Þjóðviljinn - 15.03.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 15.03.1983, Blaðsíða 2
10 SÍÐA — ÞJÚÐVILJINN Þriðjudagur 15. mars 1983 \ Þriðjudagur 15. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 lj>rottir Umsjón: Viöir Sigurösson Umsjón: L: ■■ Viðir Sigurðsson ■Hi máMngH mátni/tg tj trtátöng*. idlningfí Málning* ^é/ni/n lálnínff' mhlniný Knattspyrnan á meginlandinu Sævar skoraði glæsimark og Pétur er enn í toppbaráttu Ssevar Jónsson landsliðsmið- vörður í knattspyrnu skoraði fail- egt mark fyrir lið sitt, CS Briigge, í 1. deildinni belgísku á sunnudag. Briigge gerði þá jafntefli, 1-1, við Lierse og náði forystu þegar Sævar sendi knöttinn í netið af 25 m færi strax á tíundu mínútu. Pétur Pétursson og félagar í Ant- werpen eru áfram í slagnum um meistaratitilinn, stigi á eftir Ander- lecht. Þeir sigruðu Waregem 3-1 á sunnudag. Waterschei vann Be- erschot 1-0 en Lárus Guðmunds- son varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Sömu sögu er að segja af Arnóri Guðjohnsen, en lið hans, Lokeren, vann einnig, 3-0 á útivelli gegn Courtrai. Tongeren, lið Magnúsar Bergs, situr áfram á botninum eftir 3-0 tap gegn Ser- aing. Átta marka leikur Velgengni Stuttgart með Ásgeir Sigurvinsson í fararbroddi heldur áfram. Liðið lék gegn Bayer Le- verkusen í vestur-þýsku „Bundesl- igunni" á laugardag og sigraði 5-3. Ásgeir skoraði ekki að þessu sinni. Staðan breyttist þó nær ekkert því öll efstu liðin sigruðu. Hamburger vann Frankfurt 3-0, Bayern Múnc- hen sigraði Bochum með sömu markatölu, Dortmund lagði Núm- berg 4-0 og Köln sigraði Dúss- eldorf 4-0. Hamburger, Bayern og Dortmund hafa því 34 stig, Stutt- gart 31 og Köln 30 stig. Laval áfram Laval, lið Karls Þórðarsonar í Frakkalandi, komst í 16-liða úrslit bikarkeppninnar þar með 1-1 jafn- tefli gegn Nancy. Laval vann fyrri leikinn 1-0. Lens féll hins vegar út, tapaði 0-2 í Bordeaux eftir að hafa unnið heima, 1-0. Önnur toppliða sem komust áfram eru Nantes, Monaco og Paris St. Germain. Enn jafnt í Holiandi Hin jafna keppni í Hollandi heldur áfram. Ajax sigraði NEC Nijmegen 4-0 á útivelli um helgina, Feyenoord vann einnig úti, 1-0 gegn AZ 67, og PSV Eindhoven sigraði Haarlem 2-1. Ajax og Fey- enoord hafa 41 stig, PSV 38. í bikarkeppninni drógust Ajax og PSV saman í undanúrslitunum. Það ætti að vera úrslitaleikur því í hinum undanúrslitaleiknum mæt- ast Haarlem og Nijmegen. Leikið verður heima og heima. Maradona og Menotti Leikvangur Barcelona, Nou Camp, var troðfullur þegar liðið lék við Real Betis í spænsku 1. deildinni á sunnudag. Diego Mara- dona var að leika sinn fyrsta leik í þrjá mánuði eftir að hafa verið rúmliggjandi með lifrarsjúkdóm og annar kunnur Argentínumaður, Cesar Luis Menotti, var að stýra liðinu í fyrsta, skipti. Leikurinn byrjaði nógu vel; Maradona lagði upp mark strax á þriðju mínútu, en gestirnir jöfnuðu fyrir hlé og lokatölurnar 1-1. Real Madrid sigraði Celta Vigo og Atl- etico Bilbao vann Salamanca 4-0. Þegar