Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 30. mai 1979 k-JÓDVlLJINN — SJÐA 5 Starfsemi áhugaieikféiaga: Stærsta alþýðuhreyfing í listsköpun Rætt við Helgu Hjörvar um aðaifund Bandalags Islenskra Leikfélaga Leiklistarlif i landinu er blóm- legt um þessar mundir. Leikárinu er ekki lokið, en láta mun nærri að um 60 leikrit hafi verið sýnd úti á landi. Um sfðustu helgi hélt Bandalag tslenskra Leikfélaga aðalfund sinn, þann fjölmennasta hingað til. Um 60 fulltrúar sátu fundinn en i BÍL eru nú 71 félag. Þjóðviljinn náði tali af Helgu Hjörvar framkvæmdastjóra bandalagsins og leitaði frétta af fundinum. — Það var gott hljóð i fundar- mönnum enda þótt félögin úti á landi eigi við ýmsa örðugleika að etja. — Hver eru stærstu vandamál- in? — Þau eru margs konar, ekki bara fjárhagsleg heldur vantar einnig þekkingu og betri vinnuað- stöðu. Menn voru þeirrar skoðunar að besta leiðin til úrlausnar væri aö efla sin samtök og styrkja bandalagið. Við höfum haldið námskeið til að bæta úr til- finnanlegum þekkingarskorti og i sumar verða haldin tvö námskeið. Það fyrra er norrænt um raddbeitingu og hreyfitækni og þangað fara 7 fulltrúar frá okkur. Þar kenna mjög færir kennarar, sem starfa við kennslu atvinnuleikara á Norðurlöndum. I ágúst verður svo ndmskeið i leikmyndagerð. Það verður hald- ið i Varmahlið i Skagafirði og kennari þar verður finnskur, Pekka Ojamaa að nafni. Hann er atvinnumaður og vinnur við finnsk leikhús jafnframt þvi sem hann kennir hjá áhugafélögum. — Viltu nefna fleiri mál sem voru rædd? — Nú það var rætt almennt um listræna og fjárhagslega stöðu félaganna. — Hvað um leikstjóra? — Leikstjóramálið er vanda- mál. Styrkur rikisins til leik- félaga sem ætlaður er leikstjóra en 110-225 þús. kr. en laun leik- stjóra voru sl. ár 400 þús. kr. Þarna er bil sem þarf að brúa. Það þarf ekki aðeins að greiða laun heldur bætist ofan á akstur milli staða, en stundum fæði og húsnæði. Leikarar úti á landi leggjaá sigmikla sjálfboðavinnu i þágu sinna byggðalaga og þvi er algjörlega siðlaust ef þar ofan á bætist fjarhagslegar skuldbind- ingar félagsmanna. Það er alls ekki það að leikstjóralaunin séu of há ef á að lifa af þeim. Leik- félögin hafa svo takmarkaö fjár- magn til að spila úr. — Hvað er til ráða? — Fundarmenn voru sammála um að mennta þurfi fleiri leik- stjóra úti á landi, en auðvitað verður að vera góð samvinna við atvinnumenn. Framþróun leik- listarinnar krefst samstarfs viö hæfustu krafta. Við skulum ekki gleyma þvi að áhugaleikfélögin úti d landi, eru fjölmennasta alþýðuhreyfing i listsköpun. Hver venjulegur maður getur tek'ið þátt i starfi leikfélaganna og það er ekki svo litils virði. -ká Helga Hjörvar Innlend kvikmyndagerö svelt: Forréttindi útlendinga Stjórn Félags kvikmyndagerð- armanna hefur sent frá sér eftir- farandi samþykkt: Félag kvikmyndagerðarmanna lýsir áhyggjum sinum yfir vax- andi fjölda erlendra kvikmynda- hópa við kvikmyndatökur hér á landi á irieðan innlend kvik- myndagerð er svelt og innlenda kvikmyndagerðarmenn skortir verkefni. Hópar þessir vinna með tækj- um, sem