Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 24.07.1982, Blaðsíða 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 24.-25. júll 1982 dægurtónlist lloseoe Mitchell saxófónleikari Art Knseinhle ol' Chicago Roscoe Mitchell í Félags- stofnun Jassvakning lætur ekki deig- an siga þessa dagana, fyrst voru þaft tónleikar með Art Blakey á Listahátið. þvinæst tónleikar með Lco Smith og nú á fimmtu- daginn tónleikar með hinum kunna saxófónsnillingi Roscoe Mitchell. Mitchell þessi er þekktastur hér sem saxófónleikari Art En- semble of Chicago en þeir komu hingað einmitt ekki alls fyrir löngu og léku i Breiðvangi við mikla hrifningu. Roscoe Mitchell er af mörgum talinn einn besti saxófónleikiri jassins i dag. I júli hefti Down Beat, sem er eins konar biblia jassgeggjaranna, er farið mjög lofsamlegum orðum um hann. Teknar eru fyrir fjórar sólóplöt- ur hans og er einkunnagjöfin öll á einn veg. Ein plata fær þrjár og hálfa stjörnu, tvær fá fjórar og hálfa og ein fær fimm stjörn- ur. En það að fá fimm stjörnur i Down Beat er að mér skilst ein- hver mesta viðurkenning sem jassleikari getur fengið. Roscoe Mitchell hefur verið i fararbroddi i hinum svonefnda spuna og er gjarnan talinn einn af frumkvöðlum þessa afbrigðis jassins. Hann gat sér fyrst orð i hljómsveitinni Richard Ab- rams’ Experimental Band en hún er talin ein sú allra fyrsta til að feta stigu spunans. Einleikshljómleikarnir með Roscoe verða i Félagsstofnun stúdenta á fimmtudaginn kem- ur eins og fyrr segir og hefjast klukkan 21. Eins og fyrri daginn eru allir jassunnendur hvattir til að láta sjá sig og kynna sér hluti sem ekki er oft boðið uppá og til að rétta halla Jassvakn- ingar eftir seinustu tónleika. Jón Viðar Sigurðsson skrifar a : / Tappi Tíkarrass tekinn tali Einhver efnilegasta hljómsveit landsins þessa dagana og sú sem margir binda hvað mestar vonir við er Tappi tíkarrass. Þrátt fyrir ungan aldur hef ur hljómsveitin gengið í gegnum eitt og annað. Kokk i Reykjavik hefur ef- laust gert meira fyrir Tappann en nokkra aðra hljómsveit sem fram kom i myndinni. Og þvi hægt að segja að Tappinn hafi þá stigið fram f sviðsljósið. Að- allega beindist tal manna að söngkonu hljómsveitarinnar og voru allir á einu máli um ágæti hennar. Átti pabbi Kobba hugmyndina? Blm.: Hvenær varð Tappi tikarrass til? — Hljómsveitin var stofnuð i mai á siðasta ári og voru það Jakob bassaleikari og Eyjólfur gitarleikari sem stofnuðu hana ásamt tveim öðrum drengjum, sem hurfu á braut fljótlega. Annar fór að læra á celló? hinn bara hvarf. — Björk kom til sögunnar i september, hún var þá nýkomin frá Frakklandi, brún og sælleg, með mikið af nýjum góðum hljómplötum. Hún var þá drifin i hljómsveitina. — Hljómsveitin starfaði fram að jólum en þá var ákveðið á sameiginlegum fundi að leggja upp laupana. Það var sem betur fer ekki lengi og skömmu eftir áramót voru þeir Jakob og Eyj- ólfur farnir að reisa hljómsveit- ina úr rústum. Þeir fengu Björk og Eyþór til að sjá um sönginn en leitun var á trommuleikara þvi sá gamli vildi ekki vera með. — Það var ekki fyrr en Guð- mundur Limbó fannst á tromm- urnarsem hljómsveitin var full- mönnuð en Eyþór hætti skömmu eftir að við vorum far- in að æfa aftur og þannig hljóðar þessi margslungna saga um fæðingu, andlát og endurholdg- un Tappa tikarrass. Blm.: Hvers vegna þetta nafn, Tappi tikarrass? — Þetta er nú margþvæld spurning, en hugmyndina að nafninu átti pabbi hans Jakobs og þótti okkur það ekki verra en hvað annað. Engin ímynd Blm.: Hafa þessar manna- breytingar ekki sett nein spor á tónlist ykkar? — Vissulega hafa þær gert það i bland við eðlilega þróun á tón- list okkar. Þetta hefur haldið hvort i annað. Blm.: Það sagði mér einhver að miklar tónlistarandstæður væru i hljómsveitinni, er það satt? — Já, það er satt, við höfum gallharðan Deep Purple-aðdá- anda og einn sem fylgist vel með nýbylgju. Við hin erum einhvers staðar þar á milli. Sameiginlegur grunnur er Talk- ing Heads, en um þá hljómsveit er enginn ágreiningur. Blm.: Er þá ekkert erfitt að semja tónlist þegar andstæður eru svona miklar? — Nei. Það