Þjóðviljinn - 27.08.1982, Blaðsíða 16
mmu/m
Föstudagur. 27. ágúst. 1982.
Aöa' fai Þjóöviljans er 81333 kl. 8-20 mánudag til föstudags.
Utfc.i þess tima er hsgt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
blaösins f þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af
greiöslu blaösins i slma 81663. BlaÖaþrent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöid.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Stórhættulegur efnaiðnaöur inni i miðju ibúðahverfi, segir Guðrún Jónsdóttir. Umhverfið er einkar ógeðfellt fyrir bragðið á horni Selja-
vegs og Vesturgötu,
„Fylgjum málinu fast eftir”
segir Guðrún Jónsdóttir, borgarráðsmaður Kvennaframboðs,
um efnaverksmiðjumálið
„Borgarstjóri hefur eflaust talið sig vera i laga-
legum rétti til að undirrita framlengingu Ióðasamn-
ings við Kolsýruhleðsluna en siðferðilegan rétt
hafði hann engan þvi það var greinilegur vilji
borgarráðs að ræða málið betur áður en frekar væri
aðhafst í þvi”, sagði borgarráðsmaður Kvenna-
framboðs, Guðrún Jónsdóttir, i samtali við Þjóðvilj-
ann i gær.
„Við kynntumst þessu máli
fyrst i kosningabaráttunni og þá
kom i ljós að fyrri meirihluti hafði
samþykkt að eðlilegt væri að
framlengja lóðasamningi við Kol-
sýruhleðsluna sf. til 10 næstu ára.
Það var gert á fundi ráðsins i
nóvember 1981. Eftir að ég kom
inn i borgarráð var umræðum um
málið haldið áfram á þeim vett-
vangi og það fékkst svo ákveðið á
fundi 17. ágúst að fresta undir-
ritun samnings þar til við hefðum
rættþetta ofan i kjölinn. Við feng-
um send öll gögn varðandi málið
fyrir fund nú 24. ágúst en þegar
átti að taka málefni Kolsýru-
hleðslunnar á dagskrá upplýsti
borgarstjóri okkur um að hann
hefði þegar undirritað lóðaleigu-
samninginn og gert það sunnu-
daginn 22. ágúst. Hér er ekki að-
eins um það að ræða að borgar-
ráði hafi verið sýnd einstök litils-
virðing heldur veitir borgarstjóri
öllum borgarbúum kjaftshögg
með þessari afgreiðslu sinni”,
sagði Guðrún Jónsdóttir enn-
fremur.
— En hvað með rekstur verk-
smiðjunnar Eims?
„Það er ásetningur okkar hjá
Kvennaframboðinu að fylgja
kröfum ibúanna i þvi máli eftir af
fullum krafti á vettvangi borgar-
stjórnar. Eimur framleiðir kol-
sýru og þar er um stórhættulegan
efnaiðnað að ræða inni i miðju
ibúðahverfi og við hljótum að
styðja með öllum ráðum þá lág-
Guðrún
Jónsdóttir
borgarráðs-
maður
Kvenna-
framboðs:
Afgreiösla
borgarstjóra
kjaftshögg á
alla borgar-
búa.
markskröfu ibúanna að starfsemi
fyrirtækisins verði flutt annað hið
bráðasta”, sagði borgarráðs-
maður Kvennaframboðs, Guðrú n
Jónsdóttir, að siðustu.
— v.
Ennþá
hækkar
pósturinn
Ný gjaldskrá fyrir póstþjónustu
tekur gildi 1. september
næstkomandi. Samkvæmt henni
verður burðargjald bréfa af
fyrsta þyngdarflokki (20g) innan-
lands og til Norðurlanda 3,50 kr.
til annarra landa 4.00 kr. og flug-
burðargjald til landa utan Evrópu
7.00 kr.
Burðargjald fyrir póstkort og
prent' af fyrsta þyngdarflokki
(20g) verður 3.00 kr. nema flug-
burðargjald til landa utan
Evrópu, sem verður 3,50 kr. Gjald
fyrir giróþjónústu verður 4.50 kr.
fyrir almennar póstávisanir 8.00
kr. simapóstávisanir 36.50 kr. og
póstkröfur 15.00 kr. (10.50 kr ef
um innborgun á póstgiróreikning
er að ræða).