engin aðflutningsgjöld eru greidd af til islenska rikisins og njóta fyrirgreiðslu frá innlend- um stofnunum og fyrirtækjum, sem islenskir kvikmyndagerðar- menn eiga ekki að venjast. Þegar á heildina er litið njóta erlendir kvikmyndamenn forréttinda fram yfir innlenda starfsbræður sina. Af nýlegum verkefnum þessara hópa má m.a. nefna: ,,Brekku- Önundur Ásgeirsson, OLÍS: Ástœður fyrir synjun á olíuflutningi til Bolungarvíkur Þjóðviljanum barst I gær eftir- farandi athugasemdir frá önundi Asgeirssyni forstj. Oliuverslunar tslands i simskeyti: • Vegna forsiöufréttar i Þjóðvilj- anum i dag vil ég hér með biðja fyrir birtingu á eftirfarandi: Verkfallsnefnd Farmanna- og fiskimannasambands Islands veitti hafisnefnd s.l. laugardag ótakmarkaða undanþágu til flutninga á tveim förmum á hafissvæði norðanlands. 2. Skriflegt samkomulag var gert milli oliufélaganna og hafis- nefndar um sjö-leytið á laugar- dag, að þessir tveir farmar færu til Noröurlands. Var ákveðið i þvi samkomulagi, að „Kyndill” færi með farm, á Sauðárkrók, Siglu- fjörð og Olafsfjörð. 3. A mánudagsmorgni var undirriluðum tilkynnt, að komið hefði fram tillaga um að skildir yrðu eftir 80.000 litrar af gasoliu i skipinu og þeir fluttir til Bolung- arvikur (ekki 8.000 tonn eins og stendur i Þjóöviljanum). Þetta magn samsvarar þvi, aö einn bil- stjóri færi 8 ferðir frá Isafirði til Bolungarvikur, þ.e. 8 klukkutima vinna. 4. Þar sem augljóst er að tsa- fjörður verður oliulaus á föstudag / laugardag og Bolungarvik og Isafjörður eru á sama dreifingar- svæði, er eðlilegt að tankskip sé látið flytja til tsafjarðar og Bol- ungarvikur frá Reykjavik og mundi slikur farmur geta komið á þetta svæði á fimmtudag. 5. Flutningur á 80.000 litrum til Bolungarvikur er þannig aöeins tafir fyrir skipið og kemur engum að gagni. Tafirnar mundu hins vegar bitna á öðrum höfnum, þar sem oliuleysi er fyrirsjáan- legt og nauðsynlegt er að bæði strandflutningaskipin „Kynd- ill” og „Litlafell” haldi áfram fullum og ótakmörkuðum flutn- ingum ef á aö forða vandræðum á mörgum höfnum. 6. Oliufélögin hafa 57 birgða- stöðvar i landinu og aðeins 2 skip til aö fullnægja þessu. Þaö er al- gjört ábyrgðarleysi gagnvart þvi fólki, sem þarf að nota oliuna, að Framhald á 14. siðu kotsannál”, „Paradisarheimt”, „Running Blind” og „Söguna um Sám”. Tvær hinar fyrst nefndu eru gerðar i samvinnu viö islenska sjónvarpið, sem tekur þátt i fjár- mögnun, útvegar leikara og sviðsmenn, en til islenskra kvik- myndagerðarmanna hefur ekki verið leitað um kvikmyndastörf. Að hinum kvikmyndunum hefur verið unnið án þess að nokkurt samband hafi verið haft við is- lenska kvikmyndagerðarmenn. Nú siðast var landsleikur Is- lands og V-Þýskalands i knatt- spyrnu kvikmyndaður af Þjóð- verjum á vegur ARD sjónvarps- stöðvarinnar án þess að leitað hafi verið til innlendra aðila vegna verksins. Venjan er hins vegar sú að heimamenn sjái um slikar tökur. Félag kvikmyndagerðarmanna hefur óskað eftir þvi við Félags- málaráðuneytið að það krefjist atvinnuleyfis af erlendum kvik- myndagerðarmönnum eins og tiðkast um aðrar stéttir. Verði framhald á þeirri þróun að erlendir kvikmyndagerðar- menn njóti forréttinda fram yfir starfsbræður sina hérlendis áskil- ur Félag kvikmyndagerðar- manna sér allan rétt til aðgerða til þess að verja atvinnumarkað innlendra kvikmyndagerðar- manna. Nýtt humarverd: 2500 kr. kílóið Verðlagsráö sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lág- marksverð á ferskum og slitnum humri á humarvertiö 1979. 