Þjóðviljinn - 11.06.1983, Blaðsíða 15
Helgin 11. - 12. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Skemmtilegasta
sem viðhöfum gert
- segir Broddi Hilmarsson 10 ára.
Það sem ef tilvill vakti einna mesta athygli
á þessu 200 ára „afmæli“ var sýning skóla-
barna í Kirkjubæjarskóla. Tekin var ein
vika í að vinna sýninguna og var allt hefð-
bundið skólastarf lagt liður á meðan.
Allir árgangur unnu saman að þessu
verkefni og allir kennarar tóku þátt í því.
Dr. Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur og
Gylfi Már Guðbergsson landfræðingur
ræddu við nemendurna, þau lásu sér til og
síðan var hafist handa. Sýningin er mjög
viðamikil og fjölbreytt og má segja að hún
snerti næstum allar kennslugreinar.
Við spjölluðum við ungan mann, Brodda
Hilmarsson sem á heima á Klaustri, en
hann er 10 ára og tók þátt í vinnunni við
sýninguna í skólanum.
„Þetta var óskaplega gaman, sérstaklega
þegar jarðfræðingurinn og landfræðingúr-
inn komu og sögðu okkur frá Skaftáreldun-
um. Ég held að þetta sé það skemmtilegasta
sem við höfum gert í skólanum. Það var allt
svo merkilegt í sambandi við Skaftár-
eldana.“
„Ertu nokkuð hræddur að búa hér?“
„Nei, það er gott að búa hérna núna og ég
er ekkert hræddur við eldgos. En þetta hef-
ur verið erfitt í gamla daga“. sagði Broddi.
ELOSVEITIRHRR-
MSukvARm * * rlXri C.I.U
i, RkETt' V.<ðW .
'íH@ t j Ij !
Broddi Hilmarsson, 10 ára við líkanið sem hann og fleiri nemendur unnu af eldsveitunum.
Séra Sigurjón Einarsson, formaður sýningarnefndar ávarpar gesti. Meðal gesta voru herra
Pétur Sigurgeirsson biskup og herra Sigurbjörn Einarsson biskup.
„Þetta er í blóöi
fólksins hér“
segir séra Sigurjón Einarsson, formaður
sýningarnefndar Skaftárelda
„Við vorum ákaflega ánægð með hvernig
þetta fór allt fram, og þá sérstaklega yflr
fjöldanum sem kom. Hér voru um 450
manns í kaffl, sem er talsvert fleira en við
áttum von á. Megnið af þessu fólki er hér úr
sveitunum og það lét rigninguna ekki aftra
sér. Þetta sýnir okkur að þetta er í blóði
fólksins, atburðirnir lifa enn á meðal íbú-
anna hér í sveitunum og eiga djúpar rætur“,
sagði séra Sigurjón Einarsson, formaður
sýningarnefndar Skaftárelda, þegar við
spjölluðum við hann að lokinni hátíðar-
dagskránni.
Sigurjón mun vera upphafsmaður að sýn-
ingunm og sagðist hafa byrjað að huga að
þessum málum fyrir mörgum árum. Seinna
í sumar, þann 20. júlí eru 200 ár frá því séra
Jón Steingrímsson söng hina frægu „Eld-
messu" og hraunstraumurinn stöðvaðist
skammt frá kirkjunni. Næsta sunnudag á
undan, þann 17. júlí, verður þessa atburðar
minnst með kirkjuhátíð á Prestsbakka og
Kirkjubæj arklaustri.
„Við erum búin að undirbúa kirkjuhátíð-
ina vel og lengi og vonumst til að ekki færri
komi en voru hér núna“, sagði séra Sigur-
jón.
Svona sjá nemendur í Kirkjubæjarskóla eldklerkinn séraJón.Líkanið fremst á myndinni
sýnir kirkjuna og fólk á leið í „Eldmessuna“.
Dr. Sveinbjörn Rafnsson sagnfræðingur ræðir við Forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur
á sýningunni. Ljósm. -eik-
„Kom á óvart
hversu víðtækar
hörmungarnar
voru“
- segir dr. Sveinbjörn Rafnsson,
sagnfræðingur
„Ég byrjaði að vinna við þetta sumarið
1980, en það er miklu lengra síðan séra
Sigurjón fór að undirbúa þessa 200 ára
minningardagskrá. Ég held að hann hafi
byrjað að huga að þessu fyrir 1975“, sagði
dr. Sveinbjörn Rafnsson, þegar við spjöll-
uðum við hann, en hann var sagnfræðilegur
ráðgjafi sýningarnefndarinnar og flutti er-
indi er sýningin var opnuð.
Sveinbjörn og Gísli Ágúst Gunnlaugs-
son cand mag hafa ásamt sagnfræðinemum
leitað uppi og undirbúið útgáfu á áður
óbirtum samtímaheimildum um Skaftár-
elda og móðuharðindin. Við spurðum
Sveinbjörn hvort mikið hafi fundist af
heimildum, sem ekki var vitað um.
„Já, það hefur fundist talsvert af áður
óþekktum heimildum.“
Hefur þetta verið skemmtilegt starf?
„Ja, skemmtilegt — það hefur verið mjög
ánægjulegt, já. Ótalmargt hefur komið
manni á óvart. Kannski þó helst hversu víð-
tækar þessar hörmungar voru og hve víða
þeirra gætti“, sagði Sveinbjöm.
Heimildirnar sem hann og Gísli Ágúst
hafa safnað verða síðan gefnar út hjá Máli
og menningu.