Þjóðviljinn - 23.05.1981, Blaðsíða 2
ÞJÓÐVILJINN —
*- ÞJÓÐVILJINN
So/uirhif /Íut/Mui n+4' <y>. /03
7S I
Píanótónleikar í
Austurbæjarbíói
Þotukeppni í golfi
Um helgina fer fram hjá Golf-
klúbbnum Keili á Hvaleyri
fyrsta opna golfmótiö i ár, sem
gefur stig til landsliös. Er hér
um aö ræöa hina svokölluöu
Þotukeppni, sem Flugleiðir
standa að. Leiknar veröa 36 hol-
ur, með og án forgjafar.
Flugleiöir veita vegleg verö-
laun, en aukaverölaun fyrir
þann sem kemst naest holu á 5.
flöt vallarins eru flugfar til
Glasgow eða Luxemburgar eftir
vali.
fréttir
lcrikhús
helgrina
Sýningum
að fækka
á „Segðu
Pang”
Að undanförnu hefur Breið-
holtsleikhúsið sýnt fjöl-
skylduleikinn Segðu PANG!!
sem er nýtt islenskt barnaleikrit
eftir óþekktan höfund. Leik-
stjóri er Jakob S. Jónsson, en
með hlutverk Sigga og Fiu,
barnanna i leiknum, fara þau
Þröstur Guöbjartsson og Þór-
unn Pálsdóttir.
Nú fer hins vegar sýningum að
fækka þar sem komið er fram á
sumar, og verða tvær siðustu
sýningar á Segðu PANG!! i
Fellaskóla um næstkomandi
helgi, laugardag og sunnudag
A Iþýðuleikhúsið:
Síðustu
sýningar á
Stjórn-
leysingjanum
Senn liður að lokum þessa
leikárs hjá Alþýðuleikhúsinu i
Hafnarbiói. Um mánaðarmótin
mai/júni hefjast kvikmynda-
sýningar að nýju i bióinu. Sið-
ustu sýningar leikársins á
„Stjórnleysingi ferst af slysför-
um” eftir Dario Fo verða
þriðjudaginn 26. og miðviku-
daginn 27. mai.
Ekki verður unnt að hafa
neinar aukasýningar á verkinu,
þar sem gera þarf breytingar á
húsnæðinu áður en kvikmynda-
sýningar hefjast. Alþýðuleik-
húsið hefur i hyggju að fara með
tvær af sýningum leikársins út
um landsbyggðina i sumar.
t júli verður Kona á Aust-
fjörðum, en Stjórnleysinginn
fyrir vestan og norðan i ágúst. t
september mun Alþýðuleikhús-
ið opna að nýju i Hafnarbiói.
ítölsk vika
Nú stendur yfir itölsk vika á
veitingahúsinu Rán. Eigendur
staðarins fengu Sigurð Demetz,
þann kunna söngvara og söng-
kennara til að velja matseðil-
inn. A honum eru sex italskir
smáréttir og eru boðin itölsk vin
með. Siguröur hefur umsjón
með matseldinni og gætir þess
að ekkert vanti til að ná fram
hinu sanna italska bragði: Páll
Eyjólfsson gitarleikari
skemmtir gestum með léttri
tónlist á itölsku kvöldunum en
þeim lýkur á fimmtudag 28. mai
eöa föstudag 29. mai.
Þrír austan-
fjallsmenn
sýna í
Ásmundarsal
sýningar
Kjarvalsstaðir
Hafsteinn Austmann opnar sýningu i
vestursal. Katrin Ágústsdóttir sýnir
batik-myndverk og Steinunn Mar -
teinsdóttir er með leirlistarsýningu á
göngunum.
Galleri Suðurgötu 7
Halldór Asgeirsson myndlistamaöur
sýnir. Verkin eru unnin úr margvis-
legum efnum. Sýningin er opin frá kl.
16.00 - 20.00 alla daga.
Norræna húsið
Jónas Guðmundsson er með sýningu i
kjallarasal, og i anddyrinu sýnir
Anne-Lise Knoff grafik.
