Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 1
Borgarstjórn samþykkir: UÚDVIUINN Starfslok við 71 árs aldur Laugardagur 5. janúar 1980 3. tbl. 45. árg. Nýrra tillagna um starfslok og Hvaða tak hefur Sea- board á Flugleiðum hf.? sveigjanleika í þeim efnum að vænta 1. júní Borgarstjðrn samþykkti á fimmtudag aö starfsmönnum borgarinnar verði heimilt ab starfa til 71 árs aldurs eða næstu mánaðamóta þar á eftir og jafn- framt var nefnd sem skipuð var á sinum tima til að endurskoða Hvers vegna vilja Flugleiöir ekki spara hundruð miljóna með við- haldi og viðgerð - um hér heima? A blaðamannafundi sem Fél. Loftleiðaflugmanna og Fél. flug- virkja hélt í gær kom margt at- hyglisvert fram. Þess á meðal var bent á það, að með þvi að framkvæma alla skoðun á DC 8 og 10 vélum Flugleiða h.f. hér heima, eins og hægt er að gera nú þegar myndu Flugleiðir h.f. spara hundruð miljóna árlega, og ef farið hefði verið að tillögu flugvirkja um byggingu flugskýi- is á Keflavikurflugvelli, þar sem allar viögeröir á þessum vélum væru framkvæmdar mætti á að- eins 3 mánuðum spara 280 þúsund dollara miðað við það sdm Flug- leiðir verða að greiða bandariska flugféiaginu Seaboard and West- ern nú. Einar Guðmundsson formaður Fél. flugvirkja skýrði frétta- mönnum frá þessu. Hann benti einnig á aö þrátt fyrir þessa stað- reynd sem flugvirkjar hefðu sýnt stjórn Flugleiöa h.f. fram á heföi félagiö ákveöiö aö láta Seaboard and Western félagið hafa alla viö- halds og viögerðarþjónustu á DC 8 og DC 10 vélum félagsins. Ennfremur benti Einar á að Seaboard and Western hefði sett þaö sem algert skilyröi fyrir þvi aö selja Flugleiðum h.f. DC 10 þoturnar að það fengi að annast um viöhald og viögerð þeirra og einnig DC 8 vélanna. Og þvi má skjóta hér inni aö á sama tima og Flugleiðir gengu aö þessum afarkostum sem SW setti þvi, var mikiö úrval af flugvélum sem hægt var að fá keyptar út um Framhald á bls. 13 Frá blaðamannafundi flugvirkja og Loftleiðaflugmanna i gær. — (Ljósm. — eik —) LOFTLEIÐATLUGMENN: reglur um aidurhámark starfs- manna, falið að ljúka störfum og skila tillögum fyrir 1. júii 1980. Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu, sem borgarráðs- fulltrúar meirihlutans lögðu fram en með samþykkt hennar var horfið frá samþykkt borgar- stjórnar frá i fyrra. Þá samþykkti Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins tillögu þess efnis að engum starfsmanni yrði sagt upp fyrir aldurs sakir uns fyrrgreind nefndskilaði störfum, sem áætlað var aö yrði nú um siðustu áramót. Til máls tóku Kristján Bene- diktsson, Guðrún Helgadóttir, Guðmundur Þ. Jónsson, Birgir Isl. Gunnarsson og borgarstjóri. Guðrún Helgadóttir lagði áherslu á að fyrri samþykkt borgar- stjórnar hefði verið gerð i fljót- heitum og af meira kappi en for- sjá, enda hefði komið i ljós að verkið sem nefndinni væri falið að vinna væri mjög viðamikið og hefði hún þvi þurft rýmri vinnu- tima en til áramóta. Ljóst væri einnig að einhverjar reglur yrðu að vera um starfslok fólks og ómögulegt væri að fela forstöðu- Framhald á bls. 13 Erum hlynntir rannsókn á starfsemi Flugleiða Flugmenn Loftleiba og flug- virkjar voru spurðir að þvi á blaöamannafundi i gær hvort þeir væru hlynntir þvi að starfscmi Flugleiða h.f. yrði tekin til rann- sóknar af opinberum aðilum. Forsvarsmenn flugvirkja viku sér undan spurningunni, en flug- menn svöruðu henni hiklaust ját- andi. Þeir bentu á að ef allt er með eðlilegum hætti hvað rekstur félagsins varðar væri ekkert að óttast. Ef ekki, þá væri rannsókn nauðsynleg. Flugmenn bentu einnig á að þeim þætti það i hæsta máta óeðlilegtað Flugleiðir h.f. gerðust nú aðilar að