Þjóðviljinn - 29.08.1981, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 29.08.1981, Blaðsíða 28
moovMJim 1 Abalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaösins I þessum slmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími Helgin 29.-30. ágúst 1981 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins i slma 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöid. 81333 81348 afgreiðslu 81663 nafn vikunnar Ólafur Walter Stefánsson Crrslit talningar i biskupskjöri og þær brigður sem á þau hafa verið bornar, hefur borið hæst i fréttum vikunnar. Kjörstjörn biskupskjörs hefur verið gagn- rýnd harðlega en formaður hennar er ólafur Walter Stef- ánsson, skrifstofustjöri i dóms- málaráðuneytinu. — Af hverju voru þessi um- deildu þrjú atkvæði ekki talin með? Lögin gera ráð fyrir þvi að kjörgögn verði að vera með ákveðnum hætti og eftir þvi ber kjörstjórn að fara. Setja á kjör- seðil i lokað umslag og það um- slag ásamt yfirlýsingu á fylgi- blaði um það að viðkomandi hafi kosið, skal sett i annað um- slag, sem merkt er kjörstjórn. Fylgiseðillinn er siðan borinn saman við kjörskrá þannig að tryggt sé að viðkomandi hafi kosningarétt. Það er ekki hægt ef fylgiseöilinn vantar. — En nú er vitað hverjir hafa greitt þessi atkvæði? Kjörst jórn veit ekki beinlinis hvaðan atkvæðin eru öðru visi en svo, aö þegar búið er aö merkja við á kjörskrá öll at- kvæði sem talin hafa veriö, standa eftir fjögur nöfn. Ef þessi atkvæði eru frá þessum fjórum mönnum er hægt aö leiða getum að þvi hvað er hvað. Eitt barst of seint, menn geta séð að bréf er póstlagt á ákveön- um stað og vitað er að annaö bréf hefur tiltekinn aðili afhent. Þannig er hægt að leiða getum að hinu fjórða en það er ekki upplýst þannig að kjörstjórn telji fullnægjandi. — Nú hefur það verið gagn- rýnt að þessi nöfn eru orðin op- inber. Þótt kosningin sé leynileg þá er sjálf framkvæmd kosningar- innar kæranleg. Það, hverjir skila sinu atkvæði og hverjir ekki, eru atriði sem menn eiga réttáaðhafa aðgangað, sem og ástæður þess að atkvæði eru ekki tekin til greina. Þetta verð- ur að vera opinbert til þess að menn geti áttað sig á því hvort kæra eigi kosninguna og þá af hvaða ástæðum. — Ef úrskurðað verður á þann veg að opna skuli þessi þrjti at- kvæði cr þá leyndin yfir kosn- ingunni ekki rofin? Efkæra verður efnislega tek- in til greina, sem ég get ekki sagt neitttilum, þá er tvennt til. Annars vegar að opna atkvæðin ogþá erhægt að leiða getum að þvi hvernig þessir þrir menn hafa greitt atkvæði og hins veg- ar er sá möguleiki að endurtaka kosninguna ef talið er að þeir gallar hafi verið á henni. Ef kjörstjórn hefði taliö sér fært að opna þessi atkvæði og telja þau með öörum i upphafi, þá hefði sU athöfn verið jafnkæranleg. I þvi tilviki aö slik kæra hefði ver- ið tekin tilgreina, hefði orðið að endurtaka kosninguna þar sem ómögulegt hefði verið að tina þessi atkvæði Ut Ur öllum hópn- um. — AI r Rœtt við Asu r Olafsdóttur, myndvefara, sem opnar sína fyrstu einkasýningu um næstu helgi „Þykir enn vænna „Sfðasta sumarið” heitir þessi skemmtilega mynd af rakstarkonunni með jökulinn i baksýn. Ljósm. —gel—. um landið en áður” „Ég hef búið úti í Gauta- borg i 5 ár, en þangað fór ég til framhaldsnáms í myndvefnaði í Konstind- ustriskolan. Ég hef verið með eigirí vinnustofu í Gautaborg siðan ég iauk námi og sýnt á nokkrum samsýningum#" sagði Ása ólafsdóttir myndvefari# sem um næstu helgi opnar sina fyrstu einkasýningu á göngum Kjarvalsstaða. Asa var i Myndl. og handiða- skólanum 1969—73 og kenndi hér heima áður en hún fór utan. Hún vefur eingöngu ekta efni, ull, hör, bómull, silki og hefur einnig notað islenskan lopa, sem hún kembir eftir að hún hefur ofið úr honum. Mótifin eru mismunandi, en ,,ég hef mestan áhuga á náttúru og fólki”, segir Ása. Hún hefur selt mynd til sænska rikisins og nýlega fékk hún norrænan styrk til að halda sýningu á Kjarvals- stöðum. — En hvernig er að lifa sem listamður i Sviþjóð? ,,Þaö er að mörgu leyti ágætt. Ég var svo heppin að fá styrk i vor sem gerir mér kleift aö helga mig vinnunni, en slikan styrk get- ur maður vænst að fá 3. hvert ár ef vel gengur. Hins vegar vil ég helst flytja heim, þvi það er erfitt fyrir fsl. listamenn að vinna Asa hengir upp eitt af stærri verkum slnum, ..Lúpinur” heitir þetta verk. erlendis. Landið og þjóðin á svo rikan þátt i verkum manns og hugmyndum.” — Ertu að hugsa um að flytja heim bráðlega? ,,Það sem fyrst og fremst kemur i veg fyrir að ég geti flutt heim eru húsnæðisvandræöin. Ég myndi aldrei þora að leigja af ókunnugum, þvi ég er með barn og hef mjög ójafnar tekjur. Vinna min er auk þess þess eðlis, að ef ég verð að flytja út með litlum fyrirvara getur það eyðilagt fyrir mér verkefni. Ég verð að hafa eigin vinnustofu, ég lita t.d. allt sjálf og þessa aðstöðu verð ég að hafa heima. Ég veit um ákaf- lega marga unga islenska lista- menn, sem búa erlendis og starfa þar eingöngu vegna þess að það er nær ógerningur fyrir þá aö fá húsnæði hér heima. En allir vilja heim. Eftir langa dvöl erlendis þykir manni ennþá vænna um landiö en áður en maður fór út.” — Og hvað er svo framundan? ,,Ég mun sýna verk á hóp- sýningu i Bandarlkjunum á næsta ári og þegar ég fer út nú i haust byrja ég að undirbúa þá sýningu. Ég hef einnig fengið kennslu næsta vetur við skóla sem undir- býr nemendur undir listaháskóla og kenni þar einn dag i viku”, sagði Ása. Sýning hennar verður opin frá 5.sept. til 20.sept. og verður sýnt þar 21 verk, flest til sölu. þs . ... ,. Hér er Ása meö staflann sinn á Kjarvalsstööum, en myndirnar veröa hengdar upp á ganginum þar sem komiö er inn i húsiö.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.