Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 Innlendur annáll 1983 Snjóflóðin á Patreksfirði ollu miklu manntjóni og gífurlegu eignatjóni. - Ljósm.: eik. s Ar hinna miklu lægða Ófrýnileg byrjun Árið heilsaði heldur ófrýnilega og allan janúarmánuð gekk á með stöðugum illviðrum, m.a. dýpstu lægð sem komið hafði yfir landið í 50 ár. Fór veðurlagið í skapið á mörgum og einn maður hreytti út úr sér er hann snaraðist inn úr óveðurs- hamnum: „Ef þessi afbrotamaður, Ingólfur Arnarson, hefði ekki hrökklast til landsins á sínum tíma þá væri ekki nokkur maður á þessu útskeri, kannski þó rússnesk veðurat- hugunarstöð.“ Dabbi hækkar strœtó Stjórnvöld voru tæplega í betri ham en veðurguðirnir og kannski voru janúar- lægðirnar fyrirboði þess sem koma skyldi, hinna djúpu kjaralægða ársins. Dabbi borg- arstjóri tók sig til og hækkaði alls konar gjöld án þess að spyrja kóng né prest. M.a. hækkaði hann fargjöld SVR um 50% og var sett lögbann á þá hækkun að kröfu Verð- lagsstofnunar. Skömmu síðar náði hann sér niðri á borgarbúum með því að hækka stöðumælagjöld um 500%. Sigurlaugu sparkað Auðvitað settu komandi alþingiskosn- ingar svip sinn á útmánuði og skutu próf- kjör og forvöl mörgum stjórnmálamannin- um skelk í bringu. Þeim armi Sjálfstæðis- flokksins sem studdi ríkisstjórn Gunnars Thoroddens, gekk vel í prófkjörum flokks- ins, og sigraði t.d Friðjón Þórðarson ráð- herra með yfirburðum í Vesturlandskjör- dæmi í janúar. Á Vestfjörðum klofnaði hins vegar Sjálfstæðisflokkurinn vegna þess að ekkert prófkjör var viðhaft og einnig vegna þess að Sigurlaugu frá Vigur var sparkað út í ystu myrkur. Varð hún ævareið og gerðist leiðtogi klofningsmanna fyrir vikið. Náttúruhamfarir á Patreksfirði Miklar náttúruhamfarir urðu á Patreks- firði 22. janúar en tvö geysiöflug snjó- eða krapaflóð féllu yfir þorpið og ruddu öllu með sér á sjó út. Ollu þau bæði manntjóni og miklu eignatjóni. 4 létust en 19 hús eyði- lögðust eða skemmdust. Má segja að mikl- um óhug hafi slegið á landsmenn við þessi tíðindi. K(h)valafullar umræður að mótmæla ekki ákvörðun alþjóðahval- veiðiráðsins og þar með fylgja henni eftir. Sumir töldu að viðskiptahagsmunir í Bandaríkjunum hefðu ráðið ákvörðun' margra þingmanna. Brestir í stjórninni Brestir fóru að koma í ljós í stjórnarsam- starfinu þegar líða tók á árið sem var fyrir- boði þeirrar hægri stjórnar sem sat í árslok. Forsætisráðherra bar fram frumvarp sem gerði ráð fyrir afnámi vísitölubóta á laun - gegn vilja Alþýðubandalagsins, og Fram- sóknarmenn og Sjálfstæðismenn í stjórn- inni lögðust gegn því að Hjörleifur Gutt- ormsson Iéti til skarar skríða með einhliða aðgerðum gegn hinu sviksamlega Alusu- isse. Þingflokksformenn falla út Það vakti töluverða athygli hvaða útreið formenn þingflokkanna fengu í undirbún- ingi kosninga. Ólafur G. Einarsson hafnaði í fjórða sæti í Reykjaneskjördæmi hjá Sjálf- stæðisflokknum, Ólafur Ragnar Grímsson sömuleiðis í fjórða sæti hjá Alþýðubanda- laginu í Reykjavík og Sighvatur Björgvins- son tapaði fyrir Karvel Pálmasyni í próf- kjöri Álþýðuflokksins á Vestfjörðum og varð af því mikill hvellur. Var þá ort: Kom á óvart krataval, kusu langsfrægt hanagal. Stendur enn um strönd og dal slóðin eftir Hannibal. Gegn Páli Péturssyni var hins vegar gerð uppreisn meðal Framsóknarmanna í Húna- vatnssýslum og buðu þeir fram BB-listann gegn B-listanum. Spurningin um Gunnar í mars hrundu stuðningsmenn dr. Gunn- ars Thoroddsen forsætisráðherra af stað undirskriftasöfnun til þess að hann færi í sérframboð til alþingiskosninga. f margar vikur hélt Gunnar mönnum volgum og var þetta eitt helsta umræðuefni manna. Ekki varð þó úr framboði og dr. Gunnar varð allur áður en árið var liðið. Brunar á Álafossi, Keflavík og Hellissandi Um mánaðamótin janúar/febrúar var um fátt meira talað manna á meðal en með- höndlun alþingis á tillögu um bann við hval- veiðum við ísland í samræmi við samþykkt alþjóðahvalveiðiráðsins. Eftir k(h)valafull- ar umræður í nokkra daga var ákveðið með eins atkvæðis meirihluta í sameinuðu þingi Um miðjan mars varð tugmiljóna króna tjón er birgðageymslur Álafoss brunnu og misstu um 120 manns vinnuna vegna brunans. Er þetta einhver mesti bruni sem orðið hefur hér á landi. Síðar á árinu brann, svo frystihúsið á Hellissandi til kaldara kola og var það mikið áfall fyrir byggðalagið. Ennfremur brann frystihús í Keflavík. Lágmarksframlag 13 aurar Hinn 28. mars voru stofnuð samtökin Ný sjónarmið. Markmið þeirra var að hrinda af stað söfnun til