sex umferðum er ólokið á Spáni hafa Real Madrid og Bilbao 42 stig hvort gegn 38 hjá Barcelona og Menotti og Maradona mega því taka upp sparihanskana. Platini með tvö Frakkinn Michel Platini virðist vera að ná sér á strik með ítölsku Blikastúlkur skelltu meistur- um Próttar í lokaleiknum Deildakeppninni í blaki lauk um helgina, leiknir voru síðustu leikir í öllum deildum. Úrslitin voru alls staðar ráðin, Þróttur hafði tryggt sér sigur í 1. deild karla og kvenna og HK var komið upp í 1. dcild karla. Úrslitin um helgina urðu þessi: t. deild karla: Víkingur-UMSE...............2-3 (11-15, 7-15, 15-3, 15-7, 11-15) IS-Bjarmi...................3-0 (15-7, 15-8, 15-5) Víkingur-Bjarmi.............2-3 (15-8, 2-15, 6-15, 15-10, 9-15) Þróttur-UMSE................3-0 (15-2, 15-11, 18-16) Lokastaðan: Þróttur...... 16 15 1 47-13 30 ÍS........... 16 13 3 43-13 26 UMSE......... 16 6 10 21-37 12 Bjarmi....... 16 6 10 21-37 12 Vík.......... 16 0 16 16-48 0 Punktafjöldi úrleikjunum íheild réði úrslitum um þriðja sætið sem þar með féll í skaut Eyfirðinga. 1. deild kvenna: ÍS-KA........................3-1 (15-7, 15-10, 14-16, 15-2) Þróttur-Breiðablik...........2-3 (14-16, 3-15, 15-9, 15-5, 11-15) Víkingur-KA..................2-3 (12-15, 7-15, 15-12, 16-14, 9-15) Breiðabliksstúlkurnar unnu þarna góðan sigur á meisturum Þróttar og hafa þær fyrrnefndu far- ið mjög vaxandi síðari hluta vetrar. Lokastaðan: Þróttur...... 16 15 1 47-14 30 ÍS............ 16 11 5 39-17 22 Breiðablik... 16 10 6 34-23 20 KA............16 4 12 15-39 8 Víkingur..... 16 0 16 6-48 0 2. deild karla: Samhygð-Þróttur Nes.........3-0 (15-1, 15-6, 15-5) Fram-Þróttur Nes.............3-1 (15-8, 15-13, 14-16, 15-12) Lokastaðan: HK.............. 8 6 2 19- 7 12 Samhygð...........8 5 3 19-14 10 Fram............. 8 5 3 18-15 10 Breiðablik........8 2 6 11-20 4 Þróttur Nes..... 8 2 6 9-20 4 HK tekur því sæti Víkings í 1. deild og ieikur þar í fyrsta skipti næsta vetur. -VS meisturunum Juventus. Hann skoraði tvívegis á sunnudag þegar lið hans sigraði Avellino 4-1. AS Roma vann Pisa 2-1 úti, Roberto Falcao og Di Bartolomeo skoruðu mörkin, og heldur áfram þriggja stiga forystu. Hefur nú 33 stig gegn 30 hjá Juventus þegar átta um- ferðum er ólokið í ítölsku 1. deildinni. -VS Obreytt i« ií r roo i 2. de ild KA og Haukar standa áfram best að vígi í toppbaráttu 2. deildar karla í handknattleik en fyrsta um- ferðin af fjórum um sæti í 1. deild fór fram að Varmá í Mosfellssveit um helgina. Breiðablik vann þó á en Grótta tapaði öllum sínum _ lcikjum og er líklega úr leik. Úrslit leikjanna urðu þessi: Föstudagur: Breiðablik-KA....28-16 (11- 9) Haukar-Grótta ......27-22 (13-15) Laugardagur: KA-Grótta........21-15 ( 8- 2) Haukar-Breiðabl. .. 21-19 (11-18) Sunnudagur: Breiðabl.-Grótta.... 