Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 16
Helgin 7.-8. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 16 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984 Rætt við Sigursvein D. Kristinsson skólastjóra á 20 ára afmæli skólans Kennarar og starfsfólk fyrir utan skólahúsið að Hellusundi 7. Skólastjórinn Sigursveinn D. Kristinsson, í hjólastól fyrir miðju. Aðrir á myndinni eru f.v.: Sigursveinn Magnússon, Símon Ivarsson, Janine Hjaltason, Joseph Brienes, Ásbjörn Jóhannesson.Sigrún Gestsdóttir.Einar Jóhannesson, Anna Normann.MichaelShelt- on, Steven Yates, Þóra Stefánsdóttir, Helga Helgadóttir, Janet Wareing, Brynja Guttormsdóttir, Rakel Jónsdótt- ir, Hafdís Kristinsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Hróðmar Sigurbjörnsson, John Speight, Daníel Þorsteins- son, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Guðrún Birgisdóttir, Joseph Fung, Adolf Hallgrímsson, Kathline Bjeden, Páll Hannesson, Júlíana Kjartansdóttir, Martial Nardeau, Reynir Kristjánsson, Ólöf Sigurðardóttir og Erna Másdótt- ir. Nokkra vantar á myndina. Ljosm.: gel Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonarertvítugurum þessar mundir og er nú að færa út kvíarnar með ný- bygginguíBreiðholti.Tón- skólinn er löngu orðinn fast- ur í sessi í menningarlífi höf uðborgarinnar og við gengum á fund Sigursveins í tilefni af þessum tímamótum til að forvitnast um upphaf skólans, starfsemi og framtíðarhorfur. - Þú komst að norðan, Sigur- sveinn? - Já, aðdragandinn að þessari skólastofnun byggist á starfi mínu norður á Siglufirði. Ég kom frá námi frá Þýskalandi haustið 1957 og var beðinn um að koma norður til að stjórna lúðrasveit. Ég hafði í farangri mínum nokkrar blokk- flautur og nótur og tveimur mán- uðum síðar var ég kominn með á annað hundrað nemendur. Um vorið var svo ákveðið að stofna Tónskóla Siglufjarðar með aðstoð verkalýðsfélaganna þar og vil ég sérstaklega nefna mikið og fórnfúst starf- Óskars Garibaldasonar að stofnun skólans en hann var þá framkvæmdastjóri verkalýðsfélag- anna Þróttar og Brynju. Þessi skóli varð töluvert vinsæll á Siglufirði. Ég var skólastjóri hans í 5 ár og sú reynsla sem fékkst af starfi hans benti til þess að einnig annars stað- ar kynni að vera grundvöllur fyrir svipaðan skóla. - Á hvaða fjárhagsgrunni var skólinn rekinn? - Þá voru engin lög komin um tónlistarskóla þannig að við nutum ekki opinberra styrkja. Það var áhugi verkalýðsfélaganna og fólks- ins á staðnum sem bar þennan ágæta ávöxt og við vorum líka að þessu fyrir litla peninga. Menningarþáttur verkalýðs- hreyfingarinnar - Og svo kemurðu suður? - já, ég fluttist suður vorið 1963 en það ár tóku gildi lög um fjár- hagslegan stuðning við tónlistar- skóla. Um þær mundir fór hópur manna, aðallega í forystu verka- lýðsfélaganna, að ræða um nauð- syn þess að stofna alþýðlegan tón- listarskóla en slíkum skólum hafði ég kynnst bæði í Danmörku og Þýskalandi. Stofnfundur Styrkt- arfélags skólans var svo haldinn 30. október 1964. Það er táknrænt að Tryggvi Emilsson skrifaði fyrstu fundargerðina og þarna voru fleiri þekktir verkalýðsforingjar sem voru áhugasamir um menningar- þátt verkalýðshreyfingarinnar. Um haustið samþykkti þing Al- þýðusambands íslands svofellda ályktun: „29. þing Alþýðusambands ís- lands fagnar þeim menningarauka, sem orðið hefur af starfsemi Tón- skóla Siglufjarðar síðustu 5 árin og telur að því fé, sem veitt hefur ver- ið skólanum til styrktar, hafi verið vel varið. Telur þingið, að fenginni þessari reynslu, að þess megi vænta að hinn nýstofnaði Tónskóli Sigur- sveins D. Kristinssonar í Reykja- vík geti orðið alþýðu landsins til menningarauka ef ekki skortir nauðsynlegt fé til að búa skólanum viðunandi starfsskilyrði.