Þjóðviljinn - 25.01.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 25.01.1980, Blaðsíða 7
Föstudagur 25. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Lúðvlk Jósepsson Um efnahags- tillögur Alþýðu- bandalagsins Vaxtalækkun Ein af tillögum Alþýðubanda- lagsins er lækkun vaxta um 5% 1. mars og aftur um 5% 1. ágúst n.k. Vextir eru þegar orönir gifurlega háir og miklu hærri en þekkist i nokkru náiægu landi. 1 umsögn Seðlabankans um tillöguhugmyndir Sjálfstæðis- flokksins dags. 9. jan. s .1. segir orörétt: „Núgildandi útlánsvextir skila um 37-38% ársvöxtum, nema vaxta-útlán 47%, en 3ja mánaða vaxta-auka-innlán (viðmiðunarvextir ) 36,5% og 12 mánaða 43,5%.” Auðvitað er vaxtabyrðin orð- in litt viðráðanleg fyrir mörg fyrirtæki og öviðráðanleg fyrir almennt launafólk. Þessa gifurlegu háu vexti verður aö lækka, ef gera á alvarlega til- raun til að lækka verðbólguna. Röksemdin um það, að þessir háu vextir eigi að tryggja sparif járeigendum „raun- vexti”, er þegar fallin um koll á eftirminnilegan hátt. Um raun- vaxtaþrasiö segir Þjóðhags- stofnun i riti sinu um þjóðarbú- skapinn útg. i nóvember 1979, þetta: „Aætlunin fyrir liðandi ár sýnir að raunvextir verða lægri i ár en undanfarin þrjú ár, þrátt fyrir að nafnvextir hafi verið hækkaðir tvisvar i samræmi við ákvæöi efnahags- málalaganna frá þvi i april.” Reynslan hefur sem sagt sýnt að tilraunir til að tryggja raunvexti með þvi aö hengja vextina aftan i verðbólguna, hafa ekki komið sparifjar- eigendum til góða, þeirra hag- ur hefur beinlinis versnaö. Tillögur Alþýðubandalagsins miða að þvi að koma verðbólgu- hraðanum niður i 27% i árslok 1980. Lækkun vaxta um 10% á þessum tima mun skila stöðu sparifjáreigenda betri i lok ársins en hún er nú. , En hvaða áhrif hefði 10% lækkun vaxta i verðlagsþróun- inni? 1 mörgum fyrirtækjum eru vaxtagjöld nú jafnhá og allar launagreiðslur. Mjög algengt er að vaxtaútgjöld séu 40-50 af launum. Lækkun vaxta um 10% Framhald á bls. 13 Kaunvextir verða lægri i ár en undafarin þr jú ár — þrátt fyrir há- vaxtastefnu og verðtryggingaráform. mmmmmmmmm Frá aðalfundi hás kólakennara Nær 300 í félagi Háskólakcnnara Nýlega var haldinn aðalfundur Félags háskólakennara, en félagsmenn eru allir fastir kenn- arar við Háskóla Islands, tæp- lega 300 talsins. A fundinum var fjallað um ýmishelstu mál, sem eru á dag- skrá innan félagsins, svo sem kjaramál og byggingu orlofs- heimilis. Ný stjórn var kjörin á aöalfundinum. Hana skipa: Gunnar G. Schram, forseti laga- deildar, formaður, Jónas Hallgrimsson prófessor, vara- formaður, Maria Jóhannsdóttir deildarritari, gjaldkeri, Guð- laugur Tryggvi Karlsson fulltrúi, ritari og Jón Bragi Jónsson dósent, meðstjórnandi. Fulltrúar félagsins i Háskóla- ráði voru kjörnir þeir Arnór Hannibalsson lektor og Þorgeir Pálsson dósent. Fundur Blindrafélagsins: Undrast ný lög um aöstod vid þroskahefta Félagsfundur Blindrafélags- ins haldinn að Hamrahiö 17 þann 23. okt. 1979 lýsir undrun sinni vegna setningar laga um aðstoð við þroskahefta án nokkurs samráös við félag öryrkja I landinu. Telur fundurinn aö merking orðsins „þr os ka- heftur”séóljós og að mörguleyti villandi, en i annarri grein laganna segir, að orðið þroska- heftur tákni hvern þann, sem þannig sé ástatt um að hann geti ekki án sérstakrar aöstoöar náð eðlilegum likamlegum eða and- legum þroska. Með tilvisun til 24. greinar lag- anna telur fundurinn, að blindir og sjónskertir tilheyri ekki þessum hópi. Auk þess er i lögunum rætt um öryrkja og þroskahefta, sbr. áöurnefnda 24. grein. Jafnframt lýsir fundurinn furðu sinni á 32. grein laganna, en þar segir m.a., að auk þess falli niður öll ákvæði almanna- tryggingalaga nr. 67 1971, ásamt siðari breytingu, sem ekki samrýmist lögum þessum. Enn fremur ákvæöi annarra laga sem kunna að ganga i berhögg við þessi lög. Fundurinn telur, aö þessi grein geti haft i för með sér ófyrirsjáanlegar afleiöingar fyrir hinn almenna öryrkja og skorar á löggjafarvaldið aö breyta þessu án tafar. Jafn- framt beinir fundurinn þvi til beirra. sem um lagasetningu fjalla, að þeir hafi fullt samráö við samtök og félög öryrkja i landinu, þegar lög um málefi þeirra eru sett eða endurskoöuö. Sigurjón Péturssson borgarfulltrúi Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi Guðrún Helgadóttir borgar fulltrúi Guðmundur Þ. Jónsson borgarfulltrúi Guðrún Agústsdóttir var a-bor gar fulltr úi setið fyrir svörum borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins í Reykjavík sitja fyrir svörum á almennum fundi á Hótel Sögu miðvikudaginn 30. janúar. fundurinn er í Lækjarhvammi og hefst hann kl. 20.30. 1 i! .! Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna Alþýðubandalagið í Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.