10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. júnl 1982 Fyrri hluti 15. formannafundur K.í. var haldinn í Nýja Hjúkr- unarskólanum og að Hall- veigarstöðum dagana 16. 18. apríl sl. K.l. hefur þann hátt á# að halda Landsþing annað hvert ár, skipað fulltrúum hinna ýmsu héraðasambanda, mismörgum eftir félaga- tölu hvers sambands. Hitt árið er haldinn fundur með formönnum héraðasam- bandanna. Að þessu sinni sóttu fundinn formenn eða varaformenn allra sam- bandanna nema tveggja. Formaður K.l. Maria Péturs- dóttir setti fundinn, bauð fulltrúa og gesti velkomna og minntist góðra samverustunda á siðasta ári á Laugarvatni, en þar var sið- asta landsþing haldið, og á Hvanneyri i Norræna húsmæðra- orlofinu. Frá v.: María Pétursdóttir, form. K.I., Guðrún Lára Agústsdóttir, Mælifeili, Sigurhanna Gunnarsdóttir, Laek, Sigriður Hafstað, Tjörn, Sdlveig Alda Pétursdóttir. Reykjavfk, Sigrtin Sturludóttir, Reykjavfk, Unnur Schram, Reykjavík, (standandi) Sigurveig Sigurðardóttir, Selfossi, Magðalena Ingimundar- dóttir, Akranesi, Halla Aðalsteinsdóttir, Kolsholti, Ingibjörg Bergsveinsdóttir og Sigriður Kristjáns- dóttir. Og enn þinga þær Formaður minntist merkiskon- unnar Halldóru Bjarnadóttur, sem landskunn er fyrir forystu- störf og umsvif i kvenfélagsmál- um. Halldóra lést á sl. ári. Lauk hún máli sinu með þvi að vitna til orða, sem áður hafa verið viðhöfð um Halldóru: ,,Lif hennar og starf sanna, hversu miklu ein- stakir hæfileikar og vilji til góðra verka fá áorkað, bæði fyrir sam- tið og framtið". Þá óskaði hún for mannafundinum vits, starfs- gleði og hófsemi i athöfnum". Skýrsla stjórnar, starfslið o.fl. 1 skyrslu stjórnarinnar kom fram, að 11 stjórnarfundir hafa verið haldnir slðan Landsþing kom saman. Núverandi stjórn K.l. skipa Maria Pétursdóttir for- maður, Sigurveig Sigurðardóttir varaformaður og Sólveig Alda Pétursdóttir ritari. 1 varastjórn eru Helga Guðmundsdóttir, Sig- urhanna Gunnarsdóttir og Þór- unn Eiriksdóttir. Sigriður Kristj- ánsdóttir húsmæðrakennari er i hálfu starfi hjá K.I. fyrst og fremst við Leiðbeiningastöð hús- mæðra, og hefur ærið nóg að starfa þar. Soffia Káradóttir vinnur á skrifstofu K.í. tvo hálfa daga vikulega við bókhald og önnur skrifstofustörf. Ritstjórar Husfreyjunnar eru Sigriður Thorlacius og Ingibjörg Bergsveinsdóttir. Gjaldkeri er Guðbjörg Petersen, og þær Ingi- björg og Guðbjörg annast af- greiðslu og innheimtu. Timaritið Húsfreyjan hefur nú flutt I ný húsakynni i kjallara Hallveigar- staða. Endurbætur hafa verið gerðar á skrifstofu K.I., en þar hafði Húsfreyjan áður bækistöðv- ar. Sagt var frá afgreiðslu tillagna, sem samþykktar voru á siðasta landsþingi, en allar munum við vera sammála um, að landsþing- ið á Laugarvatni hafi tekist með ágætum og gestrisni Sambands sunnlesnrka kvenna og samherja sambandsins orðið okkur ógieymanleg, og það þótt okkur hafi ekki tekist að smita svo frá okkur af baráttu- og frásagnar- gleði, að fjölmiðlar fáist til að endurspegla lifandi og góða mynd af starfi K.Í.". Ennfremur var sagt frá Sumarorlofi Norræna Húsmæðrasambandsins að Hvanneyri sl. sumar, en þar sem þvi hafa áður verið gerð skil i Þjóðviljanum, verður ekki farið nánar út i þá sálma hér. Þórunn Eiríksdóttir á Kaðalstöðum segir fr£ 15. formannafundi Kvenfélaga- sambands Islands Frá v,: Arndis Þorbjarnardóttir, Sigrlður Thorlacius, Unnur Agústs- dóttir Schram, Maria Pétursdóttir Jafnréttismál Formaður K.l. á sæti i nefnd, sem félagsmálaráðherra skipaði snemma á sl. ári til að gera m.a. könnun á jafnréttismálum i fram- kvæmd. Nefndin á að miða starfs- svið sitt við hálfnaðan kvenna- áratug, þ.e. 1975 - 1985, og