Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Žjóšviljinn

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Žjóšviljinn

						10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN   Fimmtudagur 10. júnl 1982

Fyrri hluti

15. formannafundur K.í.

var haldinn í Nýja Hjúkr-

unarskólanum og að Hall-

veigarstöðum dagana 16.

— 18. apríl sl. K.l. hefur

þann hátt á# að halda

Landsþing annað hvert ár,

skipað fulltrúum hinna

ýmsu héraðasambanda,

mismörgum eftir félaga-

tölu hvers sambands. Hitt

árið er haldinn fundur með

formönnum héraðasam-

bandanna. Að þessu sinni

sóttu fundinn formenn eða

varaformenn allra sam-

bandanna nema tveggja.

Formaður K.l. Maria Péturs-

dóttir setti fundinn, bauð fulltrúa

og gesti velkomna og minntist

góðra samverustunda á siðasta

ári á Laugarvatni, en þar var sið-

asta landsþing haldið, og á

Hvanneyri i Norræna húsmæðra-

orlofinu.

Frá v.: María Pétursdóttir, form. K.I., Guðrún Lára Agústsdóttir, Mælifeili, Sigurhanna Gunnarsdóttir,

Laek, Sigriður Hafstað, Tjörn, Sdlveig Alda Pétursdóttir. Reykjavfk, Sigrtin Sturludóttir, Reykjavfk,

Unnur Schram, Reykjavík, (standandi) Sigurveig Sigurðardóttir, Selfossi, Magðalena Ingimundar-

dóttir, Akranesi, Halla Aðalsteinsdóttir, Kolsholti, Ingibjörg Bergsveinsdóttir og Sigriður Kristjáns-

dóttir.

Og enn þinga þær

Formaður minntist merkiskon-

unnar Halldóru Bjarnadóttur,

sem landskunn er fyrir forystu-

störf og umsvif i kvenfélagsmál-

um. Halldóra lést á sl. ári. Lauk

hún máli sinu með þvi að vitna til

orða, sem áður hafa verið viðhöfð

um Halldóru: ,,Lif hennar og

starf sanna, hversu miklu ein-

stakir hæfileikar og vilji til góðra

verka fá áorkað, bæði fyrir sam-

tið og framtið". Þá óskaði hún for

mannafundinum „vits, starfs-

gleði og hófsemi i athöfnum".

Skýrsla stjórnar,

starfslið o.fl.

1 skyrslu stjórnarinnar kom

fram, að 11 stjórnarfundir hafa

verið haldnir slðan Landsþing

kom saman. Núverandi stjórn

K.l. skipa Maria Pétursdóttir for-

maður, Sigurveig Sigurðardóttir

varaformaður og Sólveig Alda

Pétursdóttir ritari. 1 varastjórn

eru Helga Guðmundsdóttir, Sig-

urhanna Gunnarsdóttir og Þór-

unn Eiriksdóttir. Sigriður Kristj-

ánsdóttir húsmæðrakennari er i

hálfu starfi hjá K.I. fyrst og

fremst við Leiðbeiningastöð hús-

mæðra, og hefur ærið nóg að

starfa þar. Soffia Káradóttir

vinnur á skrifstofu K.í. tvo hálfa

daga vikulega við bókhald og

önnur skrifstofustörf.

Ritstjórar Husfreyjunnar eru

Sigriður Thorlacius og Ingibjörg

Bergsveinsdóttir. Gjaldkeri er

Guðbjörg Petersen, og þær Ingi-

björg og Guðbjörg annast af-

greiðslu og innheimtu. Timaritið

Húsfreyjan hefur nú flutt I ný

húsakynni i kjallara Hallveigar-

staða. Endurbætur hafa verið

gerðar á skrifstofu K.I., en þar

hafði Húsfreyjan áður bækistöðv-

ar.

