Þjóðviljinn - 13.04.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.04.1984, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN Klippið út og geymið dag- skrá friðarvikunnar. Við birtum hana í blaðinu í dag. bls. 5 apríl föstudagur 86. tbl. 49. árgangur Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra: Verð- um að styrkja fyrir- tækin „Hefur einhver þessara þjóða sem borið er saman við haft 12% samdrátt í þjóðarfram- leiðslu? Ég er ekkert hissa á því þótt hér hafi kaupmáttur dreg- ist saman. Að mati Þjóðhags- stofnunar hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna dregist sam- an sem nemur samdrætti þjóð- artekna. Ég er ekkert hissa á þessu og það sýnir bara að við verðum að hefja sókn til að styrkja fyrirtækin, sem eru grundvöilur okkar tekjuöflunar og það er okkar næsta verk- efni“, sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra að- spurður um niðurstöðu Kjara- r annsóknarnefndar. -S.dór Fastur I gatlnu? Blaðafulltrúl ríklsstjórnarinnar á leið af ríkisstjórnarfundi um fjárlagagatið í gær. (Ijósm. Atli) Skýrsla Kjararannsóknarnefndar sem birtist í Þjóð- viljanum hefur að vonum vakið óhug meðal fólks, þegar í Ijós kemur að ísland er orðið eitt mesta lág- launasvœði í V-Evrópu, jafnvel ítalir hafa hœrri laun en við íslendingar og Spánverjar eru komnir uppað okkur. Þjóðviljinn innti í gœr forsœtisráðherra, Steingrím Hermannsson,ogGuðmund J. Guðmunds- son formann Verkamannasambands íslands álits á þessu máli. Forsætisráðherra vísar skuldbreytingu til Framkvæmdastofnunar ÞESSIR PENINGAR ERU EKKI TIL Segir Ólafur G. Einarsson sem á að finna nokkra tugi miljóna „Mér þykja það ekki skyn- samleg vinnubrögð að taka einn þátt útúr og setja hann yfir á Framkvæmdastofnunina að leysa eins og ætlast er til, samkvæmt bréfi forsætisráðherra til stofn- unarinnar. Ég vil fá að sjá málið í víðara samhengi en við sjáum það núna. Við bíðum eftir úrræðum til að leysa vanda fleiri aðila, svo sem skuldbreytingar í sjávar- útvegi. Ef menn vilja að Fram- kvæmdastofnun leysi þetta mál þá er það ekki verri aðferð en hver önnnur, en Framkvæmda- sjóður á ekki þetta fé til“. Þetta sagði Ólafur G. Einars- son alþingismaður en hann á sæti í stjórn Framkvæmdastofnunar en á síðasta sjórnarfundi var lögð fram tillaga um að stofnunin út- vegaði fé til skuldbreytinga fyrir bændastéttina. Ólafur tók fram að Alþingi hefði samþykkt þessa skuld- breytingu sem þýðir að útvega verður fé til að framkvæma lögin. Hann tók einnig fram að ekki væri búið að ræða þetta mál í stjórn stofnunarinnar, hann væri því aðeins að lýsa sinni skoðun á málinu. -S.dór. Guðmundur J. Guðmundsson form. VMSÍ: Segjum upp fyrsta sept. „Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart, laun hafa verið að síga jafnt og þétt og ég hef grun um að laun hafi undanfarið sigið meira en Kjar- arannsóknarnefnd gerir ráð fyrir í sínum útreikningum. En það sem mér þykir enn alvarlegra er að allt bendir til þess að þessi þróun haldi áfram“, sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður VMSI í sam- tali við Þjóðvi|jann í gær, og hann bætti við: „Menn hljóta að rísa upp og spyrja, hvað verður af öllum þjóð- artekjunum, þjóðarauðnum. ís- lendingar eru dugleg þjóð, sem af- kastar miklu. Sjómenn okkar veiða meira en sjómenn annarra landa. Fiskvinnslan okkar er með þeim af- kastamestu sem þekkjast og selur afurðir á bestu mörkúðum. Aftur á móti þarf að skýra ýmislegt. Af hverju er olía dýrari hér en annars- staðar, hvers vegna greiða Færey- ingar helmingi hærra verð fyrir loðnu íslensku skipanna en við, af hverju eru skipaviðgerðir fram- kvæmdar erlendis, hve mikið fé draga eigendur fyrirtækja útúr þeim til eigin nota?, svo nokkur dæmi séu nefnd. Hér þarf greinilega að taka til hendinni og endurskipulagningar er þörf“. Verður þetta til þess að verkalýðs- hreyfingin kastar stríðshanskanum? „Ja, ég get aðeins svarað fyrir mitt félag, Dagsbrún, við segjum upp samningum 1. september nk.“ -S.dór. 1982:100 Kaup- máttar- hrapið Meðaltal kaupmáttar tímakaups árið 1982 er sett á 100. Kaupmáttar- hrapið er slíkt, að árið 1983 er meðaltalið 80,42 og samkvæmt spám hagfræðinga 74,24 (Heimild hagfræðingar ASI)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.