Þjóðviljinn - 15.10.1982, Síða 2
10 SiÐA — ÞJóÐVILJINN Föstudagur 15. október 1982
Eggert
Guðmunds-
son með
sýningu
Eggert Guðmundsson opnar
málverkasýningu á morgun,
laugardag, í Háholti, Dalshrauni 9 í
Hafnarfirði. Sá salur er í eigu Þor-
valdar Guðmundssonar veitinga-
manns.
Eggert, sem nú er 76 ára gamall
er flestum íslendingum kunnur en
hann ákvað að nema málaralist
aðeins 16 ára gamall. Lærði hann
m.a. hjá Mugg, Einari Jónssyni,
Stefáni Eiríkssyni og Ríkhárði
Jónssyni. Einnig erlendis en þar
hefur hann haldið sýningar svo og
hér heima.
Sýning Eggerts opnar kl. 16.00 á
morgun og verður sýningin opin til
31. október. Virka daga kl. 16-22
en aðra daga kl. 15-22.
Myndbönd
eftir Dieter
Roth
Myndbönd Dieters Roth verða
sýnd í Nýlistasafninu á milli 2 og 6 á
laugardag og sunnudag. Er þetta
jafnframt síðasta sýningarhelgin,
en opið er til kl. 10 á kvöldin.
Súrrealisti í
Skruggubúð
í Skruggubúð við Suðurgötu
sýnir nú John nokkur Welson frá
Bretlandi verk sín. Þetta eru 29
verk, olíumálverk, teikningar og
klippimyndir. John hefur gert ljóð
og myndir og er með þekktari
súrrealistum í Bretlandi. Hann hef-
ur sýnt verk sín víða um heim. Sýn-
ingin er opin til 31. október.
Síðasta
sýningarhelgi
Guy Frisks
Yfiriistsýning á verkum álenska
málarans Guy Frisks hefur staðið
yfir í sýningarsölum Norræna húss-
ins. Á sýningunni eru 95 verk, olíu-
málverk, vatnslitamyndir og
myndir unnar með blandaðri
tækni.
Sýningunni lýkur nk. sunnudag
þ. 17. okt. en í tilefni af komu for-
seta Finnlands, Maunos Koivistos,
verðru sýningin opin þá þrjá dags
sem heimsóknin stendur eða mið-
vikudag. 20. fimmtud. 21. ogföstu-
dag. 22. okt. kl. 14.-19.
„Noröan 7” á Kjarvalsstöðum
7 myndlistarmenn sem allir eru
búsettir og starfandi á Akureyri,
opna á laugardag myndlistarsýn-
ingu á Kjarvalsstöðum. Þeir eru
Aðalsteinn Vestmann, _ Einar
Helgason, Guðmundur Ármann,
Helgi Vilberg, Kristinn G. Jó-
hannsson Óli G. Jóhannsson og
Örn Ingi. Við hittum þá að máli þar
sem þeir voru að hengja upp á
Kjarvalsstöðum. Við spurðum
hvernig væri að vera myndlistarm-
aður nyrðra:
„Það er óhemjugott“, sagði Óli
G. en Kristinn sagðist heldur vilja
segja að það væri „afargott".
„Við höfum Rauða húsið. Þang-
að fáum við margar góðar sýningar
og getum fylgst með því sem er að
gerast t.d. í nýlistinni", sagði Helgi
Vilberg.
„Og svo höfum við mjög góðan
myndlistarskóla." bætti Kristinn
við. Þeir voru sem sagt ánægðir
með að vera myndlistarmenn á Ak-
ureyri, þótt ekki séu þeir allir born-
ir og barnfæddir þar.
„Og það er stutt til Reykjavíkur
frá Akureyri, þótt Reykvíkingar
segi að það sé langt til Akureyrar"
sagði Óli.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi
hópur sýnir saman og er þetta jafn-
framt stærsti hópur „utanbæjar-
manna“ sem sýnir í Reykjavík.
Myndirnar eru alls 111 talsins og
verður sýningin opin til 2. nó-
vember.
Haust-
myndir í
Ásgrímssal
Opnuð hefur verið haustýning
Ásgrímssafns, en hún er 56. sýning
safnsins.
Sýningin er að þessu sinni helguð
haustinu og urðu fyrir valinu vatns-
litamyndir, nær eingöngu, þ.á.m.
margar bestu vatnslitamyndir Ás-
gríms Jónssonar, frá Þingvöllum.
Einnig eru sýndar myndir sem
hann málaði á Ítalíu 1908 og í
Reychenhali í Þýskalandi 1931 og
1939.
Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74
er opið sunnud., þriðjud., og
fimmtud., 13.30-16.00. Áðgangur
er ókeypis.
Edda Jóns-
dóttir með
tvær sýningar
Edda Jónsdóttir opnar tvær sýn-
ingar á laugardag, aðra í Ásmund-
arsal við Freyjugötu og hina í Gall-
erí Langbrók. Sýningarnar eru
aðeins opnar til 24. október. í
Langbrók verða sýndir polaroid-
skúlptúrar, en í Ásmundarsal sýnir
hún teikningar.
Edda hefur sýnt víða um heim og
hlotið alþjóðlegar viðurkenningar,
m.a. hlaut hún verðlaun á grafíkbí-
ennal í Bradford nú á þessu ári.
Edda á vinnustofu sinni.
Verk Maríu
Jósefsdóttur
(Bat-Yosef)
Sýning Maríu Jósefsdóttur (Bat-
Josef) er opin um helgina í Gallerí
Lækjargötu frá 2-6 á laugardag og
2-10 á sunnudag. Sýningunni lýkur
24. október.
Fræðsluerindi
í Neskirkju
Sex næstkomandi sunnudags-
kvöld verður efnt til fræðsluerinda
og umræðna í safnaðarheimili Ne-
skirkju. Rætt verður um trúarleg
og siðræn efni út frá biblíulegum
textum og áhugaefni samtímans.
Þeir dr. Björn ’Björnsson pró-
fessor og dr. Einar Sigurbjörnsson
prófessor munu verða í forsvari
þessara stunda til skiptis og flytja
stutt inngangserindi til skýringar
og örvunar almennri umræðu.
Samfundir þessir eru öllum opnir
og hefjast kl. 15.30 í safnaðar-
heimili Neskirkju.
Kaffidagur Vest-
firðingafélagsins
á sunnudag
Vestfirðingafélagið efnir til
kaffidags á sunnudaginn kl. 15. í
Félagsheimili Bústaðarsóknar.
Þeir sem þess óska geta hlýtt á
messu kl. 14 og komið síðan í kaffi.
Býður Vestfirðingafélagið alla
Vestfirðinga 67 ára og eldri velk-
omna og væntir þess að yngri Vest-
firðingar mæti einnig ásamt börn-
um sínum. Nýlega var Guðríður
Hannibalsdóttir kosin formaður
félagsins í stað Sigríðar Valdemars-
dóttur . Styrkir hafa verið veittir úr
Menningarsjóði vestfiskrar æsku
og hlutu þrjú ungmenni styrki að
upphæð 12.000.00 kr.
Sólarkvöld
um helgina
Hin vinsælu Sólarkvöld
Samvinnuferða-Landsýnar hefjast
að nýju í Súlnasalnum í kvöld.
Vegna mikillar aðsóknar sl. vetur
verða nú þrjú kvöld í röð,
föstudags- laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Að þessu sinni er Holland og þá
sérstaklega Amsterdam kynnt.
Hollenskur matur og drykkir verða
á borðum og hollenskir listamenn
skemmta. Allar konur fá blóm frá
Breiðholtsblómum, spilað verður
Bingó og jafnvægis-listamaður
skemmtir. Hljómsveitin Gautar
leikur fyrir dansi fram á nótt.
Mannræktar-
námskeið
Sænski sálfræðingurinn Lena
Tuulse mun halda hér þriggja daga
námskeið um helgina og er það öll-
um opið. Lena er doktor í klíniskri
sálfræði og stýrir mannræktar-
setrinu Wáxthuset skammt frá
Stokkhólmi. Hún hefur haldið
fjöldamörg námskeið í heimalandi
sínu og í Bandaríkjunum og kynnir
hún áhrifaríkar leiðir til sjálfs-
þroska. Námskeiðið hefst í kvöld
kl. 19.00 og lýkur kl. 18.00 á sunn-
udag.
Upplýsingar um námskeiðið eru
í síma 75495, en þátttökugjald er
kr. 1.000.
Gert er ráð fyrir að þátt-
takendum gefist kostur á að við-
halda og bæta kunnáttu síria í þeim
aðferðum sem Lena kennir, og
verða slíkir fundir vikulega í Mið-
stöð fyrir mannrækt á íslandi,
Bárugötu 11. þar sem námskeiðið
verður haldið.
Kvenstúdenta-
félagiö
Hádegisverðarfundur verður í
veitingahúsinu Arnarhóli laugar-
daginn 16. október á vegum
Kvenstúdentafélags íslands og
verðurfjallað um skólamál. Ræðu-
maður verður Guðni Guðmunds-
son, rektor Menntaskólans í
Reykjavík.