“ - Þetta hefur verið mikilvægt? - Já, ASÍ samþykkti að veita okkur árlegan styrk og nokkur fé- lög aðallega Dagsbrún, Iðja, Tré- smíðafélag Reykjavíkur og nokkur fleiri hafa æ síðan veitt okkur nokkurn styrk. Þetta var sérstak- lega mikilvægt framan af til að hægt væri að kaupa hljóðfæri. Það er líka mikilvægt atriði í skipulagsskrá Tónskólans að styrktarfélagið sjálft eignist enga peninga heldur væru þeir fjármunir sem félagið kæmist yfir alltaf eign skólans sjálfs. Þetta varð til þess að tryggja að félagið sjálft yrði ekki ríkt eins og stundum hefur gerst um lík fé- lög. Litlu krakkarnir komast ekki í bœinn - Er ekki sérstaklega kveðið á um það að Tónskólinn skipuleggi kennslu í úthverfum til þess að létta börnum þar aðgang að námi? - Jú, það er rétt og við höfum reynt að gera það alla tíð þó að það Sigursveinn Magnússon aðstoðarskólastjóri aðstoöar ungan nemanda. Ljósm.: gel. að bíða alllengi eftir að fá úthlutað lóð og fengum hana sl. vor og húsið þar er orðið fokhelt. - Og hvenær verður það tekið í notkun? - Það er ætlunin að taka í notkun 4-5 kennslustofur í haust en alls verða 11 kennslustofur í húsinu þegar það er fullgert og að auki 130 fermetra æfingasalur. - En miðstöð skólastarfsins hef- ur verið niðri í bæ? - Já, okkur tókst að komast yfir viðunandi húsnæði í Hellusundi 7 árið 1971 og þar hefur aðalskólinn verið. - Eru Breiðhyltingar áhuga- samir um tónlist? - Þetta er orðið geysilega stórt hverfi, ætli búi ekki um 30 þúsund manns í Breiðholti og langmest ungt fólk. Það eru langir biðlistar að komast í skólann. Litlir krakkar komast ekki niður í bæinn og fólkið er ekki það efnað að það geti varið fjármunum og tíma til þess að flytja þau á milli. Ég held að Breiðhylt- ingar fagni tilkomu þessa nýja húss. - Hversu margir nemendur og kennarar eru í skólanum? - Síðustu árin hafa verið um eða yfir 550 nemendur en fyrstu árin voru þeir um 100. Kennararnir eru um 35, þar af um helmingur í fullu starfi. Tilgangurinn að auka almenna mennt- un - Eru eingöngu börn og ung- lingar í skólanum? - Að meirihluta en einnig erum við með undirbúningsdeild fyrir fullorðna og þeir eru á öllum aldri. Elsti nemandinn nú er 72 ára. Sér- staða skólans er m.a. í því fólgin að við erum ekki eingöngu að leita uppi hæfileika til að ala upp fagfólk heldur er tilgangurinn að auka al- menna menntun á þessu sviði og kenna fólki sem hefur ekki nema takmarkaðan tíma. Fjöldi fólks hefur komið til okkar sem hefði kannski ekki dottið í hug að fara í aðra skóla. Við höfum líka hvatt það til að koma hingað og æfa sig á hljóðfærin ef það á ekki hljóðfæri sjálft. - Veitir skólinn einhver sérstök réttindi? - Það er einungis Tónmennta- Slgursvelnn: Verkalýðshreyfingin hefur alKaf verið ná- tengd skólanum. Ljósm.:eik. hafi ekki alltaf gengið vel vegna húsnæðisskorts. Fyrstu árin fór kennsla fram að miklu leyti á heimilum kennara og í leiguhús- næði í borginni. Þeir sem leigðu okkur þurftu svo kannski að nota húsnæðið sjálfir og þá hrundi það starf sem við vorum kannski byrj- aðir á þar. Tónlistarnám verður að byggja upp á nokkrum árum, það er ekki hægt að kenna bara í eitt ár. Árið 1976 byggðum við lausa kennslustofu og fengum leyfi til að setja hana á lóð Fellaskóla í Breiðholti til að mæta vaxandi að- sókn á því svæði og var hún með þremur litlum kennslustofum sem löngu eru fullnýttar. Við höfum síðan stefnt að því í nokkur ár að