hefur gengið furð- anlega og veldur engum átökum þegar við erum að semja og ,ef til vill gera þessar andstæður i hópnum það að verkum að blandan verður eins og hún er. — Tónlist okkar verður þann- ig til að einhver kemur með grunn og siðan bæta hinir ofaná, þangað til kaflinn er búinn, sið- an bætist við annar kafli og svo koll af kolli þangað til okkur finnst nóg komið. — Um leið og við byrjum að fikra okkur áfram fer Björk að raula texta, þannig að oft verð- ur þetta til jöfnum höndum, texti og lag. Blm.: Er það satt að söng- konan sé i annarri hljómsveit? Björk: Já, ég er i annarri hljómsveit þó það fari nú ekki hátt. Astæðan fyrir þvi' er sú að þetta gefur sæmilega i' aðra hönd og ekki verri leið en önnur til að selja sál sina. Það er allt annað og skemmti- legra að vera i Tappanum, miklu frjórra, og einhvern veg- inn finnst mér ég vera að syngja tónlist þar. Blm.: Spillir þetta ástand ekkert fyrir imynd hljómsveit- arinnar? — Tappinn hefur enga ákveðna imynd og þvi spillir þetta ekki. Ef menn langar til að starfa með öðrum hljómsveit- um þá er það þeirra svo framar- lega sem það rekst ekki á við stefnu hljómsveitarinnar. Egóistar út á við Blm.: Hver semur textana? — Björk á heiðurinn af þeim flestum, við hinir eigum svo einn og einn i sameiningu með Björk. Sérkennilegasti textinn sem saminn hefur verið i hljóm- sveitinni er texti sem Jakob og Björk bjuggu til. Þau fundu þá enska bók og tóku fimmtu hverja linu og útkoman var bara góð. — Textar okkar túlka fyrst og fremst okkar sjónarmið eins og gefur að skilja. Þeir fjalla um ýmislegt, allt frá danssporum yfir til stórglæpamanna. Blm.: Hvað gerið þið þess ut- an að vera starfandi i hljóm- sveit? — Einn er i atvinnuleit, og er ágætt að koma þvi hér á fram- færi; annar er i sumarfrli sem stendur og söngkonan er i sveit fyrir austan fjall. — Trommuleikarinn er sá eini af karlpeningnum sem er starf- andi. — Þvi má svo bæta við að við erum mjög upptekin af sjálfum okkurogerum egóistar út á við! Blm.: Er nokkur leið að æfa þegar söngkonan er i kaupa- vinnu? — Við höfum æft litið að und- anförnu, en þessar æfingar sem verið hafa, hafa verið góðar, og það er fyrir mestu. Plata á leiðinni Blm.: Er hljómplata nokkuð á leiðinni? — Já, ætli við verðum ekki að segja það, þó ekki sé búið að ganga frá öllum hnútum ennþá. Við eigum laus-bókaða tima i stúdiói i byrjun ágúst og hefur Tony Cook gefið okkur vilyrði um að vera upptökustjóri ef allt fer að óskum. Blm.: Hafið þið hugleitt hvaða lög verða á plötunni? — Þetta verður 4-6 laga plata. en ekki höfum við komið okkur endanlega saman um hvaða lög það verða. — Ætli það verði ekki lög eins og „London”, „Sperglar”, „Ott- ar”, „Fa-Fa”, „Lok-lað” og „Ilty ebni”. Blm.: Er eitthvað fleira merkilegt á döfinni? — Það eru hér Frakkar að gera kvikmynd um land og þjóð og teljumst við enn til þjóðar- innar og eigum viö þvi að vera landkynning. — Við verðum svo með Þrumuvagninum á hljómleik- um næstu vikurnar en sam- starfið við þá drengi hefur verið gott. — Annars liða dagarnir áfram og óvist er hvað dagarnir bera i skauti sér. Suma dreymir um að komastá forsiðu Rolling Stone:, ætli við látum okkur ekki nægja mynd iÞjöðviljanum i bili. Enn af Comsat Angels Þá er það komið á hreint að Coinsat Angels koina liingað til lands og lialda tvenna tónleika eins og uni var talað. Þeir koma hingað beint úr hljómleikaferð um Bandarikin sem stendur nú yfir. Tónleik- arnir verða 12. og 13. ágúst i Tjarnarbiói og búið að ganga þannig frá hnútum að ómögu- legt er að hindra tónleika þeirra hér nema eitthvert stórslys verði. Ekki er mér ljóst hvaða hljómsveitir verða þeim til trausts og halds en ekki þykir mér óliklegt að Vonbrigði verði með þeim annað kvöldið en um hina þori ég ekkert að segja. Eins og skýrt var frá hér um siðustu helgi koma Eyeless in Gaza hingað til lands i næsta mánuði og er búið að ganga end- anlega frá dagsetningum. Fyrri tónleikar þeirra verða á Isafirði 19. ágúst en siðari hér i Reykja- vik þann 22. ágúst. Comsat Angels koma þrátt fyrir allt!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.