18-17 ( 8- 8) Haukar-KA........ 24-24 (11-13) Staðan: KA...........17 10 4 3 405-370 24 Haukar.......17 10 3 4 403-365 23 Breiðablik...17 8 4 5 338-312 20 Grótta.......17 8 0 9 382-401 16 Önnur umferð fer fram á Sel- tjarnarnesi um næstu helgi. Coe hóf upphitun- ina með heimsmeti Bill Kottermann Njarðvík- ingur reynir skot að körfu ÍR-inga í leik liðanna í fyrra- kvöld. Pétur Guðmundsson er til varnar. Mynd: -eik - Faliib er annarra höf- uðverkur héðan af“ „Við föllum ekki, það er annarra höfuðverkur héðan af,“ sagði Jim Dooley þjálfari úrvalsdeildar ÍR í körfuknattleik eftir sigurinn á Njarðvík, 95-82, í Hagaskólanum í fyrrakvöld. Dooley var ekkert að leyna fögnuði sínum, sem vonlegt var, og bætti við: „Það fór margt miður í þessum leik, en allt í lagi með það, nú er rétti tíminn til að brosa og láta sér líða vel.“ Já, ÍR-ingar höfðu fulla ástæðu til að gleðjast. Liðið tapaði sjö fyrstu leikjum sínum í úrvals- deildinni og fallstimpillinn var rækilega þrykktur á leik þess. Þá kom Pétur Guðmundsson til skjal- anna og eftirleikinn þekkja allir. Kristinn Jörundsson, fyrirliði ÍR, var ekki síður í sjöunda himni: „Ástandið var ekki svo hrikalega slæmt þegar Pétur kom en eftir það fóru menn virkilega að sýna hvað í þeim bjó. Pétur hirti fráköstin, það var hlutur sem okkur vantaði, sjálfstraustið kom og nú er mikill léttir að vera laus úr fallhættunni. Keppnistímabilið er þó ekki búið, bikarinn er eftir, en fyrir mig er þar snúinn leikur næst á dagskrá, gegn IS í undanúrslitunum." Kristinn er nefnilega einnig þjálfari 1. deildarliðs ÍS! Leikurinn sjálfur milli ÍR og Njarðvíkur er auðgleymdur. ís- landsmsistarar Njarðvíkinga voru áhugalausir á löngum köflum og aðeins í byrjun veittu þeim ÍR- ingum virkilega keppni. IR komst í 27-16 um miðjan fyrri hálfleik og var yfir í hléi, 48-39. í síðari hálf- leik varð munurinn fljótt fimmtán stig og varð mestur tuttugu, 91-71, þegar Pétur Guðmundsson hvarf af leikvelli með sína fimmtu villu fyrir leikslok. Njarðvíkingar tóku þá fjörkipp, sinn besta í leiknum, en möguleikinn á sigri var löngu rok- inn útí veður og vind. ÍR var nokkuð frá sínu besta en meira þurfti ekki. Hreinn Þorkels- son og Pétur Guðmundsson voru bestu menn og Kristinn Jörunds- son var ekki langt að baki. Hreinn lék af krafti og ákveðni sem endra- nær, Pétur hafði hægt um sig í byrjun en skoraði síðan 14 stig á tíu minútum þegar ÍR var að síga framúr í fyrri hálfleiknum. Gylfi Þorkelsson var einnig mjög drjúg- ur og liðsheildin var sterk. ÍR er eitt þriggja bestu liða landsins í dag, á því er enginn vafi. Þegar Valur Ingimundarson og Bill Kottermann eru langt frá sínu besta er ekki von á góðu hjá Njarðvík. Valur var mjög mistæk- ur, svo og Bill, þótt sá síðarnefndi tæki sig mjög á eftir hlé en hann skoraði aðeins tvö stig í fyrri hálf- leik. Gunnar Þorvarðarson var bestur þótt hann hafi oftast lagt sig meira fram en í þessum leik. ísak Tómasson vakti athygli í síðari hálfleiknum en í heild var liðið óskaplega slakt og áhugalítið. Stig IR: Pétur 28, Hreinn 19, Kristinn 19, Gylfi 16, Hjörtur Oddsson 4, Jón Jörundsson 4, Kol- beinn Kristinsson 4 Ragnar Torfa- son eitt. Stig