Þjóðviljinn - 28.04.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 28.04.1984, Blaðsíða 10
H Aiti+' — *>,»►» /5. - <*i' niý'í^h 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Hcigin 28. - 29. aprfl 1984 um og einar níu lausblaðamöppur með afritum af skjölum, tímarits- greinum, bréfum og blaðaúrklipp- um. Þar er m.a. afrit af gjafabréf- inu umdeilda og útfararræðan, af- salið fyrir Herdísarvík og Krísuvík, saga þeirra jarða og ábúenda og svo mætti lengi telja. Það er því af sem áður var. Nú hrópar nafn skáldsins og allt hans líf á menn í Herdísarvík og enginn sem þar hefur viðkomu eða nætur- stað kemst hjá því að sökkva ofan í þau kynstur af fróðleik sem bóka- safnsfræðingar Háskólans hafa matreitt þar af mestu snilld. Skyldu menn t.a.m. ekki löngu vera búnir að gleyma því að það var Einar Benediktsson sem gaf Reykjavík- urbæ Gvendarbrunnana, þegar Guðmundur Björnsson, síðar landlæknir, var að berjast fyrir vatnsveitunni til að útrýma opnum brunnum bæjarins og taugaveiki- faraldri sem þar átti upptök sín? Fyrir þessa greiðasemi fékk skáldið síðar ókeypis vatnslögn inn í Höfða, þegar hann hugðist setjast þar að. Það er alla vega ómaksins vert að rifja þessa sögu upp nú, þegar allt virðist stefna í að Gvend- arbrunnar hverfi undir steinsteypu og mannvirkjum Vatnsveitu Revkjavíkur. Á stað eins og Herdísarvík leitar margt á hugann. Spurningunni um það, hvernig maður Einar Bene- diktsson var, verður áfram ósvarað þótt allt yrði lesið. Borgarbúanum finnst húsið svo einmana í hrauninu að hann fer ósjálfrátt að trúa því að næsta byggð sé beint í suður á Azoreyjum! Það er erfitt að ímynda sér síðustu æviár skálds- ins þarna í hrauninu, hváð þá 18 ára einveru Hlínar í Herdísarvík að honum látnum. Samt sem áður er það auðveldara en að ímynda sér æviár Einars Benediktssonar á blómaskeiði lífs hans í London og Kaupmannahöfn. Spurningarnar vakna fleiri og fleiri því meira sem lesið er. Hvað skyldi hafa gerst ef Einar Benediktsson hefði verið uppi með stóru áformin sín á okkar tímum? Og hvað hefði gerst ef Sverrir Her- mannsson hefði verið ráðherra en ekki Hannes Hafstein þegar Einar bauð fram erlent auðmagn til að virkja landsins gagn og nauðsynj- ar? Því verður hver að svara fyrir sig. Tiigangurinn með þessu greinarkorni var aðeins að sýna hvernig síðasti bústaður skáldsins er nú og vekja athygli á því ágæta gagnasafni sem Hf hefur tekið saman um líf og starf Einars Bene- diktssonar. Hugsun þeirra Hlínar mun hafa verið að koma upp í kringum bústaðinn öðrum húsum, þar sem fræðimenn gætu haft að- setur og unnið í ró og næði að hugð- arverkum sínum. Til þess er stað- urinn kjörinn og hver veit nema að því eigi eftir að koma? -ÁI. 1. maf kaffi SvalannaHótel Sögu kl. 14.00. HJaðin borð af kræsingum. Stórkostiegt happdrætti, ferðavinningar og boð á veit- ingahús, leikföng og margt fleira. Tískusýningar kl. 14.30 og kl. 15.30. Fatnaður frá Tískuverslun Guðrúnar. Svölukaffi svíkur engan. Allur ágóði rennur til líknarmála. SVÖLURNAR, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja. RVÍK Hús skáldsins og mannsins Einars Benediktssonar Séð yfir heimatjörnina sem Hlín lét setja silung í þeim Einari og gestum til matar. - Myndir: Ál. Fyrir sjö eða átta árum lagði blaðamaður Morgunblaðsins leið sína suður í Herdísarvík og varð sú för upphaf mikilla blaðaskrifa. Háskólinn hafði þá þegar tekið litla svarta húsið, dánargjöf Einars Benedikts- sonarog Hlínar Johnson.til notkunar sem sumardvalar- stað fyrir starfsmenn sína, en mönnum þótti sem skáldinu væri þar lítill sómi sýndur. Sagði fyrrnefndur blaðamaður, Elín Pálmadóttir, m.a. að í hús- inu væri ekkert sem minnti á tilvist Einars Benediktssonar. Bókasafnið, ein 500 bindi, var þá löngu komið í betri geymslu hjá Hl og sófasettið fræga með vísundaskinninu fékk að grotna niður mölétið og fúið í einhverri geymslu í höfuðstaðnum. í framhaldi af þessu skrifaði Jó- hannes Helgi rithöfundur litla grein, þar sem hann „leiðrétti" blaðamanninn; sagði það ekki rétt að í Herdísarvík minnti ekkert á skáldið. Þar héngi yfir dyrum post- ulínsdiskur með mynd hans og fengjust slíkir fyrir lítið í Ramma- gerðinni! Þá upplýstist innan tíðar að hús- gögnin hafði sjónvarpið eitt sinn fengið að láni í leikmynd við Heddu Gabler og þáverandi rekt- or, Guðlaugur Þorvaldsson, lýsti því yfir að við þau yrði gert, jafnvel þótt kostnaður næmi heilli miljón gamalla króna. Þau voru kölluð dýrustu húsgögn iandsins. Nú tróna þau í „Skólabæ“, fundar- og samkomustað háskólakennara við Suðurgötu. 7 árum síðar En af hverju skyldi nú annar blaðamaður á öðru blaði vera að rifja þessi gömlu skrif upp? Ástæð- an er sú að ofanskráð er allt að finna, skipulega upp sett í gagna- safni Háskólans um Einar Bene- diktsson og safnið er í Herdísarvík. Þar eru öll prentuð ljóð hans og laust mál, aðrar bækur, sem gefnar hafa verið út um manninn og skáldið, spólur með upplestri ým- issa manna á ljóðum hans, stórar ljósmyndir með skýringum á veggj- Hér eru gagnamöppurnar góöu ásamt nokkrum myndum af Einari Bene- dlktssynl og Hlín Johnson. þessu horni stóö bókaskápur Einars Benediktssonar og stóri hæginda- stóllinn. Úr suðurglugganum sér beint út á Atlantshafið. f stofunni í Herdísarvík hefur veriö hlaöinn upp arinn sem einhverjum kann að þykja fallegur. Á honum er fyrirkomið miklu steinasafni og bakveggurinn klæddur hraungrjóti. Orlofshús Háskóla íslands stendur á skiiti við heimtröðina að Herdísarvík. Landið er allt vel girt og vandlega merkt sem friðland þegar að því kemur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.