Rauða Húsið
Guðjón Ketilsson sýnir.
Stúdentakjallarinn
Arni Laufdal Jónsson sýnir, siðasta
sýningarhelgi.
Ásmundarsalur
Þrir austanfjallsmenn sýna. Sýningin
er opin frá kl. 16 - 22 virka daga og um
helgar frá 14 - 22
Listasafn Alþýðu
Jakob Jónsson sýnir vatnslitamyndir
og teikningar. Sýningin er opin frá 14. -
22 alla virka daga.
Leikfélag Reykjavikur
Barn i garðinum. Laugardag kl. 20.30
Skornir skammtar. Sunnudag kl. 20.30
Þjóðleikhúsið
Gustur. Laugardag og sunnudag kl. 20
bæði kvöldin.
Nemendaleikhúsið
Marat/Sade. Sunnudag kl. 20
Breiðholtsleikhúsið
Segðu Pang. Laugardag og sunnudag
kl. 15
Leikfélag Akureyrar
Við gerum verkfall. Sýnt i Kópavogs-
bió, mánudagskvöld kl. 20.30
Kjarvalsstaðir:
Hafsteinn Austmann sýnir
Hafsteinn Austmann opnar
málverkasýningu i vestursal
Kjarvalsstaða n.k. laugardag
23. mai kl. 3. Nú eru liðin 25 ár
frá fyrstu einkasýningu Haf-
steins, sem var i Listamanna-
skálanum gamla við Austurvöll
1956. Hafsteinn menntaðist fyrst
i Myndlista- og handiðaskóla
Islands og hélt siðan utan til
frekara náms aðallega i Paris.
Á þessum 25 árum hefur hann
unnið sleitulaust að þvf að mála.
Eins og að líkum lætur eru sýn-
ingar orðnar fjölmargar, bæði
utan lands og innan. Arin 1968 -
69 dvaldi Hafsteinn i Arósum i
Danmörku og tiiheyrði þá hópi
ungra, danskra málara. Sýndi
með þeim vitt og breitt um Dan-
mörku og á nú myndir bæði á
einkasöfnum og opinberum
stöðum þarlendis. Myndir Haf-
steins eru einnig á söfnum i Am-
eriku og viða i Evrópu.
Tónlistarfélagið heldur pianó-
tónleika i dag 23. mai kl. 14.20 i
Austurbæjarbiói.
Þar leika Gisli Magnússon og
Halldór Haraldsson saman verk
eftir Brahms, Rachmaninoff og
Ravel.
1 nokkur ár hafa Gisli og Hall-
dór haldið tónleika, þar sem
þeir hafa leikið verk fyrir tvö
pianó. Meðal annarra verka
sem þeir hafa leikið, má nefna
Konsert fyrir tvö pianó og
hljómsveit eftir Bartók. Sama
verk i upphaflegri gerð sinni
sem Sónötu fyrir tvö pianó og
ásláttarhljóðfæri léku þeir
ásamt Vorblóti Stravinskýs á
Listahátið i Reykjavik vorið
1978.
Um haustið sama ár léku þeir
siðastnefnda verkið og Paga-
ninitilbrigði Lutoslavskis inn á
hljómplötu. Einnig hafa verið
sjónvarpsþættir meö þeim.
Gerir innrás í
Stór-Reykjavík
Nú um helgina gerir Leikfélag
Akureyrar innrás á höfuð-
borgarsvæðið meö leik-
sýninguna „Viö gerum
verkfall” að vopni. L.A. setur
upp búðir sinar i Kópavogsleik-
húsinu og sýnir þar mánudags-
kvöldið 25. og þriöjudagskvöldiö
26. mai ærslaleikinn. Verkfallið
hefur fariö sem eldur um sinu á
Akureyri og um nágranna-
byggðir aö undanförnu og nú er
komiö aö Reykjavík og
nágrenni.