1. flokkur, óbrotinn humarhali, 25 gr og yfir, hvert kg.. kr. 2.500,- 2. flokkur, óbrotinn humarhali, 10 gr að 25 gr og brotinn humar- hali 10 gr og yfir, hvert kg.. „ 1.200.- 3. flokkur, humarhali 6 gr að 10 gr, hvert kg.. ,, 500,- Verðflokkun byggist á gæða- flokkun Framleiöslueftirlits sjávarafurða. Verðið er miðað við, að seljandi afhendi humar- inn á flutningstæki viö hlið veiði- skips. í stuttu máli Sveinbjörg og John Ljóöatónleikar á Kjarvalsstöðum John Speight baritónsöngvari og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir pianóleikari halda Ijóðatónleika að Kjarvalsstöðum fimmtudag- inn 31. mai kl. 20.30. A efnisskránni eru islensk þjóðlög i útsetningu Þorkels Sigurbjörnssonar, lög efur Fauré og Ravel, auk þess sem þau munu flytja hinn þekkta ljóðaflokk Schumanns „Dichterliebe” við ljóð Heines. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn. Sigrún Jónsdóttir opnar á laugardaginn kemur, 2. júni málverka- sýningu i Egilsbúð i Neskaupstaö. A sýningunni sem verður opin til 7. júni, eru um 30 oliumálverk. Þetta er önnur einkasýning Sigrúnar, hinfyrri var i Vestmannaeyjum sl. vor. Á myndinni er Sigrún við eitt verka sinna. Brúöubíllinn startar í dag Brúðubilinn hefur starfsemi sina i dag og byrjar að sýna börnunum á leikvöllum borgar- innar brúðuleikhús. Verður i dag komið við á tveim stöðum kl. 2 á leikvellinum i Faxaskjóli og kl. 3 i Dunhaga. A morgun, föstudag, verður sýnt á leik- völlunum við Hringbraut, kl. 10 fh., Vesturvallagötu kl. 11, Vesturgötu kl. 2 eh. og við Freyjugötu kl. 3. Sýnir í Neskaupstað Ragnhildur og Þorbjörn opna umrœöur: Friöhelgi einkalífs A morgun fimmtudaginn 31. mai kl. 20.00 gengst Félag þjóð- félagsfræðinga fyrir almennum fundi i Æfingaskóla Kennara- háskólans við Bólstaðahlið. Fundarefnið er: Félagslegar rannsóknir, friðhelgi einkalifs. Flutt verða tvö stutt fram- söguerindi og að þeim loknum verða almennar umræður. Frummælendur verða : Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður og Þorbjörn Broddason, dósent. Fundur þessi er öllum opinn. Félag þjóðfélagsfræöinga hefur starfað um nokkurra ára skeið. Fyrir tveimur árum var það sameinað Félagsvisinda- félagi tslands, en það var stofnað með tilkomu náms- brautar i þjóðfélagsfræðum við Háskóla tslands. Félag þjóðfélagsfræðinga á Þorbjörn Ragnhildur Broddason 'Helgadóttir aðild að tveimur norrænum samböndum, Norræna félags- fræðingasambandinu og Norræna stjórnmálafræöinga- sambandinu. Sambönd þessi gefa hvort um sig út timarit um málefni sinna fræðigreina. Félagsmenn i Félagi þjóð- félagsfræðinga eru nú 63 talsins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.