Þjóðviljinn - 04.06.1980, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.06.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 4. júni 1980. Miðvikudagur 4. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Þóra Vigfúsdóttir Framhald af 7 . síðu. hennarkynslóð var húnljóðelsk og hafði hina eldri hófunaa á hraöbergi, náttúruljóð, ástaljóð, ættjarðarljóð og fylgdist vel með því sem Ut kom til siðustu stundar að heita mátti. Aldrei brást henni smekkvisin. Stundum var maður seinn að átta sig en það var Þóra aldrei. I sllku mati sem á öðrum fyrirbærum var engin málamiöl- un. Samt var hún ekki einstrengingsleg og var ekki að þrengja skoöunum sinum á einu eöa öðru upp á aöra. Glöggskyggni hennar á tilveruna var furöuleg og viö vinimir köll- uðum það hennar næma nef til þess að gefa fyrirbærinu eitthvert nafn. En þetta var miklu sér- stæðari dómgreind en maður á venjulega við. Jóhannes úr Kötl- um sagði mér eitt sinn að þegar atburðir einkum á alþjóðlegum stjórnmálahimni vildu vefjast fyrir sér færi hann til Þóru. Heimili þeirra Þóru og Kristins E. Andréssonar var að sjálfsögðu spegill húsráðenda, allt fullt af bókum, innlendum og erlendum, og önnur smekkvisi eftir þvi. Vegna umsvifa eiginmannsins kom margt starfið á herðar Þóru ekki sist móttaka gesta, innlendra og erlendra, og til eru vottorð um þaö að aldrei aö kalla hefur það farið fram hjá neinum hver þáttur húsmóðirin var I þessu sérstæöa heimili. Fyrir mart löngu var ég sem oftar stödd þar ásamt nokkrum gestum og féll fyrir þeirri freistingu að segja það sem ég endurtek nú-. Þaö var meiri heppnin að þau skyldu veröa hjón, Þóra og Kristinn, ekki aðeins fyrir þau sjálf, heldur einnig fyrir okkur mörg, mörg, sem erum samfélagslega hugsandi, teljum sósialismann næstu framtiö þó að eitthvert enn betra skipulag mannheima komi þar á eftir(þvi ekkert er endanlegt i þeim efnum. Við erum einkum þakklát þessum bardagamönnum fyrir sjálfstæði Islands. Þau voru svo frábærir samherjar I öllu sem máli skipti. Þóra min trúði á framhald lifs- ins. Gleðin yfir jörðinni okkar var þó með þvi siöasta sem hún lét i ljós, horfandi mót sumri og gróandi, vonandi lengi vel að hún ætti eftir aö komast út á grasið græna áður en yfir lyki. Veri hún kærst kvödd. Nanna ólafsdóttir. Þóra var fædd á Vatnsenda i Seltjamarneshreppi 26. nóv. 1894. Foreldrar hennar voru Vigfús Olafsson og Sólborg Hansdóttir. Henni var komiði fóstur til hjón- anna Jóns Guðmundssonar og seinni konu hans, Sigriðar Þóröardóttur I Hausthúsum (Bakkastig 8) i Reykjavik. Hjá þeim ólst hún upp. Þóra lauk prófi frá Verslunarskólanum árið 1912. Þóra giftist fyrri manni sinum, Jóhanni Hafstein á Akureyri 19Í7. Þau skildu. Seinni maður hennar var Kristinn E. Andrésson magister m.m. Þau giftust 1934. Þóra Vigfúsdóttir er öll. Annasömum lifsferli þessarar mikilhæfu og göfugu gáfukonu er lokið. Litir vorsins hafa fölnað, Island er fátækara. Ef saga sósialiskrar hreyfingar á Islandi eða islensk menningar- sagaá 20.