Þjóðviljinn - 23.06.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.06.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. júní 1979 AF HANDRITI HANDA ÞRÁNDI Við Þrándur Thoroddsen höfum í marga áratugi verið mestu mátar, góðir vinir og félagar og margt brallað saman bæði opin- berlega sem og í laumi. Allir sem Þránd þekkja vita að hann er með mestu húmor- istum og bera textaþýðingar hans á Prúðu- leikurunum því gleggstan vott. En Þrándur getur líka slegið á alvarlega strengi einkum í samvinnu við Jón Hermannsson, og erþað vel því enginn skyldi ætla að lífið sé eintómt húllumhæ, glens og gaman. Ég hef grun um það að þeir f élagar ætli sér í framtíðinni að snúa sér fremur að hinum alvarlegri viðfangsefnum sem eiga meira erindi til okkar (eins og gaggrínendur segja) en léttvægt fleipur og mun kvikmynd þeirra um vorverk í sveitum sem sýnd var á dögunum í sjónvarpinu vera fyrsta sporið í þá átt. Þvi ber og að fagna að Sjónvarpið skuli hafa riðið á vaðið með þjóðlegan fróðleik í leikbúningi frá fyrri öldum. Vegna alls þess sem að framan er talið hef ég afráðið að senda Þrándi vini mínum handrit að leikriti minu „Hér sé guð" og vænti þess að það verði tekið hið fyrsta til kvikmyndunar. Hér sé guð (Sjónvarpshandrit) Persónur: Brandur (bóndi) Gunnfríður (húsfreyja) Grímur (húskarl) Hreðjar (vinnumaður) Eygló (dóttir hjóna) Njáll (niðursetningur) Snati (hundur) (Fjósbaðstofa. Fjalagólf í miðju húsinu, en ekki út við hliðarnar. Stafir háir, eigi minni en 4— 4 1/2 alin. Bitar negldir á stoðir 3 álnir frá gólfi og loft lagt á bitana. Slagþil. Stoðir uppá lausholt, en syllur felldar á klofa á stafina og sperrur felldar þar ofaná — kálfa- sperrur— . Langbönd, reisif jöl/áreftiog tróð. Skammbitar á miðjum sperrum. Orðið rökkvað, enda komið framá vöku. Brandur bóndi eltir tóbakspung. Gunnfríður spinnur á snældu. Grfmur húskarl þæfir vettling. Eygló kembir tásu, en Hreðjar vinnumaður klórar henni á bakinu. Njáll niðursetningur leikur sér við hundinn Snata.) Brandur bóndi: (Viðkonusína) Égerekkifrá því að birtu sé tekið að bregða, heillin mín (við Njál). Farðu fram bölvaður ófétis ódrátturinn þinn og sæktu Ijós. (Njáll fer. Löng þögn á meðan Njáll niðursetningur er að sækja Ijósið). Eygló heimasæta: (Við föður sinn) Þú nuddar punginn pápi minn. Brandur bóndi: Já heillin mín, ætli maður geri það nú ekki framí andlátið. Gunnfriður húsfreyja: Huhhh!! Eygló heimasæta: (Við Hreðjar sem klórar henni ástúðlega) Svolítið neðar og til hægri, austar... nei norðar og neðar ... þarna já Hreðjar, þarna. Þetta er gott ahhh! Svona já (Njáll kemur meðljósið. Við Hreðjar) Þetta er nóg. Þakka þér fyrir gæskurinn. Grímur húskarl: A ég að setja sellýsi, há- karlalýsi,, þorskalýsi, eða hrossaflot á blessaðan lýsislampann. Gunnfríður húsfreyja: Settu á hann hrossa- flot, góurinn, og réttu mér trunkinn. Við kveikjum svo á hinum áður en Brandur byrjar húslesturinn. Eygló heimasæta: Mamma. Þegar ég kembi, á ég þá ekki að tá ullina milli handanna á mér og kemba hana svo í kömbunum. Gunnfríður húsf reyja: Rétt er það nú gæskan og eins og þú sérð eru kambarnir með skafti útúr miðjunni. Hreðjar vinnumaður: Gaman væri að vita hvers vegna hausinn er 8 — 9 þumlungar og tindarnir f jórir þumlungar eða vel það. Gunnfríður húsfreyja: Það er nú til þess, Hreðjar minn, að hægt sé að taka ullarvisk, stinga honum á tindana, taka annan kambinn með hægri hendinni og hinn með vinstri og kemba milli kambanna, greiða svo úr viskunni, lyppa upp í lófa sér og leggja f rimlameisinn eða láinn. Hreðjar vinnumaður: Já, það var og. Lengi skal manninn reyna. Brandur bóndi: Jæja, gott fólk, þá er rétt að byrja húslesturinn. Eygló heimasæta: Já pápi minn. Ó pápi minn hvað ég hlakka til. Brandur bóndi: Réttu mér Saltarann, heillin. Hann liggur þarna á lausholtinu. Eygló heimasæta: Nei pabbi, lestu heldur úr Jónspostjllu. Það er svo miklu skondnara. Gunnfriður húsfreyja: Mig syfjar. Ætli