byggja í Breiðholti og vorum búnir kóli Sigursveins á Er í 7. himni Sálfræðin segir að hjónabandsleysi orsaki kvef. Adelaide (Sigríður Þor- valdsdóttir) grípur til sálf ræðinnar til þess að lokka Natan Detroit (Bessa Bjarnason) í hjónabandið. Ljósm. Atli Gæjar og píur í banastuði í Þjóðleikhúsinu í hlutverki Næslí Johnson segir Flosi Ólafsson leikari og þýöandi verksins Þaðvarlíf og fjörá sviði Þjóðleikshússins ívikunni, þegarblaðamaður Þjóðviljans fékk að fylgjast með æfingu á söngleiknum Gæjarog Píur, sem frumsýndur var í gærkvöldi. Söngleikir eru vandmeðfarið leikhúsform, og það er trúa mín að sjaldan hafi jafn fagleg vinnubrögð sést í Þjóðleikshúsinu þar sem saman fer fjör og gáski og ótrúleg nákvæmni í flókinni sviðssetningu, þar sem fléttað er saman leikatriðum söngvum og dönsum og iðandi götulíf og undirheimarNew Yorkborgar verða Ijóslifandi fyrir manni með Ijósaflóði sínu og skuggaborgum í snilldarlega útfærðri leikmynd. Þetta er heimur fjárglæfra- manna, loddara og lauslætisdrósa þar sem hjálpræðisherinn heyr blinda baráttu gegn syndinni en draumurinn um ástina og hjóna- bandið svífur yfir vötnunum eins og vera ber í sönnum amerískum söngleik. Söngleikurinn er byggð- ur á sögum og sögupersónum bandaríska rithöfundarins Damon Runyon, tónlistin og söngtextarnir eru eftir Frank Loesser en leikhandritið eftir þá Jo Swerling og Abe Burrows. — Næslí Johnson á varðbergi gagnvart fulltrúa hins opinbera siðgæðis (Rúrik Haraldsson og Flosi Ólafsson) Ljósm. Atli. \ Fjöldi manns tekur þátt í sýning- unni, og eru leikarar og dansarar 42 en 16 manna hljómsveit leikur í gryfjunni. Leikstjórar eru þeir Benedikt Árnason og Kenn Oldfield frá Bretlandi, en tónlistinni stjórnar Terry Davies frá breska þjóðleik- húsinu. Leikmyndina gerði Sigur- jón Jóhannsson en hinir fjölskrúð- ugu búningar eru teiknaðir af Unu Collins frá Bretlandi, sem gert hef- tímamótum Á laugardag var hátið í nýja húsinu í Breiðholti, sem nú er fokhelt. Hér er Sigurveinn D. Kristinsson að stjórna nemendahljómsveit. kennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík sem veitir réttindi en við leitumst við að fullnægja ákvæðum laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Það er eitt af megin- markmiðum skólans. Nemendur frá okkur hafa margir farið í nám erlendis og sumir komið aftur til okkar til að kenna við skólann. Þar get ég t.d. nefnt Símon ívarsson, Arnald Árnason og Sigursveinn Magnússon. Ég vildi gjarnan geta þess að mjög áhugasamir kennarar með góða menntun hafa ráðist að skólanum og það hefur styrkt stöðu hans meira en nokkuð annað. Ég tel að við höfum grundvallað „standard" í gítarleik hér á landi. Þar höfðum við úrvals kennara, Gunnar H. Jónsson. - Hvað með skólagjöld? - Þeim hefur alltaf verið stillt í hóf og við höfum verið í lægri kant- inum með þau en eftir því sem við höfum meira umleikis verður reksturinn kostnaðarsamari. Þeir sem komnir eru langt í náminu þurfa að læra miklu fleiri greinar en þeir sem eru að byrja. Forskóla- kennslan er hins vegar hópkennsla, bæði fyrir börn og fullorðna. Það er eins konar hreinsunareldur og þeir sem komast í gegnum hann eru búnir að átta sig á því hvort þeir vilja halda áfram. - Telurðu að viðhorf til tónlist- árnáms hafi breyst síðan þú byrjað- ir? - Já, ég held það. Það er meiri sókn í þetta nám núna heldur en hefði getað hugsast þegar við byrj- uðum. Ég lærði það á Siglufirði að foreldrar líta ekki síst á tónlistar- nám sem félagslegt og þroskandi nám fyrir börn. Þetta er félagsleg upplifun og að vera t.d. í hljóm- sveit bindur þau