Leikarar eru: Marinó Þor-
steinsson, Þðrey Aðalsteins-
dóttir, Guðrún Alfreðsdóttir,
Gestur E. Jónasson, Theódór
Júliusson, Kristjana Jónsdóttir
og Sunna Borg. Leikstjóri er
Svanhildur Jóhannesdóttir.
Hallmundur Kristinsson hefur
gert leikmynd og búninga og
Ingvar Björnsson sér um
lýsingu.
Sýningarnar i Kópavogsleik-
húsinu hefjast kl. 20.30.
á Rán
kynnir réttina
matseðlinum.
Laugardaginn 16. mai sl. opn-
uðu þrir austanfjallsmenn sam-
sýningu á verkum sinum, sem
eru 45 að tölu.
Þær eru geröar á þessu ári og
siöasta. Verkin eru unnin með
oliu, vatnslitun, pastel og öðrum
efnum.
Þeir sem að sýningunni
standa eru frá Stokkseyri, en
það eru þeir Páll Sig. Pálsson og
Elvar Þórðarson, en sá þriðji
kemur frá Selfossi.
Þeir hafa allir áður sýnt hér
og þar á flatlendi suöurlands.
Sýningin er sölusýning og er
opin um helgina frá kl. 14 - 22,
sýningunni lýkur á sunnudag.
Nýlist í
Suður-
götu 7
Nú um helgina lýkur i Suð-
urgötu 7 sýningu Halldórs
Asgeirssonar á nýlistaverk-
um sem tengd eru „leit að
frumtáknum mannsins”
með sérstakri skirskotun til
höfuðskepnanna. Sýningin er
opin daglega kl. 4 - 8.
Þarna eru verk unnin með
blandaðri tækni ýmislegri —
t.d. eru höfuðskepnur eins og
eldur vatn og jörð tengd ljós-
myndum. I annan stað eru
staðhættir hússins notfærðir
til að spinna út frá, t.d. er eitt
herbergi iátið taka táknræn-
um stakkaskiptum. t einu
herbergi er litskyggnupró-
gram þar sem farið er með
hreyfanlegar ljósmyndir,
einskonar millistig milli ljós-
myndar og kvikmyndar.
Kabarett
á Skaga
Það verður söngur, grin og
gaman hjá Skagaleikflokkn-
um i Bióhöllinni á Akranesi
næstkomandi laugardag 30.
mai.
Flutt verða mörg stutt at-
riði sungin og leikin notuð og
ný úr ýmsum áttum.
Efni er eftir Jónas Árna-
son, Theódór Einarsson og
marga fleiri. Kemur þarna
fram fjöldi fólks og enn fleiri
taka þátt i undirbúningi.
Sýningar verða aðeins
tvær, báðar þennan sama
dag, kl. 17.00 og 20.30. Að-
göngumiðar verða seldir i
versluninni öðni og Bióhöll-
inni.
Fyrirlestur um
íbúðabyggingar í
V-Þýskalandi:
Bætt hvbýli
oe betra
unihverfi
A mánudaginn kemur, 25.
mai, flytur Hermann Boock-
hoff arkitekt og deildarstjóri
hjá Borgarskipulagi Hanov-
er erindi um ibúðarbygging-
ar I V-Þýskalandi. Erindið
hefst kl. 20.30 i stofu 101 i
Lögbergiog er öllum heimill
aðgangur.
Hermann Boockhoff er
hingað kominn á vegum
Arkitektafélags Islands og
Þýska bókasafnsins. Hann
mun i erindi sinu fjalla um
þróun i byggingu ibúðarhús-
næðis á áttunda áratugnum i
V-Þýskalandi, stjórnun
þessa málaflokks, þátttöku
ibúa við ákvarðanatöku og
sýnir hann litskyggnur máli
sinu til skýringar.
Er hópnum ætlað að gera til-
lögur að stefnumörkun fyrir
níunda áratuginn.
Vörusýningin
fellur niður
Fyrirhuguð Vorsýning
Fimleikasambandsins nk.
sunnudag fellur niður af
ýmsum orsökum.