gesta- komu sé von? Eitthvað sækir að mér. Njáll niðursetningur: Óví eða viva va óvivi diða á veði vivi. Gunnfríður húsfreyja: Þegi þú bölvaður ódrátturinn þinn og sestu þarna á fletið. Njáll niðursetningur: óví eða viva va óvivi diða á veði vivi. Brandur bóndi: O, leyfðu nú blessuðum aulanum að fara með Hávamálin sín: „Óvíst er að vita hvar óvinir sitja á fleti fyrir." (Þrjú þung högg heyrast framan úr göngunum. Snati ærist, húsfreýja hrekkur uppaf værum blundi, allir spretta á fætur og horfa hver á annan, óttaslegnir). Brandur bóndi: Hér er ei allt með felldu. Hví er ei guðað á gluggann og þó komið framá miðja vöku. Njáll niðursetningur: óvt eða viva... Gunnfríður húsfreyja: Þegi þú bölvaður ódrátturinn þinn. (Fólkið þegir) Snati hundur: Voff! voffvof f voff!!!!! voff! voff! voffvoffvoff!!! Brandur bóndi: (Sparkar íhundinn) Þegiðu! andskotans kvikindið þitt!! Rödd hreppstjórans: (Guðará gluggann) Hér sé guð. Allt heimilisfólkið í einum kór: Guð blessi þig. Gunnfríður húsfreyja: Nú það er sjálfur hreppstjórinn. Allir: Gaman, gaman!! Lokasöngur: (Allir) Talið er að fortíðin sé fróðleg fögnum allir, sjónvarpið það veit að elliglöp eru óskaplega þjóðleg einkum þegar komið er í sveit. Flosi. Karl Kvaran á Kjarvalsstöðum: A llar kindur eiga sér nöfii... Karl Kvaran hefur opnað mál- verkasýningu aö Kjarvalsstööum sem veröur opin fram á sunnu- dagskvöldiö 1. jiíll. Þarna eru 41 verk. Litir sem kaDaöir eru hreinir eöa sterkir og hrislast niö- ur um þá s vartar Hnur. Stórverk I sniöum. Stærsta sýning Karls. Viðerum minntir á þaö, að Karl Kvaran hefur sýnt mikla staö- festu i þróun afstraktmálverks, hann hefur fylgt þvi eftir meöan flestir aörir af hans kynslóö, ein- att kenndir viö September, hafa fitjaö upp á ýmsu ööru. Hvemig stendur á þessari tryggö? Ætli þaö sé ekki vegna þess aö þaö eru svo miklir möguleikar i þessu tjáningarformi, segir Karl i stuttu spjalli. Þaö tala margir um að ég noti sterka liti. Ég vil svara því til, aö mér finnst mikils um vert aö láta litina halda slnum sérkennum, halda sinum uppruna, hreinleika. Línur, stærð Linurnar svörtu? Ég hefi alitaf haft mikinn áhuga á linu I mál- verki. Og i seinni tíma myndum hefi ég lagt meiri áherslu á hrynj- andi i linum. Og mér finnst aö ég þurfi aö hafa myndirnar stórar i sniðum einmitt út af linunni. Ég hefi reyndar ekki oröiö var viö aö menn kvörtuöu yfir því aö mynd- irnar væru of stórar fyrir þeirra húsakynni. Satt aö segja hefi ég þá reynslu aö stórar myndir selj- ist tiltölulega best. Kannski er þaö af því aö menn byggja stærri hús en áöur, ég veit þaö ekki... Bankasaga Við sátum úndir stórri mynd sem Gunnlaugur Þóröarson vildi kalla Landsbanka Islands en ber ásýningunni nafniö Gustur. Þessi mynd haföi meö annarri eftir Karl veriö fest upp i Landsbank- anum til reynshi, til tveggja mán- aöa. En þaö urðu aldrei nema tveir dagar. Myndirnar voru teknar niöur og settar niöri i kjallara. Þaö komu fram ýmsar tillögurum ástæöurnar. Voru þær of örvandi fyrir tölvuvætt fólk? Eöa var Gustur of likur islenska peningakerfinu (hringur i hring)? Starfsfólkiö vildi þetta ekki, sagði höfundur þessa sérstæöa listastríðs í banka — og gat vel lumaö á fleiri sögum i þessa veru. Mannanöfn Myndirnar heita ýmsum nöfn- um — ein er kennd viö fallöxina frönsku, önnur viö konu ágæta, hin þriöja viö Dorian Gray — sú saga var flutt I útvarpi um svipað leyti og myndin varö til. Nöfnin eru ekki visbendingar frekar en mannanöfn, sagði Karl. Allar kindur heita einhverjum nöfnum og þvi ekki myndir? Og þar meö var fjölmiölaran- um lokið. Karl viöurkenndi aö þær gætu veriö erfiðar. Ég var aö því spuröur áöan af hverju þessi mynd væri öðruvisi en hin. Þessu er ekki hægt að svara. Ég veit þaö ekki, maöur tekur ekki eftir sllku sjáifur... áb. Kari Hvaran og ao oakl hans Oustur: petta tjáningarform hefur mikla möguleika... (Ljósm.: Leifur).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.