nýju flugfélagi i Luxemburg, sem ætlað væri að fljúga á langleiðum, eins og kom- ið hefur fram, sem þýðir N- Atlandshafsleiðin, ef Flugleiðir töpuðu 5-6 miljörðum kr. á þess- ari leið 1979. Þeir bentu á að þetta nýja .flug- félag færi þá inná rútu Flugleiða h.f. á þvi flugleyfi sem Island hefði fengið fyrir Flugleiöir h.f. vegna veru yarnarliðsins" hér á landi. Þá sögðust þeir stórlega draga i efa að tapið á N-Atlandshafsleið- inni væri eins mikið og Flugleiða- menn segðu, hvað þá að þaö þyrfti neitt að vera ef skynsam- Framhald á bls. 13 j Lúðvik lósepsson um „áþreifingar” Geirs iEngar viðræður j st j órnarmyndun ! Þetta eru aðeins könnunarviðræður Geirs „Ég vil taka það skýrt fram | aö engar stjórnarmyndunarviö- ' ræður eru enn I gangi,” sagði ! Lúövik Jósepsson formaður I Alþýðubandalagsins i samtali I viö Þjóðviljann I gær er blaöið ' innti eftir þeim samtölum sem ! Geir Hallgrimsson hefur staðið fyrir milli stjórnmálamanna að I undanförnu. ,,Um slikar við- ræður hefur ekki verið beðið af ! hálfu Geirs og engar sérstakar I tillögur hafa verið settar fram af hans hálfu um að mynda tveggja flokka, þriggja flokka eöa fjögurra flokka stjórn.” sagði Lúðvik ennfremur. Þjóöv. — Aö hverju miða þá vibræbur Geirs við fulltrúa annarra flokka? Lúðvik. — „Eftir þvi sem ég skil best hans vinnubrögð snú- ast þau um að kynna sér viðhorf annarra flokka, ræða ýmist við aðaltalsmenn flokkanna eða einstaka þingmenn og menn utan þings. Ég tel vlst að þetta þýði það að hann sé að undirbúa sig undir að eitthvaö frekar komi frá honum.” Þjóöv. — Nú hefur verið látið að þvi liggja i fjölmiðlum og ýtt undir það af Sjálfstæðismönn- um að verið sé sérstaklega að reyna að mynda samstjórn Alþýðubandalags og Sjálf- stæðisflokks? Lúðvik,— „Þetta er gjörsam- leg út I bláinn og eintómar get- gátur. Ekki skortir á að menn leiki sér i fjölmiölum þessa dag- ana. Þvi er m.a. haldið fram að þessi eða hinn flokksmaðurinn taki Sjálfstæöisflokknum sér- staklega vel eða illa, sagt að verkalýðsleiðtogar i Alþýðu- bandalaginu séu með og á móti nýsköpunarstjórn o.s.frv. En allt er þetta út i hött, enda engar hugmyndir uppi af hálfu þess sem fer meö umboð um stjórn- armyndun hvert hánn hyggst stefna. Ég lit þvi alfarið á þess- ar viöræður sem persónulega athugun Geirs Hallgrimssonar og hann virðist vera að gera upp við sig hvað gera skuli.” um enn Þjóðv. — Þvi hefur verið haldið fram i fjölmiðlum að dr. Kristján Eldjárn veifi þvi nú óspart yfir höföum ykkar stjórnmálaleiðtoga að hann sé kominn á fremsta hlunn með að skipa utanþingsstjórn undir for- sæti Jóhannesar Nordal, Seðla- bankastjóra meö meiru? Lúðvlk.— „Ég hef ekki heyrt á þetta minnst. Menn búa til allskyns sögur þessa dagana. Meginmálið er aö enn fer Geir Hallgrimsson með umboðið og spurningin er hvort hann reynir myndun stjórnar eða skilar af sér. Akvörðun um næstu skref verður ekki tekin fyrr en Geir hefur lokið sér af.” Þjóðv. — En ef Geir gefst upp og skilar umboði sinu, hver verður framvindan þá? Lúðvik Jósepsson: Hugmyndir I um samstarf ihalds og Alþýðu- I bandalags eintómar getgátur. I Lúövik.— „Ég tel liklegast aö haldið yrði áfram tilraunum til myndunar meirihlutastjórnar.” Þjóðv. — Væri Alþýðubanda- lagið þá reiðubúið að taka að sér forystu um tilraun til stjórnar- myndunar? Lúövik. — „Ég vil ekkert um þaö segja á þessu stigi. Það verður að skoöa þegar og ef að þvi kemur. Auðvitað taka menn að sér umboð eftir þvi hvort þeir telja liklegt að það leiði til árang- urs og eðlilegt að nokkur athug- un á þvi fari fram áður en menn takast á hendur stjórnar- myndun.” — ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.