Þjóðviljinn - 19.11.1983, Blaðsíða 5
- K\l?. t
lírirnovw: Of - ,0’ m'iit1.! ✓v-.i
Helgin 19. - 20. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Grensásvegi 13, símar 83577 og 83430.
Svipmyndir úr daglegu
Ingunn Eydal
sýnir á
Kjarvalsstööum
„Nei, ég kem ekki til með að
sleppa grafíkinni þó ég hafi aðal-
lega unnið í olíu á þessu ári“, sagði
Ingunn Eydal, myndlistarmaður,
sem í dag, laugardag, opnar sína
fyrstu málverkasýningu á Kjar-
valsstöðum.
Ingunn nam grafík við
Myndlista- og handíðaskólann og
hefur tekið þátt í um 50 grafíksýn-
ingum hér heima og víða erlendis.
Fyrsta málverkasýning Ingunnar,
þar sem gefur að líta rúmlega 40
olíumálverk, er haldin í tilefni þess
að hún fékk starfslaun Reykjavík-
urborgar ásamt Messíönnu Tómas-
dóttur árið 1983.
Myndefni Ingunnar er sótt í nán-
asta umhverfi hennar og daglegt líf
hvar sem er í heiminum. Ingunn
sagðist nánast hafa málað sig út úr
eldhúsinu. „Ég á fimm börn“,
sagði hún, „og hef verið bundin yfir
barnauppeldinu í mörg ár. Það er
merkilegt hvað það truflaði mig
lítið, - ég var að laumast til að
vinna í eldhúsinu meðan allt var á
fullu í kringum mig. Fyrst þegar ég
fékk frið og ró, börnin fóru í vinnu
og á dagheimili, þá var það þögnin
sem truflaði mig!“
Ingunn sagði starfslaunin hafa
komið að góðum notum, en hins
Stór og litsterk málverk Ingunnar eru frábrugðin grafikverkum hennar
sem flestir þekkja. Ljósm. - Magnús.
vegar væru þau ekki há og þyrftu
að vera fleiri á hverju ári. „Tíminn
verður að leiða í ljós hvað þetta
þýðir fyrir mig sem myndlistar-
mann“, sagði hún, „ég kem til með
að byggja á því sem ég hef verið að
vinna að á þessu ári. Ég kem ekki
til með að sleppa grafíkinni, þáð er
gott að svissa á milli."
Sýningin verður opnuð í hálfum
austursal Kjarvalsstaða á laugar-
dag kl. 14 og verður opin fram til 4.
desember kl. 2-22 alla daga.
-ÁI
Berber-teppi
349 kr./m2
staðgreitt
60% ull og 40% acryl.
Skymsamlegustu
teppakaupin.
Dæmi: Á 30 m2 íbúð
staðgreitt aðeins 10.470,-
30 litir í Berber-teppum.
Staðgreiðsluafsláttur -
Greiðsluskilmálar
Tepprlrnd
GISTIHUSIÐ
VIÐ BLÁA LÓNIÐ
Svartsengi við Grindavík. Sími 92-8650
Höfum opnað. Bjóðum alla gesti velkomna.
Bjóðum upp á gistingu og góðar veitingar á góðu
verði.
1 Verið velkomin. \
Þóröur Stefánsson
gistihússtjóri.