Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.10.1980, Blaðsíða 7
Helgin 18.—19. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Stofnuð samtðk áhugafólks Vemdun út- sýnis yfir Sundin blá Verndun útsýnis yfir Sundin og náttúrunnar viö þau er á stefnu- skrá áhugafólks sem stofnar til samtaka á sunnudag. Astæðan er m.a. fyrirhuguð bygging skrif- stofuháhýsis við Holtagarða. t f t fréttatilkynningu um málið segir, að fbúar i Kleppsholti hafi þungar áhyggjur af byggingu. þessa háhýsis við Elliðavoginn. bað myndi ekki einasta spilla út- sýni, sem ekki verður aftur tekið, heldur og náttúrufegurð. bá hefði fyrirhuguð bygging háhýsis við Sundin víðtækar breytingar á skipulagi svæðisins. Stofnun samtakanna fer fram i bróttheimum við Holtaveg kl. 2, en kl. 15.30 verður afhjúpað mót- mælaskillti á fyrirhuguðum byggingarstað — meö viðhöfn. Nokkrir nefndarmanna norrænu málaársnefndarinnar, ásamt Hjálmari Ólafssyni form. Norræna félagsins. Standandi f.v.: Haraldur Ólafsson, Aðalsteinn Daviðsson, form. nefndarinnar, Hjálmar ólafsson. Sitjandi f.v. Hjörtur Pálsson, Guðrún Egils- son og Stefán Karlsson. Yfirlitssýning Braga Asgeirssonar hefst I dag. A myndinni er verið að vega og meta hæð og stöðu myndarinnar i salnum að Kjarvalsstöðum. Ljósm. —eik Yfirlistssýning Braga Ásgeirssonar: Heimur augans Heimur augans er heiti sýn- ingar Braga Asgeirssonar sem hefst i dag, laugardag að Kjar- valsstöðum. Bragi sýnir myndir frá þeim 33 árum sem hann hefur féngist við myndlist. Bragi Asgeirsson hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt i samsýningum, auk þess sem hann hefur fengist við kennslu og skrifað um myndlist og myndlsitargagnrýni um ára- bil. Sýningin stendur til 2. nóv. og er opin daglega frá kl. 16-22. Vid fluttum um set, að Suðurlandsbraut 18 Norræna málaárið: Efni á snældum handa skólanemum Það hefur ekki farið hátt i fréttum að nú stendur yfir nor- rænt málaár. Tilgangur þess er að efla kynningu miili hinna nor- rænu þjóða, benda á skyldleika tungumálanna og kynna ýmislegt það sem þessar þjóðir eiga sam- eiginiegt og geta notið i samein- ingu. tslandsnefnd norræna málaárs- ins hefur ekki setið auðum höndum það sem af er. Fjöl- margar hugmyndir hafa komiö fram og þegar hafa ýmsar þeirra komist i framkvæmd. bað er Nor- ræna félagið sem sér um fram- kvæmdina, en i nefndinni situr fólk sem þekkir vel til norrænna tungumála og menningár. A næstunni er væntanleg snælda (kassetta) með völdu efni á sænsku, norsku og færeysku. bar er ein þjóðsaga frá hverju þessara þriggja landa og nútima samásaga, en efnið er tengt með tónlist. bað voru þær Björg Ju- hulin, Sigrún Hallbeck og Ingi- björg Johannessen sem völdu efnið,en Hörður Bergmann náms- stjóri i dönsku ýtti verkinu á flot. Snældunni er ætlað að gefa skóla- nemendum sem læra dönsku kost á að kynnast hinum málunum, en það er einmitt tilgangur málaárs- ins m.a. að benda fólki á, að eitt norðurlandamál er lykill að hinum. bað skal reyndar tekið fram að það eru ekki aðeins hin svo- kölluðu norrænu mál sem um er að ræða, heldur öll mái sem töluð Göngum ávallt vinstra megin á móti akandi umferð.. yugFEROM. eru á Norðurlöndum, par meo talin finnska, grænlenska og sam- iska. Af öðru þvi sem er á döfinni I tilefni málaársins má nefna að bókafulltrúi rikisins hefur hvatt bókaverði til þess að hafa sýn- ingar á norrænum bókum. Væntanlegur er eins konar mál- kynningartexti á mjólkurum- búðum, útvarpi og sjónvarpi hefur verið skrifað til að minna á málaárið og sótt hefur verið um styrki til að festa kaup á hljóm- plötum og öðru efni. bá hefur Norræna félagið staðið fyrir fjórum samkomum i Norræna húsinu þar sem kynnt hafa verið þau tungumál sem töluð eru á Norðurlöndum og verður væntan- lega framhald á þvi starfi. A blaðamannafundi sem ts- landsnefnd norræna málaársins hélt nýlega kom fram, að stundum er norrænni menningu stillt upp sem andstæðu þeirrar engilsaxnesku, en nefndarmenn vildu leggja áherslu á, að auö- vitað ættu þær að vera til sam- hliða og við ættum að njóta alls þess besta sem boðið er upp á, hvaðan sem það kemur. A hinum Norðurlöndunum hefur ýmislegt verið gert til að kynna málaárið, m.a. hafa Sviar gefið út vinnublöð þar sem strákurinn Villi norðurbúi veltir norrænu málunum fyir sér á ýmsa lund. Málaárið mun standa til loka skólaársins 1981, en þeir sem sitja i nefndinni hér á landi eru Aöal- steinn Daviðsson form., Haraldur Ólafsson, Hjörtur Pálsson, Guð- rún Egilsson, Stefán Karlsson, Vésteinn Ólason og Jón Sigurös- son. Hjálmar ólafsson form. Nor- ræna félagsins kynnti nefndina og starfhennar og sagði hana einkar góðan hugmyndabanka sem lengi yröi búið að. Pálmi Guðrún Kristín Egilína Katrín Gíslason Jóhannsdóttir Káradóttir Guðgeirsdóttir Torfadóttir Til gamalla og nýrra viðskiptavina! Vegna stóraukinna viðskipta, höfum við flutt í stærra húsnæði. Við bjóðum ykkur velkomin og væntum þess að geta boðið enn betri þjónustu. Starfsfólk Samvinnubankans Suðurlandsbraut 18 Samvinnubankinn Suðurlandsbraut 18 3 —ká

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.