Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 3
VH'í' jvjriv .si't'.wh .1». AVM,\r<U\VA - A®?. 2 Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 „Menn vita ekki sitt rjúkandi ráðu Þegar það spurðist út í vor er leið, að Steingrímur Her- mannsson yrði forsætisráð- herra nýrrar ríkisstjórnar varð þessi vísa til: Nú er von á miklu mausi og miður góðu standinu, fyrst að Denni dæmalausi drottnar yfir landinu. Vissulega hefur verið „mikið maus“ og „miður gott stand“ síð- an þá, og segja má að ástandið í landinu sé með þeim hætti, nú um áramót og við upphaf vetrarver- tíðar, að verra hafi það ekki verið um áratuga skeið. Undirstöðu- atvinnuvegirnir, útgerð og fisk- vinnsla á heljarþröm og útgerðin þó sýnu ver á sig komin. Kaupmáttur launa minni en mið- aldra fólk þekkir af eigin raun, þúsundir manna um allt land án atvinnu og hreinlega allt í óvissu með komandi vertíð. Aftur á móti hafa milliliðirnir grætt á tá og fingri, eins og skýrt var frá í Þjóðviljanum í gær. Astæða þess er einföld, hin hrikalega kauplækkun, sem almenningur hefur orðið að taka á sig, hefur runnið beint í vasa eigenda þess- ara fyrirtækja. >rAllt í lausu lofti“ Af samtölum sem ég hef átt við nokkra útgerðarmenn víðsvegar um landið virðist ríkja mikil óvissa um allt er varðar komandi vertíð. Kristján Ásgeirsson, út- gerðarstjóri á Húsavík orðaði það svo að „allt væri í lausu lofti“ varðandi þessi mál. Kvótakerfið sem tilbúið átti að vera um ára- mót sér ekki dagsins ljós fyrr en í lok febrúar. „Samt verðum við sem rekum fiskvinnslu samhliða útgerð, sem þar að auki er undir- staða atvinnulífs staðarins, eins og togaraútgerðin og frystihúsið hér er, að hefjast handa þegar eftir áramót, hvað sem öllu kvót- akerfi líður" sagði Kristján og í sama streng tók Haraldur Stur- laugsson hjá HB&Co á Akra- nesi, sem sagðist verða að hefja veiðar, hvað sem liði kvótakerfi. Þótt mikil andstaða sé meðal útgerðarmanna gegn kvótakerf- inu, virðast flestir sætta sig við það einhvern tíma, vegna ástands þorsksstofnsins og ýmissa ann- arra nytjafiska um þessar mund- ir, samkvæmt því er fiskifræðing- arnir segja. Hitt er annað að menn vildu fá kvótann fyrir ára- mót og því lofaði raunar Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra, eðá í versta falli að allar aðallínur lægju fyrir um áramót, þótt tæknileg úrvinnsla drægist eitthvað fram í janúar. ískjóli þessa barði hann það í gegn fyrir jól að Alþingi afgreiddi lögin um veiðar í íslenskri landhelgi. En svo kemur bakslagið sl. miðviku- dag, enginn kvóti fyrr en 20. feb- rúar í fyrsta lagi. Fyrir bragðið „vita menn ekki sitt rjúkandi ráð“ eins og Leifur Halldórsson útgerðarmaður í Ólafsvík, sagði í samtali við undirritaðan. Leifur Halldórsson sagði að þeir félagar væru með 4 báta og saltfiskverkun og myndu þeirra bátar hefja róðra strax í byrjun janúar. „Um annað er ekki að ræða ef við ætlum að halda mann- skap. bæði á bátunum og ekki síður við. fiskvinnsluna í landi. Ef við vildum bíða með að taka okk- ar kvóta þar til hægara er að gera út en í hörðustu mánuðum ársins, þá höldum við ekki fólki, það bíður ekki atvinnulaust eftir því að okkur henti að gera út“, sagði hann ennfremur. Hann bætti því við að menn væru ruglaðir og ráð- villtir og hljóðið í mönnum væri ömurlegt. Leifur sagðist vita til þess að eigendur báta, sem ekki væru með fiskvinnslu í landi væru sumir hverjir amk. ákveðnir í að taka sinn kvóta þegar þeim hent- ar best og hagstæðast er að gera út. Á að láta fólkið ganga um atvinnu- laust? Haraldur Sturlaugsson á Akra- nesi, sem rekur stærsta útgerðar og fiskvinnslufyrirtækið þar í bæ sagðist myndi láta sína báta og togara hefja veiðar strax eftir ára- mót. „Vissulega er mikil óvissa ríkjandi í útgerðinni nú, kannski meiri en nokkru sinni. En við erum hér með hundruð manna í vinnu og ef við ætluðum að bíða þar til hagstæðast er fyrir okkur að gera út, þe. yfir sumarið þá gætum vio alveg eins lokað fyrir- tækinu fyrir fullt og allt. í fyrsta lagi er lang erfiðast að fá fólk í vinnu yfir sumarið, þegar sumar- frí standa yfir og einnig hitt, sem er þyngra á metum, ef við ekki förum af stað strax, hvað sem kvóta líður, þá missum við fólkið. Það getur enginn gengið hér um atvinnulaus og beðið þess að við byrjum. Ég vil í þessu sambandi líka benda á að okkar fólk, sem vinnur við undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar er það fólk sem minnst félagsleg réttindi hefur. Ef hráefni vantar, þá er því ein- faldlega sagt upp með viku fyrir- vara. Þetta er eini hópurinn í landinu sem býr við þetta, en vinnur samt við