Félag
áhugamanna
um heimspeki
Næsti fundur félagsins
verður haidinn sunnudaginn
24. mai, kl. 14.30 i Lögbergi.
Eyjólfur Kjalar Emilsson
mun flytja fyrirlestur sem
hann nefnir „Um efnis-
hyggju”.
Sáttatillagaí
Jan-Mayen málinu
lögð fram:
Við^
unandi
um-
ræðu-
grund-
völlur
i gær kynntu Ólafur Jóhannes-
son utanrikisráðherra og Hans G.
Andersen sendiherra sáttatillögu
sem lögð hefur vcrið fram i deilu
islendinga og Norðmanna um Jan
Mayen og landgrunnið um-
hverfis. A sama tima var tillagan
kynnt norskum fréttamönnum.
éllafur Jóhannesson sagði i gær
að hann teldi þessa sáttatillögu
viðunandi umræðugrundvöll i
málinu fyrir rikisstjórnir
landanna. Þegar og ef samkomu-
lag næst milli rikisstjórnanna
munu þing landanna fjalla um
það samkomulag og taka endan-
lega ákvörðun.
Þvi næst kynnti Hans G. Ander-
sen efni sáttatillögunnar. Nefndin
kallaði til liðs við sig sérfræðinga
frá ýmsum löndum og var sú
spurning lögð fyrir þá hvort lita
mætti svo á að Jan Mayen hrygg-
urinn væri framhald af land-
grunni Islands. Niðurstaðan varð
sú að svo væri ekki. Þá var og
spurt um möguleika á að finna
oliu á þessu svæði og hefur það
svæði sem hugsanlegt er að olia
finnist á verið kortlagt. Kemur
þar i ljós að á smásvæði innan
islenskrar lögsögu er hugsanlegt
að finnist olia.
I sáttatilllögunni er gert ráð
fyrir þvi að svæðið verði
rannsakað. Ef engin olia finnst er
gert ráð fyrir að Norðmenn greiði
allan kostnaðinn. Ef olia finnst á
svæðinu, þá myndu oliufélögin
koma inni myndina. Þá er gert
ráö fyrir að af hugsanlegri oliu-
vinnslu fái viðkomandi oliufélag
50% en Noregur og tsland skipti
hinum helmingnum jafnt á milli
sin, hvar sem olian kann að vera
á öllu svæðinu.
Gert er ráð fyrir að könnun á
svæðinu taki minnst 9 ár og mjög
margir þættir hugsanlegrar oli-
vinnslu þar eru óræddir, svo sem
mengunarhættan o.fl. Sagöi utan
rikisráðherra að tslendingar yrðu
mjög haröir á þvi að lifriki þessa
svæðis yrði ekki raskað vegna
fiskveiðanna.
Þessi sáttatillaga brýtur blað i
samskiptum þjóða að þvi er þeir
Ólafur og Hans sögðu og mun
ekkert fordæmi vera til fyrir
slikum samkomulagsdrögum.
— S.dór
N áttúruverndarráð
Leggst gegn
uppiyllingu
við Faxaskjól
Náttúruverndarráö samþykkti
á fundi i fyrradag einróma mót-
mæli gegn umræddri uppfyllingu
i fjörunni viö Faxaskjól. Mun bréf
frá ráðinu þessa efnis koma fyrir
borgarráö á þriðjudaginn.
Forsendur ráösins munu þær að
fjörulengjan að sunnanveröu við
borgina þ.e. viö Seltjarnarnesið
inn i Fossvoginum sé tiltölulega
ósnortin og þvi ekki vel til fundiö
aö hrófla mikiö við henni eöa
breyta.