kanna hvort eitthvað, og þá hvað, hafi breyst á þeim tima, hvað hafi verið gert og hvað hamli jafn- rétti. Nefndin hefur haldið 14 fundi og sent frá sér bréf með ýmsum spurningum um jafnrétt- ismái. s.s. hlutfall karla og kvenna i stjórnunarstööum, áhrif jafnréttislaganna, hlutverk jafn- réttisráðs o.fl. Bréfin voru send 27 jafnréttisnefndum um land allt, stéttarsamböndum, vinnuveit- enda- og verkalýðssamböndum, stjórnmálaflokkum og kvenna- samtökum. Hafa allmörg svar- bréf borist, en eftir er að vinna úr upplýsingum, sem þau hafa að geyma. Norræna jafnréttisnefndin efnir árlega til fundar meö fulltrúum frá kvennasamtökum, aðilum vinnumarkaðarins og þeim aðil- um öðrum, er starfa aö jafnréttis- málum. Var óskað eftir tillögum og ábendingum frá K.í. um fund- arefni 1982. Lagði K.I. til, að fjall- að yrði um heimilisstörf og gerði nánari grein fyrir þeirri tillögu. Það varð þó úr, að fundurinn tók til meðferðar efnin: Fjölmiðlar og jafnrétti, og kynskipta vinnu- markaðinn. K.l. tilnefnir fulltrúa i ráðgjafanefnd Jafnréttisráðs. Þar á sæti Margrét Einarsdóttir. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að þeim málum sem Jafn- réttisráð felur henni hverju sinni, svo og að gera tillögur til ráðsins að nýjum verkefnum og fram- kvæmd þeirra. Ár aldraðra Öldrunarráð í okt. sl. barst K.t. bréf þar sem tilkynnt var, aö heilbrigðisráð- herra hefði skipað nefnd um mál- efni aldraðra. Nefndin fékk tvi- þætt hlutverk, annars vegar að undirbúa löggjöf um málefni aldraðra og hins vegar að annast skipulag ,,Ars aldraðra". Var K.l. boðið til samvinnu um þetta málefni og var það auðsótt mál. I svarbréfi til nefndarinnar var vakin athygli á ályktun frá sið- asta landsþingi K.I. þar sem bent var á, að bygging þjónustuhúsa fyrir aldraða, þar sem fólk getur eignast eða leigt Ibúðir og notið þjónustu eftir þörfum sinum, séu mikilvægur þáttur i að búa Öldr- uðum borgurum sem best skil- yrði. Hvatti landsþingið bæjar- og sveitarfélög til að koma sem fyrst upp slikum húsakynnum og hjúkrunar- og þjónustudeildum fyrir aldraða. Ennfremur hvatti landsþingið til að aukin yrði heimahjúkrun og heimilishjálp, svo aö fólki gefist kostur á að dveljast i heimahúsum meðan mögulegt er. K.t. gerðist aðili að öldrunarráði tslands á stofnfundi ráðsins 21. okt. sl. Markmið Oldr- unarráðs er að bæta lifsaðstöðu aldraðra. íslenskir búningar K.I. er aðili að Samstarfsnefnd um islenska þjóðbúninga, sem starfað hefur frá árinu 1970. Á vegum nefndarinnar er tekin til starfa Leiðbeiningastöð um gerð islenskra þjóðbúninga. Er hún til húsa á Laufásvegi 2, Reykjavik, i húsakynnum Heimilisiðnaðar- skólans á annarri hæð. Friður Ölafsdóttir fatahönnuður er starfsmaður leiðbeiningastöðvar- innar. Hún veitir leiðsögn um eldri og yngri gerðir þjóðbúninga, æskilegt efnisval, snið og mynst- ur og safnar og skrásetur heim- ildir um islenska þjóðbúninga. Þjóðhátiðarsjóður veitti styrk til að hefja starfsemi leiðbeininga- stöövarinnar, en þvi miður berst þessi starfsemi I bökkum fjár- hagslega. K.t. slyrkir hana á þessu ári meö kr. 10.000.-. 'Utgáfustarfsemi A sl. ári gaf K.t.út 50 ára afmæl- isrit sitt, bókina Margar hlýjar hendur" eftir Sigriði Thorlacius. Þetta er saga K.