Njarðvíkur: Gunnar 21, Kottermann 18, Valur 16, ísak 8, Júlíus Valgeirsson 7, Árni Lárus- son 6 og Ingimar Jónsson sex. Gunnar Valgeirsson og Kristinn Albertsson dæmdu. Framan af fórst þeim það þokkalega úr hendi en þegar á leið urðu smásmug'u- legir dómar til að setja leiðinlegan svip á leikinn. -VS Valsmenn stungu KR-inga af undir lokin Sebastian Coe, hinn snjalli breski hlaupari sem við sögðum frá í sunnudagsblaðinu, hóf upphitun sína fyrir heimslcikana í Helsinki í ágúst með því að setja heimsmet í 800 m hlaupi innanhúss í lands- keppni Breta og Bandaríkja- manna um helgina. Gamla metið hans var 1:46,00 mín. og strax að loknum fjögur hundruð metrum var ljóst að það væri í mikilli hættu. Coe skeiðaði fyrri hringinn á 51 sekúndu og á lokasprettinum áttu engir and- stæðingar möguleika. Tfminn varð 1:44,92, glæsilegt heimsmet. Keppni þjóðanna var hörku- spennandi og hnífjöfn en í loka- greininni tókst Bretum að tryggja sér sigur, 72:70. - VS. Allt eftir bókinni í skoska bikarnum Islandsmeistarar Þróttar í karlaflokki: Aftari röð frá vinstri: Leifur Harðarson, Valdemar Jónasson, Láentínus Ágústsson, Guðmundur Kærnested, Sveinn Hrcinsson, Gísli Jónsson. Fremri röð: Skúli Sveins- son, Jón Árnason, Gunnar Árnason, Böðvar Helgi Sigurðsson og Börkur Arnviðarson. Mynd: -eik Engin úrslitanna í 5. umferð skosku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu á laugardaginn komu mönnum sérstaklega í opna skjöldu. Fjögur úrvalsdeildarlið mættu jafnmörgum úr 1. deildinni og fóru þau fyrrnefndu alls staðar með sigur af hólmi, eftir mismun- andi harða baráttu þó. Celtic vann Hearts 4-1. Þar var hinn leikreyndi Willie Johnston hjá Hearts rekinn útaf í 19. skiptið á ferli sínum og eftir góða frammist- öðu framan af, 1-0 í hálfleik fyrir Celtic, átti Edinborgarliðið ekki möguleika. Murdo McLeod skoraði fyrst, þá Charlie Nicholas tvö og loks Frank McGarvey. Aberdeen lenti í vandræðum með Partick Thistle á heimavelli 1. deildarliðsins í Glasgow en vann 2-1. Neil Cooper og Peter Weir skoruðu fyrir Aberdeen en Ian McDonald fyrir Partick, jafnaði þá, 1-1. Rangers komst í 0-2 á Hampden Park gegn Queen’s Park með mörkum Gordon Dalzel og David Cooper en Gilmour svaraði, 1-2, fyrir heimaliðið úr vítaspyrnu. Loks vann St.Mirren Airdrie 5-0 á útivelli og skoraði Billy Stark þrjú markanna. í úrvalsdeildinni vann Dundee United granna sína úr Dundee 5-3 og Jóhannes Eðvaldsson og félagar 'í Motherwell náði dýrmætum stig- um í fallbaráttunni, sigruðu botn- liðið Kilmarnock 3-1. -VS Góður kafli Valsmanna seint í leiknum við KR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudaginn sá þeim fyrir öruggum sigri, 104-92. Á stuttum tíma breyttu þeir stöðunni úr 74-70 í 95-78 og hetjuleg barátta KR-inga fram að því kom fyrir lítið. Vesturbæjarliðið er áfram í fallhættu og berst þar við Fram en nú er ljóst að leikur Vals og Kefla- víkur í Laugardalshöllinni næsta mánudagskvöld ræður algcrlega úrslitum um hvert íslandsbikarinn