Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 5
Helgin 4.— 5. april 1981. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 öllum þéttbýlissveitarfélögum og þeim stjórnum ber aö kanna þaö hvort þörf sé fyrir verkamanna- bústaði og leiguibúðir i sveitar- félaginu. Ef þörfin reynist vera 1 fyrir hendi, þá ber þeim að knýja á sveitarstjórn og siðan á húsnæðismálastjórn um að byggja og bæta úr þörfinni. Efna- hagur þjóðarinnar er ótvirætt orðinn það traustur að engin þörf er á þvi að skilja litinn hluta þjóðarinnar eftir i nærri von- lausri aðstöðu i húsnæðismálum. Astæða er til að minna á það af- rek sem þjóðin hefur þegar unnið I húsnæðismálum með þvi að byggja 70% af öllum Ibúðum i landinu á siðustu 30 árum. Við lausn þess vanda sem nú biður úrlausnar i húsnæðismálum eiga við orð forsætisráðherra sem hann viöhafði á gamlársdag: „Vilji er allt sem þarf”. Lánakjör Byggingar- sjóðs verkamanna Húsnæðismálastjórn er heimilt að lána allt að 90% af byggingar- kostnaði verkamannabústaða. Lánin eru veitt til 42ja ára með 0,5% vöxtum. Af þvi láni eiga sveitarfélögin að leggja fram 10% og 10% af byggingarkostnaði greiðirsvo kaupandi Ibúðarinnar. Lánin eru að fullu verðtryggð og óttast þvi margirað afborganir af lánunum verði þungur baggi á ibúunum. Vissulega verður greiðslubyrðin nokkur, en ekki meiri en hófleg húsaleiga. Lausleg áætlun bendir til þess að afborganir af þriggja her- bergja ibúð nemi sem svarar 20% af launum rikisstarfsmanns i 10. launaflokki c® ætti að haldast i þvi hlutfalli á meðan við búum við óskerta kaupvisitölu. Til sveitarfélaga sem byggja leiguibúðir lánar húsnæðismála- stjórn allt að 80% af byggingar- kostnaði til 15 ára. Kaupskylda á verkamannabústöðum Ótviræð kaupskylda sveitar- félaganna er nú á öllum Ibúðum i verkamannabústöðum I 30 ár frá byggingu þeirra og siðan hafa sveitarfélögin forkaupsrétt ef þau óska. Þegar sveitarfélögin endur- selja Ibúðimar er húsnæðismála- stjórn heimilt að lána nýjum kaupanda eins og um nýja ibúð væri að ræða. Fyrst um sinn verður veitt lán úr Byggingasjóði verkamanna allt að 80% af verði ibúðarinnar. Ýtarleg ákvæði eru i lögum og reglugerðum sem tryggja rétt ibúanna og jafnframt að Ibúðir i verkamannabústöðum haldi áfram að gegna þvi hlutverki að leysa vanda þeirra sem við erfiðar aðstæðurbúa. Gagnrýni á lögin Nokkur gagnrýni hefur komið fram á lögin og framkvæmd þeirra á þeim tima sem liðinn er siðan þau tóku gildi. Að sjálf- sögðu hefði margt mátt betur fara við setningu þessara umfangsmiklu laga, einkum hefði mátt auðvelda framkvæmd þeirra með vandaðri undirbún- ingi. í flestum atriðum horfir þó vel um framkvæmd þeirra og I heild eru þau mikið framfara- spor. Gagnrýnin hefur einkum beinst að þvl að ekki sé með lögunum séð fyrir fjármögnun sjóðanna með viðunandi hætti. Það er rétt að lögin tryggja ekki fjáröflun til sjóðanna með sérstakri skatt- heimtu og verður það þvl hlut- verk stjórnvalda á hverjum tima að tryggja fjármagn til húsnæðis- mála með skattheimtu eða lán- tökum, eftir þvi hvernig fjár- málin standa i þjóðfélaginu. Þó að fjárhagur byggingasjóðanna standi með viðunandi hætti á þessu ári þá verður það stöðugt áhyggjuefni þeirra sem sjóðunum stjórna og annarra sem láta sig ibúðabyggingar nokkurs varða. Um gagnrýni eins og þá sem Landssamband iðnaðarmanna hefur dreift til fjöimiðia og raus þeirra í fimmtudagsblaði Þjóð- viljans hæfir ekki að ræða I sunnudagsgrein, en kemur til álita að ræöa síðar, vegna þeirra samtaka sem lagt hafa nafn sitt við þá samantekt. ólafur Jónsson. Síðasta sýning á Ótemjunni t kvöld er siðasta sýning á hin- um sigilda ærslaleik Willianis Shakespeares Ótemjunni, sem Leikfélag Reykjavikur hefur sýnt við afbragðs viðtökur frá þvi skönnnu eftir áramót. Leikurinn sem er fullur af spaugilegum uppátækjum, ást og misskilningi, lýsir viðureign þeirra Katrinar og Petrúsiós, og hvernig hann beygir kvenskassið til hlýðni og undirgefni svo að friður megi rikja i sambúð kynj- anna. Alls koma fram i sýningunni 15 leikarar og hljómlistarmenn. Aðalhlutverkin eru i höndum þeirra Lilju Guðrúnar Þorvalds- dóttur og Þorsteins Gunnars- sonar. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir og tónlistina samdi Eggert Þorleifsson og flytur hann hana á sýningum ásamt leikur- Kvennasýning að Kjarvalsstöðum Málningin og teikningin er samheiti kvennasýningarinnar sem hefst i dag (laugardag) að Kjarvalsstöðum. Þar sýna 47 myndlistarkonur frá öllum Norð- urlöndunum um 200 verk, þar á meðal eru 6 konur frá Islandi. Sýningin verður opin til 26. april, en að undanförnu hefur hún verið á ferð um Norðurlöndin við góðar undirtektir og fer héðan til siðasta áfangastaðar sem er i Arósum. Kjarvalsstaðir eru opnir alla virka daga frá kl. 16—22 og um helgar frá 14—22. —ká Magnús Tómasson á Akureyri Um s.l. helgi var opnuð sýning á verkum Magnúsar Tómassonar i Rauðahúsinu á Akureyri. Nefnist sýningin sýnihljóð eða „visual poetry” og hefur hluti hennar verið sýndur viða um lönd undir þvi heiti en nokkrar mynd- anna hafa ekki verið sýndar áður. Sýningu Magnúsar i Rauða hús- inu lýkur n.k. sunnudagskvöld. Magnús Tómasson. Umræða um flúor Manncldisfélag Islands heldur alnicnnan félagsfund um flúor n.k. mánudagskvöld. Allhvöss umræða hefur sprottíð upp hér- Icndis sem erlendis um flúorgjaf- ir, og eru menn ekki á eitt sáttir um gagnsemi þeirra. Flutt verða fjögur stutt fram- söguerindi. Sverrir Einarsson tannlæknir ræðir um flúor til tannverndunar, Guðjón Magnús- son aðstoðarlandlæknir ræðir um afstöðu og reynslu einstakra þjóða i flúormálum, og Þorsteinn Þorsteinsson lifefnafræðingur og Hrafn Tulinius prófessor fjalla um skaðlegar verkanir flúors. Að erindunum loknum verða al- mennar umræður. Fundurinn er öllum opinn, og hefst kl. 20.30 i stofu 201, Arnagarði, mánudaginn 6. april. Borgarspítalinn M M W Lausar stödur Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðinga vantar strax til starfa á lyflækningadeild spitalans. Hjúkrunarfræðingar óskast til sumaraf- leysinga á allar deildir. Sjúkraliðar Sjúkraliða vantar strax til starfa á hjúkr- unar- og endurhæfingadeildir spitalans og einnig til sumarafleysinga. Ritarar Staða ritara á gjörgæsludeild er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrif- stofu hjúkrunarforstjóra simi 81200 (201) (207). Reykjavik, 3. april 1981. Borgarspitalinn. Bókavörður Bókavörð vantar að Héraðsbókasafni Austur-Húnavatnssýslu Blönduósi, frá 1. sept. n.k. Umsóknum um starfið sé skilað til undir- ritaðs fyrir 1. júni n.k. F.h. safnsstjórnar Blönduósi, 25. mars 1981. Grimur Gislason. (vinnusimi 95-4200 — heima 95-4245). Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blíkksmíöi. Gerum föst verötilboð SÍMI53468 Auglýsinga- og áskriftarsími 81333 iobviuinn Tólf manna matarstell úr postulini Tólf manna kaffistell úr postulini Þriggja stykkja barnasett, myndskreytt Stök bollapör Sjö stykkja pottasett úr stáli Sjö stykkja pottasett, myndskreytt verð kr. 800,- verð kr. 370.- verð kr. 39.- verð kr. 18.- verð kr. 750.- verð kr. 685.- J Athugið að framvegis verða beinir simar í verslunina: Búsáhöld — Gjafavara . 19004 Fatnaður — Skór ... 12723 Raftæki — Ferðavörur — Leikföng. 16441 Verslunarstjóri.... 26414 DOMUS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.