Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. maí 1983 Ásmundarsafn gert að borgarsafni „Sú meginbreyting sem gerð hef- ur vcrið á Asmundarsafni er sú að safnið er gert að borgarsafni með tilhcyrandi stjórn og forstöðu- manni. Eins og kunnugt er þá á- nafnaði Ásmundur Reykjavíkur- borg safnið eftir sinn dag og frá því hann lést hefur safnið verið opið endrum og eins, fólk sem hefur vilj- að skoða það hefur haft samband við dóttur Asmundar, Ásdísi Ásm- undsdóttur og hún hefur vísað mönnum um sali. Þegar Ásmundur var á lífi sýndi hann flestum þcim sem vildi þau verk sem í safninu eru. En framvegis verður safnið opið á föstum tímum og það verður opnað opinberlega scm borgarsafn á laugardaginn og síðan yfir hvíta- sunnuna, alla þcssa daga frá kl. 14- 22. í sumar verður opið alla virka daga og um helgar frá kl. 14-17. Undanskilinn cr mánudagur, cn þá er safnið lokað.“ Svo mæltust orð nýráðnum for- stöðumanni Ásmundarsafns, Gunnari Kvaran listfræðingi. Hann kynnti á miðvikudaginn starfsemina fyrir fréttamönnum, en þess má geta að í ár eru 90 ár liðin frá fæðingu listamannsins. í safninu eru skráðar um 350 högg- myndir, 2000 teikningar, sem eru teikniæfingar frummyndir verka eða sjálfstæð listaverk og fjöldi ljósmynda sem sýna ólík þróunar- stig í listsköpun Ásmundar. Elstu verkin eru upp í kúlunni þar sem Ásmundur hafði vinnu- stofu sína. í stjórn Ásmundarsafnsins eiga nú sæti Einar Hákonarson sem er formaður, Hulda Valtýsdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir, Ásdís Ásmundardóttir, Hafliði Jónsson og Þóra Kristjánsdóttir. - hól. Listasafn alþýðu Vatnslitamyndir Hafsteins A ustmanns Halldór B. Runólfsson skrifar um myncMist Um þessar mundir heldur Haf- steinn Austmann sýningu á rúm- lega 40 vatnslitamyndum í Lista- safni alþýðu við Grensásveg. Þær eru allar gerðar á þessu ári og því síðasta. Það hefur áður komið fram á sýningum Hafsteins, hve vel þcssir gagnsæu litir henta ljóðræn- um stíl hans. Mönnum er eflaust í fersku minni sýning listamannsins á Kjarvalsstöðum, í hitteðfyrra, þar sem hann sýndi röð vatnslita- mynda ásamt olíuverkum. Verk Hafsteins hafa alltaf fjallað um hirtu. í þeim er að finna skyld- leika við þá liðsmenn Parísar- skóians sem mest hafa fengist við brigði ljóss og skugga. Líkt og í verkum Soulage, eru það gildi lit- anna sem skipta Hafstein mestu, meira en samspil mismunandi tóna litrófsins. Listamaðurinn er því í hópi þeirra sem eiga sér fyrirrennara í Rembrandt frá Rín, þeim málara sem byggði öll sín verk á örfáum tónum, en þeim mun blæbrigðarík- ari gildum. Með ■ vatnslitunum verður þessi áhersla á birtu litanna enn skýrari, því.þar bætist við eðli þeirra að hleypa ljósinu gegnum sig nær óhindrað. Þetta eðli litanna notfærir Haf- steinn Austmann sér út í æsar í fín- lega tvinnuðum verkum sínum. Myndir hans eru impressiónískar í eðli sínu, ofnar saman í möskvótt mynstur rrieð léttum pensildrátt- um. Þær eru svipaðs eðlis og litlir lagstúfar eftir Debussy, byggðar á hrynjandi litbandanna. Þessar vatnslitamyndir bera sterkan keim af olíumálverki Haf- steins,' en nær betur er athugað liggur grundvallandi munur í myndbyggingu þeirra. f olíumynd- unum eru vissar línur afgerandi. Sveigðar og dökkar línur móta gjarnan myndflötinn og ráða greiningu hans. í vatnslitamyndun- um eru engar áfgerandi áherslur, utan þær sem fengnar eru með mis- jafnlega björtum flötum, þ.e. mik- ið eða lítið máluðum. Áhrif vatnslitamyndanna verða því allt önnur en olíuverkanna. Það er ekki hægt að segja um hið síðar- nefnda, að þau séu impressiónísk og reyndar eru olíuverkin mun ó- hlutlægari, þótt eins og þau séu vatnslitamyndirnar abstrakt. Þessi eðlismunur forðar vatns- litamyndunum frá því að verða eftiröpun olíuverkanna og gerir þær að sjálfstæðri sköpun samhliða öðru pródúkti Hafsteins. Það er mikil stemmning ríkjandi yfir sýn- ingunni og ásamt nýafstaðinni sýn- ingu Hjörleifs Sigurðssonar gefur hún góða mynd af stöðu íslenskrar vatnslitalistar og þeirri fjölbreytni sem hér ríkir í þeirri tækni. HBR