Burðargjöld böggla innanlands
verður sem hér segir: 1 kg. 17.00
kr. 3 kg 20.00 kr. 5 kg 31,00 kr. 10
kg 48,00 kr. 15 kg 70,00 kr. 20 kg
78.00 kr.
Abyrgðargjald verður 7.50 kr.
og hraðboöagjald 16.50 kr.
MÁLAÐ Á POSTULÍN
Lisbcth Hansen, postulinsmálari málar hið fræga mynstur „Empire” á postulinsdisk frá Bing og
Gröndahl, en listsýning fyrirtækisins var opnuð I gær að Kjarvalsstöðum. Sýningin er aðeins opin i fimm
daga, en þess má geta að munirnir á sýningunni sem sumir eru frá þvl fyrir aidamót, eru tryggðir fyrir
2 millj. danskra króna. Sýningin er opin daglega frá 14—22oger aðgangur ókeypis.
Nýjar bækur frá
Iðunni:
Frá galdra-i
málum til
Hallæris- !
plans |
■
Iöunn gefur út meira en ■
hundrað bækur á þessu ári I
og meðal þeirra eru ný verk I
eftir Þorstein frá Hamri, ,
Svövu Jakobsdóttur. Anton i
Helga Jónsson, Njörð, j
Njarðvik og Flosa ólafsson. |
Þrjár nýjar ljóðabækur ,
koma út hjá Iðunni. Spjóta-
lög á speglinefnist bók Þor-
steins frá Hamri og Ljóð
vega gerð er þriðja bókin i
flokki Sigurðar Pálssonar
um „ljóðvegina”. Þá ■
kemur og út fyrsta ljóðabók |
Guðrúnar Svövu Svavars- |
dóttur myndlistarmanns og I
nefnist „Þegar þú ert ekki”. •
í frétt frá forlaginu segir að |
höfundur segi „á hreinskil- |
inn og einlægan hátt frá I
sambandi sinu og Þorsteins ■
frá Hamri”.
Hjá Iðunni kemur út safn I
áður óbirtra smásagna eftir I
Svövu Jakobsdóttur. Einnig ■
þriðja bók Auðar Haralds og |
fyrsta skáldsaga
hennar — Ævintýri fyrir I
rosknar vonsviknar konur. ■
Út kemur söguleg skáldsaga |
eftir Njörð P. Njarðvik sem I
heitir Dauðamenn og fjallar I
um galdramál sautjándu ■
aldar. Anton Helgi Jónsson |
ljóðskáld er á ferð með 1
fyrstu skáldsögu sina sem I
heitir Vinur vors og blóma. ■
Hallærisplanið heitir fyrsta I
bók ungs höfundar Páls |
Pálssonar, og segir eins og I
nafniö bendir til frá ung- ■
lingalifi i Reykjavik.
Iðunn gefur út heimilda- |
þætti eftir Hannes skáld I
Pétursson, frásagnir af sér- ■
stæðum persónum sem nefn- |
ast Eriend andlit eftir Ingólf |
Margeirsson og æskuminn- I
ingar Flosa Ólafssonar sem ■
heita t Kvosinni. Eftir Einar |
Braga kemur út Hrakfalla- |
bálkurinn —viðtöl við Plum I
kaupmann i Ólafsvik. ■
BHM mót-
skerðingu
verðbóta
Launamálaráð BHM hefur sent
frá sér ályktun þar sem harðlega
er mótmælt þeirri skerðingu
verðbóta sem felst i bráðabirgða-
lögum rikisstjórnarinnar.
Hér er einn einu sinni gengið á
gerða samninga meö lagasetn-
ingu, en slikar lagasetningar eru
nú orðnar svo algengar að það er
nánast öfugmæli að tala um að
hér riki frjáls samningsréttur,
segir I ályktuninni.
Þá segir að sú vlsitöluskerðing
sem ASl samdi um hafi nú verið
lögfest gagnvart öðrum laun-
þegum og er ASÍ I krafti stærðar
sinnar þar með fenginn I hendur
samningsréttur fyrir alla aðra
launþega I landinu.
Rikisstarfsmenn hafa þó ekki
fengið þá launahækkun sem ASI
samdi um, en hún er talin vera
9,5%. Þá segir i ályktuninni að
stór hluti rlkisstarfsmanna innan
BHM séu lðglaunamenn. Þeir
hafi sýnt mjkið langlundargeð og
verði ekkert að gert hljóti að
koma til uppsagna.