stuðnings Alusuisse. Lágmarksframlag í söfnunina átti að vera 13 aurar, en það er sú upphæð sem álverið í Straumsvík þurfti að greiðafyrirhverjakíló- wattstund til Landsvirkjunar. Félagsskap- urinn lét þrásinnis frá sér heyra fram á haust og ekki síst kvennadeild hans er nefndist Vorhvöt. Af einhverjum kynlegum orsök- um flaggaði Morgunblaðið þessum samtök- um frekar lítið. Frakkar í hrakningum Ýmsir lentu í miklum hrakningum á páskunum. Þó vakti hrakfallasaga tveggja Frakka mesta athygli. Annar þeirra lagði af stað fótgangandi einn síns liðs yfir Vatna- jökul og eftir 12 daga hrakninga komst til byggða nær örmagna af kali og vosbúð. „Þetta var hræðileg lífsreynsla“, sagði hann, „og ég myndi ekki leggja aftur upp á jökulinn þótt þið byðuð mér tugi miljóna franka.“ Hinn Frakícinn skrapp upp í Hall- grímskirkjuturn til að taka myndir en lok- aðist uppi og varð að dúsa þar í ískulda alla aðfaranótt föstudagsins langa. Sá föstudag- ur varð honum sannarlega langur. Friðarsinnar og Mogginn Friðarsinnar létu mikið að sér kveða á árinu og voru m.a. stofnuð samtök ýmsra hópa svo sem lækna og listamanna til að berjast gegn kjarnorkuvánni. Einn stærsti atburðurinn á þessum vettvangi var friðar- gangan 6. ágúst sem farin var frá Keflavík til Reykjavíkur og var geysifjölmenn. Kirkj- unnar menn tóku líka af skarið í þessari baráttu en Mogginn hafði hins vegar allt á hornum sér. Sigtúnshópur og samvinnufélag Eitt af loforðum stjórnmálaflokkanna fyrir kosningar var að hækka húsnæðislán en er líða tók á sumarið var allt útlit fyrir að ríkisstjórnin ætlaði að humma allar aðgerð- ir fram af sér. Þá reis upp geysiöflug hreyf- ing húsbyggjenda og kaupenda og boðaði hún til fundar í Sigtúni þar sem þess var krafist að eitthvað yrði gert í málinu. Lof- orð stjórnmálamanna fyrir kosningar hafði hljóðað upp á 80% lán af verði svokallaðrar staðalíbúðar, en nú hlupu þeir til og lofuðu 50% lánum. Þegar upp var staðið hljóðaði loforðið upp á 30% lán og var þó í árslok allt í óvissu með fjáröflun. Þá var líka stofnað öflugt húsnæðissamvinnufélag til að reisa leiguíbúðir en ekki var í árslok séð hvort stjórnvöld tækju við sér til að liðsinna því. Tala kvenna þrefaldaðist Alþingiskosningar fóru fram síðustu helgina í apríl og það sem var markverðast við úrslitin var það að tveir nýir þingflokkar bættust við þá sem fyrir voru. Þeir voru Bandalag jafnaðarmanna með 4 þingmenn og Samtök um kvennalista með 3 þing- menn. Þá þrefaldaðist tala kvenna á þingi, þær urðu nú 9 í stað þriggja áður. Einna mesta athygli vakti að Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, náði ekki kjöri en hann hafði hafnað í 7. sæti á lista flokksins í Reykjavík í prófkjöri. Annar þekktur stjórnmálaleiðtogi, Ólafur Ragnar Grímsson náði heldur ekki kjöri. Fylgi Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks hrundi í þessum kosningum, Sjálfstæðisflokkur vann lítils háttar á og Alþýðubandalag tap- aði lítils háttar. Leiftursókn gegn lífskjörum Margs konar stjórnarmöguleikar komu til greina eftir kosningar en þeir sem voru kannski ræddir í mestri alvöru var sam- steypustjórn Framsóknar og Sjálfstæðis- flokks eða stjórnþessaraflokkaog Alþýðu- flokksins. Síðarnefnda hugmyndin strand- aði hins vegar á því að Alþýðuflokkurinn krafðist þess að fá forsætisráðherraembætt- ið. Það var svo fimmtudaginn 26. maí sem Steingrímur Hermannsson myndaði stjórn- ina og var leiðandi stef í stjórnarsáttmálan- um: Leiftursókn gegn lífskjörum. Eldgosið í Grímsvötnum Um svipað leyti og hægri stjórnin var mynduð reiddust goðin og það fór að gjósa í Grímsvötnum í Vatnajökli og var það stór- fengleg sjón. Svo lagðist skýjaþykkni yfir jökulinn og þegar því létti var gosið búið. Guðlastarinn Úlfar Spegillinn, samviska þjóðarinnar, var endurvakin, en í lok maí var allt lögreglulið iandsins boðað út og 2. tbl. Spegilsins gert upptækt að kröfu ríkissaksóknará. Fyrst í stað var óljóst hvað ylli þessum aðförum og var þó nefnt klám og meiðyrði til að byrja með. Seinna var gefin út formleg ákæra um guðlast, klám og brot á prentlögunum og seinni hluta árs var Úlfar Þormóðsson, út- gefandi blaðsins dæmdur í sakadómi Reykjavíkur. Er hann annar maðurinn á þessari öld sem fær dóm fyrir guðlast og öfunduðu margir hann af. Ekki var hann þó dæmdur til að brennast á báli en hæstiréttur á þó eftir að fjalla um málið. Gullkorn Alberts Skömmu eftir að nýja stjórnin tók við stal Albert Guðmundsson fjármálaráðherra

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.