Þjóðviljinn - 28.07.1982, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 28. júlí 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
elsta muninn á sýningunni er
Amundi Jónsson, smiður. Hann
var fæddur 1738, en altaristafla
hans er frá árinu 1792. Unglingur-
inn i hópnum er hinsvegar Sæm-
undur Valdimarsson, fæddur
1918, og sýnir tvö verk, sem unnin
eru i tré og ýsuroð.
Alls sýna 32 menn ýmiss konar
málarakdnst og handmenntir, og
óhætt er að segja að sýningin sé
afar fjölbreytt — og ekki má
gleyma videósýningunni i fundar-
sal Kjarvalsstaða, en þar eru
sýnd vinnubrögð og starfshættir
margs fólks viös vegar að af land-
inu, en upptökurnar áttu sér allar
stað heima hjá þvi fólki, sem
tekið er til sýningar og viðtals, en
það fólk á jafnframt muni á sýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum.
Samfelldur sýningartimi videó-
upptökunnar er þrjár klukku-
stundir, en sá timi skiptist niður i
20 sjálfstæðar upptökur, þar sem
sýndir eru og spjallað er við m .a.
prjónakonur, tré- og málmsmiði,
bátasmiði, útskurðarmenn,
rennismiði, jurtalitunarkonu og
marga, marga fleiri.
En það gerist fleira innan
veggja Kjarvalsstaða i tengslum
við sýningu i tilefni árs aldraðra,
en hér hefur þegar verið rakið.
Auk hefðbundinnar myndlista-
sýningar og videósýningar á
handmenntun hefur þar einnig
verið haldin siödegisvaka, sem
landsamtökin Lif og Land stóðu
fyrir, og er hér i opnunni greint
frá henni. Og þá eru ótalin Mál-
þingin, sem Samband lifeyris-
þega rikis og bæja (SLRB) stend-
ur að.
Og siðast en ekki sist hanga
uppi teikningar barna úr teikni-
myndasamkeppni, sem Rauði
kross Islands efndi til fyrr á þessu
ári, og er verðlaunamyndin, eftir
Svein Kristin Ogmundsson, 6 ára,
prentuð á veggspjald, sem gefið
er út i tilefni sýningarinnar og á
forsiðu sýningarskrár.
Það er þvi ljóst, að margt er um
að vera á Kjarvalsstöðum þessa
dagana, og vist er margt vitlaus-
ara en að eyða þar stund — á tim-
um hraða og tækni.
— jsj.
Þetta reiðhjól Siguröar Filipusssonar frá Hólabrekku i Austur-Skafta
fellssýslu er orðiö vel þekkt eftir sjónvarpskvikmynd Friöriks Friö-
rikssonar um Eldsmiöinn.
Ingibjörg Tryggvadóttir frá Húsavik sýnir, hvaö hægt er aö gera meö
jurtalitum, en á Kjarvalsstööum má sjá bönd i fegurstu litabrigöum
Ef innfellda myndin prentast vel, má sjá mismunandi sterka liti i sama
boganum.
PHift
■
: ■ '
... :
Sigurður Magnússon flutti erindi um æsku og elli i breyttum þjóöfélagsháttum. (Ljósmynd. ast)
Jóhanna Jóhannesdóttir sýnir listavel prjónuö iangsjöi og hyrnur úr
handunnu þelbandi.