ákveðnum bönd- um. Við þurfum endilega að rækta þennan þátt í þjóðfélaginu - það veitir ekki af því að fólk hafi áhuga- mál af slíku tagi. - Þú átt við í stað þess að horfa á sjónvarp eða eitthvað þvíumlíkt? - Já, ég er hissa á að fólk skuli lifa við það að glápa á það allan sólar- hringinn. En ég er nú náttúrlega orðinn gamall og á nú ekkert sjón- varp, kæri mig ekki um það. - Að lokum, Sigursveinn. Kenn- irðu ennþá sjálfur? - Já, svolítið. Ég kenni tveimur hópum krakka í forskóla og hef mikla ánægju af og svo er ég líka með hljómfræði fyrir þá sem eru að verða búnir. - GFr. ur búninga við fjölmargar sýningar hér á landi. Þýðingin á texta leiksins hefur verið sérstök þraut, og verður ekki annað séð en að þar hafi snilldar- lega tekist til í mörgum tilvikum, þar sem mállýska undirheima New Yorkborgar flæðir fram á ástkæra ylhýra málinu, eins og aldrei hafi öðruvísi verið talað á íslenskri tungu. Og það var einmitt þýðand- inn, sem blaðamaður króaði af í leikhléi á æfingunni, en hann fer jafnframt með veigamikið hlutverk Næslí Næslí Johnson í leiknum: FIosi Ólafsson, var það ekki meiri háttar þrekraun að snúa þessum texta yfír á íslenska tungu? Tja, ég er nú svo þversum, skal ég segja þér, að ég hef helst gaman af að fást við það sem álitið er óger- legt. Ég hef þýtt eina bók um æf- ina, Catcher in the Ray eftir Sa- linger, og ég hefði aldrei farið út í það verk nema af því að góðir menn, glöggir og velviljaðir höfðu sagt mér að það væri á einskis manns færi að þýða þá bók. Guys and Dolls þýddi ég á svipuðum for- sendum. Þetta er söngleikur um þessa dýrlegu karaktera Damons Runyon og hann er skrifaður með málfari skemmtilegra byssubófa í New York. En auðvitað tekur það á taugarnar að sjá blaðsíðu eftir blaðsíðu af þessum snjalla texta fokkast upp í þýðingunni, því ég get sagt þér að frumtextinn er alveg dýrlegur samsetningur, bæði í söngvum ogsamtölum. En éggerði eins og ég gat, - reyndi að gera söngvana sönghæfa og textann tal- hæfann, - síðan er annarra að dæma um hvernig til hefur tekist. Eru Gæjar og píur gott bók- menntaverk? Já, alveg tvímælalaust. Hvað gera gæjar þegar harkið bregst? Benni Soutstreet (Sigurður Sigur- jónsson), Natan Detroit (Bessi Bjarnason) og Næslí Næslí Johnson (Flosi Ólafsson) ásamt tveim öðrum skuggalegum gæjum úr undirheimum New York. Ljósm. Atli. Hvað er það sem gefur verkinu bókmenntalegt gildi? Fyrst og fremst er þetta bráð- skemmtilegt verk, og það þarf ekki endilega að vera galli á leikbók- menntum eða bókmenntum yfir- leitt að þær séu skemmtilegar, þótt margir listvitringar hyggi að listin eigi að vera leiðinleg. Er þetta dæmigerður amerískur söngleikur? Já, og að margra dómi er hann haganlegast gerður í byggingu og framsetningu af öllum bandarísk- um söngleikjum til þessa, enda hef- ur hann verið í gífurlegum metum meðal leikhúsmanna. Lawrence Olivier átti til dæmis enga ósk heitari en að fá að leika hlutverk Natans Detroit í leiknum, en hann var orðinn of gamall þegar leikurinn var tekinn upp á sviði enska þjóðleikhússins fyrir tveim árum. En þar gengur hann enn og hefur hlotið betri viðtökur en nokkurt annað verk sem sýnt hefur verið á sviði The National Theatre fyrr eða síðar. Iiefur þú séð þá uppfærslu? Já, hún er sennilega ekki síðri en uppfærslan hjá okkur hérna í Þjóð- leikhúsinu. Hvað með hlutverk þitt í leiknum? Ég leik Næslí Næslí Johnson og er alveg í 7. himni, hvað svo sem áhorfendum kann að finnast. Það gildir urn þetta sjó eins og önnur að þar spyrjum við að leikslokum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.