Sólveig Þórðardóttir skrifar: Lengi býr að fyrstu gerð Fyrir kosningar voru flestir frambjóðendur sammála um nauðsyn á að lengja fæðingaror- lof til muna. Það er mikið fagn- aðarefni að stjórnmálamenn geri sér grein fyrir mikilvægi þess fyrir fjölskylduna að foreldfar geti sinnt barni sínu vel fyrstu ár þess. Þeir sem hvað mest hampa nauð- syn þess að búa vel að fjölskyld- unni ættu einnig að hugsa til þess að „barnið býr lengi að fyrstu gerð“. Þegar þessar línur eru ritaðar er nýlega búið að birta niðurstöð- ur könnunar er gerð var á vegum Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur á geðheilsu fjögurra ára barna. Könnunin leiddi í ljós að 12% barna er athuguð voru eiga við alvarleg geðræn vandamál að stríða, auk þess eiga önnur 20% við einhver vandamál að etja. Þá kom einnig í ljós að stór hluti fjögurra ára barna í Reykja- vík befur lélegan málþroska. Það hefur löngum verið út- breidd kenning að dagheimili séu ekki æskilegur staður fyrir börn. Það er hins vegar mat kennara og annarra er vinna nteð börnum, að þau börn er eiga kost á dagvistun séu á margan hátt þroskaðri en önnur börn. Ofangreind könnun virðist einnig benda til þess. Um þessar mundir eru fléstir stjórnmálamenn áhyggjufullir af ástandi þjóðmála, auk þess sem stjórnarmyndunarviðræður auka á áhyggjur þeirra. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að sönru stjórnmálamenn láti mál sem fæðingarorlof sitja á hakanum þar sem þeir telji það eitthvert smámál. Ég vil benda ábyrgum Stjórnmálamönnum okkar á að ætla sér að spara þjóðartekjur á kostnað ungra barna, er eins og að kasta útsæðinu. Við höfum nú nærri eytt mikilvægustu fiski- stofnum okkar og erum því að bíta úr nálinni með það. Það er kannski óviðeigandi að bera að- búnað ungbarna saman við fisk og kartöflur, en slík verðmæti þekkja allir. í ráðherratíð Svavars Gests- sonar voru sett lög um fæðingar- orlof. Þau lög jöfnuðu aðstöðu foreldra til fæðingarorlofs til mikilla ntuna. Lög þessi þurfa samt sem áður endurskoðunar við, sérstaklega á það við um að lengja fæðingarorlof í sex mán- uði, því lenging fæðingarorlofs er einn þeirra þátta sem nauðsyn- legir eru til’að uppfylla þarfir nú- tíma barna. Fólk hér fyrrum vissi að móðurmjólkin er holl fyrir ný- burar og er frá leið töldu menn hins vegar að þýðing hennar fyrir börn hefði minnkað. í því sanr- bandi ætla ég að tína til helstu kosti brjóstagjafar. Þann fróðleik ættu stjórnmálamenn að hafa með sér í stjórnarviðræður. Brjóstamjólk er: - rétt samansett fyrir barnið, - nokkur vörn gegn sýkingum, - hefur rétt hitastig, - veitir tilfinningasamband milli móð- ur og barns, - ágœtis vörn gegn ofnœmi. Eins og hér segir veitir brjósta- gjöf tilfinningasamband milli nróður og barns. Það er einmitt þessi hluti uppeldis sem hefur hvað mesta þýðingu fyrir geð- heilsu einstaklings síðar á æfinni. Ýmsar merkar rannsóknir benda til þess að sá maður er ekki hefur átt kost á tengslamyndun í frum- bernsku sé líklegri til að eiga í útistöðum við þjóðfélagið, auk þess sem hann kann að verða óhamingjusamari en ella. Þá benda aðrar rannsóknir til að flesta hjónaskilnaði megi rekja til þess tíma er fyrsta barnið fæðist. Það virðist skjóta skökku við, þar sem flestum finnst yndislegt að eignast sitt fyrsta barn, og vissu- lega er það oftast þannig. En fæðingu barns fylgir mikið álag, breyttar lífsvenjur, fjárhags- örðugleikar og líkamlegt og and- legt álag fyrir konuna eftir barns- burð. Það er trú mín að gæfist foreldrum lengri tími við góðan fjárhag og góð félagsleg skilyrði til að sinna barni og eigin tilfinningamáluni myndi slíkt skila sér í betra mannlífi. Það myndi jafnframt spara þjóðfé- laginu ómælt fé, senr ella færi í löggæslu og heilsugæslu ásamt fleiru. Við skulum vera þess minnug nú á vordögum er sauðburður stendur sem hæst að „það er of seint að byrgja brunninn er barn- ið er dottið ofan í hann“. Sólveig Þórðardóttir, Ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur, Keflavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.