Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 1
MOÐVIUINN Landbúnað- arkálfurfylgir okkurídag Sjá9 -16 16 mars föstudagur 64. tbl. 49. árgangur Nýjar tillögur ríkisstjórnarinnar: Hækkun á tekj uskatti Rökstudd með tilvísun til ASÍ/VSÍ samninganna! Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í fjárhagsnefnd Efri deildar Alþingis lögðu í gær fram breytingartillögur við frumvarpið um tekjuskatt. Samkvæmt þessum tillögum ætlar ríkisstjórnin að hækka tekjuskatt einstaklinga. í nefnd- aráliti ríkissjórnarmeirihlutans er sagt að þessi skatthækkun sé til kymin vegna þess að kjarasamningar ASÍ og VSI og annarra aðila á vinnumarkaðinum færi fólki meiri tekjur en gert hafi verið ráð fyrir. Þess vegna ætli ríkissjórnin að hækka tekjuskattinn. Þegar fjármálaráðherra lagði fram skattafrumvarpið í desember benti stjórnarandstaðan á að í því fælist veri,i- leg þynging á sköttum almennings. Fulltrúar ríkissjórnarflokkanna viður- kenndu þetta eftir áramótin og lögðu til lækkanir á skattprósentunum. I gær komu svo fram tillögur frá ríkisssjórn- inni um að hækka þær á ný og nota sömu hækkanaprósentur og voru upp- haflega í frumvarpinu. Tekjuskattur verður því nú í þremur þrepum: 23%, 32% og 45%. Það vakti mikla athygli í þingsölum í gær að ríkisstjórnin skuli rökstyðja þessa skattahækkun með tilvísun til kauphækkananna sem fólust í kjaras- amningi ASÍ og VSÍ. Hluti kauphækk- ananna er því með þessum skattahækk- unum tekinn beint f ríkiskassann. óg Atli Hilmarsson skorar eitt níu marka sinna í gærkvöldi. Mynd: - eik Fjalakötturinn í borgarstjórn í gœr: - Avísun á niðurrif „Þessi samþykkt meirihlutans er ekkert annað cn ávísun á niðurril", sagði Álfheiður Ingadóttir, vara- borgarfulltrúi AB í gær. „ Þar vísar borgin allri ábyrgð frá sér og yfir á ríkið og um leið flytur borgarstjóri þau skilaboð frá menntamálaráð- herra að á þeini bæ scu engir pen- ingar til að sctja í Fjalaköttinn! Þetta cr hvorugum þessara aðila til sóma”. í svari meirihluta borgarstjórnar til bygginganefndar um framtíð Fjalakattarins, sem samþykkt var í borgarstjórn í gær, segir m. a. að það standi ríkinu nær að vernda húsið, ef þau rök sem færð hafa verið fyrir friðun þess standist. Þetta gátu fulltrúar minnihlutans ekki sætt sig við en tillaga frá þeim um að fella þessa klausu niður var felld. Fyrir borgarstjórn lá bréf frá undirbúningshóp sem nú vinnur að stofnun samtaka um Köttinn, þar sem farið var fram á að málið yrði ekki afgreitt, fyrr en hópurinn hefði kynnt borgarstjóra hug- myndir sínar m. a. um fjársöfnun. Ekki var á það fallist en þó sam- þykkt tillaga minnihlutans um að borgarstjóri ásamt tveimur borgar- fulltrúum ræddi við menntamála- ráðherra og þá sem lýst hafa áhuga á vernaun Kattarins. Deilur um sleppibúnað björgunarbáta á flotanum „Hann segir ósatt“ voru ummæli Stefáns Olafssonar og Karls Ólsen um yfirlýsingu Magnúsar Jóhannessonar hjá Siglingamálastjóra „Hann sagði hreinlega ósatt og hann vissi það full vel. Sannleikurinn er sá að eftir- spurnin eftir þessum lögbundna sleppibúnaði gúmbjörgunarbáta hefur ekki verið meiri en svo hjá okkur að 10% af vinnuafli smiðj- unnar hef'ur unnið að smíði bún- aðarins“, sagði Stefán Ólafsson annar tveggja framkvæmda- stjóra Vélsmiðjunnar Þórs í Vestmannaeyjum, sein framleiðir hina svo kölluðu Sigmundargála fyrir gúmbjörgunarbáta, um um- mæli Magnúsar Jóhannessonar aðstoðar siglingarmálastjóra í sjónvarpinu. Magnús sagði að ekki hefðist undan að framleiða slcppibúnað fyrir björgunarbáta og því væri helmingur Fiskiskipa- flotans án sleppibúnaðar. „Ég á þann sleppibúnað sem við framleiðum á lager og hefur svo verið um langan tíma. Ég fæ ekki betur séð en aðstoðar sigl- ingamálastjóri sé að reyna að bjarga eigin skinni með því að skrökva þessu upp. Hann lætur það nægja til að veita haffærnis- skírteini að eigendur bátanna hafi pantað sleppibúnaðinn. Það hafa margir útgerðarmenn gert, en síðan sækja þeir hann aldrei. Þeir eru að veiða og reyna að bjarga sér og gefa sér ekki tíma til að stoppa og setja búnaðinn í skipin" sagði Karl Olsen, fram- kvæmdastjóri Vélsmiðju O. Ol- sen í Njarðvík, um það sem að- stoðarsigiingamálastjóri sagði í sjónvarpinu. Karl sagði að það væri varla peningaleysi sem aftr- aði mönnum að fá sér þennan búnað. Hann kostaði ekki nema um 65 þúsund krónur kominn um borð í bátana. Magnús Jóhannesson settur siglingamálastjóri sagði aðspurð- ur um þetta mál í gær. „Þeir segja þetta. Þeir hljóta að vita það mennirnir. En ég vil aðeins segja það að frá því í haust höfum við ekki veitt skipum haf- færinisskírteini, nema fyrir lægi stafest pöntun viðkomand skips á þessum búnaði og kæmi fram að þeir hefðu ekki getað fengið hann og ekki talið okkur geta stöðvað skip ef það hefur ekki getað feng- ið gálgann“, sagði Magnús Jó- hannesson, settur siglingamála- stjóri, í samtali við Þjóðviljann í gær. Ljóst er að hér fer eitthvað milli mála, því að einungis 450 skip af 840 hafa fengið sér þennan bráðnauðsynlega búnað. -S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.