öldinni verður rituð, eru tvö nöfn sem ber þar hátt, það eru nöfn þeirra hjóna, Kristins Andréssonar og Þóru Vigfús- dóttur, en varla held ég að fundin verði samhentari hjón en þau voru. Þessi saga verður sögö betur og greinilegar af öðrum en mér, en ég vil aðeins minnast bókaforlagsins, Máls og menn- ingar, sem var stofnað að þeirra* frumkvæði og sýndi stórhug þeirra á kreppuárunum, og MIR, menningartengsla Islands og Ráðstjórnarríkjanna, en bæði þessi félög voru hjartfólgin áhugamál Þóru til hinstu stundar. Eitt af hjartfólgnum áhuga- málum þeirra Þóru og Kristins voru friðarmálin. A siðari hluta fimmta áratugsins dvaldist Þóra I Kaupmannahöfn. Þar kynntist hún nokkrum forvigiskonum Al- þjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna og var boðið að sitja fund sambandsins sem haldinn var i Stokkhólmi. Það mun hafa orðið kveikjan að þvi að Þóra fór að láta friðarmálin til sin taka, og voru þau eitt af hennar hjart- fólgnustu áhugamálum allt til dauðadags. Þegar Þóra kom heim árið 194'J stofnaði hún Friðarnefnd kvenna, meö tólf áhugakonum. Þóra var formaður nefndarinnar, en með henni i stjórn voru Drifa Viðar og Erla Egilson. Þessi nefnd stóö i bréfasambandi við Alþjóðasam- band lýðræðissinnaöra kvenna og miðlaði islenskum konum fregnum frá sambandinu. Á þeim árum gaf Þóra, ásamt nokkrum öörum áhugakonum um friðar- og menningarmál, út timaritið Mel korku, sem flutti fjölmargar merkar greinar, bæði af erlend um og innlendum vettvangi. Árif 1951 voru Menningar- og friðar- samtök islenskra kvenna stofnuf upp úr Friðarnefndinni, sem þá lét jafnframt af störfum. Vai Þóra Vigfúsdóttir sem að likuro lætur aðal hvatamaður að stofnur samtakanna. Þóra átti sæti i stjórn Menn- ingar-og friðarsamtaka islenskra kvenna og var heiöursfélagi þar og heiðursfulltrúi i stjórn þeirra. Það má segja, að jafnframtþvi að vera móðir samtakanna, hafi hún til hinstu stundar verið hinr heilskyggni ráðgjafi okkar sem þar störfuðum með henni, al þjóðahyggja hennar og óbrigðul dómgreind i hverju máli brugðust aldrei. Það var okkur mikið lán að fá að starfa með henni. Ég hef hér fariö fáeinum, fátæklegum orðum um baráttu- konuna fyrir friði og sósialisma, en það voru lika fleiri hliðar á Þóru Vigfúsdóttur. Hún var tryggur og einlægur vinur og á heimili hennar rikti lifsgleði og bjartsýni. Heimsóknir til hennar voru bæði ungum og öldnum lær- dómsrikar gleðistundir, þar þekktist ekkert kynslóðabil. Hún skildi unglinga einkar vel og sonardóttir min, tæplega tvitug, segir að sér séu ógleymanlegar allar heimsóknirnar til hennar Þóru, en við hana ræddi hún gjarnan gleði sina og sorgir allt frá barnæsku sinni. Viö þökkum henni allar gleðistundirnar, alla hjartahlýjuna, við erum rikari af að hafa þekkt hana. Blessuð sé minning hennar. Maria Þorsteinsdóttir Margir minnast Þóru Vigfús- dóttur i dag þegar hún er kvödd hinstu kveðju. Menningar- og friöarsamtök íslenskra kvenna minnast hennar með sérstökum þakkarhug. Nafn Þóru Vigfús- dóttur veröur skráð stórum stöfum i sögu islenskra kvenna á 20. öldinni, svo mikið vann hún að menningar og réttindamálum kvenna á langri starfsævi, fyrst innan Kvenréttindafélags Islands og siðan Menningar- og friðar- samtaka islenskra kvenna, en hún var einn aðalhvatamaður að stofnun þeirra. Þóru Vigfúsdóttur var menn- ingaráhugi, bjartsýni og viösýni i blóð borin. - - Friðarnefnd kvenna var stofnuð hér árið 1949 að hennar frumkvæði og tveim árum siöar Menningar-og friðar- samtök Islenskra kvenna. Þó að Þóra væri ekki i formannssæti þar, voru störf hennar i þágu samtakanna ómetanleg og oft unnin i kyrrþey, *nema hvað hún með penna sínum i Melkorku, timariti kvenna sem hún stofnaöi ásamt þrem öörum konum, vann friðarhugsjóninniallt það gagn er hún