Þjóðviljinn - 14.11.1981, Síða 1
Tvö blöö
BLAÐ
II
Verð kr. 7.50
Þórður Ben Sveinsson myndlistarmaður
Húsið sem klettur og
borgin sem lifandi vefur
Litið við á sýningu
Þórðar Ben
Sveinssonar um
skipulag og þróun
byggðar
í Reykjavík
Æ f leiri gera sér nú orðið
grein fyrir mikilvægi um-
hverfismótunar almennt,
og borgarskipulags og
húsagerðarlistar sérstak-
lega í hinu tæknivædda
þjóðfélagi nútímans, þar
sem tækniþróunin virðist
oft og tíðum hafa tekið
frumkvæðið af manninum
fyrir tilverknað innri
vélgengni, þannig að hinar
tæknilegu forsendur verða
allsráðandi og einstakling-
urinn með sínar mannlegu
þarfir er gerður að óvirk-
um áhorfanda og endan-
legu fórnarlambi skipu-
lagsvélarinnar, sem lítur á
hann sem hvert annað
tæknilegt viðfangsefni eða<
peð á taflborði. Almenn
umfjöllun um skipulags-
mál hér á Islandi hefur þó
sorglega lítið náð út fyrir
raðirfagmanna, og má þar
kannski að einhverju leyti
um kenna, að stjórnvöld og
um leið fagmennirnir
Framtlöarbyggö á flugvallarsvæöinu og Alftanesi. Aöalumferöaræöarnar aö miöju nýja miöbæjarins
eru yfirbyggö „ylstræti” meö rafknúnum farartækjum á teinum. A Alftanesinu er byggö raöhúsa meö
garöhýsi á þakinu.
sjálfir eru í umf jöllun sinni
um málin lokaðir inni í
þessum vítahring, þar sem
hinn almenni borgari er
nánast útilokaður sem
mótandi áhrifaaðili.
Þessi þróun hlaut þó
óhják væmilega aö leiöa til
andófs, andófs sem vföa f Evrópu
hefur tekiö á sig mynd öflugra
f jöldahrey finga umhverfis-
verndarmanna, hverfasamtaka,
friöarsinna o.s.frv. Þaö sem
þessari fjölþættu og bjölbreyttu
andófshreyfingu er sameiginlegt
er kannski fyrst og fremst þaö, aö
hún talar tungumáli sem tækni-
kratarnir og stofnanafulitrúarnir
eiga erfitt meö aö skilja, enda eru
grundvallarforsendurnar aörar.
Þaö var þvi meö eftirvæntingu,
sem ég fór og skoöaði sýningu,
sem Þóröur Ben Sveinsson mynd-
listarmaöur hefur opnaö á Kjar-
valsstööum, þar sem hann setur
fram hugmyndir sinar um skipu-
lagsmál og framtföarþróun bygg-
ingarlistar I Reykjavik. Þóröur
Ben Sveinsson er þekktur af ööru
en aö tala á stofnanamáli. Hann
var á sinum tfma einn af stofn-
endum Galleri SÚM I Reykjavik,
og átti þá frumkvæöi aö ýmsum
ljóðrænum uppákomum sem voru
svo viös fjarri hinni köldu tækni-
hyggju og skriffinnsku sem frek-
ast má vera. Hann fluttist til
Þýskalands fyrir 12 árum og hef-
ur starfaö þar aö kennslu f sjón-
menntum meö myndlistarstarf-
inu, en fáar fréttir hafa hins
vegar borist af starfi hans hingað
til tslands, fyrr en meö þessari
sýningu. Og þaö veröur aö segjast
eins og er, aö þótt margar þær
hugmyndir sem Þóröur setur
fram á sýningu sinni kunni aö
virka framandi, þá er sýningin
skýrt og vel fram sett og vel til
þess fallin aö vekja umræöu um
þessi mál, umræöu sem gæti
kannski oröið til þess aö brúa þá
gjá sem áöur var lýst. — Ég náöi
tali af Þóröi og viö spjölluöum
i eina eftirmiðdagsstund saman
um inntak þessarar sýningar.
Verkefni með
félagslega þýðingu
— Ég kom i stutta heimsókn
hingaö eftir 4 ára dvöl I Þýska-
landi 1973 og fann þá aö hér voru
aö gerast stórslys f skipulags-
málum, og þetta varö til þess aö
meö mér vaknaöi löngun til þess
aö fjalla um þessi mál. Sem fag-
maöur f sjónmenntum fann ég
þarna möguleika til þess aö beita
mér aö verkefni sem haföi félags-
lega þýöingu. Þetta starf mitt er
enn á byrjunarstigi, en mér finnst
vera knýjandi þörf fyrir aö vekja
umræöu um þessi mál, og því hef
ég nú sett upp þessa sýningu.
Sýning Þóröar skiptist I tvennt,
annars vegar setur hann fram
hugmyndir sinar um skipulags-
mál á Reykjavikursvæöinu, hins
vegar setur hann fram hugmynd-
ir um byggingarlist er miöist viö
fslenskar aöstæöur. Hugmyndirn-
ar eru bæöi settar fram f lesmáli
og myndum. Viö snúum okkur
fyrst aö skipulagsmálunum, og
vörpum fram þeirri spurningu,
hvort grundvallarvandamál alls
skipulags sé ekki fólgiö f þvi aö
skilgreina þarfir fólksins'.
Sjá næstu síðu