Þjóðviljinn - 01.08.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.08.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1, ágúst 1980, IOGT BINDINDIS ■ MÓTIÐ FÖSTUDAGUR: • Diskótek LAUGARDAGUR: • Tlvolí, leikir fyrir börn og ungmenni • ökuleikni '80 I umsjó BFÖ • Donsleikir, tvœr hljómsveitir • Varóeldur UM SUNNUDAGUR: • Helgistund • Barnatími • Barnadans • Skemmtidagskró um kvöldið • Dansleikir, tvcer hljómsveitir l;3.águst Galdrakarlar og Eccó Mótsgjald kr. 10.000,- fyrir 12 ára og eldri. Fritt fyrir yngri börn. Ferðir frá Umferðarmiðstöðinni föstudag kl. 20.00 og laugardag kl. 13.00. Fargjald báðar leiðir kr. 8.500. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt með siðari breytingum, um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, þó ekki á börn sem skattlögð eru samkvæmt 6. gr. þeirra. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar. Hafnarfirði 31. júli 1980 Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi Sveinn Þórðarson Starf ritara við sálfræðideild i Réttarholtsskóla er laust til umsóknar. Upplýsingar veittar i sima 32410. Umsóknum með upplýsingum um mennt- un og fyrri störf skal skila til fræðsluskrif- stofu Reykjavikur fyrir 13. ágúst n.k. Laus staða Staöa dósents i sjdkraþjálfun i Háskóia Islands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf sin, ritsmiöar og rannsóknir svo og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Heykjavik, fyrir 23. ágúst n.k. Menntamálaráöuneytiö, 23. júli 1980 Nina viö eitt verka sinna á Kjarvalsstööum I gær. Ljósm. Ella Vefjarlist að Kjarvalsstöðum Nína Gautadóttir sýnir i fyrsta sinn á íslandi Nina Gautadóttir vefari opnar sýningu á veggskúlptúr aö Kjar- valsstööum i dag. Verkin eru unn- in á timabilinu 1975—1980, en Nina hefur veriö búsett i Paris um árabil. Hún hefur sýnt viöa erlendis og er vel þekkt I lista- heiminum. Þetta er I fyrsta skipti sem hún sýnir hér á landi. Nina fór utan fyrir 10 árum til aö nema höggmyndalist, en sneri sér síöar aö vefjarlist. Verkin á sýningunni eru gerð úr ýmis kon- ar efni, netagarni, hampi, nælon- þræöi og ull. Flest verkin er frem- ur stór, en einkum vakti hrifningu okkar verkin ,,Nú er frost á fróni” sem minnir helst á snævi þakinn skóg, „Haustgluggar” og „Kengúra meö axlabönd”. Nina tjáöi okkur að sér hefði tekist aö skrimta af list sinni, en vefjarlistin tekur sinn tima. Hún nefndi sem dæmi aö það heföi tek- iö sig 11/2—2 mánuöi að gera sum verkin. Sýningin stendur til 24. ágúst og eru öll verkin til sölu. Kjarvals- staöir eru opnir daglega frá kl. 14—22, lokað er á mánudögum. — ká. Arsskýrsla Bifreiöaeftirlits ríkisins nýkomin út: Endingatími ökutækja á ísiandi er 16,5 ár 30% allra ökutœkja landsmanna skiptu um eigendur á síðasta ári Miöaö við afskráö ökutæki hér á landi á siöasta ári kemur i ljós aö bifreiðar á tslandi endast i 16,5 ár sem er 0,7 árrum lengur en áriö á undan. Þessi endingartimi er óvenjuhár og nokkuö hærri en athuganir á endingartima bif- reiöa hérlendis gáfu tii kynna áriö 1971 og 1973 en þá var hann 14,5 ár. bessar upplýsingar koma m.a. fram i nýútkominni skýrslu Bif- reiðareftirlits rikisins fyrir siö- asta ár. bá er einnig áthyglisvert aö um 30% ökutækja skipti um eigendur á siðasta ári á landinu öllu, og virðast ökutæki á þéttbýlisstöðum skipta þéttar um eigendur en um 32% bifreiöa skráö i Reykjavik og Gullbringu- og Kjósarsýslu skiptu um eigendur á sl. ári. Fyrir lOárum siöan»/ar gerður samanburöur á endingu ökutækja i Bandarikjunum, Bretlandi, V- býskalandi, Sviþjóö, Noregi og Danmörku. Reyndist endingar- timi ökutækja lengstur i Noregi 14,6 ár og stystur i Bandarikjun- um 10,4 ár. A tslandi er endingar- timinn miðað viö siöasta ár aftur á móti 16,5 ár eins og áður sagði. Bifreiðaeign landsmanna i ár- lok 1979 var 90.015 bifreiðar þar af 82.142 fólksflutningabifreiöar og 7.873 vörubifreiöar. bar að auki voru 563 bifhjól á skrá hjá Bifreiðareftirlitinu. Bifreiðaeftirlitið gerir ráð fyr- ir, með tilvisun til spár Fram- kvæmdastofnunnar um fólks- fjöldaaukningu fram til næstu aldamóta, að árið 1995 nálgist fólksbilaeign landsmanna 140.000 bila og ökutæki verði þá alls 150 þús. á landinu. -»g- Lýst eftir manni Djassad um helgina Hinn vinsæli skemmtistaður Klúbbur eff ess i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut verður opinn eins og venjulega um versl- unarmannahelgina. bar leikur jazz-trió Kristjáns Magnússonar á föstudagskvöld og á sunnudags- kvöld verður Guðmundur Stein- grimsson og hljómsveit á fullri ferö. 1 Klúbbi eff ess eru á boö- stólnum ljúffengar pizzur og sjávarréttir og þar er opið frá kl 20.00-01.00. rid luyicyiuiim i Reykjavík: Lýst er eftir Eliasi Kristjáns- syni, sem fór frá heimili dóttur sinnar aö Barmahlið 29, Rvik., um kl. 17.00, siðastliðinn sunnu- dag. Elias er 46 ára að aldri, klædd- ur gráröndóttum jakka, gráum buxum, blárri skyrtu og brúnum skóm. Hann sást siðast aka bif- reið sinni R—25258, sem er litil Zastava rauð að lit, Vesturlands- veg á móts við Grafarvog á leiö frá Reykjavik, og þá var farþegi i * bifreiðinni. beir sem hafa orðiö varir við IElias frá þvi á sunnudag eru vin- samlegast beðnir um aö hafa samband viö lögregluna i , Reykjavik. Elias Kristjánsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.