mátti. Meö greinum sinum i Melkorku vakti hún marga konuna til umhugsunar um þau mál sem samtök okkar berjast fyrir, jafnrétti og frelsi allra jarðarbúa, hvort sem hvitir eru eða dökkir, og fyrir friði milli allra þjóða heims. Menningar- og friðarsamtök islenskra kvenna kveðja Þóru Vigfúsdóttur með innilegri þökk. Stjórn M.F.l.K. Lesið í málgagni viðskiptafræðinema: Negrar og Asíubúar eru „ófögnuður” á íslandi I Magusarfréttum, blaöi Félags viðskiptafræöinema, má lesa, að einn sé sá „ófögnuður” sem yfir íslendinga dynji nú um stundir og sé hann sá „aö negrum og öörum lituðum útlendingum fjölgar sf- fellt hér á landi”. Greinarkorn þetta er I eins- konar syrpu þar sem öðru hvor er reynt aö bregða á glens, en klaus- an er hinsvegar skrifuð af rammri alvöru, eins og lesendur geta sannfærst um. Klausan er á þessa leið: „Einn er sá ófögnuður sem dynur yfir okkur tslendinga um þessar mundir. Hann er sá að negrum og öðrum lituðum útlend- ingum fjölgar slfellt hér á landi. Bæöi er um að ræða aðkeypta körfuknattleiksmenn og þeirra ættingja og svo fólk, sem fær at- vinnuleyfihérá landi. Við þennan hóp bætast svo flóttamenn frá Austur-Asiu. Það er alkunn staöreynd aö hvergi i heiminum hefur fólki af mismunandi litarhætti eöa kyn- þáttum tekist aö búa saman i sátt og samlyndi. Vissulega eru þeir lituðu út- lendingar sem hér á landi dvelj- ast, ekki margir og á meðan enn gefst tóm til þá skulum viö láta vfti annarra verða okkur til varn- aðar i þessum efnum. Þvi fer fjarri að með þessari grein sé verið aö mótmæla þvl aö erlendir körfuknattleiksmenn komi hingaö til lands, heldur er þvi harölega mótmælt aö þeir séu svartir og um leið bennt á aö nóg er til af hvitum erlendum körfu- boltamönnum. Er þetta kynþáttahatur kunna nú margir aöspyrja? Svariðer að sjálfsögðu: „Nei.”.Hætt er viðaö frjálslyndisgrlman falli meö braki og brestum af Islenskum einstaklingum þegar þeir vakna upp við þann vonda draum aö litað fólk sé aö tengjast fjöll- skyldu þeirra. Það er ekkert nema sjálfsagt og eðlilegt að öllu fólki, lituðu og ólit- uðu sé fullkomlega heimilt aö ferðast til Islands og frá þvi. Hér er þvi hinsvegar mótmælt harð- lega að svertingjum og ööru lit- uöu fólki sé veitt dvaiarleyfi á Is- landi til frambúðar. Ég tala nú ekki um þann barnaskap að láta sér detta i hug aö veita þessu fólki rikisborgararétt „það er hneysa”.” Einna merkilegast við þessa klausu er það aö höfundur hennar er viss um að hann fari ekki meö kynþáttahatur. Hann er barsta að boða það sem kynþáttum er fyrir bestu að hans dómi: Aö vera aöskildir. Það heitir i Suður-Afriku Apartheid, m«5 Gullfoss 1923 eftir Kristinu Veggskúlptúr úr bronsi eftir Gerði Á fyrsta degi Lista- hátíðar var opnuð merk myndlistarsýning á Kjar- valsstöðum og er hún gleðilegur vottur um aukið líf og þrótt sem undanfarin misseri hef ur verið að fær- tveggja fyrrnefndu, en myndröð eftir Ragnheiði sem sérstaklega er gerð fyrir Listahátíð 1980. myndlist hver á sinni tíð. Þær eru Kristín Jónsdóttir (1888—1959), Gerður Helgadóttir (1928—1975) og Ragnheiður Jónsdóttir. Þetta eru stórar yfirlits- sýningar á verkum hinna ast í þessa listamiðstöð borgarinnar. Hér er um að ræða sýningu á verkum þriggja kvenna sem til- heyra hver sinni kynslóð og geta allar talist fulltrúar hins besta í íslenskri Kristín, Gerður og Ragnheiður Gerður Kristin Ragnheiður F"iskverkun við Eyjafjörð 