Sagt var frá afgreiðslu tillagna,

sem samþykktar voru á siðasta

landsþingi, en „allar munum við

vera sammála um, að landsþing-

ið á Laugarvatni hafi tekist með

ágætum og gestrisni Sambands

sunnlesnrka kvenna og samherja

sambandsins orðið okkur

ógieymanleg, og það þótt okkur

hafi ekki tekist að smita svo frá

okkur af baráttu- og frásagnar-

gleði, að fjölmiðlar fáist til að

endurspegla lifandi og góða mynd

af starfi K.Í.". Ennfremur var

sagt frá Sumarorlofi Norræna

Húsmæðrasambandsins að

Hvanneyri sl. sumar, en þar sem

þvi hafa áður verið gerð skil i

Þjóðviljanum, verður ekki farið

nánar út i þá sálma hér.

Þórunn

Eiríksdóttir

á Kaðalstöðum

segir fr£

15. formannafundi

Kvenfélaga-

sambands

Islands

Frá v,: Arndis Þorbjarnardóttir, Sigrlður Thorlacius, Unnur Agústs-

dóttir Schram, Maria Pétursdóttir

Jafnréttismál

Formaður K.l. á sæti i nefnd,

sem félagsmálaráðherra skipaði

snemma á sl. ári til að gera m.a.

könnun á jafnréttismálum i fram-

kvæmd. Nefndin á að miða starfs-

svið sitt við hálfnaðan kvenna-

áratug, þ.e. 1975 - 1985, og kanna

hvort eitthvað, og þá hvað, hafi

breyst á þeim tima, hvað hafi

verið gert og hvað hamli jafn-

rétti. Nefndin hefur haldið 14

fundi og sent frá sér bréf með

ýmsum spurningum um jafnrétt-

ismái. s.s. hlutfall karla og

kvenna i stjórnunarstööum, áhrif

jafnréttislaganna, hlutverk jafn-

réttisráðs o.fl. Bréfin voru send 27

jafnréttisnefndum um land allt,

stéttarsamböndum, vinnuveit-

enda- og verkalýðssamböndum,

stjórnmálaflokkum og kvenna-

samtökum. Hafa allmörg svar-

bréf borist, en eftir er að vinna úr

upplýsingum, sem þau hafa að

geyma.

Norræna jafnréttisnefndin efnir

árlega til fundar meö fulltrúum

frá kvennasamtökum, aðilum

vinnumarkaðarins og þeim aðil-

um öðrum, er starfa aö jafnréttis-

málum. Var óskað eftir tillögum

og ábendingum frá K.í. um fund-

arefni 1982. Lagði K.I. til, að fjall-

að yrði um heimilisstörf og gerði

nánari grein fyrir þeirri tillögu.

Það varð þó úr, að fundurinn tók

til meðferðar efnin: Fjölmiðlar

og jafnrétti, og kynskipta vinnu-

markaðinn. K.l. tilnefnir fulltrúa

i ráðgjafanefnd Jafnréttisráðs.

Þar á sæti Margrét Einarsdóttir.

Hlutverk  nefndarinnar  er að

vinna að þeim málum sem Jafn-

réttisráð felur henni hverju sinni,

svo og að gera tillögur til ráðsins

að nýjum verkefnum og fram-

kvæmd þeirra.