Í., aðildarfélag- anna og héraðasambandanna, bok sem geymir mikinn fróðleik um hið liöna og samtið okkar. Bókin er ómetanlegt uppsláttar- rit, og hefur Sigriður Thorlacius unnið mikið afrek með þvi að safna saman öllum þessum heim- ildum og vinna úr þeim. Margar hlýjar hendur" er eiguleg bók, myndskreytt og vel úr garði gerð. Hún fæst enn á skrifstofu K.I. og viðar. Þá er að nefna bæklinginn Jólakveðjur", sem K.l. gaf út fyrir siðustu jól. Forsaga þess máls er sú, að félagsmálaráð- herra fól formanni K.t. að hafa forgöngu um að afla tekna i sjóð til styrktar konum i þróunarlönd- um, en þennan sjóð stofnaði Helvi SipilSa frá Finnlandi, fyrrum að- stoðarframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. Kom hún hingað til lands sl. sumar m.a. til þess að leita eftir stuðningi við sjóðinn. Allur ágóðinn af sölu Jóla- kveðja" rennur tíl þessa málefn- is. Þar sem bæklingurinn varð nokkuð siðbiiinn, tókst ekki að selja hann allan , en áfram verður haldið með söluna fyrir næstu jól. Fleiri fjáröflunarleiöir fyrir sjóðinn eru i athugun og allar ábendingar þar að lútandi vel þegnar. Endurprentaðir voru fræðslubæklingar K.í. Félags- mál og fundarstjórn" og Nútima mataræði". Endurprentun á bæk- lingnum Glóðarsteiking" er fyrirhuguð, með viðbót frá höf- undi. Sitt af hverju A sl. ári gerðist K.l. aðili að Landvernd, landgræðslu- og nátt- úruverndarsamtökum tslands. K.t. fékk ýtnis lagafrumvörp til umsagnar, s.s. um reykingavarn- ir, um fjármál hjóna, um breyt- ingu á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðun og sölu á landbúnað- arafurðum o.fl. Stjórn K.I. fjall- aði um þessi frumvörp, gaf um- sagnir um þau og gerði athuga- semdir, þar sem talin var þörf á. K.I. er aðili að Alþjóðasambandi húsmæðra (ACWW) og Hús- mæðrasambandi Norðurlanda (NHF) og sendir fulltrOa á fundi þessara samtaka eftir þvi sem fjarlægðir og þröngur fjárhagur leyfa. Sigurveig Sigurðardóttir er fulltrúi K.l. I skólanefnd Skál- holtsskóla. K.I. er aðili að Bréfa- skólanum, og er Maria Péturs- dóttir fulltrúi sambandsins i skólastjórn þess skóla. Hefur þess veriðfarið á leit við menntamála- ráðherra, að hann hlutist til um að sett verði löggjöf um Bréfa- skólann, þannig að tryggja megi tilveru hans og stöðu. A sl. ári kom út nýtt kynningar- rit um námsefni Bréfaskólans, námsfyrirkomulag, námsmat o.fl. Fyrir tilstilli K.t. voru gefin út ný verkefni, annars vegar um bdkmenntir og listir, og hins veg- ar um manneldismál. Sigriöur Thorlacius leiðbeindi á félags- málanámskeiðum hjá allmörgum kvenfélögum sl. vetur og flutti er- indi á vegum K.I. hjá nokkrum kvennasamtökum. Formaður K.I. og aðrar stjórnarkonur sækja aðalfundi héraðasambandanna eftir þvi sem tök eru á. Ursagnir úr KI Þau tiðindi geröust á sl. ári að tvö af aðildarfélögum K.Í., Hjúkrunarfélag fslands og Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra, sögðu sig úr Bandalagi kvenna i Reykjavik og þar með úr K.t. Þykja þeim, sem eftir sitja, þessar úrsagnir koma úr óvænt- ustu og ómaklegustu átt, þar sem kvenfélögin I landinu hafa frá upphafi beint kröftum sinum og fjármunum að þvi að styrkja heil- brigðisþjónustuna og bæta starfs- aðstöðu heilbrigðisstéttanna á margvislegan hátt. Kvenfélögin hafa lagt stærri skerf af mörkum til þessara mála en svo, að það verði nokkurn tima i tölum talið. Það er áreiöanlegt, að við eig- um margt ólært um fréttamiðlun, þvi það er næsta ótrúlegt, hvað mætir manni iðulega mikil fá- fræði um störf kvennasamtaka, og veldur það oft sinnuleysi um stuðning við góðan málstað, eins og glöggt sést á afstöðu þeirra tveggja félaga, er á sl. ári sögðu sig úr Bandalagi kvenna i Reykjavik.En það er enginn leikur að ná eyrum þeirra heldur. Nú hafa borist á skrifstofu K.í. 105 svarbréf við bréfi okkar frá april 1981, þar sem óskað var eftir upp- lýsingum um, hvað félögin hafi lagt af mörkum til heilbrigðis- þjónustunnar, s.s. meö tækja- kaupum, fjárstuðningi til bygg- ingaframkvæmda o.fl. o.fl. Þessi tvö fyrrnefndu félög hefðu mátt minnast þessa og átt að vera áfram styrkir liðsmenn".