fer að þessu sinni. Valur virtist ætla að gera út um leikinn í fyrri hálfleik, komst í 31- 20, en KR-ingar hleyptu þeim ekki lengra framúr sér og munurinn í hálfleik var fjögur stig, 51-47, Val í hag. KR jafnaði fljótlega eftir hlé, 57-57, en Valur svaraði með sjö stigum á mínútu. Aftur tók KR kipp, staðan 66-63 og síðan 74-70 en þá kom umræddur kafli Vals- manna. Með því að keyra upp hraðann skildu þeir KR-inga hreinlega eftir og þegar þeir síðarnefndu náðu að átta sig var leikurinn gjörtapaður. Hafsteinn Hafsteinsson rauf hundrað stiga múrinn hálfri annarri mínútu fyrir leikslok og lokatölurnar sem áður sagði 104-92. Valsliðið lék vel og þeirra fimm manna byrjunarlið sem mest er keyrt á, Tim Dwyer, Ríkharður Hrafnkelsson, Torfi Magnússon, Kristján Agústsson og Jón Steingrímsson, er óumdeilanlega það sterkasta hér á landi. Allir léku þeir vel, enginn þó betur en Dwy- er. Hann spilaði af fítonskrafti í vörn og sókn, var alltaf þar sem mest var um að vera og gekk KR- ingum bölvanlega að ráða við hann.Ríkharður lék stórvel, eink- um í síðari hálfleik þegar hvert langskotið af öðru rataði beint á áfangastað. Torfi var drjúgur, bestur á umræddum úrslitakafla, og aðrir stóðu fyrir sínu. Nýliðar Keflvíkinga verða að eiga góðan dag til að ráða við Valsmenn í bikar og deild í kvöld og á mánudags- kvöldið. prengihætta í Kefla vík á föstudagskvöld! Það er ekki einleikið hversu oft lcikir í úrvalsde.ildinni í körfuknatt- leik í vetur hafa verið skemmtilegir og spennandi. Einn slíkur var í í- þróttahúsinu í Keflavík á föstu- dagskvöldið þar sem heimamenn rétt mörðu sigur á botnliði Fram, 84-83, eftir að hafa leitt í hálfleik 51-41. Leikurinn var jafn fram undir miðjan fyrri hálfleik og einnkennd- ist öðru fremur af mikilli baráttu. Heimamenn náðu einum af sínum góðu köflum og breyttu stöðunni úr 16-19 í 44-31, sem var mesti munur í leiknum. Tíu stiga forystan hélst fram eftir síðari hálfleik en þá fóru Keflvík- ingar að slaka á. Viðar Þorkelsson gekk á lagið og skoraði tíu stig í röð og kom Fram yfir, 68-69. Þeir voru yfir, 72-75, þegar sex mínútur voru til leiksloka en eftir það munaði aldrei meiru en tveimur stigum þar til Þorsteinn Bjarnason skoraði fyrir Keflavík, 84-81, hálfri annarri mínútu fyrir leikslok. Val Brazy var fljótur að svara, 84-83, og síð- ustu mínútuna var sannkölluð sprengihætta í húsinu, enda spenn- an í hámarki. Hvorugu liði tókst að skora, enda taugarnar strekktar til ÍR náði / tvo Axel Nikulásson og félagar í ÍBK eiga tvo stórleiki gegn Val fyrir höndum næstu daga. Sá fyrri er í undanúrslitum bikarkeppninnar og hefst í kvöld kl. 20.30 í Laugardalshöllinni. Úrslitakeppni yngri flokka pilta í körfuknattleik fór fram í Keflavík um helgina. IR-ingar náðu þar í tvo íslandsmeistaratitla, Haukar í einn og heimamenn, Keflvíkingar, í einn. Haukar sigruðu Valsmenn í úr- slitaleik 2. flokks 100-97. ÍR lagði KR í 3. flokknum 63-62, Keflvík- ingar sigruðu erkióvinina og ná- grannanna