Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.08.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. ágúst 1980 RIBBON: Stdlinn sem ter sígurför um beiminn, jafnt fyxir unga sem aidna. Teíknaður af Niels S. Bendtsen og framleiddur af KEBE MÖBLER. Þessi stöll vakti strax athygli fyrir einfalt en um lelö failegt útlit og Museum of Modern Art i New York valdi stól þennan sem sýningargrip. RIBBON keraur úsamansettur en hver sem er getur sett hann saman án verk- fœra. KIBBON getur verift stakur stúli efta r ■ A A A A A A J CltJ Jwl . IU' 111 )J ÍÝ JuJiJOlnj Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 HftHriBHiimHMUÍIlSl " Sími 10600 Leiðbeiningar um skriffinnskuna Fjármálaráöuneytiö hefur gefiö út ýtarlegan bækling með leiðbeiningum um að- flutningsskjöl og frágang að- flutningsskýrslna fyrir inn- flytjendur og veitir vist ekki af, svo flókiö sem kerfið er orðið og skriffinnskan mikil i þessu sambandi. Bæklingurinn tekur bæði til atriða sem eiga viö allar vöru- sendingar og annarra sem takmörkuð eru við sérstakar sendingar eða sérstakar vöru- tegundir. Er minnt á i inn- gangi, að þvi betur sem að- flutningsskjölin eru úr garði gerð, þvi minni likur eru á töf- um viö tollafgreiðslu, en bæklingnum er dreift ókeypis til innflytjenda á tollstjóra- skrifstofunni. Reynir og hljómsveit í FS Reynir Sigurðsson og hljóm- sveit munu standa fyrir sveifl- unni i Eff Ess klúbbnum (i Félagsstofnun stúdenta) i kvöld. Sjálfur leikur Reynir á Nikulás í Nýja galleríinu vibrafóninn, en með honum leika Þórður Árnason á gitar, Tómas Tómasson á bassa og Asgeir óskarsson á trommur. A laugardag n.k. kl 14.00 opnar Nikulás Sigfússon mál- verkasýningu i Nýja Galleri- inu, Laugaveg 12. A sýningunni eru 30 vatns- litamyndir sem allar eru mál- aðar á s.l. tveim árum. Þetta er þriðja einkasýning Niku-’ lásar. ' Sýningin verður opin kl. 14.- 20 daglega til 8. september. Aðgangur er ókeypis. Fékk 6000. Toyotavélina að gjöf Ótrúlegt en satt. Þrátt fyrir allt framboðið, innflutninginn og fjöldaframleiðsluna á fatn- aði sauma Islenskar konur enn svo mikið, að bara eitt umboð, Toyota, hefur selt 6000 sauma- vélar frá þvl að innflutningur þeirra hófst fyrir tæpum sex árum. Þegar Þórun Elin Tómas- dóttir ætlaði að festa kaup á 6000. vélinni, nýrri og fullkom- inni rafeindasaumavél 4500 EL, hlaut hún hana að gjöf frá umboðinu ásamt blómvendi. Það var T.Senga forstjóri Bretlandsdeildar Toyota- saumavélaverksmiðjanna sem afhenti Þórunni gjöfina og sést við hlið hennar á myndinni ásamt forstjóra Toyotaumboðsins hér, Jó- hanni Jóhannssyni og Sig- tryggi Helgasyni. A Zukovsky námskeiöi i sal MH Zukovsky tónleikar í kvöld ogálaugardag 18 manna flautusveit flytur nýtt tónverk Hvorki meira né minna en 18 flautuleikarar frumflytja I kvöid verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld á kammertónleikum sem haldnir verða I sal Mennta- skólans viö Hamrahlið i sam- bandi viö Zukovsky námskeiö á vegum Tónlistarskólans i Reykjavik. Leiöbeinendur og stjórnendur á námskeiöinu eru bandariski f iöluleikarinn og hl jóms veitarst júrinn Paul Zukovsky og Hautuieikarinn Robert Aitken frá Kanada. Verkið hefur Þorkell samið sér- staklega i tilefni námskeiðsins þetta ár, kallar það R.A. ’s Dozen og tiieinkar Aitken, sem haldið hefur meistaranámskeið i flautu- leik. t Námskeiðið fer fram i MH og sækja þaö 105 hljóðfæraleikarar frá tiu löndum, en þetta er i fjóröa sinn sem Tónlistarskólinn gengst fyrir sliku námskeiði og er talinn mikill fengur að geta gefið fólki kost á að njóta tilsagnar þessara mikilhæfu tónlistarmanna. A námskeiðinu nú hefur auk flautunámskeiðsins verið lögö áhersla á flutning stórra hljóm- sveitarverka frá þessari öld og æfð kammertónlist. Meðal verk- efna sem fengist hefur verið við er Petrushka Stravinskys, Organum fyrir hljómsveit eftir Carl Ruggles, Modules eftir Earl Brown, kammertónlist eftir Elliott Carter og Anton Weber og stór verk fyrir flautusveitir. Kammertónleikarnir i kvöld i MH hefjast kl. 20,30 en lokatón- leikar námskeiðsins verða sinfóníutónleikar í Háskólabiói nk. laugardag, 30. ágúst, kl. 14.30. Aðgangur að báðum tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. „Þú og ég” á söngvakeppni í Póllandi Björn Birnir sýnir á Kjarvalsstöðum Björn Birnir myndlistamaður opnar á morgun málverkasýn- ingu I vcstursal Kjarvalsstaða, en hann lauk á sl. ári MSc prófi frá Rikisháskóianum I Terre Haute I Indiana i Bandarikjunum. A s.l. ári hélt Björn sýningar i Bandarikjunum og Kanada, en hefur ekki sýnt á íslandi siðan 1977, i Norræna húsinu. 1 kynn- ingu Charles Reddingtons list- fræðings á listamanninum sem gefin hefur verið út með myndum hans i tilefni sýningarinnar segir hannm.a. að þessitvöárhafigert Birni mögulegt að einbeita sér að málverkum sinum og skynja til fulls listamannahæfileika slna. Hann talar um ný áhrif banda- risks landslags I málverkum hans og andstæður sem hann hafi notað til að ummynda sléttuna i Indiana i viðfeðma islenska paradis. Ein af myndum Björns á sýning- unni. Urðu í Söngdúettinn ,,Þú og ég” varft i 4. sæti i söngvakeppni sjónvarps- stöðva Austur—Evrópu, Inter- visionkeppninni, sem að þessu sinni fór fram i Sopot 1 Póllandi. ,,Þú og ég”, þe. Helga Möller og Jóhann Helgason fluttu lagiö Dans, dans, dans, af plötu Gunnars Þórðarsonar, sem einnig var með I ferðinni og stjórnaði 60 manna hljómsveit sem sá um undirleikinn i lagi hans. Þátttakendur i keppninni voru alls 28, frá öllum löndum Austur—Evrópu, Englandi, Hol- landi, Grikklandi, Spáni, Kúbu og þau þrjú frá tslandi. Sjónvarpað var beint frá keppninni, 16 klukkustundir alls, til allra austantjaldslandanna. Sigurvegari keppninnar varft enska hljómsveitin Jigsaw, I öðru sæti varð rússneskur dægurlaga- söngvari og grisk söngkona I þvi þriðja og munaði einu atkvæði á henni og Islenska dúettinum. Gunnar ÞórOar, Jóhann og Helga Pólverjar ætla að bjóða spólu vesturlöndum og er dúettinn þar með besta efninu frá keppninni til á meðal. Einnig verður gefin út sýninga f sjónvarpsstöðvum á kassetta meft þessu efni. fjórða sæti

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.