Ár aldraðra —

Öldrunarráð

í okt. sl. barst K.t. bréf þar sem

tilkynnt var, aö heilbrigðisráð-

herra hefði skipað nefnd um mál-

efni aldraðra. Nefndin fékk tvi-

þætt hlutverk, annars vegar að

undirbúa löggjöf um málefni

aldraðra og hins vegar að annast

skipulag ,,Ars aldraðra". Var

K.l. boðið til samvinnu um þetta

málefni og var það auðsótt mál. I

svarbréfi til nefndarinnar var

vakin athygli á ályktun frá sið-

asta landsþingi K.I. þar sem bent

var á, að bygging þjónustuhúsa

fyrir aldraða, þar sem fólk getur

eignast eða leigt Ibúðir og notið

þjónustu eftir þörfum sinum, séu

mikilvægur þáttur i að búa Öldr-

uðum borgurum sem best skil-

yrði. Hvatti landsþingið bæjar- og

sveitarfélög til að koma sem fyrst

upp slikum húsakynnum og

hjúkrunar- og þjónustudeildum

fyrir aldraða. Ennfremur hvatti

landsþingið til að aukin yrði

heimahjúkrun og heimilishjálp,

svo aö fólki gefist kostur á að

dveljast i heimahúsum meðan

mögulegt er. K.t. gerðist aðili að

öldrunarráði tslands á stofnfundi

ráðsins 21. okt. sl. Markmið Oldr-

unarráðs er að bæta lifsaðstöðu

aldraðra.

íslenskir búningar

K.I. er aðili að Samstarfsnefnd

um islenska þjóðbúninga, sem

starfað hefur frá árinu 1970. Á

vegum nefndarinnar er tekin til

starfa Leiðbeiningastöð um gerð

islenskra þjóðbúninga. Er hún til

húsa á Laufásvegi 2, Reykjavik, i

húsakynnum Heimilisiðnaðar-

skólans á annarri hæð. Friður

Ölafsdóttir fatahönnuður er

starfsmaður leiðbeiningastöðvar-

innar. Hún veitir leiðsögn um

eldri og yngri gerðir þjóðbúninga,

æskilegt efnisval, snið og mynst-

ur og safnar og skrásetur heim-

ildir um islenska þjóðbúninga.

Þjóðhátiðarsjóður veitti styrk til

að hefja starfsemi leiðbeininga-

stöövarinnar, en þvi miður berst

þessi starfsemi I bökkum fjár-

hagslega. K.t. slyrkir hana á

þessu ári meö kr. 10.000.-.

'Utgáfustarfsemi

A sl. ári gaf K.t.út 50 ára afmæl-

isrit sitt, bókina „Margar hlýjar

hendur" eftir Sigriði Thorlacius.

Þetta er saga K.Í., aðildarfélag-

anna og héraðasambandanna,

bok sem geymir mikinn fróðleik

um hið liöna og samtið okkar.

Bókin er ómetanlegt uppsláttar-

rit, og hefur Sigriður Thorlacius

unnið mikið afrek með þvi að

safna saman öllum þessum heim-

ildum og vinna úr þeim. „Margar

hlýjar hendur" er eiguleg bók,

myndskreytt og vel úr garði gerð.

Hún fæst enn á skrifstofu K.I. og

viðar. Þá er að nefna bæklinginn

„Jólakveðjur", sem K.l. gaf út

fyrir siðustu jól. Forsaga þess

máls er sú, að félagsmálaráð-

herra fól formanni K.t. að hafa

forgöngu um að afla tekna i sjóð

til styrktar konum i þróunarlönd-

um, en þennan sjóð stofnaði Helvi

SipilSa frá Finnlandi, fyrrum að-

stoðarframkvæmdastjóri Sam-

einuðu þjóðanna. Kom hún hingað

til lands sl. sumar m.a. til þess að

leita eftir stuðningi við sjóðinn.

Allur ágóðinn af sölu „Jóla-

kveðja" rennur tíl þessa málefn-

is. Þar sem bæklingurinn varð

nokkuð siðbiiinn, tókst ekki að

selja hann allan , en áfram verður

haldið með söluna fyrir næstu jól.

Fleiri fjáröflunarleiöir fyrir

sjóðinn eru i athugun og allar

ábendingar þar að lútandi vel

þegnar. Endurprentaðir voru

fræðslubæklingar K.í. „Félags-

mál og fundarstjórn" og „Nútima

mataræði". Endurprentun á bæk-

lingnum „Glóðarsteiking" er

fyrirhuguð, með viðbót frá höf-

undi.

