077 Baráttufundur Herstöðvaandstæðinga í Kópavogi í dag sunnudaginn 1. apríl kl. 14 í Félagsheimili Kópavogs 1. hæð. Ávörp söngur upplestur Fram koma: Jón úr Vör Þorvaldur örn Arnason Gunnsteinn Ólafsson Páll Theódórsson Ingólfur Steinsson Kristján Guðiaugsson o.fl. Kaffi verður til sölu. Herstöðvaandstæðingar fjölmennið, hlustið á góða dagskrá með sunnudagskaffinu. Kópavogshópur samtaka Herstöðvaandstæðinga