úr Njarðvík 54-53 í 4. flokki og í úrslitaleik 5. flokks kom stærsti sigurinn, þó aðeins flmm stig, þegar ÍR vann Hauka 35-30. KR átti ágætan dag lengi vel. Stewart Johnson þurfti fimm skot til að fínstilla kanónuna en eftir það gekk hún án þess að hiksta veru- lega. Hann gerði einnig meira af því í sókninni að leika samherjana uppi en oftast áður. Garðar Jó- hannsson sýndi sitt gamla form í fyrri hálfleik og skoraði þá 16 stig en allt púður var úr honum í þeim síðari og hann þá tæpast skugginn af sjálfum sér. Jón Sigurðsson var í rólegra lagi en skilaði sínu vel og Birgir Guðbjörnsson átti sennilega sinn besta leik í vetur. Barðist af gífurlegri grimmd í vörn og sókn. Stig Vals: Dwyer 30, Ríkharður 24, Torfi 18, Kristján 14, Jón 10, Hafsteinn 3, Leifur Gústafsson 2, Tómas Holton 2 og Björn Zoega eitt. StigKR: Johnson 41, Garðar 19, Birgir 16, Jón 8, Kristján Rafnsson 4, Ágúst Líndal 2 og Þorsteinn Gunnarsson tvö. Dómarar voru Gunnar B. Guð- mundsson og Sigurður Valur Hall- dórsson. Þeir stóðu sig þokkalega og ummæli KRinga í þeirra garð í Ieikslok voru ekki á rökum reist. Sérstaklega voru orð formanns KKÍ, um að vel væri hægt að út- vega mun hæfari dómara í þeirra stað, fljótfærnisleg, og hvað sem kann að vera hæft í þeim var ritara- borðið í leikslok ekki viðeigandi vettvangur fyrir slík orðaskipti. Þannig opinberun á innanhússmál- um sambandsins skemmir aðeins fyrir og gerir úrbætur torveldari. Lið ÍBK var jafnt. Axel Nikulás- -VS son átti mjög góðan leik. Björn V. Skúlason hefur sýnt betri og betri leiki undanfarið og er orðinn mun áræðnari í leik sínum en áður. Jón Staðan í úrvalsdeildinni í körf- Kr. Gíslason og Þorsteinn Bjarna- uknattleik: son komu einnig ágætlega út. Axel Valur..........19 14 5 1708-1532 28 skoraði 27 stig, Jón 20, Þorsteinn Keflavik.......19 14 5 1597-1578 28 L4’, BJ°r" í3’ Brad Múey 8 og (f*...........19 8 „ 1481.1511 16 Oskar Nikulasson tvo. kr.............19 7 12 1596-1691 14 Fram.........19 6 13 1 616-1650 1 2 Baráttan var í góðu lagi hjá Fram og menn voru samtaka um að selja ^á er aðeins ein umferð eftir í sig dýrt. Viðar Þorkelsson var besti úrvalsdeildinni. Njarðvík og KR maðurvallarinsoghitti mjögvelog le'ka á föstudagskvöldið, Fram og þá voru Brazy og Þorvaldur Geirs- ® ú sunnudag og loks er úrslital- son þokkalegir. Viðar skoraði 28 eikurinn,milliValsogKeflvíkinga, stig, Brazy 25, Þorvaldur 16, á mánudagskvöldið. Fram getur Guðsteinn Ingimarsson 8, Jóhann- me® s'8r*ná® úrslitaleik við KR um es Magnússon 4 og Ómar Þráins- fallið en leikur Vals og Keflavíkur son tvö. ræður úrslitum um hvert Islands- _gSm bikarinn fer að þessu sinni. hins ýtrasta, og IBK hékk á báðum stigunum. Leikurinn var í heiid spennandi og skemmtilegur. Framarar voru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni en Keflvíkingar að leika um topp- sætið og mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru hvað. Staðan:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.