Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 1
DIOÐVIUINN Skelfiskurinn er Kjölfestan, segja hjón frá Stykkis- hólmi sem litu við á Þjóðviljanum fyrir skömmu. Sjá 6 desember þriðjudagur 285. tölublað 48. árgangur Visa stelst til að merkja sér vélar Eurocard „Því er ekki að neita að okkur finnst dálítið blóðugt hvernig að þessum málum hefur verið staðið. Eftir að við höfðum gefið Visa Island leyfi til þess að fá að nota þrykkivélar okkar þá gera þeir út sérstakan leiðangur, ganga í versl- anir, og merkja þrykkivélarnar í bak og fyrir Þeir hafa límt sérstaka auglýsingamiða frá Visa á vélarnar og þá gjarnan yfir miða sem augiýsa Eurocard kortin, einnig hefur verið límt yfir leiðbeiningar sem Euro card kortþegar eiga að styðjast við og til þess að bæta gráu ofan á svart þá hefur verið séð fyrir því að útskrift sem viðskiptavinirnir fá er með auglýsingu frá Visa Island. Og allt eru þetta vélar sem Eurocard keypti til handa verslunum þeim sem skipta við okkur. Við höfum sem sagt góðfúslega lánað Visa afnot af vélunum og þannig þakka þeir greiðann,“ sagði hneykslaður starfsmaður Kre- ditkorta sf. í viðtali við Þjóðviljann í gær. Miku harka komin í kredit kortastríðið "“«vsV ‘X, Þrykkivélin sem stríðinu veldur. Eins og sjá má er hún framleidd fyrir Eurocard en Visa fyrirtækið hefur látið fcsta á hana upphleypta málmplötu með Visa merkinu og kemur það fram á öllum kvittunum sem viðskiptavinirnir fá. Einnig hefur verið límd auglýsing frá Visa fyrirtækinu og sjá má til hægri á vélinni. - Ljósm. Magnús. Sovéska skákstirnið Garrí Kasparov jók í gærkveldi forskot sitt í einvíginu við Viktor Kortsnoj. Hann vann 9. einvígisskákina í að- eins 30 leikjum. Hver á hvað? Kreditkortastríð það sem hafið er milli Kreditkorta sf. sem gefur út Eurocard greiðslukortið og Visa Island virðast hafa harðnað allra síð- ustu daga þó stutt sé síðan Visa Island haslaði sér völl á innan- landsmarkaði. Visa Island er sameignarfyrirtæki fimm banka og 13 sparisjóða og er áætlað að aðildarstofnanir fyrirtækisins séu yfir 80% af bankakerfi landsins. Forstöðumaður er Einar S. Einarsson. Útvegsbanki íslands, Versl- unarbankinn og Sparisjóður vélstjóra standa fyrir rekstrin- um á Kreditkortum sf. sem gef- ur út Eurocard. Eurocard hefur verið í notkun innanlands sem utan. Forstöðumaður Kreditk- orta sf. er Gunnar Bæringsson. Tveir brœður unnu 560 þúsund kr. í getraunum , ,Forlögin réðii þessu“ segir Óskar K. Guðmundsson sem hefur tvisvar áður fengið 12 rétta „Þetta er alveg stórkostlegt í einu orði sagt“, sagði Óskar Guðmundsson ungur Reykvík- ingur sem ásamt Birgi bróður sínum vann stærsta vinning sem um getur í sögu getrauna eða alls 560 þúsund krónur. Þeir áttu eina seðilinn sem kom fram með 12 réttum auk þess sem þeir höfðu 11 rétta í 13 röðum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem . Óskar fær góðan vinning í getraun- um því fyrir tæpum þremur árum fékk hann 12 rétta og 17 þúsund krónur á þávirði að launum og í mars sl. fékk hann aftur 12 rétta og 20 þúsund krónur í það skiptið. „Ég hef ekki spilað í-mörg ár í þessu og bróðir minn er nýkominn í þetta með mér. Við spiluðum stíft í þetta skipti. Vorum með 108 bleika seðla og fylltum út eftir svokölluðu „Meistarakerfi“. Svo sannarlega skilaði það sér til baka. Seðlarnir kostuðu okkur 9.720 kr. en við fáum í sitthvorn hlut um 280 þús- und krónur.“ Á að halda áfram á sömu braut? „Það verður ekki nein breyting á áhuganum fyrir getraununum, en ég ætla ekki að senda inn sama kerfi aftur um næstu helgi. Ég ætia ekki að storka þessum góðu for- lögum sem gáfu okkur þennan stóra vinning. Við notum gamla góða kerfið okkar næst og sendum inn 27 gula seðla“, sagði Óskar Guðmundsson. -Ig. Mikill gróði í áfengisumboðum - 600.000 fyrir eina tegund Umboðsmenn bannaðir? Mikill áhugi er á því meðal þeirra sem eiga að móta tillögur að opinberri áfengis- stefnu að fella niður umboðsmannakerfi fyrir áfengi. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans munu hugmyndir um þetta hafa komið ítrekað fram í Áfengismálanefndinni sem starfa að mótun stefnunnar fyrir ríkis- stjórnina. Umboðsmennirnir þurfa ekkert að gera annað en setja frímerki á pantanir sem Jón Kjartansson forstjóri ÁTVR hefur ákveðið hverju sinni. Ágóði umboðsmannanna er sagður verða frá 3% til 10% af söluverð- mæti og getur numið af einni víntegund 600 þúsundum á ári. Einn umboðsmanna áfengisins er Sigurð- ur Tómasson mágur Jóns Kjartanssonar forstjóra ÁTVR. Annar er Hannes Guð- mundsson í „varnarmáladeild“. Margir um- boðsmenn þverbrjóta bann við auglýsing- um á áfengi. -óg Sjá 2 • Forstjóri ÁTVR sér i| H Nl sjálfur um pantanir dk SÍflR • Mágur forstjórans Mú er umboðsmaður • Auglýsingabannið þverbrotið Kl

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.