— j
Höfðabakkabrúin hálfnuð
Framkvæmdir eru nú hálfnaðar við Höfðabakkabrúna sem mjög
umdeild var á sinum tima og afgreidd var frá borgarstjórn á sinum
tima með atkvæðum Framsóknar, ihalds og krata, en borgarstjórnar-
flokkur Alþýðubandalagsins stóð einn gegn. Framkvæmdir hófust i
endaðan september siðastliðinn og reiknað er með að þeim ljúki i
nóvemberá hausti komanda. Að sögn Ólafs Guðmundssonar yfirverk-
fræðings hjá gatnadeild borgarinnar er áætlaður kostnaður við brúna
sjálfa hátt i sex milljónir króna. Myndin hér að ofan var tekin fyrir
nokkrum dögum og sést yfir brúna til Arbæjarhverfis og efst til vinstri
sést i Árbæjarsafn. Ljósm: Gel.
Eldsvoði
/
a
Akureyri
Mikill eldur kom upp i „Gamla
kornvöruhúsinu” við Kaupvangs-
stræti á Akureyri i fyrrakvöld.
Húsið er 3ja hæða steinhús, en var
vel og mikið viöað að innanverðu
með trégólfum nema í kjallara og
var byggt uppúr aldamótum.
Húsið er i eigu KEA og stendur á
baklóð aðalverslunarhúss þess en
þar voru geymslur auk véla og
verkfæra trésmiða sem sjá um
viðhald hjá KEA.
Allt slökkvilið Akureyrar var
kvatt á vettvang kl 22.23 og lauk
slökkvistarfi ekki fyrr en klukkan
var langt gengin i þrjú.
Mikið tjón varðieldinum, þakið
ónýtt og efsta gólfið fyrir utan
skemmdir af vatni og reyk á
Hótel KEA og fólki varð ekki
svefnsamt vegna reyks i öðrum
nærliggjandi húsum. Ekki er vit-
að um eldsupptök.
— A
Stórbruni á
Tálknafirði
Vélasmiðja Tálknafjarðar stór-
skemmdist i gær i eldi. Það var
rétt upp úr kl. 12 að menn urðu
varir við mikinn revk á lofti yfir
kaffistofunni. Slökkviliðið á
staðnum er vanbúið tækjum og á
aðeins eina dælu á vagni, en liðs-
auki barst fljótlega frá Patreks-
firði. Lauk slökkvistarfinu á
u.þ.b. tveim timum en þá var
brunninn mikill vörulager, kaffi-
stofa og salerni og þakið fallið
niður á hálfri byggingunni.
Miklar skemmdir urðu einnig á
sjálfri smiðjunni áf völdum hita
og reyks. Eldsupptök eru óljos, en
menn hallast að þvi að kviknað
hafi i út frá rafmagni, að sögn
Gunnars Arnmarssonar fréttarit-
ara á Tálknafiröi.
— j
Yfirlæknar ábyrgir?
Læknar kallaðir inn samkvæmt verkbeiðnum
Læknaþjónustunnar
Sú staða er komin upp i lækna-
deilunni að yfirlæknar viö spital-
ana kalla nú inn lækna sam-
kvæmt verkbeiðnum Læknaþjón-
ustunnar h.f. Samkvæmt túlkun
Læknaþjónustunnar þýðir þetta
viðurkenning á töxtum fyrirtæk-
isins.
A fundi sem fjármálaráðuneyt-
ið átti með yfirlæknum rikisspit-
alanna i gær var þetta mál rætt.
Var yfirlæknunum gerð grein fyr-
ir þvi að rikið myndi ekki greiða
reikninga samkvæmt þessum
töxtum og kynnu þvi yfirlækn-
arnir sjálfir að verða ábyrgir fyr-
ir mismuninum á þvi sem rikið
telur sér skylt að greiða og töxt-
um Læknaþjónustunnar. „Þetta
er afleit staða sem Læknaþjón-
ustan hefur komið mönnum i,
bæði ráðuneytinu og ekki siður yf-
irlæknunum, sem auðvitað verða
að kalla menn inn á sjúkrahúsin
þegar þarfir sjúklinga krefjast
þess,” sagði Þröstur Ólafsson að-
stoðarráðherra i samtali við
Þjóðviljann i gær.