undirstöðuat- vinnuvegina. Við skulum bara líta á dæmi. Um jól og áramót eru allir sjúklingar sem mögulega geta farið, sendir heim til sín um jól og áramót og ekkert nema gott um það að segja. En veit ein- hver til þess að starfsfólki sjúkra- húsanna sé sagt upp þess vegna? Mér er ekki kunnugt um það“, sagði Haraldur. Jóhann K. Sigurðsson, útgerð- arstjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað tók mjög í sama streng og Haraldur. Hann sagði að hvað sem liði kvótakerfi, væri ekki um annað að ræða fyrir Síld- arvinnsluna en að senda sína tog- ara á sjó strax í byrjun janúar. „Við verðum að halda uppi at- vinnu og því er ekki eftir neinu að bíða hjá okkur. Við höfum verið að reyna að gera okkur grein fyrir því hvernig kvótakerfið muni virka, samfara minnkandi afla og munum reyna að stýra okkar starfsemi allri með þetta í huga. Því munum við reyna að koma því svo fyrir að alltaf séu einhver skip frá okkur að veiðum, til þess að reyna að halda uppi atvinnu. Það mun hjálpa okkur mikið að við erum með mörg skip og get- um því stýrt þessu svo lítið. Tog- arasjómenn okkar hafa tekið sér allt að 2ja mánaða frí á ári og við höfum sagt þeim það að nú verði að stilla fríin inná þetta kerfi, því annars gæti svo farið að þegar þeir ætluðu sér í frí neyddumst við til að stöðva viðkomandi tog- ara um tíma, vegna kvótakerfis- ins. Allt þarf þetta að smella sam- an,“ sagði Jóhann K. Sigurðsson. Rekstrarstaðan í allt haust hefur vofað yfir fjölda útgerðarmanna uppboð á nýjum skipum, vegna vanskila þeirra við Fiskveiðasjóð. Bæði forráðamenn Fiskveiðasjóðs og sjávarútvegsráðherra hafa haft orð um að bjarga verði þessum málum við með einhverjum hætti, finna verði lausn á þessum vanda, sem og rekstrargrundvelli skipanna. Enn hefur ekkert heyrst frá sjávarútvegsráðherra um þetta mál annað en að það sé í athugun. Uppboðum hefur verið frestað meðan beðið er eftir lausn mála, en ekkert hefur gerst enn og er þó komið að upphafi vetrar- vertíðar. „Það er vissulega slæmt að allt er í óvissu með kvótakerfið, en hitt er mun verra að rekstrarstaða útgerðarinnar er þannig að menn eiga ekki einu sinni fyrir olíu til að koma skipunum til veiða og um lán er ekki að ræða hjá flest- um varðandi olíukaup. Ég óttað- ist það að þessi slæma rekstrar- staða muni stöðva stóran hluta flotans f byrjun næsta árs. Hér hjá okkur á Húsavík hefur verið fjallað um þetta mál fram og aft- ur, m.a. í bæjarstjórninni. Vissu- lega eru uppi ýmsar hugmyndir, en hvort þær fást samþykktar eða nást fram, er önnur saga“, sagði Kristján Ásgeirsson á Húsavík. Aðrir útgerðarmenn tóku undir þetta og sögðu stöðuna mjög alvarlega og að þeir væru margir útgerðaraðilarnir, sem vissu ekki hvernig þeir ættu að koma skipum sínum til veiða, burt séð frá óvissunni varðandi kvótakerfið. Og á meðan eld- arnir brenna situr ríkisstjronin með öll mál í athugun mánuðum saman. Sannleikurinn er nefni- lega sá að ríkisstjórnin hefur ekki hugmynd um hvernig hún á að bjarga rekstrargrundvelli útgerð- arinnar. Á meðan milliliðirnir sitja við kjötkatlana og kunna sér ekki læti af ánægju vegna með gróða á árinu sem er að líða, sveltur útgerðin. Ástæðurnar eru í sjálfu sér augljósar. Með þeirri gífurlegu fjármunatilfærslu sem launalækkunin var, sl. hafa milli- liðirnir hirt gróðann, vegna þess að launagreiðslur eru mun stærri hluti af rekstri milliliða fyrirtækj- anna heldur en útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækja. Atvinnuleysið Þúsundir manna um allt land hefur verið án atvinnu mestan partinn í desember. Ástandið í atvinnumálum hefur ekki verið nálægt því eins slæmt undanfarin ár og nú er. Allt bendir nú til þess að lítið rætist úr vanda þessa fólks næstu vikurnar, eitthvað að vísu ef togararnir komast til veiða, en mjög lítið samt. Þá er einnig ljóst að sú aflatakmörkun og það kvót- akerfi sem á að koma á allar veiðar, mun hafa sitt að segja hvað atvinnu fólks viðkemur í hinum fjölmörgu útgerðarbæjum landsins. Óvíða eru svo margir togarar og bátar að menn geti stýrt veiðum undir kvótakerfi, eins og þeir í Neskaupstað, þann- ig að atvinna haldist. Ótti manna um langvarandi atvinnuleysi á næsta ári er því á rökum reistur. Og ef marka má það sem frá ráð- herrum ríkisstjórnarinnar hefur komið undanfarið, þá virðast þeir hafa meiri áhuga á að láta skrifa sendibréf ráðuneyta sinna með setu og stöðuheiti sitt með stórum staf en að leysa þann hrikalega vanda sem við blasir í atvinnulífi okkar íslendinga. -S.dór fréttaskýríng Sigurdór Sigurdérsson skrlfar ~

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.