M Fimmtudagur 10. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 15 frá Hringið ísíma 81333 kl 9-5 qlla virka daga, eða skrifiö Þjóðviljanum lesendum Sýndarmennska íhaldsins Lóðarumsækjandi hringdi Þeir voru ótrúlega margir sem kusu ihaldiö vegna alls rembingsins hjá þvi um að fjölga lóðum til úthlutunar. En hvað er svo fyrsta verk þessa lika þokka meirihluta? Akveöa að fækka lóðum, 120 lóðum i Sogamýrinni, til að þóknast fá- mennum hópi andlóðamanna. Engin lóð er boðin i staðinn. Það var lika eftir þessum amlóðum að falla frá hugmyndum um ibúðabyggð i Laugardal". Þetta voru nefnilega hugmyndir, sem aldrei hafa verið samþykktar af einum eða neinum. Með öðrum orðum, það er verið að falla formlega frá hugmyndum sem aldrei hafa fengið formlega meðferð hvað þá heldur sam- þykkt af borgarstjórn. Hvað á þessi sýndarmennska hjá ihald- inu að þýða? Máske eigum við von á þvi að ihaldið i borgar- stjórn samþykki að falla frá hugmyndum um valddreifingu og atvinnulýðræði i borginni? Sammála um skærulokanir Bindindismaður hringdi Það var aldeilis ágæt hug- mynd sem fram kom frá Har- aldi Birni á lesendasiðunni á þriðjudaginn um skærulokanir hjá rikinu. Þetta gæti vel orðiö liður i baráttunni gegn áfengis- bölinu. En vel þyrfti að gæta þess að enginn hefði spurnir af lokunum rikisins fyrirfram. Ég hvet alla til að íhuga þetta úr- ræði vel. En það þarf auðvitað fleira að koma til hjálpar. >»«<¦ ati os9" &*?>* mmn wESRí. j / \'"- z_X vv*»h |^^~v^\^ | 11 v _jl_\_ [ n [ Þessi ágæta myndasaga er eftir Bjarka K. Pétursson níu ára gamlan Seltirning sem á heima á Skerjabraut 9. Vilja ekki f leiri rreyna fyrir sér? Kattahorn Kettir þurfa mjólk, segja sumir. Þetta er rangt. Þótt mörgum kött- um þyki mjólkin góð þarf nast þeir hennar ekki i fæðunni. Margir full- orðnir kettir verða veikir af mjólk. Mjólk kemur ekki í stað vatns. Barnahornið Lausn á eldspýtnaþraut sem birtist í blaðinu í fyrradag Guðrún Þ. Stephensen er leik- stjóri i kvöld Þórhallur Sigurðsson er einn aðalleikenda i Þurrkasumri. Anna Kristin Arngrimsdóttir leikur i einnig i Þurrkasumri sem er fyrsta tyrkneska leik- ritið sem útvarpið flytur. Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, sér um hljóðfæra- leikinn i kvöld. Tyrkneskt leikrit Þurrkasumar fc Utvarp ,\W kl. 20.30 t kvöld kl. 20.30 verður flutt leikritið Þurrkasumar" eftir Necati Cumali i þýðingu Jó- hönnu Jóhannsdóttur. Arnljót Eggen bjó til flutnings i út- varp. Leikstjóri er Guðrún Þ. Stephensen, og með stærstu hiutverkin fara Sigurður Karlsson, Þórhallur Sigurðs- son og Anna Kristin Arn- grímsdóttir. Sigurður Rúnar Jónsson annast hljóðfæraleik. Leikritið er 90 minútur i flutn- ingi. Tæknimenn: Georg Magnússon og Þórir Stein- grimsson. Leikurinn gerist i tyrknesku sveitaþorpi á hásléttu Ana- toliu, en þar er oft vatnsskort- ur. Þeir sem hafa nóg vatn ráða öllu, velmegun þeirra er meiri en annarra. Vatnsupp- spretta finnst á landi tveggja bræðra, og eftir venju eiga aíl- ir þorpsbúar rétt á að nota hana. Eldri bróðirinn er nisk- ur og harðlyndur og neitar öörum um vatnið. Það veldur miklum deilum. Og ekki bætir úr skák að hann kemur nið- ingslega fram viö bróður sinn. Þetta er fyrsta tyrkneska leikritið sem flutt er i útvarp- inu. Æ% Útvarp W0 kl. 14.00 Hljóð úr horni Hljóð úr horni heitir þáttur- inn sem nú er i umsjá Hjalta Jóns Sveinssonar. Hjalti vcrður með þáttinn annan hvern fimmtudag á móti Stef- áni Jökulssyni. Við ætlum að hafa eitthvert samstarf sagði Hjalti Jón þegar við slóum á þráðinn til hans til að forvitnast um þennan þátt. Þátturinn er á vegum dagskrárdeildar og verður aðallega tileinkaður sumrinu, og tómstundum fólks að sumarlagi. Ég mun ræða um ferðamennsku almennt og veita ýmsar gagnlegar upp- lýsingar þar að liitandi". í þættinum i dag verður Hjalti Hjalti .I(in Sveinsson sér um vikulegan sumarþátt á móti Stefáni Jökulssyni. með kynningu á náttúruvernd og mun tala við fulltrtia náttúruverndarsamtaka. Þá verður leikin tónlist i þætt- inum að eigin geðþótta, sagöi Hjalti Jón Sveinsson Nýtt fólk með morgunorð Útvarp kl. 8.10 i dag flytur Guðrún Brodda- dóttir morgunoröin i útvarp- inu. t þessum mánuði hefur nýtt fólk tekið við þessum þætti og verður Guðrún með morgunorðin á fimmtudögum i sumar. Annars er skiptingin þannig: Mánudagar: Erlendur Jó- hannsson bóndi að Hamars- heiði i Gnúpverjahreppi, þriðjudagar: Sólveig Anna Bóasdóttir, guðfræðinemi i Reykjavik, miðvikudagar: Guðmundur Ingi Leifsson skólastjóri á Hofsósi, fimmtu- dagar: Guðrún Broddadóttir, hjúkrunarfræðingur, Borgar- nesi, föstudagar: Gunnar As- geirsson, stórkaupmaður, Reykjavik, laugardagar: sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Þykkvabæ.