1914 eftir Kristinu. Verkstjórinn með hendur í vösum meðan konurnar hamast. Kristín Kristin Jónsdóttir útskrifaðist frá Konunglega listaháskólanum i Kaupmannahöfn áriö 1916 og hélt um sina daga fjölmargar sýningar heima og erlendis Þorvaldur Skúlason skrifar m.a. um hana i sýningarskrá: ,,Á siöari árum hefur lands- iagslistinni hrakaö verulega og þolir illa samanburð við verk fyrirrennaranna, skapandi grósku verður sjaldan vart lengur, en andlausum eftirliking- um fer stöðugt fjölgandi. Það er þvi i hæsta máta timabært að koma upp yfirlitssýningum á verkum frumherja Islenskrar myndlistar eins og Kristinar Jónsdóttur, sem er ekki aðeins meöal bestu landslagsmálara okkar, heldur málaöi einnig myndir þar sem fólkið og um- hverfi þess er meginuppistaðan, að ógleymdum kyrralifsmynd- um, máluöum af óvenjulegu öryggi og leikni. Nokkrum árum fyrir dauöa sinn skrifaöi hún grein um málaralist og þar stóðu meðal annars þessi orð: „Málverk á ekki sitt listræna gildi 1 sögulegu fjalli, jafnvel þó aö það hafi gosiö hundrað sinnum, heldur i þvi sem listamaðurinn skynjaöi I mótivinu, hvaöa kenndir þaö snart i sál hans, ljóöræna hrifn- ingu eöa dramatiska, allt eftir skapgerö hans”. Þessi orð Kristinar varpa ljósi á þá listrænu hugsun sem verk hennar eru sprottin úr — málverk er i eöli sinu sköpun fremur en eftirliking fyrirmyndarinnar sem hratt þvi af staö, — náttúran og máluð mynd er nefnilega tvennt ólikt, og sá sem ekki gerir sér þess grein mun aldrei skapa lista- verk sem lifir vegna lita sinna og forma, — getur ekki orðið málari. Kristin var fæddur málari og þvi er i myndum hennar auðlegð lita, ýmist dökkra, djúpra og þróttmikilla eöa mildra, bjartra og lýriskra. Þessum málverkum verður ekki lýst með orðum, þau veröa að sjást og munu verða glitrandi þáttur islensku menn- ingarsögunnar um langan aldur”. Alls eru sýnd 138 verk eftir Kristinu á sýningunni. Gerður. Gerður Helgadóttir stundaöi nám I Handiöa- og myndlistaskól- anum i Reykjavik 1946—48, i Listaakademiunni i Flórens 1948—49 og siðan hjá Zadkin myndhöggvara i Paris. Bjó hún eftir það i Frakklandi og Hol- landi. Við lát hennar skrifaði Barbara Arnason: „Ég efast um að þjóðin muni nokkurn tima gera sér grein fyrir hve mikið hún hefur misst. Sjálf hefi ég alltaf sett hana ofar öðrum islenzkum myndhöggvurum — jafnvel miklu ofar. En hún þurfti meiri tima til að opna augu fólks fyrir þeirri staöreynd”. Skúlptúrar Geröar, mósaik- myndir, steindir gluggar og kirkjumunir prýða nú kirkjur og opinberar stofnanir viða um Evrópu, aöallega I Þýskalandi, Frakklandi og á Islandi. Af verk- um hennar hérlendis má minna á steinda glugga I Skálholtskirkju, '■iZ&X&BGZ Liggjandi kona, terra cotta, Florens 1948 eftir Gerði Viö Þvottalaugarnar 1931 eftir Kristinu Ólafsvikurkirkju, Saurbæjar- kirkju, Kapellu Elliheimilisins, Kópavogskirkju og Neskirkju, mósalkmyndir á Tollstöðinni i Reykjavik og Samvinnubankan- um og veggskúlptúra I Mennta- skólanum viö Hamrahlið. A yfirlitssýningu á verkum Gerðar að Kjarvalsstöðum eru alls 159 númer. Þar eru skúlptúrar allt frá árinu 1946, lág- myndir, mósaik, steyptir gluggar og steindir gluggar, skart og smáhlutir, frumdrög og skissur. — GFr Trúðurinn Frank (t.v.) og Geir Kristjánsson rithöfundur (t.h.). Tvær myndir eftir Geröi. Wflllfel/Í/)*: u/ÆIIM Æ j M jjt; •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.