Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. desember 1983 notað »9 nýtt Við lifum á jafnréttistímum og þá viljum við ekki vera að mismuna fólki og þá ekki heldur í skáld- skapnum, sem vér erum allir bornir til að iðka, íslenskir menn. Af hverju eru pípulagningarmenn jafnir fyrir guði og mönnum en ekki skáldin? Ég bara spyr svona. Mér hefur alltaf fundist það Ijótt og ókurteislegt að kalla sum skáld snillinga en önnur ekki. Hvers eiga þau að gjalda? Þau gætu móðgast og orðið miður sín og kannski fara þau að drekka og verða félagslegt tilfelli. Nei, við eigum að ganga út frá því að allt sem ort er sé gott og heldur til bóta. Og sem beturfereru slík við- horf að vinna á jafnt og þétt - bæði meðal vinstrisinna sem eru á móti borgaralegri samkeppni, sem ragar menn og metur eins og skreið, og meðal hægrisinna, sem hafa eðli- legan ímugust á persónudýrkun hinna rauðu, sem alltaf þykjastgáf- aðri en hinir. Skaði skrifar Hin sameiginlega opna ljóðabók landsmanna Þetta er góð þróun, en hún leiðir óumflýjanlega til þess að við nálg- umst þá framtíðarsýn sem heitir „hver maður sín bók“. Hver maður semur sína bók og hver maður les sína bók. Og þá fer að vanta ljóða- bók sem gegnir því hlutverki að sameina mannskapinn, byggja brýr milli vina, vinna á einsemdinni og því öllu. Líka mætti þetta vera eins- konar forskriftarbók fyrir börn sem eru enn ekki farin að yrkja. Svona bók á að vera einskonar opinn samnefnari fyrir margar bækur. Þar mættu vera eitt eða tvö dæmi um hvert það efni sem vin- sælt er og nauðsynlegt. Og í tilefni áramóta leyfi ég mér að bera fram nokkur sýnishorn úr slíkri bók Náttúruljóðið er veigamikið atr- iði í strjálbýlu landi. Það gæti til dæmis litið svona út: Ég ligg í grasinu og verð skáldlegur eins og grasið Borgarljóðið gæti aftur á móti verið til í tveim tilbrigðum, allt eftir því hvað menn vildu annars gera við náttúruljóðið. Fyrri mögu- leikinn er svona og gæti komið beint á eftir ofangreindu ljóði: Á örmjórri rönd milli steinsteypuskrýmslis og blikkbeljuslóða fölnar síðasta grasið. Hinn möguleikinn gerir svo ráð fyrir því, að ljóðið játist undir veru- Tilkynning frá Aflatryggingasjóði Með tilkynningu kvótakerfis á fiskveiðum munu mánaðarbætur sjóðsins falla niður frá og með 1. janúar n.k. Stjórn Aflatryggingasjóðs. Hrafnkell Stefánsson lyfsali, ísafirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 2. janúar kl. 3 eftir hádegi. Guðbjörg Jónsdóttir Ragnheiður Hrafnkelsdóttir Sigríður Hrafnkelsdóttir Hannes Hrafnkelsson Guðrún Hrafnkelsdóttir Jón Hrafnkelsson Margrét Björnsdóttir Stefán Hrafnkelsson Anna Ólafía Sigurðardóttir Guðrún Guðjónsdóttir Hreggviður Stefánsson Stefán Már Stefánsson leika borgarinnar, sjái hlutina í jákvæðu og uppbyggilegu ljósi: Húsin mín háu hafa stóra sál undir iljum mínum slær mabikshjartað hlýja bílarnir mínir bera konubrjóst. Jæja. Og þá er komið að kvenna- málunum sem eru einhver hin mestu mál: Ég er kona og karlinn er á fundi. Eg er kona og kakan brann við. Eg er kona og krakkarnir sípissandi. Eg^er kona og kemst ei til að skapa. Kvæðið sýnir meðal annars að það er mjög erfitt að vera kona og það er yfirleitt ekkert gaman að verða fullorðinn. Það er líka tekið rækilega fram í tímabæru kvæði sem fjallar um æviskeið mannsins: Einu sinni var ég lítill og þá leið mér vel. Nú er ég orðinn stór og mér líður ekki eins vel. Það er líka mjög erfitt að vera unglingur eins og skilja má af næsta kvæði: Ertu í búsi? hvœsti pabbi Ertu í hassi? æpti löggan Ertu ólétt? vældi mamma Ekkert má maður.... Einstaklingshyggjan verður líka að skilja eftir sig spor í hinni sam- eiginlegu ljóðabók landsins: Kletturinn stendur í briminu einn og óstuddur eins og ég Haha! í síðustu upphrópuninni má heyra þá djörfu ögrun sem býður örlögunum byrginn og minnir á marga ódauðlega ljóðaperlu eins og til dæmis „Aldrei skal ég eiga flösku". En það er líka til í dæminu að leggja áherslu á hið ramma afl örlaganna eða hinna félagslegu að- stæðna, sem eru reyndar eitt og hið sama: Ég er hjól eg er reim ég er skrúfa að mér herðir á mér herðir hringurinn alþjóðlegi En höfum við kannski gleymt ástinni? Það getur varla verið, en ef satt reynist þá er fljótgert að bæta úr því. Ástarsælan er sisona: Hvítar hendur í heitu húmi Andartakið ævilangt Þú strýkur mitt hár og ég strýk þitt hár. En við verðum líka að hafa það hugfast að til eru hin skelfilegu vonbrigði ástarinnar: Alsæll ég söng ofan á þér ástarvísur Svo greip mig illur grunur: Ég hefi komið hér áður. Nú er mál að linni enda eru yrkisefnin senn á þrotum. Þó er eftir að víkja að málum sem eru efst á baugi. Til dæmis verður að vera í ljóðabókinni baráttukvæði um friðarmálin: Þér stríðsæsingamenn! Þér kaupmenn dauðans! hér er mér að mæta! Það verður ekkert stríð! Það verður aldrei stríð! En það verður barist svo hart fyrir friði að ekki mun standa steinn yfir steini! Hitt dægurmálakvæðið lýtur að jólahaldinu sjálfu: Vetur líður kreppan ríður jólin koma Fáðu mér Fáðu mér kreditkortið mitt Garún Garún. Og þegar okkur hefur með þessu móti tekist að sameina nútímann þjóðlegri hefð á listrænan og eftir- minnilegan hátt getum við sett amen á eftir efninu. Skaði. Eftirlitsmaður með byggingaframkvæmdum Bæjartæknifræöingurinn á Akranesi auglýsir eftir umsóknum um starf eftirlitsmanns meö byggingarframkvæmdum viö Brekkubæjar- skóla. Starfssviö er daglegt byggingar- og fjármála- eftirlit meö framkvæmdum. Æskilegt er aö umsækjandi hafi haldgóða þekkingu á þeim sviðum. Staöan heyrir undir tæknideild Akranes- kaupstaöar og er hér um hlutastarf aö ræöa. Nánari upplýsingar veitir bæjartæknifræö- ingur Kirkjubraut 28, sími 1211. Umsóknum ber aö skila til Tæknideildar Akraneskaupstaöar, Kirkjubraut 28, 300 Akranesi fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 17. jan- úar 1984. Bæjartæknifræðingur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.