Sitt af hverju

A sl. ári gerðist K.l. aðili að

Landvernd, landgræðslu- og nátt-

úruverndarsamtökum tslands.

K.t. fékk ýtnis lagafrumvörp til

umsagnar, s.s. um reykingavarn-

ir, um fjármál hjóna, um breyt-

ingu á lögum um Framleiðsluráð

landbúnaðarins, verðskráningu,

verðmiðun og sölu á landbúnað-

arafurðum o.fl. Stjórn K.I. fjall-

aði um þessi frumvörp, gaf um-

sagnir um þau og gerði athuga-

semdir, þar sem talin var þörf á.

K.I. er aðili að Alþjóðasambandi

húsmæðra (ACWW) og Hús-

mæðrasambandi Norðurlanda

(NHF) og sendir fulltrOa á fundi

þessara samtaka eftir þvi sem

fjarlægðir og þröngur fjárhagur

leyfa. Sigurveig Sigurðardóttir er

fulltrúi K.l. I skólanefnd Skál-

holtsskóla. K.I. er aðili að Bréfa-

skólanum, og er Maria Péturs-

dóttir fulltrúi sambandsins i

skólastjórn þess skóla. Hefur þess

veriðfarið á leit við menntamála-

ráðherra, að hann hlutist til um

að sett verði löggjöf um Bréfa-

skólann, þannig að tryggja megi

tilveru hans og stöðu.

A sl. ári kom út nýtt kynningar-

rit um námsefni Bréfaskólans,

námsfyrirkomulag, námsmat

o.fl. Fyrir tilstilli K.t. voru gefin

út ný verkefni, annars vegar um

bdkmenntir og listir, og hins veg-

ar um manneldismál. Sigriöur

Thorlacius leiðbeindi á félags-

málanámskeiðum hjá allmörgum

kvenfélögum sl. vetur og flutti er-

indi á vegum K.I. hjá nokkrum

kvennasamtökum. Formaður

K.I. og aðrar stjórnarkonur sækja

aðalfundi héraðasambandanna

eftir þvi sem tök eru á.

Ursagnir úr KI

Þau tiðindi geröust á sl. ári að

tvö af aðildarfélögum K.Í.,

Hjúkrunarfélag fslands og

Styrktarfélag lamaðra og fatl-

aðra, sögðu sig úr Bandalagi

kvenna i Reykjavik og þar með úr

K.t. Þykja þeim, sem eftir sitja,

þessar úrsagnir koma úr óvænt-

ustu og ómaklegustu átt, þar sem

kvenfélögin I landinu hafa frá

upphafi beint kröftum sinum og

fjármunum að þvi að styrkja heil-

brigðisþjónustuna og bæta starfs-

aðstöðu heilbrigðisstéttanna á

margvislegan hátt. Kvenfélögin

hafa lagt stærri skerf af mörkum

til þessara mála en svo, að það

verði nokkurn tima i tölum talið.

„Það er áreiöanlegt, að við eig-

um margt ólært um fréttamiðlun,

þvi það er næsta ótrúlegt, hvað

mætir manni iðulega mikil fá-

fræði um störf kvennasamtaka,

og veldur það oft sinnuleysi um

stuðning við góðan málstað, eins

og glöggt sést á afstöðu þeirra

tveggja félaga, er á sl. ári sögðu

sig úr Bandalagi kvenna i

Reykjavik.En það er enginn leikur

að ná eyrum þeirra heldur. — Nú

hafa borist á skrifstofu K.í. 105

svarbréf við bréfi okkar frá april

1981, þar sem óskað var eftir upp-

lýsingum um, hvað félögin hafi

lagt af mörkum til heilbrigðis-

þjónustunnar, s.s. meö tækja-

kaupum, fjárstuðningi til bygg-

ingaframkvæmda o.fl. o.fl. Þessi

tvö fyrrnefndu félög hefðu mátt

minnast þessa og átt að vera

áfram styrkir liðsmenn".

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16