t dag verður fundur fulltrúa
ráðuneytisins og stjórnar lækna-
félagsins um málið en um eigin-
legar samningaumræður er ekki
að ræða. Virðist að óbreyttu
stefna i að dómstólar skerist i
málið, þ.e. ef læknar Læknaþjón-
ustunnar h.f. setja reikninga sina
i innheimtu aö viölögðum mála-
ferlum. — j
Tilmæli Slysadeildar til borgarbúa:
Léttið á spítalanum
Leitið til starfandi lækna og heilsugæslustöðva
t gær sendi Slysa- og sjúkra-
móttaka Borgarspitalans frá sér
orðsendingu til borgarbúa þar
sem mælst er til þess aö þeir leiti
til heilsugæslustöðva og heimilis-
lækna með öll minniháttar mein.
Er þetta gert vegna þess ástands
sem skapst hefur á spitalanum
við uppsagnir lækna en I gær
höfðu 26 aöstoöarlæknar og sér-
fræöingar þar hætt störfum.
Haukur Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Borgarspitalans,
I sagði i gær að mikil örtröð væri á
Slysa- og sjúkramóttökudeildinni
og þvi miður væri það svo, að
margir þeirra sem kæmu gætu
leitað til starfandi lækna og
heilsugæslustöðva. Sagði Haukur
að ef menn brygðust vel við þess-
um tilmælum myndi spítalinn
geta sinnt alvarlegri tilfellum
betur. Hins vegar sagði hann aö
sú staðreynd að fólk leitaði á
slysadeild með minniháttar mein
sýndi að það ætti engan aðgang að
læknum, enda eru þúsundir Reyk-
vikinga heimilislæknalausir.
Heilsugæslustöðvar eru i nokkr-
um hverfum borgarinnar, m.a. á
Borgarspitalanum auk þess sem
leita má til læknastofanna i
Domus Medica.
Haukur sagðistekki kannastviö
að yfirlæknar Borgarspitalans
fylltu út vinnuskýrslur lækna á
eyðublöö frá Lækhaþjónustunni
s.f., enda yröu einungis teknar
vinnuskýrslur á eigin eyðu-
blöðum spitalans eins og verið
hefði.
— AI
klukkan 15:00. Að þeim loknum
er fyrirhugað að halda i leik-
ferðir um nágrenni Reykjavikur
og jafnvel viðar, og verða þær
leikferðir auglýstar sér-
staklega.
Eins og áður hetur kohuo
fram, geta aðilar pantað sýn-
inguna til sin með þvi að hafa
samband við miðasölusima
Breiðholtsleikhössins á opn-
unartima miðasölu: frá kl. 13:00
laugardag og sunnudag næst-
komandi, i sima 73838
Leikfélag Akureyrar:
bíó
Háskólabió
Mánudagsmyndin er að þessu sinni
norsk-sænsk, sem eitt út af fyrir sig er
afar ánægjulegt og nefnist myndin:
Alvarlegur leikur (Den Alvorlige Legl
gerö árið 1977. Leikstjóri og höfundur
er Anje Brien og með aðalhlutverk
fara Stefan Eckman og Lille Perse-
lius.
Regnboginn
sýnir m .a. hina bráð vel gerðu mynd
Punktur, punktur, komma, strik, eftir
samnefndri sögu Péturs Gunnars-
sonar. Handrit og leikstjórn er i hönd-
um Þorsteins Jónssonar og með aðal-
hlutverkin fara: Pétur Björn Jónsson,
Hallur Helgason, Erlingur Gislason og
Kristbjörg Kjeld.
Fjalakötturinn
Sýnir „hreinsunina mikla (La Grande
Lessive) Þessi mynd er frönsk frá ár-
inu 1969, leikstjóri er Jean Pierre
Mocky.
Stjörnubíó
Kramer gegn Kramer (Kramer ,vs.
Kramer)
Bandarisk kvikmynd frá árinu 1979.
Leikstjóri er Robert Benton og meö
aðalhlutverkin fara: Dustin Hoffman,
Meryl Streep og Justin Henry. Fjallar
um vandamál allra hjóna sem skilja,
hver á að fá umráðaréttinn yfir barn-
inu?